Morgunblaðið - 14.12.1979, Side 1
64 SÍÐUR
277. tbl. 66. árg.
FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1979
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Odvar Nordli
hótar afsögn
Jólasvipur er að færast á höfuðborgina.
Ljósm. Mbl. Ól. K. M.
Ósló, 13. des.
Frá Jan Erik Laurie. (réttaritara Mbl. og
Reuter.
STJÓRNARKREPPA
kann að vera í aðsigi í
Noregi og segir þá Odvar
Nordli af sér embætti for-
sætisráðherra. Það er
ágreiningur um frumvarp
sem boðar viðnám gegn
verðbólgu sem kann að
verða ríkistjórninni að
falli.
Nordli kallaði saman
skyndifund í dag í stjórn-
inni eftir að honum hafði
ekki tekizt að tryggja
frumvarpinu meirihluta-
stuðning í þinginu. Hann
hvatti þingið til að fallast á
stefnu sína eftir umræður á
laugardag og á þriðjudag í
næstu viku, og berjast gegn
verðbólgu og viðhalda efna-
hagslegu jafnvægi. í
september sl. ár setti
stjórnin á launa- og verð-
stöðvun til loka þessa árs
og segir Nordli að það hafi
gefið góða raun.
Hann sagði að þessi
binding hefði dregið veru-
lega úr framleiðslukostn-
aði, aukið útflutningstekjur
og dregið úr verðbólgunni
og væri búizt við að hún
yrði naumast yfir 4,8 pró-
sent á þessu ári, en það er
einhver minnsta verðbólga
í Evrópu.
Boði Khomeinis um að nefnd
vitji gíslanna tekið með fyrirvara
TALSMAÐUR Hvíta hússins sagði í kvöld að Bandaríkjamenn tækju
með íullum fyrirvara tilboði Khomeinis klerks um að leyfa erlendum
óháðum aðilum að vitja gíslanna í sendiráðinu. Þetta yrði aðeins máli
KÍslanna til framdráttar ef ákveðnum skilyrðum yrði fullna'gt. tryggt
yrði að unnt yrði að ræða við gíslana af fyllstu einlægni og í næði, að
læknir fengi að skoða þá ok sömuleiðis yrðu Bandaríkjamenn að
viðurkenna þessa aðila sem hæfa og hlutlausa.
Gullverð
fór yfir 460
dollara
London, 13. des. Reuter.
VERÐIÐ á guili sem hefur verið
að hækka stöðugt síðustu daga
fór yfir 460 dollara únsan í dag,
samtíma því að fréttir bárust af
nýjum og miklum hækkunum á
olíuverði. Síðdegis i dag var
gullúnsan í London seld á 458,80
og var það met. Nokkru seinna
hækkaði gullið enn og varð
462,25 dollarar.
Fyrir þremur dögum var gull-
únsan liðlega 440 dollarar sem var
metverð, hafði áður hæst verið 437
dollarar.
Dollarinn féll gagnvart öllum
helztu gjaldmiðlum á erlendum
mörkuðum, og sterlingspundið
styrktist töluvert víða í Evrópu.
Teheran. Tahriz. 13. des. Reuter. AP.
Khomeini bar þetta tilboð fram
nokkru áður en lét þess ekki getið
hvenær til stæði að leyfa þetta.
Sagði frá þessu í Teheran-
útvarpinu á þá leið að ayatollahnn
hefði skipað utanríkisráðherra
sínum að setja á laggirnar alþjóð-
lega nefnd eins fljótt og unnt væri
til að „rannsaka hina yfirgangs-
sömu stefnu Bandaríkjanna í Iran
einkum meðan hin viðbjóðslega
svikastjórn keisarans var við völd.
Og til að svara öfgafullum áróðri
Bandaríkjamanna varðandi
gíslana getið þið leyft alþjóðlegu
eftirlitsmannaliði að vitja þeirra,"
sagði í orðsendingunni.
Um svipað leyti var haft eftir
fyrrverandi saksóknara landsins,
Sadegh Khalkhali, í símtali að
hann teldi ekki að gíslana ætti að
taka af lífi, jafnvel þótt þeir yrðu
fundnir sekir um njósnir „skyldu
þeir heldur látnir lausir“ bætti
Khalkhali við, en hann hefur
iðulega talað mikið um grimmd og
illmennsku Bandaríkjamanna.
í Tabriz fór um hálf milljón
manna um göturnar í dag og í för
þeirra slógust margir einkenn-
isklæddir hermenn og létu allir í
ljós mjög eindreginn stuðning við
ayatollah Shariat Madari, en hann
er óopinber leiðtogi Azerbaijan-
héraðs. Þetta er mesta mótmæla-
ganga sem farin hefur verið í Iran
síðan Khomeini kom heim, en
göngumenn létu óspart í ljós
andúð sína á alræði Khomeinis og
Kröfðust þess að stjórnarskránni
yrði breytt, þar sem hún léti
nánast allt vald í hendur Kho-
meinis.
Mannfjöldinn hafði uppi mikil
hróp til stuðnings ayatollah sínum
og sérstaklega var fagnað þegar
hrópað var í hátalara: „Shariat-
Madari við styðjum hann og
berjumst fyrir hann til okkar
síðasta blóðdropa". Ekki hafa bor-
izt neinar fregnir af því að til
átaka hafi komið í sambandi við
gönguna og fundinn í Tabriz, en
Salisbury, 13. des. Reuter.
LÖGREGLULIÐ dreifði fundi
sem boðaður til stuðnings Joshua
Nkomo, leiðtoga Þjóðernisfylk-
ingarinnar, í Salisbury í dag og
var það gert að skipan Soames
sýnt þykir, að sögn fréttaskýrenda
að nú geti farið að hitna i kolunum
svo að um muni og Khomeini sé nú
farinn að missa tök fyrir alvöru á
fólki sínu.
Þá sagði í fréttum frá Brussel í
kvöld að Bandaríkin mundu fara
fram á það við Öryggisráðið að
íran yrði beitt efnahagslegum
þvingunum ef gíslarnir í sendiráð-
inu yrðu ekki snarlega látnir
lausir.
landstjóra Rhódesíu. Fundurinn
var haldinn til að krefjast þess að
aflétt yrði banni á flokki Nkom-
os. Samkvæmt samkomulagi því
sem gengið var frá í London á
dögunum hefur Soames lávarður
nánast alræðisvald í stjórnun
Rhódesíu unz kosningarnar fara
fram.
Meðal þess sem Soames verður
fljótlega að ákveða er hvort af-
numið skuli bann Ródesíu á að
maísinnflutningur til Zambiu frá
Suður Afríku fari í gegnum Ró-
desíu. En þaðan hefur einnig verið
margsinnis gerð skæruliðahríð
inn í Rhódesíu eins og alkunna er.
Þá er búizt við að Soames fyrir-
skipi mjög hert eftirlit með
slíkum árásum, en síðdegis í dag
sagði talsmaður Soames að engar
sérstakar ákvarðanir hefðu enn
verið teknar.
Þá ræddi Soames í dag við ýmsa
forystumenn landsins, þar á með-
al Muzorewa biskup. Ian Smith,
fyrrverandi forsætisráðherra,
sagði í dag að Soames lávarður
yrði að horfast í augu við það að
hann yrði að taka ákvarðanir án
tafar um það hvort hann hygðist
stemma stigu við árásunum hand-
an landamæranna.
N óbelsverðlaunahaf ar
skora á Brezhnev
Stokkhólmi. 13. des. AP.
TÍU Nóbelsverðlaunahafar sendu í dag áskorun til Brezhnevs
forseta Sovétríkjanna um að leyfa Tatyönu Lozansky og ungri
dóttur hennar, að fara frá Sovétríkjunum og til eiginmanns síns
Edwards Lozanskys sem er prófessor í eðlisfræði við Rochester-
háskólann í New York. Allir Nóbelshafar að einum undanteknum
skrifuðu undir bænarskjalið, en forgöngu um það hafði Herbert
Brown, sem fékk Nóbelsverðlaun í efnafræði.
Brown sagði á blaðamanna-
fundi, sem Lozansky prófessor
var einnig á, að þeir hefðu
miklar áhyggjur af ungu kon-
unni sem hefði nú reynt í þrjú ár
að fá leyfi til að fara úr landi og
komast til manns síns. Edward
Lozansky er gyðingur, en kona
hans ekki. Hann fékk að fara frá
Sovétríkjunum fyrir þremur ár-
um, þó svo að hann hefði tekið
þátt í leynilegum rannsóknum á
sviði kjarnorku. Konan hans er
dóttir þriggja stjörnu hershöfð-
ingja í Sovétríkjunum, Ivan
Yershov.
Sá eini Nóbelshafanna sem
ekki skrifaði undir áskorunina
til Brezhnevs var Theodore
Schultz, Nóbelshafi í hagfræði,
og var sagt að hann hefði í
hyggju að rita Brezhnev beint.
Þeir hinir sem undir bréfið
skrifuðu voru Nóbelshafarnir í
eðlisfræði, Abdul Salam frá
Pakistan, Sheldon Glashow og
Steven Weinberg frá Bandaríkj-
unum, Brown og Georg Witting
frá Þýzkalandi, báðir verðlauna-
hafar í efnafræði, Móðir Teresa
friðarverðlaunahafi, læknaverð-
launahafarnir Hounsfield frá
Bretlandi og Allan Mc Cormack
frá Bandaríkjunum, Sir Arthur
Lewis frá Bretlandi og gríska
skáldið Oddysseus Elytis.
Leystu upp
fund Nkomos