Morgunblaðið - 21.12.1979, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 21.12.1979, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 1979 Söluhæstu bækurnar í ár: Undir kalstjörnu og Miðilshendur Einars Salan ekki minni en í fyrra BÓKSALAR og útKcfendur eru nokkuú sammála um að bóksalan í ár hafi gengið heldur betur en í fyrra og telja sumir að bækur hafi selst í meira mæli úti á landi en í fyrra o>? telja það m.a. stafa af KÓðum samgónKum. auðveldara sé að koma bókasendinKum út á land (>% fólk ferðist meira úr sveitum í þéttbýli til að versla og kaupi þá gjarna bækur. Mbl. kannaði meðal nokkurra bókaverslana og útgefenda hvcrjar væru helstu sölubækurnar í ár. Flestir bóksalar nefndu að í fyrsta ok (jðru sæti væru bækurnar Undir kalstjörnu eftir Sigurð A. Maunússon og Miðilshendur Einars á Einarsstöðum. Meðal þýddra bóka er söluhæst Ék sprengi kl. 10 cftir Alistair Maclean (>K virðist hún seljast í stærra upplagi en íslenskar bækur, en af barnabókum er nokkuð misjafnt hvað selst og töldu marj?ir erfitt að nefna ákveðnar bækur er skæru si>? úr. Sumir bóksalanna er leitað var til kváðust ekki hafa það gott yfirlit þá stundina yfir söluna og báðust því undan að svara: „Æ, því get ég ekki svarað,“ sagði t.d. einn bóksali á Vesturlandi. — „Þeir vita það fyrir vestan" er eðlilega mesta sölubókin hjá okkur, sagði Gunnlaugur Jónas- son hjá Bókaverslun Jónasar Tómassonar á ísafirði, en einnig hafa selst vel bækurnar Undir kalstjörnu, Hvunndagshetjan og Miðilshendur, en gallinn er hins vegar sá að þessar bækur vantar þar sem flutningar hingað vest- ur hafa gengið hægt síðustu daga. Af öðrum bókum nefndi Gunniaugur einnig Tryggva sögu Ófeigssonar, Misjöfn er mannsævin, Dómsdagur, Sig- mund á skopöld, Steingríms sögu og Á brattann. Af erlendum bókum: Ég sprengi kl. 10, Guði gleymdir og Fílaspor. Erlendu myndabækurnar kvað hann selj- ast mikið en þó minna en oft áður en af best seldu hefð- bundnu barnabókunum nefndi Gunnlaugur Mamma í upp- sveiflu og Lyklabarn og af þýdd- um bókum I föðurleit, Húsið í Stóruskógum og Vorið sem mest gekk á. Fulltrúi Bókaverslunar Hann- esar Jónassonar í Siglufirði upp- lýsti að mest sala væri í Undir kalstjörnu, Miðilshöndum Ein- ars og af þýddum bókum Ég sprengi kl. 10 og sögu Margaret Trudeau. Meðal helstu sölu- hæstu barnabóka væru í föður- leit og Titta og taldi hann meira keypt af bókum nú en í fyrra. I versluninni Bókaval á Akur- eyri sagði verslunarstjórinn að Undir kalstjörnu væri söluhæst, en Miðilshendur Einars á Ein- arsstöðum kæmi fast á eftir, mikið væri selt af Hvunndags- hetjunni, Sigmund á skopöld og bókinni Móðir mín húsfreyjan. Þá seldust nokkuð barnabæk- urnar Agnarögn, Stroku Palli og Mamma í uppsveiflu, en sala þeirra mætti þó vera meiri miðað við erlendar myndabæk- ur. Sagði verslunarstjórinn söl- una svipaða og í fyrra og ætti góð veðrátta og færð sinn þátt í að fólk úr nálægum sveitum kæmi til Akureyrar í verslunar- leiðangra. — Hér er ein bók í sérsölu, Miðilshendur Einars á Einars- stöðum, sagði Ingvar Þórarins- son hjá Bókaverslun Þórarins Stefánssonar á Húsavík og hefur hún gengið óvenjuvel. Aldnir hafa orðið, Haldið til haga og Fjallabæjarfólk seljast einnig mjög vel, en allar þessar bækur eru skrifaðar af þingeyingum. Einnig nefndi hann 2 barnabæk- ur þingeyskra höfunda Agnar- ögn Páls H. Jónssonar og Stroku Palla Indriða Úlfssonar. Meðal þýddra bóka kvað hann Ég sprengi kl. 10 seljast best og Fjallavirkið. Margar fleiri bæk- ur kvað hann seljast nokkuð, en einnig að til væru þær bækur er ekkert hreyfðust. Ari Bogason hjá bókaverslun Ara Bogasonar á Seyðisfirði sagði Miðilshendurnar seljast best hjá sér, en Undir kalstjörnu kæmi næst. Bækur Alistair MacLeans seldust jafnan mjög mikið, en í ár heitir hún Ég sprengi kl. 10, og sagði hann að hún seldist helmingi meira en söluhæsta íslenska bókin, en einnig kvað hann sögur Theresu Charles seljast vel. — Árin okkar Gunnlaugs selst einnig mikið hjá okkur enda var Gunn- laugur Seyðfirðingur og held ég reyndar að íslenskar bækur séu almennt að sækja mjög á á kostnað þýddu reyfaranna. Er- lendu myndasögurnar fyrir börnin seljast allmikið en af öðrum bókum eru líklega drýgst- ar Ævintýrabækurnar sem koma nú í endurútgáfu, en salan á barnabókunum dreifist mjög mikið og er erfitt að tilnefna nokkra röð í þeim. Bókaverslun Höskuldar Stef- ánssonar á Neskaupstað varð næst fyrir valinu og kvað Hösk- uldur Miðilshendur Einars í efsta sæti og síðan Undir kal- stjörnu. Fílaspor og Ég sprengi kl. 10 væru vinsælastar þýddra bóka, en Höskuldur kvað ís- lenskar bækur vera að ná yfir- höndinni hvað fjölda seldra ein- taka áhrærði. Þá taldi hann mesta sölu í myndabókunum fyrir börnin. Hjá Kaupfélagi Árnesinga á Selfossi var gefin upp þessi röð: 1. Ég sprengi kl.10. 2. Miðilsh- endur. 3. Dómsdagur. 4. Undir kalstjörnu. 5. I ríki Vatnajökuls. 6. Steingríms saga. Teikni- myndasögurnar þýddu væru keyptar fyrir börnin, en einnig seldust vel bækurnar Heiða og Pétur, Húsið í Stóruskógum, þar sem sögupersónur hefðu komið við sögu í sjónvarpsþáttum og einnig seldust nokkuð barna- bækurnar Stroku Palli og Lykla- barn. Hjá Bókabúð Vestmannaeyja var upplýst að Miðilshendur Einars, Undir kalstjörnu og Tryggva saga Ófeigssonar kepptu um efsta sætið, en Sig- mund á skopöld fylgdi þar fast á eftir. Af erlendum bókum seld- ust vel bækur þeirra Alistairs MacLeans og Sven Hazels og barnabókum I föðurleit, hún skæri sig úr. í Bókabúð Keflavíkur var Mbl. tjáð að meðal íslenskra bóka væru tvær í efsta sæti og langt ofan við allar aðrar: Miðilshend- ur Einars og Undir kalstjörnu. Síðan væri röðin þessi: Tryggva saga Ófeigssonar, Hvunndags- hetjur, Stroku Palli, Valva Suð- urnesja, Þrautgóðir á rauna- stund, Þeir vita það fyrir vesta, Dómsdagur og Óvitar. Af erlend- um bókum væri röðin þessi: Ég sprengi kl. 10, Strumpasúpa, Sá besti í heimi, Guði gleymdir, Fílaspor, Leyniþræðir ástarinn- ar og I skugga Évu. Þá var haft samband við nokkrar bókaverslanir í Reykjavík og nágrenni og feng- ust eftirfarandi upplýsingar. Bókabúð Olivers, Hafnarfirði: Undir kalstjörnu, Miðilshend- ur, Tryggva saga og Móðir mín húsfreyjan, Ég sprengi kl. 10 mest seld af þýddum bókum, en erfitt að sjá toppa í barnabókun- um. Bókabúð Jónasar, Rofabæ. íslenskar: Undir kalstjörnu í sérflokki, Miðilshendur Einars seldist mikið síðustu daga einnig Á brattann, Sigmund á skopöld og Þeir vita það fyrir vestan. Þýddar: Ég sprengi kl. 10, Guði gleymdir. Barna- og unglinga- bækur: Húsið í Stóruskógum, Sjáðu sæta naflann minn og Saltkrákan, sem væri nýkomin. ísafold, Austurstræti: —Ég svara alltaf að útgefendur geta verið ánægðir, sagði Sig- ríður Sigurðardóttir, og ef ég á að segja eitthvað þá seldust Auður Haralds og Sigurður A. Magnússon mest fyrst, en nú selst allt mögulegt og hafa Miðilshendur Einars tekið mik- inn kipp síðustu daga. Orðabæk- ur seljast alltaf töluvert, Mac- Lean er í efsta sæti af þýddum bókum, en af barnabókum selst engin mest. Salan hefur aldrei verið jafnari en í ár og fólk getur valið úr mun fleiri bókum. Hjá bókaverslun Lárusar Blöndal, Skólavörðustíg var upp- lýst: Ævisögur seljast vel t.d. Mið- ilshendur Einars og Undir kalstjörnu, Á brattann og Tryggva saga Ófeigssonar. Þá seljast mikið Þeir vita það fyrir vestan og Sigmund á skopöld. Skáldsögurnar Hvunndagshetj- an, Dómsdagur og Unglingsvet- ur seljast vel og erlendu reyfar- arnir Ég sprengi .. ,,Guði gleymdir, Fjallavirkið og Leyni- þræðir ástarinnar ganga mjög vel, en meðal barnabóka treysti viðmælandi blaðsins sér ekki til að greina frá, þar þekkti hann ekki nóg til. Bókaverslun Sigfúsar Ey- mundssonar, Austurstræti: íslenskar: Undir kalstjörnu, Miðilshendur, Á brattann, Þeir vita það fyrir vestan, Hvunn- dagshetjur og Unglingsvetur. Þýddar: Ég sprengi kl. 10. Barnabækur: Ævintýrabæk- urnar og bækur Astrid Lind- gren, en erfitt að sjá að nokkur skeri sig úr. Þar var og upplýst að einkennandi væri að fólk keypti meira af eldri bókum og mikið um að börn kaupi vasa- brotsbækur fyrir foreldra sína. Úlfarsfell, Hagamel: íslenskar: Miðilshendur, Und- ir kalstjörnu, Sigmund á skop- öld. Þýddar: Ég sprengi ..., Fíla- spor, í morgunkulinu og Blóð- bönd. Barnabækur: Mikil dreifing, myndabækur mest seldar, enda ódýrari. Útgefendur Þá ræddi Mbl. við nokkra bókaútgefendur og virtust þeir sammála um að salan væri ekki minni en í fyrra, sennilega meiri og lét einn þess getið að salan virtist meiri úti á landi en oft áður. Arnbjörn Kristinsson hjá Set- bergi kvað bækurnar Dómsdag eftir Guðmund Daníelsson og Lækni í þrem löndum, ævisögu Friðriks Einarssonar seljast best hjá sér. Meðal barna— og unglingabóka seldist best bókin Svona er tæknin. Þá sagði Arn- björn að salan væri nú í fyrsta sinn nokkuð misjöfn eftir lands- hlutum og virtist hún best á Vestfjörðum og líka hefði selst mikið á Akureyri. Anton Örn Kærnested hjá Almenna bókafélaginu kvað 4 bækur skera sig úr hjá AB: Á brattann, Unglingsvetur, Þeir vita það fyrir vestan og í ríki Vatnajökuls og væru þær allar í góðri sölu. Kvað Anton Örn bóksölu hafa gengið mjög vel í ár, betur en í fyrra og ættu m.a. án efa góðar samgöngur út um land sinn þátt í því. Jóhann Páll Valdimarsson hjá Iðunni kvað bók Alistairs Mac- Leans, Ég sprengi kl. 10 í langmestri sölu og bókina Hvunndagshetju sagði hann hafa unnið töluvert á. Sagði Jóhann að miklu betur gengi nú en áður að ná upp góðri sölu bóka eftir íslenska höfunda og væri greinilegt að þeir ynnu á í samkeppni við þýddar skáldsög- ur. Af öðrum bókum, er seldust vel nefndi hann Erindi eftir Þórarinn Eldjárn, Fílaspor eftir Hammond Innes, Óvita Guðrún- ar Helgadóttur, Agnarögn Páls H. Jónssonar og bækurnar um Litla, svarta Sambó, unglinga- bækurnar Kittu og Dóru og myndabækurnar um Strumpana. Örlygur Hálfdánarson hjá Erni og Örlygi sagði að bókin um íslandsleiðangur Stanleys hefði selst vel, 1.100 eintök er fyrst voru prentuð væru uppseld og búið að prenta viðbót. Þá sagði hann Steingríms sögu hafa selst vel, Bjartsýni léttir þér lífið, Bændablóð, Vopnaskipti og vina- kynni, Forn frægðarsetur og Ég berst á fáki fráum hefðu einnig gengið vel og barnabókin Búálf- arnir. Þá hefði bókaflokkurinn Sígildar sögur með litmyndum selst nokkuð vel, en með þeim flokki væri hugmyndin að kynna börnum vandaðar bókmenntir, sem þau myndu síðan lesa síðar í fullri lengd. Örlygur sagði að íslenskar skáldsögur hefðu geng- ið framar vonum og taldi hann bóksöluna nú ekki minni en í fyrra. Þröstur Ólafsson hjá Máli og menningu sagði bókina Undir kalstjörnu seljast langmest, hefði þegar selst í stærra upp- lagi en Eldhúsmellur, sem var söluhæsta bókin hjá þeim í fyrra. Hefði bókin komið snemma út, verið umtöluð og því auglýst sig sjálf. Barnabækurn- ar kvað hann ganga nokkuð vel, t.d. Emil í Kattholti og bækur Astrid Lindgren og íslensku bækurnar Mamma í uppsveiflu og Lyklabarn einnig.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.