Morgunblaðið - 14.12.1979, Side 8

Morgunblaðið - 14.12.1979, Side 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1979 Jt'jnfyimason fn> (ivósvik Víð ætlumst tíl að þú gerir miklar kröfur tíl matvælanna sem þú neytír. erumvið anphjá framleiðendum, sem skara fram úr! Svínakjðt: Allt okkar svínakjöt kemur frá Þorvaldi í Síld og Fisk. Honum þykir vænt um svinin sín og veitir þeim fyrirmyndar uppeldi. Nautalqöt: Fáum við úr Skagafirðinum og af Austurlandi. Kjöt, sem við erum óhræddir að mæla með. Dilkakjöt: Magnús í Þykkvabæ velur dilkana okkar. Magnús er sérfræðingur, sem tryggir að hlutfall kjöts og fitu sé eins og best þekkist. Reykhúsið hans er landsþekkt, ‘og að sjálfsögðu er allt okkar hangikjöt reykt þar. Kjúklingar, unghænur Við veljum þessar vörur frá Holtabúinu og frá Miðfelli. Ströngustu gæðakröfur tryggja úrvals vörur. Við erum stoltir af úrvalinu, sem við bjóðum af ferskum og frosnum fiski. Innkaupin gerum við víða um land frá fiskverkendum, sem kunna sitt fag. Þegar kemur að framleiðslu úr hráefnunum, slökum við að sjálfsögðu hvergi á kröfunum. Við rekum fullkomna kjötvinnslu þar sem Tómas Kristinsson og Magnús Jakobsson, kjötiðnaðarmeistarar, framleiða kjötvörur eftir ströngustu kröfum. Verðið okkar - eins og reykhúsið hans Magnúsar - þarfnast engra meðmæla, hvort tveggja er landsþekkt. Líttu inn og gerðu samanburð á verði og gæðum - vöruvalið kemur þér á óvart. Við erum alltaf tilbúnir að veita þér hvers konar upplýsingar um matvöru- innkaup. Þjónusta er sérgrein okkar. V0[lsi Siguröur Tryggvason .verzlunarstjóri X~/*X]á Daníel Gíslason.afgrelöslustjórl Vörumarkaöurinn hl. þoóvcjí fcmyoróó o&haringjiejpjf vcxsfca xnonns íkkcfciramb i auxisííxs Bænda- blóð Um elskulegt samfélag við menn og dýr HINN kunni Norðlendingur og húmoristi. Jón Bjarnason frá Garðsvík. hefur á vegum Bókaút- gáfunnar örn og örlygur gefið út fyrsta bindi æviminninga sinna og nefnir bókina BÆNDA- BLÓÐ. Jón segir frá fátæku fólki, bjargálna fólki, duglegu fólki, ein- kennilegu fólki og umfram allt góðu fólki. Hvergi segir frá vondu fólki né leiðinlegu. Þá er sagt frá baðstofulífi með tilheyrandi hljómsveit rokka, kamba og vef- stóls, svo og heimsóknum bráð- skemmtilegra flóa, sem sumir kunnu þó ekki að meta. Alltaf er eitthvað að gerast og í frásögnina er fléttað gamansögum og vísum sem höfundur hefur tínt upp af götu sinni og vill bjarga á þrykk, áður en lok glatkistunnar fellur yfir þær. Jón segir frá uppruna sínum og bernsku, leik að legg og skel og elskulegu samfélagi við hunda, sauðfé og hross. Einnig frá hinum margbreytilegu störfum í þjón- ustu við stórt bú þar sem smáar hendur leituðust snemma við að verða að gagni og margt manna var á heimili. Bókin er filmusett, umbrotin og prentuð í prentstofu G. Bene- diktssonar en bundin í Arnarfelli hf. Kápumynd gerði Ernest Bachmann. Nýjar Nancy- og Löbbubækur BÓKAÚTGÁFAN Leiftur hefur sent frá sér tvær nýjar bækur í flokknum um Nancy eftir Caro- lyn Keene, „Nancy og skakki strompurinn“ og „Nancy og gamla albúmið“. Hafa þá samtals komið út 28 Nancybækur á ís- lenzku. Nancy er einkadóttir frægs málafærslumanns og hún er líka hálfgerður leynilðgreglu- maður og notar hæfileika sína óspart. Gunnar Sigurjónsson þýddi báðar Nancybækurnar. Einnig hefur Leiftur sent frá sér tvær nýjar Löbbu-bækur og eru þá komnar út átta bækur um þessa söguhetju eftir Merri Vik. Þessar nýjustu heita „Labba fær sér snúning" og „Labba lætur allt fjúka". Gísli Ásmundsson þýðir Löbbu- bækurnar. J ÁRMÚLAIa S: 8 6111 MYNDAMÓTHF. PRCNTMYNDAGERÐ AÐALSTR4CTI • SÍMAR: 17152-17355

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.