Morgunblaðið - 21.12.1979, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 21.12.1979, Blaðsíða 1
283. tbl. 66. árg. FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 1979 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Smith vill ekki koma London. 20. desember. Reuter. AP. FRÁFARANDI forsaAisráðherra Rhódesíu. Abel Muzorewa biskup. fór til London í da« tii að undirrita friðarsamning við skæruliða Föðurlandsfylk- ingarinnar, en leiðtogi hvíta minnihlutans. lan Smith. neitaði að mæta við undirritunina á morgun. Smith kvaðst telja „tímasóun" að fara þar sem honum væri aðeins boðið sem vitni. Þar með er ljóst að enginn fuiitrúi Rhódesiufylkingar hvítra manna verður viðstaddur athöfnina. Smith kvaðst vera of önnum kafinn til að fara til London. Hann sagðist þurfa að halda fundi til að kynna fólki samkomulagið og reyna að róa hvíta minnihlutann. Jafnframt gagnrýndi hann Muzorewa fyrir að fresta ferð sinni í tvo daga til að krefja Breta skýringa og sagði að töfin hefði kostað mannslíf. Brezki utanríkisráðherrann, Carr- ington lávarður, sagði í viðtali í BBC i kvöld að Bretar mundu ekki dragast inn í „lítið Víetnamstríð" með því að senda hermenn til Rhódesíu. Fyrstu 100 mennirnir úr 1200 manna friðargæzluliði samveldisins komu til Salisbury í dag og auk þeirra vistir og útbúnaður. í gæzluliðinu verða 900 brezkir hermenn, auk her- manna frá Kenya, Ástralíu, Nýja Sjálandi og Fiji. Dræmt tekið í tillögu NATO Vín. 20. des. AP — Reuter. VARSJÁRBANDALAGIÐ gagnrýndi í dag síðustu tillögur Vesturveld- anna í viðræðunum í Vín um fækkun herja í Mið-Evrópu og sagði að þær gengju of skammt og í þcim væri ekki gert ráð fyrir málamiðlunar- samkomulagi. Tillögurnar kveða meðal annars á um brottflutning 13.000 banda- rískra hermanna frá Evrópu i staðinn fyrir brottflutning 30.000 sovézkra hermanna og stofnun nýs eftirlitskerfis. EFTIRLITSMENN — Fyrstu hermennirnir af um 1200 frá Bretlandi og samveldislöndunum sem eiga að hafa eftirlit með vopnahléinu í Rhódesíu við komuna til Salisbury í gær. Dauða- dómar í S-Kóreu Seoul. 20. des. AP. HERRÉTTUR í Suður-Kóreu dæmdi í dag fyrrverandi yfir- mann lcyniþjónustunnar. Kim Jae-Kyu og sex menn aðra til dauða fyrir að myrða Park Chung-Hee forseta og sex lífverði hans og sagði að þcir hefðu allir framið landráð. Herrétturinn sagði að þótt Kim Jae-Kyu hefði haldið því fram að hann hefði viljað koma aftur á lýðræði hefði mrorð hans á Park stofnað frjálsu lýðræði í alvarlega hættu. Því var haldið fram að Kim hefði ætlað að myrða Park til þess að verða sjálfur forseti. Því neitaði Kim alfarið. Áttundi sakborningurinn vár fundinn sekur um að eyðileggja sönnunargögn og var dæmdur í þriggja ára fangelsi. Dómarnir voru kveðnir upp ein- um degi fyrir innsetningu Chou Kyu-Hah forseta í embætti. Hann mun boða endurskoðun Yushin- stjórnarskrárinnar frá 1972 er Park samdi til að tryggja völd sín. Kim var sakaður um að reyna að „varðveita Yushin-kerfið“. Aðalfulltrúi Austur-Þjóðverja viðræðunum, Andre Wieland, sagði að sú ákvörðun NATO að smíða nýjar meðaldrægar eldflaugar og stilla þeim upp í Vestur-Evrópu gæti grafið undan viðræðunum um fækkun herja og gert þær flóknari. Þótt ríkisstjórnir kommúnista- landa hafi harðlega gagnrýnt þessa ákvörðun NATO er þetta fyrsta beina viðvörunin um að hún geti haft áhrif á viðræðurnar í Vín sem nú eru hafnar að nýju eftir sex vikna hlé. Þótt fulltrúar Varsjárbandalags- ins gengju ekki svo langt að hafna hinum nýju tillögum NATO og gagnrýndu þær harðlega lofuðu þeir því að þær yrðu vandlega athugaðar. Korchnoi vondaufur Wohlön, Sviss, 20. dcs. AP. SKÁKMEISTARINN Viktor Kor- chnoi sagði í dag að dómurinn yfir Igor syni hans hefði nánast gert að engu vonir hans um að fjolskylda hans fengi ieyfi til að koma til sin til Vesturlanda. „Ég hef misst alla vor. um að það gerist næstu árin." sagði Korchnoi. Sonur hans var dæmur í tveggja og hálfs árs þrælkunarbúðavinnu í gær. Korchnoi sagði það bæði hart og ósanngjarnt, að andúð sovézkra yfir- valda og illindi í hans garð bitnuðu á syni sínum saklausum af öðru en því að vilja fá að komast til Vesturlanda. Engin ákvörðun um verðið á olíu Caracas. 20. descmbcr. Rcuter. AP. OLÍUVERÐLAGSKERFI heimsins hrundi í dag þar sem fundi ráðherra OPEC lauk án þess að samkomuiag næðist og olíuráðherra Saudi-Arahíu, Ahmed Zaki Yamani. spáði því að oliumarkaðurinn í heiminum mundi offyilast og verðið lækka snemma á næsta ári. Yamani sagði að samkomulag hefði ekki náðst þar sem markaðurinn væri svo óstöðugur og notendur hefðu ekki getað dregið úr olíunotkun. Hann spáði því að mörg olíuríki mundu lenda í vandræðum vegna umframbirgða þegar eftirspurn eftir olíu minnkaði í vetrarlok og samdráttur gerði vart við sig í heiminum. „Það verður áreiðanlega samdrátt- ur,“ sagði Yamani. „Hve mikill hann verður og hve langvarandi vitum við ekki.“ I tilkynningu frá ráðherrunum sagði að engin ákvörðun hefði verið tekin um Getgátur um nýja afstöðu í Teheran olíuverðið, en skyndifundur yrði hald- inn um málið. Forseti OPEC, Humb- erto Calderon, sagði að verið gæti að ráðherrarnir kæmu aftur saman eftir tvo til þrjá mánuði. Yamani sagði að verð Saudi-Arabíu yrði áfram 24 dollarar tunnan en aðrir ráðherrar sögðu að verð Saudi-Arabíu væri ekki iengur viðmiðunarverð OP- EC. „Komið er það ástand að hver ákveður verðið fyrir sig á olíumark- aðnum,“ sagði einn ráðherranna sem bætti því við að verð á sumum tegundum hráolíu yrði rúmlega átta dollurum hærra en verð Saudi-Arabíu. Fulltrúi Nígeríu, A.A. Hart, til- kynnti eftir fundinn að land hans hefði hækkað verð sitt í 30 dollara tunnuna frá og með 17. desember þannig að það er svipað verð Líbýu. Olíuráðherra Alsírs sagði líklegt að verð á alsírskri olíu yrði líka 30 dollarar tunnan. , Olíuráðherra Irans, Ali Akbar Moin- far, sagði að íranska verðið yrði 28,50 dollarar tunnan eins og nýlega var ákveðið fram til áramóta þegar end- urskoðun færi fram. Hann kvaðst ánægður með fundinn þar sem verð mundi ráðast af framboði og eftir- spurn. Tehcran, 20. descmbcr. AP. Reutcr. AYATOLLAII Khomeini átti í dag fund með byltingarráðinu og get- um var að því leitt að íranir væru að móta nýja afstöðu sem þeir gætu sameinazt um i deilunni við Bandaríkin. Jafnframt sagði Khomeini í ræðu sem var sjónvarpað í kvöld að allt tal um hugsanlega hernað- aríhlutun Bandarikjamanna væri hrcin þjóðsaga, til þess ætluð að hræða þjóðina sem væri ekki hrædd. Ilann sagði að nýlegar yfirlýsingar frá Ilvíta húsinu bentu til þess að Bandaríkjamenn kynnu að taka skynsamlega af- stöðu. „Þeir hafa jafnvel sagt að það verði ekki gripið til hernaðaríhlut- unar jafnvel þótt gíslarnir verði myrtir. Ef þetta er rétt merkir það að þeir hafa vitkazt ...“ sagði hann. Jafnframt biðu tveir bana og 44 særðust þegar Ebrahim Yazdi fyrrverandi utanríkisráðherra hélt ræðu í Zahedan, höfuðborg suð- austurhéraðanna Balúkistan og Sistan. Á fundinum hrópaði ein- hver „Dauði yfir óvinum bylt- ingarvarðanna" og steinum var kastað að áheyrendum Yazdi sem var sendur til héraðanna til að kanna kvartanir um byltingarverð- ina og kröfur um sjálfstjórn. Öryggisverðir skutu út í loftið og fólkið flúði. Egypzki ritstjórinn Hayanayh Haykal spáir því að íranir muni ná samstöðu í deilunni innan fimm daga. Hann kvaðst telja eftir fund með Khomeini að krafan um rétt- arhöld yfir keisaranum skipti ekki lengur höfuðmáli og að hótanir um að leiða bandarísku gíslana fyrir rétt væru úr sögunni. Hann telur líklegt að íranir muni krefjast alþjóðlegrar rannsóknar á starf- semi B.andaríkjamanna á dögum keisarans. í Washington var sagt í kvöld að Bandaríkjastjórn kynni að fara fram á samþykkt í Öryggisráðinu um refsiaðgerðir gegn Iran jafnvel þótt Rússar beittu neitunarvaldi. Kurt Waldheim, framkvæmda- stjóri SÞ, heldur áfram viðræðum við írani og á meðan bíða Banda- ríkin með að fara fram á refsiað- gerðir í von um árangur í Panama héldu stúdentar áfram að mótmæla dvöl keisarans í land- inu þrátt fyrir bann yfirvalda. í Zúrich sagði blað nokkurt að meðlimir úr fjölskyldu keisarans hefðu komið um 6,3 milljónum dollara til banka í Evrópu og Bandaríkjunum á síðustu mánuð- unum fyrir fall hans. Keisarafrú hlíft ef... Paris. 20. desembcr. Rcutcr. ÍRANSKI dómarinn Sadeq Khalkhali sagði í dag i viðtali við franska tímaritið Paris-Match að hann mundi strika konu fyrrver- andi íranskeisara af dauðalista sinum. náða hana og leyfa henni að snúa aftur til Irans ef hún myrti eiginmann sinn. Ayatollah Khalkhali hefur sagt að hann sé yfirmaður skæruliða- samtaka sem stefni að þvi að myrða meðlimi keisarafjölskyld- unnar og ráðherra stjórnar hans sem hafa flúið land. Hann lýsti sig ábyrgan fyrir morði frænda keis- arans í Paris fyrir háifum mán- uði. Khalkhali neitaði því í viðtalinu að skæruliðar hans ráðgeri að myrða alla meðlimi keisarafjöl- skyldunnar. „Það kemur ekki til mála að snerta börnin. þau eru saklaus af glæpum foreldranna." sagði hann.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.