Morgunblaðið - 19.12.1979, Side 29

Morgunblaðið - 19.12.1979, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1979 29 5VAR MITT EFTIR BILLY GRAHAM Ég er ekkja, ok ég er haldin óstjórnlegri löngun til að kaupa nýja hluti, hvort sem þarfnast þeirra eða ekki. Hibýli mín eru full af óþörfu glin>cri. Af hverju geri ég þetta? í raun og veru hef ég ekki ráð á þessu. Sálfræöingar segja, aö óstjórnleg þörf á að eignast hluti stafi af öryggisleysi. Þaö er eölilegt að kaupa sér hluti, sem okkur vanhagar um, en óeðlilegt aö kaupa það, sem við þurfum ekki á að halda, og enda svolítið kjánalegt. Margar nútímakonur eru haldnar þessu kaupæði. Það er skemmtilegt að fara í búðir og verzla. Ég skal ekki draga dul á það, að ég hef gaman af því. En ég leyfi mér ekki neinar öfgar, og eins er um allt heilbrigt fólk. Þessi eftirsókn í alls konar muni er einkenni á veraldarhyggju okkar tíma, og það eru hliðarverkanir þessa sjúkdóms að sanka að sér glingri og fötum. Sá, sem haldinn er kaupæði, fær aldrei nóg, ekki frekar en eiturlyfjasjúklingurinn. Hver verzlunar- ferðin rekur aðra, alveg eins og einn „Skammtur“ örvar sjúklinginn til næsta „skammts“. Maður, sem hendist á milli verzlana, ætti að lesa með íhugun og bæn þessi orð Jesú: „Þótt einhver hafi allsnægtir, þá er líf hans ekki tryggt með eigum hans“ (Lúk. 12,15). Hjartað hlýtur ekki saðning af hlutum. Þrá þess er í raun og veru hungur eftir Guði. Davíð sagði: „Eins og hindin þráir vatnslindir, þráir sál mín þig, ó, Guð“. Hlutir eru góðir og nytsamlegir, en þeir eiga sinn tiltekna sess. Þeir mega aldrei ganga fyrir Guði. Minning: Júlíus Alexand- er Hjálmarsson Fæddur 31. júlí 1892. Dáinn 10. desember 1979. Hinn 10. desember dó á Landa- koti afi minn Júlíus Alexander Hjálmarsson. Hann var fæddur hinn 31. júlí 1892 að ísólfsskála í fluttur í flýti á Landakotsspítal- ann í Reykjavík mjög veikur. Hann lá þar á spítalanum í u.þ.b. einn mánuð. Svo kom að því að Guð tók hann til sín og nú er hann þó á góðum stað. Eg kveð elsku afa minn og þakka honum fyrir alla samfylgd- ina. Og mig langar til að láta þetta ljóð fylgja. Sýn mér, sólar faðir, sjónir hœrri en þessar, málið mitt er síðast miklar þig og blessar. Sýn mér sœtt i anda sæla vini mina, blessun minna barna burtfór mina krýna. (M.J.) Aslaug Gunnarsdóttir. MYNDARLEGAR JÓLAGJAFIR LJOSMYNDAÞJÓNUSTAN S.F. LAUGAVEGI 178 REYKJAVIK SlMI 85811 5NI Grindavík. Foreldrar hans voru Helga Guðmundsdóttir og Hjálm- ar Guðmundsson. Þegar hann var sex ára gamall fluttist hann með foreldrum sínum að Þórkötlu- stöðum í sömu sveit. Þar ólst hann upp við venjuleg störf til sjós og lands. Hann giftist eftirlifandi konu sinni Áslaugu Theódórsdótt- ur hinn 22. nóvember 1936. Þau áttu saman tvö börn: Hjálmar Júlíusson, 4. nóvember 1937, og óskírða dóttur, 16. desember 1944 en hún dó 8. febrúar 1945, aðeins þriggja mánaða gömul. Hann átti einnig tvö fósturbörn, Bryndísi Björgvinsdóttur, 25. janúar 1936 og Helga Theódór Anderssen, 15. maí 1933. Það var alltaf gaman að heim- sækja afa og ömmu og mest þótti mér gaman að sjá kindurnar og lömbin hans afa og eitt sinn gaf hann mér fallegt svart lamb. Afi var mjög góður við okkur krakkana og ég held honum hafi þótt eins vænt um okkur eins og okkur um hann. Svo breyttist allt, hann veiktist og lá í rúminu þangað til hann var BÓKMENNTAVIÐBURÐUR ‘Sjnn’ Hannes Rétursson 0,71 ^^kapeftir KVÆEAFYLGSNl HALUMtesoN í þessari bók er brugðið upp eftirminnilegum svipmynd- um af Jónasi Hallgrímssyni, lifi hans og list. Og Hannes er í senn nógu kröfuharð- ur fræðimaður og listfengur rithöfundur til að fjalla um þetta efni á þann hátt sem því er samboðinn. Bók hans er reist á viðtækri heimildakönnun og snilldarvel rituð. - Bræðraborgarstíg 16 Slml 12923-19156 „...lestur bókarinnr er skemmtun og hátíð sem heldur áfram allt kvöldið og alla nóttina og langt fram á morgun, og allt uns síðasta blaði er flett.“ (JS/Tíminn). „Útkoma Kvæðafylgsna er mikill bók- menntalegur viðburður.“ (Jón Þ. Þór/Tíminn). „Eins og vænta mátti er öll bók Hannesar hin læsileg- asta enda skrifar þar skáld af umhyggju og ástúð um annað skáld.“ (Heimir Pálsson/Helgarpósturinn). „Vinnubrögð Hannesar eru einstaklega vönduð og oft til hreinnar fyrirmyndar.“ (Helga Kress/Dag- blaðið). — í einu orði sagt: KJÖRGRIPUR : 1 I I .

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.