Morgunblaðið - 19.12.1979, Blaðsíða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1979
,Jíomi
þeir
sem
koma
vilja“
Jólasveinn-
inn Stekkja-
staur styðst
þarna við
staurinn
sinn kank-
vís á svip, en
myndina
teiknaði
Halidór Pét-
ursson.
Jólasveinarnir:
íslendingar hafa löngum haft
ákveðna siði á jólunum. Ekki
má leika sér á jólanóttina,
hvorki spila né dansa. Sögn er
til um börn sem voru ein heima
á jólanóttina og fóru að spila
sér til afþreyingar. Þá kom
maður til þeirra og spilaði með
þeim þangað til eitt barnið fór
að raula sálmavers. Þá hvarf
maðurinn, en sagt er að þar
hafi kölski sjálfur verið á ferð,
en að sjálfsögðu þoldi hann
ekki sálmasðnginn. Ekki mátti
heldur dansa, því síður rífast
eða blóta.
Jólanóttin er í augum al-
mennings helgasta nótt ársins
og víðast er ennþá sá siður að
kveikja ljós um allan bæinn, á
hverju heimili, svo hvergi beri
skugga á og sérstaklega var
þessi siður viðhafður á meðan
Islendingar höfðu takmörkuð
ljósfæri. Þá var það einnig
siður þegar búið var að sópa út
fyrir jóiin að húsfreyjan gekk
kring um bæinn og „bauð
álfum heim“. „Komi þeir sem
koma vilja, veri þeir sem vera
vilja, fari þeir sem fara vilja,
mér og mínum að meinalausu."
Fremur mun þessi venja þó
hafa verið viðhöfð á gamlárs-
kvöld. Sumir létu ljós lifa í
bænum alla nóttina og víða á
Islandi er .sú venja viðhöfð
ennþá.
Jólin hafa löngum verið
mesta hátíð barnanna og
líklega eru þau óvefengjanlega
mesta hátíð ársins vegna þess
að þá vaknar barnið í hverjum
manni og einlægur friður fæð-
ingarhátíðar frelsarans fær
samhljóm með mannanna
börnum. — á.j.
Tveir litlir jólasveinar á leið til byggða úr Helgafelli i Eyjum.
Kjörið í fasta-
nefndir efri
deildar Alþingis
KJÖRIÐ var í fastanefndir efri
deildar Alþingis á mánudaginn
og voru eftirtaldir þingmenn
kjörnir:
Fjárhags- og viðskiptanefnd:
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Þorvaldur Garðar Kristjánsson.
Lárus Jónsson.
Tómas Árnason.
Guðmundur Bjarnason.
Ólafur Ragnar Grímsson.
Eiður Guðnason.
Samgöngunefnd:
Lárus Jónsson.
Eiður Guðnason.
Stefán Jónsson.
Jón Helgason.
Guðmundur Karlsson.
Egill Jónsson.
Helgi F. Seljan.
Landbúnaðarnefnd:
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Helgi F. Seljan.
Egill Jónsson.
Jón Helgason.
Davíð Aðalsteinsson.
Þorvaldur Garðar Kristjánsson.
Eiður Guðnason.
Sjávarútvegsnefnd:
Guðmundur Karlsson.
Lárus Jónsson.
Egill Jónsson.
Stefán Guðmundsson.
Guðmundur Bjarnason.
Geir Gunnarsson.
Karl St. Guðnason.
Iðnaðarnefnd:
Þorvaldur Garðar Kristjánsson.
Gunnar Thoroddsen.
Egill Jónsson.
Stefán Guðmundsson.
Davíð Aðalsteinsson.
Stefán Jónsson.
Karl St. Guðnason.
Félagsmálanefnd:
Þorvaldur Garðar Kristjánsson.
Salóme Þorkelsdóttir.
Guðmundur Karlsson.
Guðmundur Bjarnason.
Stefán Guðmundsson.
Karl St. Guðnason.
Ólafur Ragnar Grímsson.
Heilbrigðis- og trygginganefnd:
Helgi Seljan.
Karl St. Guðnason.
Gunnar Thoroddsen.
Salóme Þorkelsdóttir.
Lárus Jónsson.
Ólafur Jóhannesson.
Jón Helgason.
Menntamálanefnd:
Gunnar Thoroddsen.
Salóme Þorkelsdóttir.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Davíð Aðalsteinsson.
Ólafur Jóhannesson.
Ólafur Ragnar Grímsson.
Eiður Guðnason.
Allsherjarnefnd:
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Gunnar Thoroddsen.
Salóme Þorkelsdóttir.
Ólafur Jóhannesson.
Tómas Árnason.
Stefán Jónsson.
Karl St. Guðnason.
Álfaskeið — Endaíbúð
Til sölu 5 herb. endaíbúö ca. 120 ferm. viö Álfaskeiö
í Hafnarfirði. 3 svefnherb. eru í íbúðinni, húsbónda-
krókur, stofa, borðstofa, skápar í öllum herb.,
vandaðar innréttingar, suður svalir, bílskúrsréttur,
stór geymsla m. glugga í kjallara, bein sala (ákveðiö í
sölu, eigandinn búinn að finna íbúð). Verö 34 millj.,
útb. 24 millj.
Miðborg fasteignasala í Nýja bíó húsinu
Símar 25590 og 21682.
Jón Rafnar heima 52844.
Guðmundur Þóröarson hdl.
óskar eftir
blaðburðarfólki
Uppl. í síma 35408
Austurbær
Miðbær
Hverfisgata 4—62
Úthlíð