Morgunblaðið - 19.12.1979, Qupperneq 2
_2______________
Geir for-
maður
utanríkis-
mála-
nefndar
GEIR Ilallgrímsson var í gær
kjörinn formaður utanríkismála-
nefndar Alþingis. Hlaut Geir 4
atkvæði sjáifstæðismanna og
Árna Gunnarssonar, fulltrúa Al-
þýðuflokksins, en Steingrímur
Hermannsson hlaut 3 atkvæði
framsóknarmanna og Alþýðu-
bandalags. Árni Gunnarsson var
einróma kjörinn varaformaður
nefndarinnar og Jóhann Ein-
varðsson ritari.
Geir Hallgrímsson setti fundinn
sem efsti maður af lista Sjálf-
stæðisflokksins. Steingrímur Her-
mannsson óskaði eftir frestun á
formannskjöri, þar sem Fram-
sóknarflokkur og Alþýðubandalag
vildu leita eftir samvinnu við
Alþýðuflokkinn þar um. Geir
Hallgrímsson kvaðst vilja fallast
á þessa ósk, en þá gaf Árni
Gunnarsson yfirlýsingu um það,
að Alþýðuflokkurinn hefði sam-
þykkt að styðja Geir Hallgríms-
son til formennsku í nefndinni.
Steingrímur tók þá aftur beiðnina
um frestun og var þá gengið til
formannskjörs.
Maðurinn sem fórst !
MYNDIN er af Gísla Dan Daní-
elssyni, Teigaseli 1, sem beið bana
í vinnuslysi í Kópavogi s.l. laugar-
dag. Gísli heitinn var 22ja ára
gamall. Hann lætur eftir sig
unnustu.
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1979
Cessnan TF-EKK á slysstað á Mosfellsheiði í gærkvöldi.
Ljósmynd Mbl.: RAX
Steingrímur skilar af sér
á morgun, eða á föstudag
STEINGRÍMUR Hermannsson,
formaður Framsóknarflokks-
ins skýrði forseta íslands frá
gangi stjórnarmyndunarvið-
ræðnanna í gærmorgun, en í
gærkveldi var búizt við því, að
Steingrímur skilaði umboði
sínu til stjórnarmyndunar til
forsetans á morgun eða föstu-
dag. Enginn stjórnarmyndun-
arfundur var haldinn í gær, þar
sem mönnum var heitt í hamsi
eftir að kratar höfðu kosið Geir
Hallgrímsson formann utan-
rikismálanefndar Alþingis. „Ég
tel nauðsynlegt, að lofa
mönnum að kólna niður áður og
sjá hvort samkomulag tekst um
formannskjör í nefndum,“
sagði Steingrímur í samtali við
Morgunblaðið í gær. Ingvar
Gislason, formaður þingflokks
Framsóknarfiokksins sagði í
samtali í gærkveldi, að ekkert
Alþýðubanda-
lagið neitaði
að láta Þjóð-
hagsstofnun
reikna út
tillögur sínar
formlegt samkomulag væri
milli vinstri flokkanna um
formannskjör í nefndir, en hins
vegar mætti gera ráð fyrir, að í
reynd yrði um að ræða tak-
markað samkomulag til þess að
koma í veg fyrir að Sjálfstæðis-
flokkurinn fengi af sjálfu sér
fleiri formenn.
Steingrímur Hermannsson
átti stuttan fund í gær með
formönnum hinna flokkanna
tveggja. Þar bað Steingrímur um
skriflegar tillögur flokkanna í
efnahagsmálum eða skriflegar
athugasemdir við tillögur Fram-
sóknarflokksins. Jafnframt
bauðst Steingrímur til að senda
tillögur Alþýðubandalagsins,
sem áður hafa verið lagðar fram
í viðræðunum, til Þjóðhagsstofn-
unar til útreiknings. Því hafnaði
Alþýðubandalagið. Morgunblað-
ið spurði í gær Kjartan Jó-
hannsson, varaformann Alþýðu-
flokksins, hvort þeir myndu
verða við ósk Steingríms um
skrifleg gögn, en til þessa hefur
Alþýðuflokkurinn ekkert lagt
fram. Kjartan sagði: „Við erum
ekki búnir að ákveða, hvað við
gerum. Hugsanlega munum við
gera hvorutveggja, að leggja
fram tillögur og athugasemdir.
Út af fyrir sig er okkur ekkert að
vanbúnaði að gera þetta skrif-
lega og ég hygg að það verði
tilbúið, þegar á þarf að halda.“
Morgunblaðið spurði Ragnar
Arnalds um það í gær, hvort nú
væri borin von, að úr vinstri
stjórn yrði. Hann svaraði: „Það
er borin von úr þessu, grundvöll-
ur er ekki fyrir hendi og Alþýðu-
flokkinn skortir viljann. Ljóst er
að atburðarás síðustu daga hef-
ur eindregið sýnt, að þessi
stjórnarmyndunartilraun er
dæmd til að mistakast." > Þegar
Morgunblaðið spurði hann,
hvaða stjórnarmynstur kæmi þá
helzt til greina, svaraði hann:
„Ég held ég verði ekki með
neinar getgátur um það.“
Sjá nánar um stöðu stjórnar-
myndunarviðræðnanna á bls. 18.
Benedikt Gröndal um viðskiptakjörin:
Ekki hægt að reikna
með bata næsta ár
„EINS og nú horfir er alls ekki
hægt að reikna með viðskipta-
kjarabata á næsta ári, og eru
fremur horfur á frekari rýrnun
þeirra,“ sagði Benedikt Gröndal
forsætisráðherra í skýrslu til
Alþingis í gær. Forsætisráðherra
flytur ekki stefnuræðu fyrir ára-
mót að þessu sinni vegna hins
óljósa ástands í stjórn landsins.
í ræðu sinni sagði Benedikt
einnig, að útlit væri fyrir óefni-
lega olíuverðsþróun í heiminum á
næsta ári. Síðar í ræðu sinni sagði
Benedikt: „Um þessar mundir læt-
ur nærri, að allur viðskiptakjara-
batinn, sem við nutum fram til
1973 og endurheimtum að mestu
1977 og 1978, sé genginn til baka
og viðskiptakjörin séu í reynd
óbreytt frá 1970,“ og síðar sagði
ráðherrann: „í heild er fram-
leiðsluaukningin 2—3%, og er það
minni hagvöxtur en í fyrra. Raun-
ar er það minna en meðalhagvöxt-
ur síðustu tíu árin, en á þeim tíma
hefur þjóðarframleiðslan á mann
vaxið um nálægt 4% á ári til
jafnaðar."
Ennfremur sagði forsætisráð-
herrann í skýrslu sinni: „Við
verðum að viðurkenna, að aðgerðir
stjórnvalda á síðustu árum hafa
ekki verið þess megnugar að draga
úr verðbólgunni. Skýringin á
þessu ári er sú sama og mörg
undangengin ár, fyrst og fremst
sú, að það hefur hvorki tekist að
stjórna ríkisfjármálum né pen-
ingamálum, né heldur hefur nægu
aðhaldi verið fylgt á sviði verð-
lags- og launamála. Erlendar lán-
tökur hafa farið úr böndum, lán-
veitingar til framkvæmda hafa
farið fram úr áætlun, og þannig
mætti lengi telja. Þessi verkefni
bíða úrlausnar á þessu þingi og er
brýnt að tekið verði á þeim sem
allra fyrst.
Að lokinni ræðu ráðherra tók
Geir Hallgrímsson formaður
Sjálfstæðisflokksins til máls.
Sagði hann skýrsluna sanna það
sem sjálfstæðismenn hefðu sagt
fyrir kosningar og ljóst væri, að
stefndi í stöðvun atvinnuveganna
og atvinnuleysi ef yrði ekki skjótt
brugðið við.
Steingrímur Hermannsson, for-
maður Framsóknarflokksins,
sagði að allt væri það satt og rétt
sem forsætisráðherra hefði sagt
um efnahagsástandið og hefði það
raunar legið fyrir þegar í ágúst
síðastliðnum.
Ragnar Arnalds, formaður
þingflokks Alþýðubandalagsins,
sagði að það væru Alþýðuflokkur
og Sjálfstæðisflokkur sem bæru
ábyrgð á því stjórnleysisástandi
sem hér ríkti.
Friðrik Sophusson, einn þing-
manna Sjálfstæðisflokksins, sagði
að þingmenn ættu heimtingu á því
að vita hvernig stjórnarmyndun-
artilraunum miðaði, og hvað ylli
því að Steingrímur væru nú svo
svartsýnn eftir að hafa verið
bjartsýnn fyrir skömmu á mynd-
un nýrrar vinstri stjórnar.
Fjögurra sæta Cessna-flugvél og björgunarþyrla frá Varnarliðinu
hröpuðu í gær á Mosfellsheiði og hefur verið merkt X inn á kortið þar
sem slysin urðu, skammt sunnan Þingvallavegarins.
Smygl í leiguskipinu Borre
TOLLVERÐIR fundu í vikunni
áfengi og tóbak í norska leiguskip-
inu Borre, en skipið liggur í
Reykjavíkurhöfn. Alls fundust 24
flöskur af áfengi, 14 kassar af bjór
og 6 lengjur af vindlingum. Norsk
áhöfn er á skipinu og áttu skip-
verjar varninginn. Varningurinn
hafði ekki verið innsiglaður þegar
skipið kom til landsins og var því
farið með hann eins og hvern
annan smyglvarning.