Morgunblaðið - 19.12.1979, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1979
19
ÓliValur Hansson:
Getur þú hugsað þér jól
án lifandi blóma?
Hýasintur hafa lengi verið kjörblóm íslenskra heimila á
jólahátíðinni.
Hvers vegna?
Þær hafa unaðslega ilmrík blóm. Þær varpa
hátíðarblæ á umhverfið. Þær auka jólastemmn-
inguna.
Blóma
framleióendur
NU eru aðeins fáir dagar til jóla
og jólaundirbúningur á heimilum í
fullum gangi. í því sambandi hafa
ýmsar venjur fest hér rætur, sem
gegna því hlutverki að gera há-
tíðahaldið sem eftirminnilegast.
Hér er nærtækast að nefna hið
hefðbundna jólatré með kertaljós-
um og tilheyrandi skrauti.
Mörgum þykir einnig ómissandi
að hafa ekki einhverjar skreyt-
ingar á borðum til augnayndis og
hátíðarbrigða.
Slíkar skreytingar geta í sjálfu
sér verið margskonar og á marg-
víslegan hátt gerðar.
Aðaluppistaðan í sumum jóla-
skreytingum er kertaljós umvafið
greni, mosa, könglum og öðru
litríku skrauti. í öðrum skreyting-
um eru það lifandi blóm sem leysa
kertaljósin af hólmi.
Á jólahátíðinni, þegar mesta
skammdegið grúfir yfir, kjósa
mörg heimili að njóta lifandi
blóma.
í þessu sambandi er um sitthvað
að velja að þessu sinni eins og
undanfarin jól, þótt úrvalið sé
ætíð takmarkaðra en á öðrum
árstímum.
Það er þá fyrst að nefna hýas-
intur sem smám saman eru að
verða aðal-jólablómin. Svo bundin
eru þessi litmildu og ilmsætu blóm
við jólin, að utan þess tíma sjást
þær lítið í blómabúðum hérlendis.
Mörgum þykir sem snotur hýas-
intuskreyting setji meiri há-
tíðablæ á jólahaldið en aðrar
skreytingar megna, laði betur
fram jólastemmninguna. Hvort
sem slík skreyting hefur verið
gerð með eigin höndum eða unnin
af fagfólki, þá skilur hún ætíð
góðar minningar eftir sig.
Það gera reyndar öll lifandi
blóm, því þau minna ætíð á hina
undursamlegu og fjölbreytilegu
náttúru sem nærir og fóstrar
mannveruna og hljóta þannig að
snerta tilfinningarnar.
Fyrir utan hýasintu, sem einnig
nefnist goðalilja, eru oftast fáan-
legir litríkir afskornir túlipanar,
ilmandi margblóma hátíðaliljur,
tilkomumiklar riddarstjörnur auk
hins fágæta kóralviðar.
En allt eru þetta afskorin blóm
sem taka sig vel út í hæfilega
stórum blómavasa, og varpa há-
tíðarljóma á vistarverur manna,
Ýmsar pottaplöntur sem á þess-
um tíma eru í blóma eru einnig
glaðleg jólablóm. Þar ber hæst
hina tígulegu jólastjörnu, en ekk-
ert síðri eru í sjálfu sér nóvem-
berkaktus og jólakaktus eða þá
kóraltoppur (ástareldur) og stofu-
alparós sem án þess að vera
raunveruleg rós er þegar byrjuð
að skarta sínum rauðu og rauð-
bleiku blómum og mun reyndar
halda því áfram fram eftir vetri.
Hvernig á svo að hirða um
jólablómin svo þeirra verði notið
sem lengst?
Um öll afskorin blóm gildir að
þau lifa lengst ef þau búa ekki við
allt of mikinn hita. Sérstaklega er
það atriði að geyma þau á svölum
stað á næturnar. Gildir þetta
einnig um hýasintuskreytingar.
Hýasintur standa á lauk, en rætur
hans eru svo takmarkaðar að þær
eiga erfitt með að ná miklu vatni.
Vökvið þær því aldrei mjög mikið
í senn svo laukurinn komi ekki til
mað að standa í vatni, hins vegar
er nauðsynlegt að sæmilegur raki
haldist ávallt umhverfis hann.
Fylgist því með þessu daglega.
Sama gildir um vatnið í vösum
með afskornum biómum.
Fyrir laukblóm er ekki æskilegt
að hafa mjög mikið vatn í blóma-
vösum. Ágætt er að setja Chrysal
plöntufæðu í vatnið, en í hennar
stað má nota l teskeið af sykri og
annað eins af ediki í hvern 'k
lítra. Hvorutveggja lengir líf af-
skorinna blóma.
Síðan má bæta í þetta vatni
eftir þörfum, en sé engin plöntu-
fæða notuð, er best að endurnýja
vatnið annan hvern dag.
Um pottablómin er það að segja
að þau þarf að vökva með gætni.
Jólastjarnan þolir ekki ofþornun
því þá skrælna blöðin. Moldin má
þó heldur ekki vera að staðaldri
blaut, því þá fá ræturnar ekki
nægilegt súrefni. Blöðin falla þá
af. Alparósin stendur oftast í
mjög torkennilegum jarðvegi, sem
þolir aldrei að þorna alveg. Skal
daglega aðgæta með vökvun, en
samt forðast ofvökvun. Einkum
ber að varast að láta vatn standa
að staðaldri í undirskálum undir
plöntum.
Gleðileg jól.
ÓIi Valur Hansson.
Briflge
Umsjónt ARNÓR
RAGNARSSON
Stjórn BSÍ
hefsta handa
Fyrir skömmu hélt nýkjörin
stjórn Bridgesambandsins fund
og hófst hann með því að forseti
bauð stjórnarmeðlimi velkomna
til starfa. Þá skipti stjórnin með
sér verkum. Varaforseti verður
Ríkarður Steinbergsson, gjaldkeri
Aldís Schram, ritari Guðmundur
Sv. Hermannsson og Jakob R.
Möller mun annast erlendar
bréfaskriftir.
Jón Páll Sigurjónsson sat í
fyrrverandi stjórn og skýrði hann
hinni nýju stjórn frá undirbún-
ingi fyrir íslandsmót 1980. Und-
anúrslit sveitakeppni verða spiluð
á hótel Loftleiðum 2.-4. apríl og
úrslitin á sama stað 30. apríl til 4.
maí.
Þá er enn verið að athuga með
húsnæði fyrir tvímenninginn.
Keppnisgjöld fyrir sveitakeppn-
ina voru ákveðin kr. 50 þúsund.
Samþykkt var að taka þátt í
Evrópumóti unglinga sem fram
fer í Tel Aviv ef kostnaður verður
innan hæfilegra marka.
Bridgefélag
Reyðarfjarðar
& Eskif jarðar
Meistaramóti félagsins í
tvímenningi lauk h. 11. des. 15 pör
tóku þátt i keppninni og voru
spilaðar 5 umferðir. Félagsmeist-
arar urðu Jóhann Þorsteinsson og
Hafsteinn Larsen með 956 stig.
Röð hæstu para:
Ásgeir — Þorsteinn 876
Hallgrímur — Kristján 853
Friðjón — Jónas 827
Aðalsteinn — Sölvi 807
Áskell — Guðmundur 797
Bogi — Kristmann 795
Guðmundur — Hermann 784
I annarri umferð (14 pör) fengu
Jóhann og Hafsteinn 230 stig,
meðalskor 156.
Sveitakeppni félagsins hefst 8.
janúar 1980.
Bridgefélag
Hornafjarðar
Nú stendur yfir 5 kvölda aðal-
tvímenningur hjá Bridgefélagi
Hornafjarðar. Staðan eftir 3
kvöld er:
stig
Jón G. Gunnarsson
— Eiríkur Guðmundsson 568
Karl Sigurðsson
— Ragnar Björnsson 527
Björn Júlíusson
— Ragnar Snjólfsson 505
Árni Stefánsson
— Jón Sveinsson 490
Gunnhildur Gunnarsdóttir
— Svava Gunnarsd. 487
Kolbeinn Þorgeirsson
— Gísli Gunnarsson 487
Skeggi Ragnarsson
— Ingvar Þórðarson 487
Björn Gíslason
— Kristján Ragnarsson 486
Birgir Björnsson
— Sigfinnur Gunnarsson 472
Högni Kristjánsson
— Ármann Guðmundsson 460
Magnús Pálsson
— Friðþór Harðarson 424
Næst verður spilað 3. janúar
1980.
Jólablómin í ár