Morgunblaðið - 14.11.1979, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 14.11.1979, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 1979 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsíngastjóri Ritstjórn og skrifstofur Auglýsingar Afgreiósla hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Baldvin Jónsson Aðalstræti 6, sími 10100. Aðalstræti 6, sími 22480. Sími 83033 Áskriftargjald 4000.00 kr. á mánuöi innanlands. i lausasölu 200 kr. eintakið. Jafnrétti fatlaðra Sá hópur þjóðfélagsþegna, sem fatlaður er með einum eða öðrum hætti, er — því miður — hlutfallslega stærri en fólk almennt gerir sér grein fyrir. Málefnum þessa tiltölulega stóra minnihlutahóps í þjóðfélaginu hefur ekki verið nægur gaumur gefinn, hvorki að því er varðar heill og hamingju viðkomandi einstaklinga, né þá auðlind, sem rétt virkjað vinnuafl þessa hóps gæti verið og ætti að vera í þjóðarbúskapnum. Mannréttindi fatlaðra eru takmörkuð, miðað við flesta aðra, og þeim mun meir, sem viðkomendur eru meira fatlaðir. Þeim hefur ekki verið sköpuð jöfn aðstaða til að nýta námsleiðir, sem þjóðfélagið kostar; til að komast leiðar sinnar, heim og heiman; til að njóta menningarmið- stöðva, svo sem Þjóðleikhúss; — eða sækja lífsfyllingu í dagleg störf í kviku þjóðlífsins. Þeir vinnustaðir eru t.d. hverfandi, ef nokkrir, sem þann veg eru hannaðir, að fatlaður maður í hjólastól geti starfað þar. Forhliðin á þessu máli, sem sjáendur hafa ekki séð, a.m.k. til skamms tíma, er sú, að þjóðfélagið þarf að gera fötluðum kleift að njóta almennra mannréttinda: til náms, umferðar, atvinnu og menningarlegs lífs. Meöal annars með réttri hönnun húsa, vinnustaða, farartækja og umferðarmannvirkja. Bakhliðin er sú, að þjóðfélagið á í þessum minnihlutahópi lítt virkjaöa auðlind huga og handa, sem gæti orðið virkari í þeirri verðmætasköpun, er endanlega ber uppi lífskjör okkar sem heildar og einstaklinga. Morgunblaðið minnti á það í leiðara um miðjan september á liðnu ári, að samkvæmt könnun á Norðurlönd- um væru um 15% hverrar þjóðar fötluð og það væri þjóðfélagsleg skylda, aö þetta fólk mætti í hvívetna njóta jafnréttis við aðra. Nógur kross væri á það lagður þó það þyrfti ekki að standa í stímabraki við opinbera aðila og aðra vegna sjálfsagðs jafnréttis í samfélaginu. Svör Sjálfstæðis- flokksins Sjálfstæðisflokkurinn hefur sent frá sér svör við fyrirspurnum Sjálfsbjargar, félags fatlaðra, og Blindrafélagsins, samtaka blindra og sjónskertra, varðandi stöðu þessara minnihlutahópa í þjóðfélaginu. Spurn- ingarnar varða rétt fatlaðs fólks og aðstöðu til stjórnmála- þátttöku, setu á Alþingi, til að gegna störfum í opinberu stjórnkerfi, til starfsaðstöðu almennt í þjóðarbúskapnum, lífeyrismála o.fl. þátta, er móta lífsramma viðkomandi fólks. I svörum Sjálfstæðisflokksins kemur skýrt fram, að hann telur að fatlaðir eigi að njóta sama réttar og aðrir til menntunar, starfs og þjóðmálaþátttöku. Breyta þurfi opinberum húsakynnum, starfsaðstöðu á vinnustöðum og umferðaraðstöðu, svo þessu sjálfsagða markmiði verði náð. Bent er á að Valhöll, hús Sjálfstæðisflokksins, sé þann veg hannað, að fatlaðir eigi greiðan aðgang um húsið, þar sem fundir og flokksstarf fari að mestu fram, og stefnt sé að þeim frágangi lóðar og aðstöðu utanhúss, er auðveldi fötluðum leið inn í húsið. Sömu sjónarmið þurfi að ríkja um húsakynni þings og sveitarstjórna, verzlunar- og þjónustustofnana, þann veg að fatlaðir fái eins líka aðstöðu og frekast er unnt að skapa þeim. Setja þurfi skýrari ákvæði í byggingarreglugerðir, til samræmis við lagaheimildir, til að tryggja frágang bygginga í þágu fatlaðra, þ.á m. skýr ákvæði um hönnunarstaðla. Flokkurinn leggur í svari sínu áherzlu á, að fatlaðir eigi í hvívetna að njóta sama réttar í þjóðfélaginu og vera jafnir öðrum fyrir lögum landsins. Heitir hann því að vinna að framgangi slíks réttar og telur raunar, að hann hafi sýnt vilja sinn í þessu efni í stefnu sinni og gjörðum. Sjálfsbjörg og Blindrafélagið hafa gert sitt til að knýja fram stefnumörkun stjórnmálaflokka í mikilvægum mál- um innan síns starfsramma. Slíkt framtak er lofsvert. FJÖLLEIKAHÚSIÐ Þegar Viöreisnarstjórnin fór frá, var verðbólgan um 7%, aö vísu eftir veröstöövun. Ástæöur þess, aö. viöreisnarflokkarnir töpuöu kosningunum þá, voru aö sjálfsögöu ýmsar, en ekki sízt sú, aö fólk var oröiö leitt á þeim ráðherrum, sem svo lengi sátu í stólunum. Þá hvarflaöi ekki aö neinum, að verri tímar í pólitík kæmu með nýjum herr- um. En því miður reyndist þaö svo. Hákarlaskiþið Ólafur Jó- hannesson var í uppsiglingu. íslendingar tóku áhættu og breyttu breytingarinnar vegna — og hafa nú uppskoriö 60% veröbólgu. Þeir eru aö vísu á hraöri leið inn í Guinnesmeta- bókina fyrir bragöiö, en slíkt „afrek" væri ekki eftirsóknar- veröara fyrir okkur en þótt viö slægjum fáránlegasta heims- metiö í bókinni, t.d. hver getur grett sig mest og geiflað lengst? En þaö var einmitt þaö, sem geröist, þegar vinstri stjórnin tók viö völdum 1971. Þá upp- hófst á íslandi pólitískur hruna- dans sem enn stendur yfir — og viö sjáum því miöur ekki fyrir endann á. Þessi vinstri stjórn gekk púöruö og plokkuö inn á sviöiö og hóf kúnstir sínar viö þó nokkurt lófaklapp. En þegar Ólafur Jóhannesson og komm- arnir tóku aö standa á höföi runnu tvær grímur á marga, jafnvel klapþliöiö. Sýningar- flokkur fjölleikahúss vinstra liðs- ins ætlaöi aö breyta öllu þjóöfé- laginu í sirkus, en áhorfendur stóöu þá upp, píptu þessa skrýtnu karla niður eftir stutta sýningu, þeir misstu pólitísku hárkollurnar á flóttanum af sviö- inu — og menn vörpuöu öndinni iéttar. Síöan uröu aftur kosningar og pólitískir trúöar voru úr sögunni í bili. Sjálfstæöisflokkurinn var kall- aöur til og haföi komiö verð- bólgunni niöur í 26%, þegar fjölleikaflokkur vinstra liösins þoldi ekki viö lengur. Þjóöfélag- iö var aö breytast aftur úr sirkus í alvörusamfélag hugsandi fólks. En fjölleikaflokkurinn tók þá til sinna ráða. Hann breyttist í skemmdarverkamenn. Undir forystu súperstjörnu í gráu gamni og pólitískum konstum „Jakans mikla" var verkalýös- rekendum sigaö á þá, sem önnum kafnir reyndu aö lækna veröbólgumeiniö meö aögerö- um, sem e.t.v. heföu dugaö, en þá heföi líka orðið aö loka fjölleikahúsinu — og trúöarnir missti atvinnuna. En fólkinu í landinu — þá ekki sízt láglauna- fólkinu —heföi verið borgiö. Allt var notað í baráttunni gegn ríkisstjórn Geirs Hallgrímsson- ar, jafnvel ólöglegt útflutnings- bann. Burt meö kaupránsflokk- ana, var hrópaö. Margir klöpp- uöu trúöunum lof í lófa, en ábyrgir stjórnmálamenn hrökkl- uöust frá völdum. Nýr flokkur fjölleikahússins kom nú fram á sjónarsviöiö og notaöi fjölmiölana óspart. Sigur vinstra liðsins lá í loftinu; síðan á boröinu. Ólafur Jóhannesson, sem vann kosningarnar meö því aö tapa þeim, hóf hrunadans aö nýju og sat sirkus hans að völdum í 13 mánuöi, en blómstr- aði einkum á hundadögunum, eins og vera bar. Nói sigraði flóöið á 40 dögum og jafn mörgum nóttum, en Ólafi Jó- hannessyni og leikflokki hans tókst aö koma verðbólgunni yfir 60% á 400 dögum og jafnmörg- um nóttum — en kaupmátturinn minnkaöi um 1% á mánuöi. Stefna Ólafs og fjölleikaflokks- ins verkaöi eins og olía á veröbólgubáliö. Þá olíu höfum viö fengiö ókeypis og án arö- ráns Rússa. Eftir þetta var Ólafur talinn hæfasti stjórn- málamaöur landsins í skoöana- könnun fjölleikablaösins! Fjölleikahúsiö haföi enn sigr- aö. En ekki leiö á löngu þar til efna þurfti til nýrra kosninga, m.a. til aö reyna aö breyta sirkusnum aftur í þjóöfélag. Ólafur á aö hafa sagt: Þaö er stutt leið til Bessastaða — en nú telur hann sér henta aö koma viö í höfuðborginni eins og Jörundur hundadagakonungur foröum daga. En stefnan er söm og áöur, því aö um Ólaf má segja þaö sama og stúlkutetrið í þjóösögunni, sem var í „fram- boði“ þrátt fyrir gallana: aö ekki bregöur mær vana sínum. Brúðguminn í þjóösögunni hafnaði „unnustunni". Og nú er það á valdi kjósenda, hvort leið Ólafs hákarlaformanns undir hásætishimininn veröur stutt — eöa ógöngur einar. Margt bend- ir til, aö ýmsum þyki nóg komið af svo góöu — og þakki fyrir „skemmtunina“. Hér í lokin er ekki úr vegi aö minna á orö Lao Tze: Sá, sem er ánægöur meö sjálfan sig, vekur ekki eftirtekt. Og ennfremur mætti minnast þess, að sá, sem tyllir sér á tá, stendur ekki stöðugur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.