Morgunblaðið - 14.12.1979, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1979
19
Guðrún Árnadóttir
— Minningarorð
Fædd 4. október 1920.
Dáin 4. desember 1979.
Við hjónin kvöddum okkar kæru
systur og mágkonu á Landspítal-
anum, þar sem hún var í rannsókn
til undirbúnings skurðaðgerðar
sem gerast átti í London. Komið
hafði í ljós við rannsóknina að hún
hafði meðfæddan galla í hjarta,
sem alla tíð hefir skert hennar
lífsþrek og nú meir en áður.
í von og trú á að færustu
skurðlæknar á þessu sviði gætu
læknað hana, kvöddum við hana
og eiginmann og óskuðum þeim
jafnframt góðrar heimkomu. En
það fór á annan veg. Heimkoman
varð til æðri heimkynna. Hún
vaknaði ekki til þessa lífs eftir
aðgerðina og dó að kvöldi þess
dags 4. desember.
Guðrún eða Gunna eins og hún
var ávallt kölluð í okkar hópi var
fædd á Akri á Eyrarbakka 4.
október 1920. Foreldrar hennar
voru þau Árni Helgason, þekktur
og vel metinn formaður á Bakkan-
um og Kristín Halldórsdóttir.
Árni dó í hárri elli fyrir 2 árum
síðan, en Kristín móðir hennar dó
er Gunna var barn að aldri. Hún
ólst upp með systkinum sínum í
föðurhúsum og tók við búsforráð-
um með föður sínum er systir
hennar Guðfinna, sem nú er látin
giftist 1948. Annaðist hún föður
sinn og dóttur þar til hún sjálf
giftist eftirlifandi eiginmanni
sínum, Kristjáni G. Magnússyni
málarameistara 6. desember 1953.
Við hjónin eigum því láni að
fagna að hafa átt samleið með
Gunnu og Kristjáni og sjá ástríkt
og farsælt hjónaband þeirra eflast
og dafna í 26 ár. Tvo mannvæn-
lega syni áttu þau saman, þá
Magnús Jónas húsasmið og Árna
nemanda í tónlistarskóla. Magnús
hefir nú fastnað sér konuefni,
Hrafnhildi Hlíðberg, og hafa þau
hafið búskap saman í eigin húsi.
Eina dóttur átti Gunna fyrir,
Kristínu Þórðardóttur. Hún er
gift Sævari Ö. Kristjánssyni vél-
stjóra. Henni hefir Kristján svili
minn reynst göfuglyndur faðir í
alla staði. Kristín og Sævar eiga
tvo syni.
Gunna var ein af þeim konum
sem kalla mætti ljósbera meðal
manna. Svo mikinn yl og birtu
veitti hún hverjum þeim er henni
kynntist. Brosmild, gædd fágaðri
kímni, ávallt leitandi þess hvernig
hún gæti glatt og létt undir með
öðrum. í sjálfu sér þurfti hún ekki
að leita þess, því hún gladdi mann
bara með nærveru sinni. Orð-
heppni og greindarleg tilsvör voru
eftirtakanleg í fasi hennar. Ham-
ingjudís í hjónabandi með Krist-
jáni sem var henni göfugur og
nærgætinn eiginmaður. Eftirsótt
voru þau af vinum og kunningjum
fyrir viðmót sitt og glaðlyndi,
hvar og hvenær sem mannfagnað
skyldi halda. Unun var þau heim
að sækja á þeirra fallega heimili,
þar sem smekkvísi og listfengi var
áberandi og hlýða á velhugsuð orð
og ályktanir Kristjáns með ívafi
af kímni Gunnu.
Þrátt fyrir þennan galla í hjarta
sem nú hafði komið í ljós og sem
að sjálfsögðu skerti líkamlegt
þrek hennar hafði Gunna mikið
sálarþrek til að bera. Lýsir það sér
ekki hvað síst í því æðruleysi er
hún sýndi og hversu reiðubúin hún
var að mæta örlögum sínum, hver
svo sem þau yrðu, þegar hún bað
Kristján mann sinn kvöldið fyrir
aðgerðina að fletta upp fyrir sig í
Nýja-testamentinu. Hann fletti
upp Jóhannesarguðspjalli 14. versi
og hún las: „Hjarta yðar skelfist
ekki, trúið á Guð og trúið á mig. í
húsi föður míns eru mörg híbýli,
væri ekki svo mundi ég þá hafa
sagt yður að ég færi burt og búa
yður stað? Og þegar ég er farinn
burt og hefi búið yður stað, kem ég
aftur og mun taka yður til mín, til
þess að þér séuð og þar sem ég er.
Og veginn þangað sem ég fer
þekkið þér.“
í dag þegar við skilum líkama
hennar til móður jarðar og kveðj-
um hana hinstu kveðju er Gunna
ljóslifandi í minni okkar og huga
með sinn fallega lífsferil. Við
vitum að æðruleysi hennar og
styrkur verður okkur, systrum,
bróður og öðrum aðstandendum
fyrirmynd og gerir okkur söknuð-
inn léttbærari. Sárastur söknuður
og harmur er hjá eiginmanni,
sonum og dóttur. Biðjum við þeim
guðsblessunar og vottum þeim
okkar dýpstu samúð.
Þórarinn G. Sigurjónsson.
Guðrún var einstök kona að því
leyti, að hún tók alltaf málstað
þeirra, sem minna máttu sín, og
dæmdi aldrei nokkurn mann.
Fyrir það verður hún okkur, sem
vorum svo lánsöm að eiga hana að,
ógleymanleg. Hún var kona, sem
gott var heim að sækja. Ekki sízt
fyrir þá, sem áttu um sárt að
binda. En það fólk átti hún
sérstaklega auðvelt með að gleðja.
í félagsskap var hún afar
skemmtileg kona vegna orðheppni
sinnar og græzkulausrar glettni.
Þau hjónin Guðrún og Kristján
voru sannir vinir. Alúð þeirra,
greiðvikni og örlæti er ógleyman-
leg þeim sem þekktu þau. Og
börnin þeirra þrjú hafa erft þessa
góðu eiginleika foreldra sinna.
Kristján, Kristín, Magnús, Árni,
tengdabörnin og litlu ömmubörn-
in, guð blessi ykkur og styrki
ykkur öll.
Hlín Magnúsdóttir.
Afmælis- og
minningargreinar
ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og
minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum
fyrir vara. Þannig verður grein, sem birtast á í
miðvikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi
á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga.
Greinar mega ekki vera í sendibréfsformi. Þess skal
einnig getið af marggefnu tilefni að frumort ljóð um
hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíðum
Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og
með góðu línubili.
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
100% ull Wilton-
of i n. U rv a I sg a->ð a f I
Einniq handunndr
svnllf'ykkdi kínvoiskar
mottur
BASTMOTTUR
Teppahreinsarar
Teppasjampó_____
Teppahreinsari er
þarfaþing ekki sízt fyrir
jól.
I i mi ii
TEPPALANDS-ÚRVAL
Gangadreglar frá kr. 6.500 per meter
Strigadreglar frá kr. 7.500 permeter
Þykkir kókosdreglar, kókosdyramottur o.fl. o.fl.
Verö frá kr. 3000,-
Tilvaldar jólagjafir.
lEPPBLRND
Grensásvegi 13
Símar 83577 og 83430
Stórfallegar ódýrar
smámottur meö ömmu-
mynstrum
Margar stæröir.
Tilvaldar jólagjafir.
Verö frá kr. 9.800.-
Þvottekta
Baðmottusett
6 litir
Verö aöeins kr. 11.800.-
GRENSASVEGI 13 SIIVIAR 83577 OG 83430 -