Morgunblaðið - 14.12.1979, Qupperneq 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1979
St
Jólasveinarnir:
Þarna sýnir Halldór Pétursson jólasveinana þrettán á leið til mannabyggða og þeir eru svo lifandi skelfing
undrandi á svipinn.
Bráðum koma
blessuð jólin...
Einn af jólasveinunum kominn á
J jólatrésskemmtun.
UTSÖLUSTAOIR: Karnabær Laugavegi 66 - Karnabær Glæsíbæ — Eyjabær Vestmannaeyjum - Hornabær Hornafiröi - Eplið Akranesi - Epliö ísafirði - Cesar Akureyri
Kertasnikir er alltaf
að leita sér að kertum
eins og sjá má á þess-
ari teikningu Hall-
dórs Péturssonar.
SAMBYGGT STERÍÓSETT
Verð sem þú trúir ekki
a«yi rkv*nií T ^traxeftirtri^ir þú Þvi ekki
lf aó hafa fengið hljómtæki meö
slík toppgæði fyrir svona lítið verö.
SHARP SG320 SHARP SG330
KR. 327.000.- KR. 395.000.-
SG-320 SAMBYGGT STERIÖSETT
TÆKNILEGAR UPpLySINGAR.
MAGNARAR 2 15 WOTT R H S
ÚTVARP 4 UTVARPSBYLGJUR, FM, FM STERIO, LW MW. SW.
PLÖTUSPILARI HALFSJALFVIRKUR. S-ARMUR
SEGULBAND MEÐ <g AP8S SJALFLEITARA
HÁTALARAR: 2 STK. 40 WÖTT, R.M.S. 40 OHM.
SG-330 SAMBYGGT STERIÖSETT
TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR
MAGNARAR 2 • 20 WÖTT R M S
ÚTVARP: 4 UTVARPSBYLGJUR, FM. FM STERIO, LW. MW. SW
PLÖTUSPILARI SJALFVIRKUR. S-ARMUR
SEGULBAND MEÐ g SJALFLEITARA
HÁTALARAR. 2 STK. 40 WÖTT R.M.S. 4 OHM.
Bestu kaupin hvemig sem á er litið!
HLJÖMDEILD
llfcji)KARNABÆR
Laugavegi 66, 1. hæð. Simi frá skiptiborði 85055
Jólin, fæðingarhátíð frels-
ara vors Jesú Krists, eru hátíð
friðar og ljóss. En það er
margt sem tengist þessari
miklu hátíð barna á öllum
aldri og þar spila jólasvein-
arnir ekki svo lítið hlutverk.
Jólin hafa verið og eru dýr-
legasta hátíð ársins og því
ekki að undra þótt margt sé þá
á hreyfingu. Það er margt á
huldu með jólasveinana og
ekki ber mönnum saman um
það hve margir þeir eru. Sum-
ir segja að þeir séu þrettán og
byrji að koma til manna-
byggða þrettán dögum fyrir
jól þannig að sá þrettándi sé
kominn fyrir sjálfa jólanótt-
ina. Öllum ber hins vegar
saman í jólasveinasögninni að
þeir búi í fjöllum landsins.
Sagt er að síðasti jólasveinn-
inn sé farinn til fjalla aftur
þegar þrettándinn er haldinn
á nýju ári. Sumir segja að
jólasveinarnir séu krakkar
Grýlu og Leppalúða og komi
til byggða til þess að kanna
hvort krakkar séu óþægir eða
skælnir og svo reyna þeir
alltaf að ná sér í eitthvað af
jólamatnum og öðru sem til-
heyrir jólagæðunum, en í
seinni tíð virðist það hafa
aukizt hjá þeim að hafa sér
poka með gjöfum þegar þeir
koma til mannabyggða og þá
gefa þeir góðum börnum smá-
gjafir. Þótt jólasveinarnir úr
íslenzku fjöllunum kunni að
vera mestu prakkarar þá eru
þeir beztu skinn inni við bein-
ið, meinlausir og gamansamir
og finnst ósköp gaman að
hitta glatt fólk. Þeir heita:
Stekkjarstaur, Giljagaur,
Stúfur, Þvörusleikir, Potta-
sleikir, Askasleikir, Falda-
feykir, Skyrgámur, Bjúgna-
krækir, Gluggagægir, Gátta-
þefur, Ketkrókur og Kerta-
sníkir.
Fram að jólum munum
við birta mýndir af jólasvein-
unum og öðrum atriðum í
sambandi við jólahátíðina og
við vonumst til þess að börn
hafi gaman af að fylgjast með.
- á.j.