Morgunblaðið - 19.12.1979, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1979
Rabbað viö Sigmund Jónas-
son um Sigmund á Skopöld
SIGMUND hefur teiknað um 3000 myndir í Morgun-
blaðið og um árabil hefur hann teiknað mynd í blaðið hvern
dag. Nú hefur Prenthúsið gefið út vandaða bók með 150
teiknihgum úr Morgunblaðinu eftir Sigmund í talsvert
stærra broti en myndirnar birtast þar. Sigmund er
mikill þúsundþjalasmiður. Auk þess að teikna eins og raun
ber vitni í Morgunblaðið fyrir hvern dag, stundar maðurinn
uppfindingar á tækjum fyrir þróaðri fiskvinnslu og sitthvað
fleira eftir þvi sem tilefni gefst til, hann málar bæði
með olíu og vatnslitum, stundar orgelleik og er þó aðeins
fátt tínt til sem maðurinn býr yfir. Það er ekki aðeins að hann
hafi hugmyndaflug umfram það sem gengur og gerist,
heldur leysir hann hugmyndir sínar í reynd og kemur
þeim í verk ef hann vill það við hafa.
Sigmund teiknaði sina fyrstu mynd i Morgunblaðið
þegar Surtseyjargosið stóð yfir og sú mynd var af því þegar
dr. Sigurður Þórarinsson jarðfræðingur tapaði húfunni sinni
góðu. Það má þvi segja að Sigmund hafi komið upp i
Morgunblaðinu með Surtseyjargosinu.
vegar er það nú svo að það
iw heldur manni við efnið þegar
^ maður finnur að það er
ætlazt til einhvers af manni."
„Það undrar marga að þú
skulir geta skilað mynd á dag
ár eftir ár með þeirri vinnu sem
þú leggur í myndirnar. Er
ekki vandfundin hugmynd á
dag til jafnaðar?“
„Því er nú verr að maður
getur ekki treyst á eitt símtal
á dag við Alþingi til þess að fá
hugmynd. Þetta byggist hins
vegar allt á umhugsun og
lestri og svo teikningunni.
Hugurinn verður alltaf að vera í
„Auóvelt að hafa
endaskipti á
gamni og alvöru"
L.-ÍI,. *■ 00
Við spjölluðum stundar-
korn við Sigmund í tilefni af
útkomu bókarinnar Sigmund á
Skopöld og það var byrjað á
léttu tónunum og spurt
hvernig það væri að vera
fastur liður fyrir landsmenn.
„Blessaður, spurðu þá í
útvarpinu að því, þeir þekkja
föstu liðina miklu betur, eru
búnir að vera með þá síðan
útvarpið byrjaði," svaraði
Sigmund hlæjandi, „en hins
gangi, annað er þetta nú ekki.
Stundum er tregt en svo
kemur stundum rokafli svo að
ekki ræðst neitt við neitt þann
daginn og maður kemur að-
eins hluta hugmyndanna á
blað. Þetta er eins og gengur
og gerist hér í Eyjum, við erum
vanir misjöfnum afla. Ef það
er tregt í hugmyndunum þá
er það vegna þess að það er
svo einfalt að detta út úr rull-
unni.“
„Þú minntist á Alþingi,
ósjaldan sækir þú myndefni á
þau mið?“
„Ýmsir líta á Alþingi sem
leikhús og kalla þingmennina
leikara, en það tel ég vera
mikinn misskilning, þar sitja
nefnilega leikstjórarnir.
Við heimtum rullur og verðum
síðan að fara eftir því sem
leikstjórarnir segja hvort sem
okkur líkar betur eða verr.
Það er nú það sem er.“
„Hvernig hagar þú vinnu
þinni við teikningarnar?"
„Það er oft slungið að
eiga við þetta. Maður vill fara
einfaldari leiðina, en myndin
getur verið að þróast í marga
daga og orðið allt öðruvísi
en maður ætlaði raunverulega
í upphafi. í meginatriðum bygg-
ist þessi vinna á því að maður
sezt niður og les blöðin því
þangað sæki ég mest af mynd-
efninu. Þar er allt sagt og maður
er nánast að myndskreyta það
sem aðrir hafa sagt, að vísu
með sinni eigin túlkun og ekki
er víst hægt að segja að hún sé
alltaf á sömu bylgjulengd og
það sem áður hafði verið
sagt í ræðu og riti.
Daglega milli klukkan 5
og 7 verða hugmyndirnar að
fæðast, því á þeim tíma vil ég
frumvinna teikningar og
ákveða hvað ég ætla að gera
í hverri teikningu. Stundum
vill þetta starf teygjast fram á
kvöldin, en ég fer snemma á
fætur á morgnana, milli
klukkan 6 og 7 og fer þá af
fullum krafti í það að teikna
hverja mynd í endanlega út-
gáfu.“
„Hvað ef fátt er um fína
drætti í hugmyndum?"
„Ég hef sem betur fer
aldrei lent í þroti með hug-
myndir, en dagur getur brugðist
og þá bjargar það mér að ég
vinn fyrirfram og með því
móti er minni pressa á
verkinu."
„Er misjafnlega
skemmtilegt að teikna við-
fangsefnin?"
„Það er alltaf skemmti-
legra að teikna ef maður
finnur að heldur betur hafi
tekizt til, en þótt maður sé að
vinna með gamansömu hug-
arfari þá er það ekki svo
einfalt því það er auðvelt að hafa
endaskipti á gamni og alvöru.
Sú mynd sem maður gerir
er séð með þeim augum sem
hún sýnir.“
„Skemmtir þú þér jafn
mikið yfir myndunum eins og
flestir þeirra sem fylgjast með
þeim daglega?"
„Það er allt öðruvísi fyrir
mig. Það er oft skemmtilegt
að móta hugmyndina, en það er
ef til vill ekki fyrr en löngu
seinna ef maður sér mynd-
irnar aftur að maður sér á
þeim aðra hlið og það getur verið
skemmtilegt."
„Samkvæmt myndum þín-
um þá ert þú vel inni í því sem
er að gerast í þjóðfélaginu."
„Það er vegna þess að ég
les öll blöðin vendilega og það
er mikið verk. Þetta þarf ég að
gera til þess að vita hvað er að
ske, til þess að ég geti tínt
saman mörg atriði sem ég
túlka ef til vill síðan á minn hátt
í einu atriði í mynd með
mörgum öðrum atriðum.
Maður þarf því oft að vita eitt
og annað til þess að smáatriði í
teikningu geti túlkað langa
sögu.“
- á.j.
Alþjóðleg teikni-
samkeppni barna
10 myndir sendar frá íslandi
Á s.l. vori var íslenskum
börnum, 11 ára og yngri,
gefinn kostur á að taka
þátt í alþjóðlegri teikni-
samkeppni sem efnt var til
af Menningarmálastofnun
Sameinuðu þjóðanna (UN-
ESCO), Barnahjálp S.Þ. og
Flóttamannastofnun S.Þ.
Samkeppni þessi tengdist
alþjóðaári barnsins, en við-
fangsefni myndanna skyldi
vera „líf fólks árið 2000“.
Nokkur hundruð mynda bárust í
samkeppnina hér á landi. Skipuð
var dómnefnd til að velja 25 bestu
myndirnar, en af þeim voru 10
valdar til að senda utan til
aðalstöðva UNESCO til þátttöku í
keppni um alþjóðleg verðlaun. Ein
mynd frá hverju þátttökulandi var
síðan valin til að vera á farand-
sýningu á vegum UNESCO.
í íslensku dómnefndinni áttu
sæti Þórir Sigurðsson, námsstjóri,
myndlistarkennararnir Guðrún
Nanna Guðmundsdóttir og Jón
Reykdal og grunnskólanemend-
urnir Dagur Eggertsson, Freydís
Kristjánsdóttir og Pétur Gautur
Svavarsson.
Höfundar þeirra 10 mynda sem
sendar voru utan til þátttöku í
alþjóðlegu samkeppninni eru:
Ardís Olgeirsdóttir, Reykjavík,
nemandi í Árbæjarskóla, Ás-
mundur Örnólfsson, Sigmundar-
stöðum, Þverárhlíð, nemandi í
Varmalandsskóla, Baldur Gunn-
arsson, Hafnarfirði, nemandi í
Víðistaðaskóla, Guðmundur Er-
lendsson, Kópavogi, nemandi í
Kópavogsskóla, Jóhanna Kristó-
fersdóttir, Akranesi, nemandi í
Barnaskóla Akraness, Kristján
Kristmannsson, Sandgerði, nem-
andi í Barnaskólanum í Sandgerði,
Margrét Valdimarsdóttir, Hafnar-
firði, nemandi í Víðistaðaskóla,
Sigurbjörg Ósk Áskelsdóttir,
Hafnarfirði, nemandi í Víði-
staðaskóla, Snorri Páll Einarsson,
Kópavogi, nemandi í Kópavogs-
Verðlaunahafarnir ásamt Vilmundi Gylfasyni menntamálaráðherra.
skóla, og Þórir Jónsson, Kópavogi,
nemandi í Kópavogsskóla.
Mynd Guðmundur Erlendssonar
var valin sem íslensk mynd á
farandsýningu UNESCO.
Höfundar þessara 10 mynda,
svo og þeirra 15 sem næstar komu
að mati íslensku dómnefndarinn-
ar, hljóta viðurkenningu frá UN-
ESCO.
Fimmtudaginn 13. þ.m. var
þeim börnum sem gert höfðu
myndirnar tíu, er sendar voru
utan, boðið í menntamálaráðu-
neytið ásamt myndmenntakenn-
urum þeirra og börnunum afhent
sérstök bókaverðlaun frá ráðu-
neytinu.