Morgunblaðið - 14.11.1979, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 14.11.1979, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 1979 7 Hringvegurinn — dæmi um blekkingar Framsóknarmenn eru orónir aðþrengdir í póli- tfaka áróðrinum þegar þeir þurfa að eigna sér bókstaflega allt, sem aör- ir hafa gert á þeasum áratug — nema auövitaö hafa þeir ekki komið ná- Issgt verðbólgumetinu sínu á „Framsóknarára- tugnum“l Eitt af því, sem Tíminn tíundar á sunnu- dag sem afrek Fram- sóknar er hringvegurinn — og þar með vegagerð- in um Skeiðarársand. Hór er auðvitað um örgustu blekkingu að rœða og lítið dæmi um málflutninginn í Tíman- um um þessar mundir. Það var Jónas Pétursson, alþingismaður Sjálfstæð- isflokksins og einn helzti forvígismaður hans á Austurlandi, sem hleypti þessu mikla máli af stokkunum með því að leggja fram frumvarp þar um veturinn 1970. Alþingi samþykkti svo lög um happdrættislán til að fjár- magna veg og brýr um Skeiðarársand, sem tengdi hringveg um land- ið. Þjóöhátíðarnefnd, sem starfaði vegna 1100 ára afmælis íslands byggðar, tók svo þetta mál upp á arma sína og vegagerðarmenn báru þaö loks fram til sigurs. Vegurinn var vígður 1974. Þetta er aðeins lítið dæmi um málflutning þeirra, sem þykjast nú „eiga“ þennan áratug, eins og engir aðrir hafi búiö í landinul En þeir ættu heldur að slá eign sinni á verðbólguna — hún er hvort eð er þeirra eina skrautfjööur á „Framsóknaráratugn- um“. Annáll afreksmanna Svavar Gestsson, verð- lags- og gengismálaráð- herra Alþýöubandalags- ins, sá, sem nú skipar öndvegiö á framboðslista þess í Reykjavík, hefur öðrum mönnum fremur varðað kjaraveg launa- fólks á liðnum 13Vj mán- uði vinstri stjórnar. Hann lagði fram á liðnu sumri tillögur um 7% nýjan innflutningsskatt á allar vörur, sem ekki átti að koma fram í vísitölu. Gjaldið hefði aö sjálf- sögðu hækkað vöruverð (þ.e. rýrt kaupmátt), en átti hins vegar að vera Jónas Pétursson. utan vísitölu og verðbóta á laun. Þessi tillöguflutn- ingur náöi ekki fram að ganga, en söm var gerð Svavars. En lítum á nokkrar aðrar vörður við ráðherraveg Alþýðu- bandalags: • — Samkvæmt upplýs- ingum, sem dreift var á kjaramáiaráöstefnu ASÍ lækkaði kaup- máttur launa um 12% á 13 mánuöum frá því í september 1978. • — Kaupmáttur elli- og örorkulífeyris lækkaðí um 11,3 stig á 9 mán- uðum frá því á fjórða ársfjórðungi 1978, er vinstri stjórnin kom til valda. • — Björn Arnórsson, hagfræðingur BSRB, telur skorta 10 til 15% á kaupmátt launa sam- kvæmt samningum miðað við kosningalof- orðið „samningana f gildi“. • — Erlendur gjaldeyrir hækkaði að meðaltali um rúm 50% í tíð vinstri stjórnar (á 13% mánuði), sem að sjálf- sögðu hafði ótvíræð og skerðandi kjara- og kaupmáttaráhríf. Ferðamannagjaldeyrir hækkaði á sama tíma um 85%. • — Vísitöluskerðing vinstri stjórnarinnar, frá því að hún fór að hreyfa við verðbóta- vísitölu í desember 1978, jafngildir 3ja vikna launum verka- manns í beinhörðum peningum. Fyrri vinstri stjórn (1974) tók verð- bótavísitölu hreinlega alfarið úr sambandi, svo að fordæmið var tiltækt. • Hér eru talin nokkur dæmi efnda á slagorð- unum: kosningar eru kjarabarátta, kjósum ekki kaupránsflokka og samningar í gildil, sem í tízku voru vorið 1978. Efndirnar hefðu getað orðið enn ríku- legri, ef 7% innflutn- ingsskattur, sem Al- þýðubandalagið vildi fá fram, án bóta í vísitölu, hefði hlotið náö fyrir augum sam- starfsflokka. Já, það er margs aö minnast, margt að þakkal Erhann eanfirtreswr og síþyrstur? Hikstar við inngjöf? Seinn í gang? Fáðu þér ny CHAMPION kerti og leyfóu honum að sýna hvað hann getur.Og síðast en ekki síst getur þú minnkað bensín eyðslu bíls þíns um allt að 10%, ef þú gætir þess að setja reglulega í hann ný CHAMPION kerti. Allt 3 sama Stað Laugavegi 118-Simar 22240 og 15700 EGILL VILHJÁLMSSON HF VANTARÞIGVINNUg) VANTAR ÞIG FÓLK í Þl AUGLVSIR t’M AI.I.T LAND ÞEGAR Þl AUG- LÝSIR Í MORGUNBLADINU Notaöur 19 feta Shetland, árg. '78 meö vagni og vél. Benco Bolholti 4, s. 21945. Utankjöretaðakosning Utankjörstaðaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins er í Valhöll, Háaleitisbraut 1, símar 39790, 39788, 39789. Sjálfstæðisfólk, vinsamlegast látið skrif- stofuna vita um alla kjósendur, sem ekki eru heima á kjördegi. Skrifstofan gefur upplýsingar um kjörskrá. Utankjörstaðakosning fer fram í Miðbæjar- skólanum alla daga 10—12, 14—18 og 20—22 nema sunnudaga 14—18. ÞAÐ ER SAMA HVERT UTIÐ ER HURÐIRNAR ERUALLAR FRA SIGURÐI ELlASSYNI COMFORTA f VATNSHREINSITÆKI á Tært vatn i hvert hús Veistu hvað mörg útköll hjá þvottavéla- uppþvotta- Hvéla- þlöndunar og hitastýritækjaseljendum eru vegna óhreininda í vatninu? Þau eru mörg. mErlendis eru vatnshreinsisíur settar við inntök á hverju húsi. Þú verndar mikil verðmæti með litlum tilkostn- _[_ aði er þú notar GROHE COMFORTA vatnshreinsi- tækin. Auðveld í uppsetningu og einfalt í viðhaldi. O B.B.BYGGINGAVÖRUR HF SUOURLANDSBRAUT 4. SlMI 33331. (H. BEN. HÚSIÐ)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.