Morgunblaðið - 19.12.1979, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER, 1979
23
Pólland:
75 enn
í haldi
Varsjá, 17. desember. AP.
75 PÓLSKIR andófsmenn
voru áfram í fangelsi í dag, á
níu ára afmæli óeirðanna
miklu, þegar að minnsta
kosti 55 manns létu lífið í
mótmælaaðgerðum gegn
verðhækkunum á nauðsynja-
vöru, en í kvöld fara fram
sálumessur í Varsjá og
Wroclaw. Formlegar hand-
tökuheimildir voru gefnar út
vegna 11 þeirra 75, sem hand-
teknir hafa verið síðustu
daga, en alls hefur lögreglan
haft afskipti af 108 manns.
Tilgangur yfirvalda með
þessari áreitni er að reyna að
koma í veg fyrir minningar-
athafnir og mótmæli.
Anka Kowalska, sem er í hópi
þeirra, sem skipuleggja andófið,
sagði að þrátt fyrir tilraunir
yfirvalda til að koma í veg fyrir
hvers konar aðgerðir, hefði and-
ófsmönnum tekizt að koma fyrir
14 þúsund veggspjöldum í Varsjá,
en á spjöldunum eru hvatningar-
orð og tilmæli um að koma til
sálumessu í minningu þeirra, sem
létu lífið í Gdansk og Gdynia fyrir
níu árum.
Misheppnað
geimskot
^ París, 16. des. AP. Reuter.
Á LAUGARDAGINN mistókst að
skjóta á loft frá Kourou-geim-
rannsóknastöðinni i Frönsku
Guiana evrópsku eldflauginni
Ariane, sem flytja átti f jarskipta-
hnött út í geiminn. í Ijós kom
bilun á eldsneytisleiðslu í einum
af fjórum hreyflum flaugarinnar,
og er viðgerð nú hafin, en við-
gerðin tekur að minnsta kosti
viku.
Ariane-eldflaugin er 47 metra
há og vegur hlaðin um 200 tonn.
Það eru nokkur lönd í Vestur-
Evrópu, sem standa að smíði
hennar, en stærstu aðilarnir eru
Frakkar og Vestur-Þjóðverjar.
Hefur undirbúningur eldflaugar-
innar staðið í 18 ár, og fyrirhugað
er að skjóta fjórum flaugum á loft
í tilraunaskyni. Heppnist að
minnsta kosti tvö skotanna, er
ætlunin að koma upp kerfi fjar-
skiptahnatta frá og með árinu
1981.
Völdu
Kambódíu
Camp Rehou, Kambódíu,
17. desember. Reuter.
TUGÞÚSUNDIR kambód-
ískra flóttamanna, sem áttu
um það að velja að fara í
flóttamannabúðir í Thai-
landi eða þjappa sér saman
innan landamæra tóku síðari
kostinn, en að undanförnu
hefur þetta fólk dreifzt um
allstórt svæði beggja vegna
landamæranna.
Forstöðumenn mjög fjöl-
mennra flóttamannabúða í
Knao-I-Dang 12 kílómetra
innan, við landamærin, Thai-
landsmegin, segjast uggandi
um að flóttafólkið verði ekki
til frambúðar í Kambódíu,
þar sem yfirvofandi sé stór-
sókn Víetnama, eða leppa
þeirra, í Norðvestur-Kambó-
díu.
Húsgögn sem
aöeins
fást
í Vörumarkaðinum
Furuhjónarúm 8 tegundir.
Falleg og vönduö.
Verð viö allra hæfi.
Furueinstakl. rúm 3 stærðir,
á góöu veröi.
Furuskápar
ólitaöir eöa bæsaðir
brúnir. Verð frá kr. 113.500-
Furusófasett-áklæöi einlitt brúnt.
3ja sæta - 2ja sæta-stóll kr. 270.000.-.
Sófaborð kr. 49.800,-
Hornborð kr. 35.600,-
Brúnbæsuö furuskrifborð.
Stærð 60x120 kr. 59.000,-
Nýkomin
leóursófasett
leð furugrind
Pinnasólar og borö í úrvali.
Bambus og tágahúsgögn.
Létt bambussett sófi -
2 stólar +1 borð frá kr. 122.200,-
Falleg bambussófasett með pullum 3 teg.
Bambusrúm brún og Ijós.
Bambus og tágahillur, bambusspeglar.
Vörumarkaðurinn hf.
Ármúla 1A. Sími 86112.
©
J