Morgunblaðið - 14.11.1979, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 1979
17
Kaupfélag ísfirðinga:
Innlögðum dilkum
fjölgaði um 6,65%
LOKIÐ er haustslátrun hjá
Kaupfélagi ísfirðinga og var
slátrað 12.051 dilk og 1.379
rosknu fé eða samtals 13.430
kindum.
Miðað við slátrun í fyrra fjölg-
aði innlögðum dilkum um 6.65%
og rosknu fé um 56.7%, en innveg-
ið kjöt af dilkum reyndist 1.35%
minna og kjöt af rosknu fé 47.5%
meira. Meðalvigt dilka varð 14.5
kg eða 1.15 kg minni en í fyrra.
Fjörtíu dilkar fóru nú í stjörnu-
flokk, en 10 í fyrra.
Þá er lokið stórgripaslátrun og
var nú slátrað 200 nautgripum eða
helmingi fleiri en í fyrra, en
hrossaslátrun var að þessu sinni
óveruleg.
Frá ráðstefnu Sambands íslenskra sveitarfélaga á Hótel Sögu i gær. Myndina tók Emilía Bj.
Björnsdóttir.
Verðbólgan leikur
sveitarfélögin
verr en flesta aðra
— sagði Jón G. Tómasson formaður Sambands ísl. sveitar-
félaga við setningu ráðstefnu Sambandsins í gær
„VEGNA stjórnmálaástandsins
í landinu og vegna þeirrar
almennu óvissu í efnahagsmál-
um sem nú ríkir, til dæmis er
varðar alla kjarasamningagerð
og afgreiðslu fjárlaga, sem
óneitanlega hafa i meira eða
minna mæli áhrif á fjárhags-
áætlanagerð sveitarfélaga, er
þessi fundur okkar nú haldinn
við aðrar aðstæður en áður, og
ætla verður að margar sveita-
stjórnir muni nú leita heimilda
til að fresta gerð fjárhagsáætl-
unar fram á næsta ár, þar til
stefnumörkun i þessum efnum
hefur verið tekin.“ Svo fórust
Jóni G. Tómassyni, formanni
Sambands islenskra sveitarfé-
laga, meðal annars orð við
setningu fjármálaráðstefnu
Sambandsins á Hótel Sögu i
Reykjavík.
Jón sagði ennfremur, að allt
síðasta ár hefði verið samfelldur
stormur og alltaf úr sömu átt-
inni, verðbólguáttinni, þótt ein-
staka sviptivinda hafi einnig
gætt, er varða fjármál sveitar-
félaga. „Verðbólgan er enginn
einkaóvinur sveitarfélaganna,"
sagði Jón, „en leikur þau ef til
vill verr en flesta aðra. Tekjur
sveitarfélaga fylgja ekki verð-
lagsþróun nema að óverulegu
leyti."
Sagði Jón sveitarfélögin því
öðrum fremur hafa þurft að
takast á við verðbólguna, þar
sem tekjustofnar þeirra væru
miðaðir við úrelt verðlag. Sveit-
arfélögin þyrftu á hverjum tíma
að marka sér ábyrga stefnu í
fjármálum, og væri því vissulega
æskilegt ef á hverjum tíma
mætti leita fyrirmyndar hjá
ríkisvaldinu.
A ráðstefnunni gerði Ólafur
Davíðsson, hagfræðingur í Þjóð-
hagsstofnun, grein fyrir ýmsum
forsendum fyrir gerð fjárhags-
áætlana sveitarfélaga fyrir kom-
andi ár, Guttormur Sigurbjörns-
son, forstöðumaður Fasteigna-
mats ríkisins, skýrði frá álagn-
ingu fasteignaskatta á næsta
ári, Brynjólfur I. Sigurðssson,
hagsýslustjóri, fjallaði um hlut-
verk Fjárlaga- og hagsýslu-
stofnunar við gerð fjárlaga-
frumvarpsins og Þorsteinn Eih-
arsson, íþróttafulltrí ríkisins
sagði frá rekstri sundstaða.
Eftir hádegið kynnti Hrólfur
Asvaldsson, viðskiptafræðingur,
nýtt form fyrir ársreikninga
sveitarfélaga, sem Hagstofa
Islands vinnur nú að , fjallað var
um tölvunotkun við bókhald
sveitarfélaga og rædd viðhorf
varðandi nýja kjarasamninga
við starfsmannafélög starfsfólks
sveitarfélaga.
Málverkasýning
í nýju galleríi
Magnús Þórarinsson heldur um
þessar mundir málverkasýningu
í nýju galleríi að Laugavegi 12.
Magnús er sjálfur aðstandandi
þessa gallerís sem hann hefur
gefið nafnið „Nýja galleríið“.
irnar eru málaðar á síðustu 36
árum, og eru flestar þeirra lands-
lagsmyndir víðs vegar að af land-
inu. Sýning Magnúsar stendur
fram í miðja næstu viku og er opin
kl. 13—18 daglega.
A sýningunni eru 35 málverk,
olíu- og vatnslitamyndir. Mynd-
Efnahagsnefnd Ef ta:
Varfærin
efnahags-
stefna
nauðsynleg
HAGVÖXTUR í Evrópu minnkar
liklega úr 3% i 2% á næsta ári að
óbreyttri stefnu er niðurstaða
efnahagsnefndar Efta er haldinn
var í Genf í byrjun mánaðarins
og stafar það af vaxandi verð-
bólgutilhneigingu, segir í frétt
frá efnahagsnefndinni.
Efnahagsnefndin athugaði hag-
þróun á íslandi, í Portúgal og
Sviss. Full atvinna hefur haldist á
íslandi og í Sviss, en verulegt
atvinnuleysi í Portúgal er mikið
efnahagsvandamál. Hátt olíuverð
hefur magnað sérstakan verð-
bólguvanda á íslandi, þar sem nú
er nauðsyn á varfærinni stefnu í
stjórn á eftirspurn í því skyni að
snúa verðbólguþróuninni við,
kemur einnig fram í frétt nefndar-
innar af fundinum.
Framboðsfundir í
Vesturlandskjördæmi
SAMEIGINLEGIR framboðsfundir allra flokka verða haldnir í
Vesturlandskjördæmi sem hér segir:
Hellissandi, föstudaginn 16.11. Kl. 8.30 sd.
Ólafsvík, sunnudaginn 18.11. Kl. 15.00 eh.
Breiðabliki, mánudaginn 19.11. Kl. 8.30 sd.
Stykkishólmi, fimmtudaginn 22.11. Kl. 8.30 sd.
Búðardal, föstudaginn 23.11. Kl. 8.30 sd.
Logalandi, þriðjudaginn 27.11. Kl. 8.30 sd.
Borgarnesi, miðvikudaginn 28.11. Kl. 8.30 sd.
Akranesi, fimmtudaginn 29.11. Kl. 8.30 sd.
Jóhanna Bogadóttir i vinnustofu sinni. Ljósmynd Mbl. Emilia.
Jóhanna sýnir í Eyjum
JÓHANNA Bogadóttir með blandaðri tækni, alls
opnar sýningu í Akoges- 32 myndir.
húsinu í Vestmannaeyjum Sýningin er
fimmtudaginn 15. nóv. kl. opin til sunnudagskvölds
20. Þar sýnir hún málverk, 18. nóv., daglega frá kl.
grafík og „relief“, unnin 16—22.
Þ j óðdansafélagið
sýnir á Akureyri
ÞJÓÐDANSAFÉLAG Reykja
víkur er um þessar mundir á ferð
um landið með eina af sínum
stærri sýningum. Þessi dans-
flokkur sem skipaður er 24 döns-
urum ásamt fylgdarliði verður á
Akureyri laugardaginn 17. nóv-
ember og sýnir i samkomuhúsinu
kl. 20.30.
Efnisskrá sýningarinnar skipt-
ist í þrjá hluta, þ.e. söngdansa,
kaupstaðarball og gömlu dansana.
Stjórnandi sýningarinnar er Kol-
finna Sigurvinsdóttir.
Þetta er fyrsta opinbera dans-
sýning Þjóðdansafélags Reykja-
víkur á Akureyri. Félagið hefur
áður sýnt víða um heim, m.a. í
Bandaríkjunum, Kanada, Þýska-
landi, Norðurlöndunum og Aust-
urríki.
Sigurður RE
aflahæstur
NÍI liggur fyrir endanleg röð
efstu báta á nýliðinni loðnu-
vertíð. Röð fjögurra efstu báta
varð sem hér segir:
1. Sigurður RE 17.580 tonn
2. Óli Óskars RE 17.053 tonn
3. Börkur NK 15.123 tonn
4. Bjarni Ólafsson AK 15.060 tonn
Sigurður RE hefur margoft orð-
ið aflahæsti bátur á loðnuvertíð en
Óli Óskars hefur ekki áður verið
svona ofarlega. Skipstjórar á Sig-
urði eru Kristbjörn Árnason og
Haraldur Ágústsson en skipstjóri
á Óla Óskars er Eggert Þorfinns-