Morgunblaðið - 14.12.1979, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1979
17
Peningar og kókaín, sem danska lögreglan fann hjá nokkrum íslendingum, þegar hún gerði áhlaup á
gistiheimilið „5 Svanir“ í Kaupmannahöfn snemma á þessu ári.
Kannabisplöntur, sem fíkniefnadeildin hefur lagt hald á i
heimahúsum. Talsverð brögð eru að því að ungt fólk afli sér
fíkniefna á þennan hátt.
Fíkniefnavandamálið verður
síf ellt alvarlegra á Islandi
Þróun í fíkniefnamálum hefur
verið nákvæmlega eins hér á
landi og erlendis, hún hefur
bara verið hægari. Og því mið-
ur eru engin teikn á lofti um
annað en þessi þróun haldi
áfram og ástandið eigi eftir að
verða ennþá alvarlegra á næstu
árum.
Þetta mælti Guðmundur
Gigja lögreglufulltrúi hjá
fíkniefnadeild lögreglunnar í
Reykjavík, þegar Morgunblaðið
ræddi við hann um ástandið i
fikniefnamálum, en hann á að
baki margra ára starf við þenn-
an málaflokk.
Og hvernig verður þá ástandið
á næstu árum að mati Guð-
mundar. — Það mun berast
sífellt meira af efnum inn í
landið og sífellt fleiri ungmenni
munu ánetjast fíkniefnum.
Sterku efnin verða meira áber-
andi á markaðnum, t.d. heróín,
og æ fleiri íslenzk ungmenni
verða heróínsjúklingar. Til að
byrja með kynnast þeir heróíni
erlendis og byrja að neyta þess
og þeir koma svo hingað sem
sjúklingar. Síðan mun notkun á
heróíni hefjast hér innanlands.
Afbrotum tengdum fíkniefna-
neyzlu mun fjölga og síðast en
ekki síst munu æ fleiri íslenzk
ungmenni deyja vegna notkunar
fíkniefna, en nú þegar vitum við
um nokkur dauðsföll íslenzkra
ungmenna, sem beinlínis má
rekja til fíkniefnaneyzlu. Þetta
er að gerast allt í kringum
okkur, t.d. á Norðurlöndunum,
þar sem hundruð ungmenna
deyja árlega vegna sterku
fíkniefnanna. Ég get ómögulega
séð hvers vegna þetta ætti að
verða öðru vísi hjá okkur.
Meiri löggæzlu og
meiri íræðslu
Þetta er vissulega ískyggileg
lýsing en hvað er þá hægt að
gera til þess að sporna við
þessum ófögnuði. Guðmundur er
spurður þeirrar spurningar. —
Það er margt hægt að gera. Til
dæmis þarf að auka mjög lög-
gæzlu og tollgæzlu og búa betur
að þessum fyrirbyggjandi þátt-
um, t.d. er ekki vansalaust að
ekki skuli vera til hasshundar í
landinu. Ennfremur þarf að
stórauka fræðslu um fíkniefnin
og skaðsemi þeirra, bæði meðal
unglinga og foreldra. Margt af
því unga fólki, sem komið hefur í
yfirheyrslu til okkar hefur ein-
mitt minnst á það að það hafi
enga fræðslu hlotið um fíkni-
efnamál í skólunum. Þá höfum
við rekið okkur á það að í
mörgum tilfellum fá foreldrarn-
ir vitneskju um það síðastir allra
að börn þeirra neyta fíkniefna.
Þeir eru alveg grunlausir þótt
margt í fari unglinganna bendi
til þess að þeir noti fíkniefni. Úr
þessu mætti bæta með öflugri
fræðslu.
4000 ungmenni haía
komið við sögu
hjá ííkniefnadeildinni
Samkvæmt upplýsingum Guð-
mundar hafa um 500 manns
verið til yfirheyrslu hjá
fíkniefnadeildinni á þessu ári og
frá upphafi hafa um 4000 manns
komið við sögu hjá fíkniefna-
deildinni, að langmestu leyti fólk
á aldrinum 18—30 ára. Sá
yngsti, sem komið hefur við sögu
vegna fíkniefnamála var 15 ára
en sá elzti rúmlega fertugur.
Þetta eru skuggalegar háar tölur
hjá ekki fjölmennari þjóð. Guð-
mundur var spurður að því hvort
einhverjar breytingar hefðu orð-
ið á innflutningi og dreifingu á
fíkniefnum á síðustu árum.
— Já, þetta hefur talsvert
breytzt. Fyrir nokkrum árum
eða á árinu 1976 og þar um kring
voru hópar sem stunduðu inn-
flutning á miklu magni, sem
dreift var til fjölmargra aðila.
Núna hefur þetta breytzt, flutt
er inn minna magn í einu og því
dreift í þrengri hópa sem eru
lokaðir hver frá öðrum. Þetta er
auðvitað gert til þess að gera
okkur erfiðara fyrir við að upp-
lýsa málin og þetta er orðin
miklu meiri vinna fyrir okkur en
áður var.
Er fíkniefnunum smyglað inn
í landið eftir öðrum leiðum en
áður tíðkaðist?
— Okkar reynsla er sú að
menn skortir ekki hugmynda-
flugið þegar kemur að því að
reyna að smygla fíkniefnum inn
í landið. Það eru allar aðferðir
reyndar, smygl með skipum og
flugvélum, í bréfum, og farangri
og jafnvel í þeim einstaklingum,
sem að smyglinu standa og á ég
þá við tilraunir til þess að fela
efnin uppi í sér, í endaþarmi og
jafnvel kynfærum.
Guðmundur Gígja lögreglu-
fulltrúi.
-Þaðþarfað
gera stórátak
ef ekki á illa
að fara, segir
Guðmundur
Gígja lög-
reglufulltrúi
Hvaðan koma fíkniefnin?
— í langflestum tilfellum frá
Hollandi og Kaupmannahöfn ef
um er að ræða hass og hassolíu,
kókaín, heróín og LSD en mari-
huana kemur yfirleitt frá
Bandaríkjunum. Söluverð hér á
íslandi er 2—4 falt það verð sem
greitt var fyrir efnið erlendis svo
að hagnaðurinn er mikil ef
fíkniefnin komast inn í landið.
Enda vitum við.dæmi þess að
fólk hafi haft atvinnu af dreif-
ingu á fíkniefnum.
Heróínið komið
til íslands
Hefur nýjum tegundum
fíkniefna skotið upp á markaðn-
um hér?
— Kannabisefnin eru yfir-
gnæfandi á markaðnum eins og
áður og notkun á hassolíu hefur
greinilega farið vaxandi. Þá hef-
ur notkun á ofskynjunarlyfinu
LSD einnig farið vaxandi upp á
síðkastið en það var sáralítið
notað um tíma. Við höfum nokk-
ur dæmi um innflutning og
notkun á kókaíni og loks höfum
við fengið staðfest að heróín
hefur verið flutt inn í smáum
skömmtum á þessu ári og þess
neytt. Heróín hefur ekki áður
komið hingað svo við vitum en
aftur á móti höfum við haft
fregnir af því erlendis frá að
fleiri og fleiri íslendingar hafi
þar kynnst heróíni. Þetta sem
hefur verið að gerast í fíkniefna-
málunum hérna er því miður það
sama sem hefur verið að gerast
annars staðar í Evrópu. Við
erum hættir að hrökkva við þótt
við heyrum heróín nefnt og það
segir talsverða sögu. Nú vantar
ekki nema staðfestingu á einu af
hættulegu efnunum, svonefndu
PCP eða englaryki. Það er efni
ekki ósvipað LSD en talið ennþá
hættulegra og það mun vera
tízkulyf í Bandaríkjunum um
þessar mundir. PCP mun koma
hingað eins og önnur fíkniefni og
þá verðum við komnir á heims-
mælikvarða. Ég tel víst að það
sem helst hafi dregið úr inn-
flutningi hættulegustu efnanna,
þ.e. kókains og heróíns, sé verð-
ið, því að eitt gramm af þessum
efnum kostar hundruð þúsunda
króna.
Kanna bisplön tur
ræktaðar í heimahúsum
Eru einhver brögð að því að
reynt sé að rækta kannabis-
plöntur hér á landi?
— Já, það eru talsverð brögð
að því og í fyrra gerðum við t.d.
upptækar 60—70 plöntur af
kannabis sativa og á þessu ári
höfum við einnig lagt hald á
margar plöntur og síðast fjórar
plöntur fyrir nokkrum dögum.
Þessar plöntur lifa vel við stofu-
hita og það er enginn vafi á því
að ýmsir verða sér úti um
kannabisefni með því að rækta
þær.
Nú hafa íslendingar verið ansi
áberandi í fíkniefnamálum er-
lendis á þessu ári. Hver er
skýringin að þínu mati?
— Um 1977 fór að bera á því
að íslenzkir fíkniefnaneytendur
fóru að flytja út, aðallega til
Danmerkur og Svíþjóðar. Þetta
fólk var orðið þekkt fyrir
fíkniefnamisferli hér heima og
átti yfir höfði sér dóma. Brátt
fóru að berast fregnir af því að
þetta fólk stundaði viðskipti með
fíkniefni erlendis og það jafnvel
í stórum stíl. A þessu ári hafa
fjölmargir Islendingar verið
handteknir erlendis, flestir
vegna tveggja mála sem voru
mikið í fréttum fyrr á árinu, þ.e.
kókaínmálsins svokallaða í Dan-
mörku og fíkniefnamálsins í
Gautaborg. Alls hafa 25 íslend-
ingar verið teknir erlendis fyrir
fíkniefnasölu og fíkniefnameð-
höndlun á árinu.
Fíkniefnabrot
tengjast öðrum afbrotum
Guðmundur Gígja sagði að
lokum að sú breyting hefði nú
orðið að önnur afbrot tengdust
fíkniefnaafbrotum en það hefði
verið nánast óþekkt áður. Nefndi
hann sem dæmi að fyrir tveimur
árum hefði verið stolið talsvert
miklu af gjaldeyri frá fyrirtæki
einu í Reykjavík og var þýfið
notað til þess að fjármagna
fíkniefnakaup erlendis. Sagði
Guðmundur að nokkur innbrot
hefðu verið upplýst á þessu ári
vegna rannsóknar á fíkniefna-
brotum.
— Það er augljóst, sagði Guð-
mundur, að fíkniefnaneyzla fer
vaxandi. Þetta er vandamál, sem
hefur verið gefinn of lítill gaum-
ur, því miður. Það þarf að gera
stórátak í fíkniefnavandamálinu
ef ekki á illa að fara.
- SS.