Morgunblaðið - 14.11.1979, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 14.11.1979, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 1979 Arnarflug festir kaup á Twin Ott- er flugvél ARNARFLUG hefur keypt flugvél af gerðinni Twin Otter til nota í inn- anlandsflugi félagsins. Mun hún fara í ársskoðun áður en hún verður afhent og er væntanleg til lands- ins í byrjun næsta mánað- ar. Frá því Arnarflug hóf innan- landsflug í september sl. hefur félagið notað smærri leifíuvélar og segir í frétt frá Arnarflugi að þær hafi á engan hátt annað flutningum, sem farið hafi sí- fellt vaxandi og hafi verið kann- að hvers konar vél myndi henta til flugs innanlands er félagið gæti keypt. Auk vélarinnar er keypt hefur verið leigir Arnar- flug Twin Otter vél af Flugfélagi Norðurlands og verða því tvær slíkar vélar til umráða í des- ember. Frá starfi fiskiþings i gærdag. Ljósm. EmiKa. Kjartan Jóhannsson um þorskveiðitakmarkanir á næsta ári: Miðað við sömu forsendur og í ár verður að f jölga banndögum Góð f ærð á landinu FÆRÐ á landinu var yfirleitt ágæt í gær. Góð færð á Suður- og Vesturlandi og á milli Reykjavíkur, Akureyrar, Siglufjarðar, til Ólafs- fjarðar var rutt og einnig var opið til Húsavíkur og austur um til Þórshafnar. Möðrudalsöræfi voru ófær, Vatnsskarð í Borgarfirði eystri og Fjarðarheiði voru fær stórum bílum. Á Vestfjörðum var Þorskafjarðarheiði ófær og Breið- dalsheiði. „NÚVERANDI takmörkunarað- gerðir í þorskveiðum hafa að ýmsu leyti reynzt ófullnægjandi og er því unnið að undirbúningi hugsanlegrar löggjafar í þessu sambandi í ráðuneytinu. Þar er í fyrsta lagi um að ræða heimild til verðjöfnunar milli tegunda til þess að beina sókn úr ofnýttum í vannýttar tegundir," sagði Kjart- an Jóhannsson sjávarútvegsráð- herra í ræðu sinni á Fiskiþingi í gærdag. Sjávarútvegsráðherra sagði ennfremur, að afli af öðrum bol- fisktegundum en þorski hefði auk- ist mjög á árinu og virtust þær vera fullnýttar miðað við þá veiði sem Hafrannsóknastofnunin hefði mælt með. „Verðjöfnun milli teg- unda er einmitt nauðsynlegt stjórntæki ef hafa á stjórn á Oliumálin: Rússum svarað á fímmtudagiim „Svar til Rússa vegna olíuvið- Mbl. í gær, en hann kvað ekki skipta mun liggja fyrir 15. þ.m.,“ liggja ljóst fyrir hvort það svar sagði Kjartan Jóhannsson við- yrði þar sem enn væri verið að skiptaráðherra í samtali við vinna í málinu. „Heimspeking- ar Vesturlanda“ Ný bók eftir Gunnar Dal FYRIR nokkru er komin út ný bók eftir Gunnar Dal, „Heimspekingar Vestur- landa". Er þetta þriðja bók- in um þetta efni eftir Gunnar Dal. Á undan komu „Indversk heimspeki" og „Grískir heimspekingar“. Á kápusíðu segir m.a.: „Bókin „Heimspekingar Vesturlanda" greinir frá vestrænum heimspek- ingum og kenningum þeirra, alls tuttugu og fimm að tölu, frá Ágústínusi helga til Jean-Paul Sartre, en þá aðskilur sextán hundruð ára reginhaf umbrota og aldarhvarfa í andlegu lífi hinnar vestrænu menningarheildar. í bókinni hrannast saman mikill fróðleikur í búningi sem er að- gengilegur hverjum sem er, þótt eigi hafi hann hlotið skólun í heimspekilegu námi, enda lætur höfundi einkar vel að ræða erfið efni á alþýðlegan og ljósan máta.“ Víkurútgáfan gefur bókina ut. sókninni í hinar ýmsu tegundir. Þá er í öðru lagi í athugun að afla ótvíræðra heimilda til að setja bindandi hámarksafla á ofnýttar tegundir, t.d. með útgáfu afla- leyfa, skiptingu afla á landsvæði eða tímabil," sagði ráðherrann ennfremur. Hann sagði að þessar hugmynd- ir myndu koma til umfjöllunar hagsmunaaðila og umræðu þegar þær væru komnar í aðgengilegan búning og vænti hann þess, að um þær gætu farið fram ítarlegar umræður þannig að sem flestum, sem hlut eiga að máli, gæfist tækifæri til þess að átta sig á kostum þeirra og göllum. Sjávarútvegsráðherra sagði varðandi takmarkanir á þorsk- veiðum á næsta ári, að unnið væri að undirbúningi tillagna og val- Éosta í þeim efnum í ráðuneytinu. [ann taldi þó ekki tímabært að rekja þessa valkosti að tillögum. „Ýmsum þótti nóg um þær tak- markanir sem togaraflotinn var látinn sæta á þessu ári með því að láta af þorskveiðum í alls 100 daga. Eigi að halda sig við þessa stjórnunaraðferð er þó alveg ljóst, að enn verður að fjölga þessum skrapdögum, taka hluta af þeim fyrr á árinu og binda þorskveiði- bann við ákveðið timabil síðsum- ars. Vetrarvertíð var stöðvuð 30. apríl í fyrra og féllu stór orð um það eins og fleira. Þorskafla á komandi vetrarvertíð verður einn- ig að takmarka, a.m.k. ef hann stefnir út fyrir eðlileg mörk miðað við heildartakmörk aflans. Til álita kæmu t.d. vikulegar eða mánaðarlegar takmarkanir eða takmarkanir á netavertíðinni í heild," sagði sjávarútvegsráð- herra. „Tímabundnar veiðistöðvanir af því tagi sem hér hefur verið lýst hafa þann megingalla að mjög erfitt er að halda sig innan við ákveðið aflalágmark. Til þess að vera öruggir í þeim efnum, þá duga ekki annað en þeinni tak- mörkunaraðferðir svo sem ein- hvers konar aflaleyfakerfi. Skipt- ing afla getur að sjálfsögðu verið með ýmsu móti, eftir landssvæð- um, eftir tímabilum, eftir skipa- flokkum og á hvert skip. Til skamms tíma hafa fáir ljáð máls á svonefndri kvótaskiptingu afla. Helztu andmælin hafa verið þau, að slíkt kerfi verðlaunaði skuss- ana en refsaði dugnaðarmönnun- um, gæti raskað búsetu og jafnvel aukið tilkostnað við veiðarnar og allt eru þetta gild rök. Ég tel mig þó hafa skynjað, að æ fleiri séu teknir að íhuga kosti og galla kvótaskiptingar og aflaleyfakerfis fordómalaust. Úthlutun aflaleyfa eða kvóta getur verið með margvíslegum hætti. En ef farið er inn á þá braut, þá verður kerfið að uppfylla mörg veigamikil skilyrði. Það verður t.d. að vera þannig, að hæfileikar mikilla fiskimanna fái að njóta sín. Það verður að taka tillit til landfræðilegrar legu fiski- miða og fiskvinnslustöðva. Það verður að vera lagað að búsetu fólks í landinu og atvinnuháttum. Ennfremur verður að teljast mjög æskilegt að heimamenn á hverju svæði hafi mikinn íhlutunarrétt og helzt úrslitaáhrif á skiptingu innan landshluta." Sjálfstæðisflokkurinn með fund á Blönduósi SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN efnir til aimenns fundar í fé- lagsheimilinu á Blönduósi kl. 9 á fimmtudagskvöldið. Gunnar Thoroddsen mun m.a. mæta á fundinn og fjalla um stefnu flokksins. Einnig mun hann svara fyrirspurnum. Sjálfstæðisflokkurinn hvetur Húnvetninga til þess að mæta á fundinn og taka þátt í þeirri miklu umræðu sem nú fer fram um stefnu Sjálfstæðisflokksins. Sveitarstjórnar- manntal 1978-’82 KOMIÐ er út ritið Sveitarstjórn- armanntal 1978—1982 og er það gefið út sem Handbók sveitar- stjórna nr. 15. Auk sveitarstjórn- armanntals eru í ritinu upplýs- ingar um sveitarstjórnarkosn- ingar á seinasta ári, mannfjölda- tölur, skrár yfir landshlutasam- tök sveitarfélaganna, fræðslu- stjóra o.fl. í hreppunum eru taldir upp allir hreppsnefndarmenn, oddviti, sýslunefndarmaður, endurskoi endur hreppsreikninga og hreppi stjóri og í þéttbýlishreppum er auk þessa taldar upp allar nefndi helstu embættis- og trúnaða: menn hreppsins og í kaupstöðui er tilgreindur forseti bæjarstjóri ar og varaforsetar, bæjarráð, bæ. arstjóri auk allra nefnda og emt ættismanna bæjarins. Ritið « fáanlegt á skrifstofu Sambanc ísl. sveitarfélaga. Flugleiðin Ísland-Bandarikin: 1250 sæta framboð í stað 4000 Samkvæmt þeirri áætlun, sem nú iiggur fyrir hjá Flugleiðum, um flug vestur um haf næsta sumar er um að ræða 11 ferðir milli Evrópu og Bandaríkjanna i stað 16 ferða á viku s.l. sumar. Þá voru allar ferðir á áætlun með millilendingu á ísandi, en nú er gert ráð fyrir að 6 ferðir af 11 verði beint með DC-10 milli Lux- emborgar og Bandaríkjanna, en þrjár ferðir í viku með DC-8 á ieiðinni Lux-Keflavík-New York og tvær ferðir í viku beint frá íslandi til New York tengdar ferðum til Norðurlanda. 5 ferðirn- ar á viku um ísland verða allar beint til New York, en Tían mun fljúga þrjár ferðir á viku beint frá Luxemborg til New York, tvær beint frá Luxemborg til Chicagó og eina Lux-Baltimore-Chicagó, samkvæmt upplýsingum Sveins Sæmundssonar blaðafulltrúa Flugleiða. Ekki er enn búið að ganga frá því hvernig áhafnir vélanna vinna, en með þessu fyrirkomulagi gjör- breytist aðstaðan á starfsvett- vangi flugliðanna þar sem Tían er aldrei í áætlun til Islands.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.