Morgunblaðið - 21.12.1979, Page 32
Sími á ritstjórn og skrifstofu:
10100
JMvrgunblnbiti
FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 1979
Demantur M
æðstur eðalsteina -
(@ull Sc ^tlftir
Laugavegi 35
Síðasta sala
ársins ámóta
og sú fyrsta
BERGVÍK KE fckk í gær 737
króna meóalverð á kíló er skipið
seldi 79A lestir af ísfiski fyrir
58.5 milljónir króna í Hull í ga;r.
Er þetta næsthæsta meðalverð í
enskum pundum, sem fengist hef-
ur í Englandi, en hæst meðalverð
fékk Ránin, sem var fyrst
íslenzkra skipa til að selja erlend-
is á þessu ári. Sala Bergvíkur er
síðasta salan erlendis á árinu.
Ekkert skip hefur áður fengið svo
margar íslenzkar krónur fyrir
hvert kíló að meðaltali.
Líðan sjúkl-
inganna all-
góð miðað við
aðstæður og
flestir þeirra
á batavegi
LÍÐAN sjúklinganna úr þyrluslys-
inu á Mosfcllsheiði á þriðjudag er
yfirleitt allgóð miðað við aðsta-ður
og eru flestir þeirra þegar á
hatavegi samkvæmt þeim upplýs-
ingum sem Morgunblaðið fékk hjá
Iæknum á Borgarspítala, I.anda-
kotsspítala og á Landspitalanum
þar sem þeir eru til meðferðar.
Leifur Jónsson læknir á Borg-
arspítalanum sagði að önnur finnska
stúlkan væri orðin það góð að hún
gæti fljótlega farið af spítalanum, en
hún þurfti að hvíla sig nokkurn tíma
og fara svo í smáæfingar. Hin
stúlkan er aftur meira slösuð, sér-
staklega á baki og mun verða til
meðferðar einhvern tíma, en þegar
hefur verið gerð á henni ein aðgerð.
Varðandi Bandaríkjamennina sem á
spítalanum eru sagði Leifur að
spurningin væri helzt hvaða aðstaða
væri fyrir hendi á Keflavíkurflug-
velli til þess að gera frekar að
meiðslum þeirra og endurhæfa þá
síðan með æfingum. Ef aðstaða væri
þar fyrir hendi gætu þeir farið suður
eftir fljótlega.
Að sögn Sæmundar Guðmundss-
onar læknis á Landakoti er Ný-
sjálendingurinn þegar á réttri leið,
en mun væntanlega þurfa að vera á
sjúkrahúsi um nokkurn tíma.
Á Landspítalanum fengust þær
upplýsingar að líðan sjúklinganna
þar væri svipuð, en þó þokkaleg
miðað við aðstæður.
bótt margt sc á krciki í kring um jólin og huldufólk stígi dans í kapp við mannfólkið, þá eru þetta mannanna börn sem þarna eru að dansa í kring
um jólatré á jólaskemmtun i Laugarnesskóla í Rcykjavik. En líklega hafa þau dansað svo hratt að ljósmyndari Morgunblaðsins, Kristján
Einarsson. hefur átt crfitt með að festa þau á filmuna, en það fór ekkert á milli mála að hann heyrði þau syngja: Dönsum við í kring um
einiberjarunn ...
Ragnar Arnalds:
Misskilningur að bíða eft-
ir nýjum tillögum okkar
Alþýðuflokkur og Framsóknarflokkur segjast bíða eftir tillögum frá Alþýðubandalagi
„ÉG BÝST fastlega við því, að ég
muni gera forseta íslands grein
fyrir gangi stjórnarmyndunarvið-
ræðnanna eftir fund á morgun,"
sagði Steingrímur Ilermannsson.
formaður Framsóknarflokksins í
samtali við Morgunblaðið í gær.
„Ég hef margoft sagt, að ég vilji
ekki halda stjórnarmyndunarvið-
ræðunum lengur en nauðsynlegt
er, en til þess að ég geti að lokum
gert upp minn hug, finnst mér, að
það verði að liggja fyrir tölulegt
mat á því, hvað um er að tefla."
Steingrímur ítrekaði við Alþýðu-
bandalagið í gær, að það legði fram
skriflega afstöðu sína til tillagna
hinna flokkanna i efnahagsmálum
eða þá eigin tillögur.
Kvartað yfir niðursoð-
inni rækju í Þýzkalandi
Hluti af framleiðslu K. Jónssonar og Co. á Akureyri
Ragnar Arnalds, formaður þing-
flokks Alþýðubandalagsins sagði
hins vegar í samtali í gær, að það
væri mesti misskilningur hjá hinum
flokkunum tveimur, að þeir væru að
bíða eftir nýjum tillögum frá Al-
þýðubandalaginu. Tillögur þess
lægju fyrir, skriflegar, en reyndar
hefði Alþýðubandalagið ekki fengið
skýr svör hinna varðandi ýmis
grundvallaratriði í tillögunum og
önnur hefðu alls ekki verið rædd.
„Staðan í stjórnarmyndunarvið-
ræðunum er nú sú, að við bíðum
tillagna Alþýðubandalagsins, sem
hægt verði að meta til árangurs á
sama hátt og tillögur okkar hinna,“
sagði Sighvatur Björgvinsson, for-
maður þingflokks Alþýðuflokksins.
„Það er spurning um vilja Alþýðu-
bandalagsins, hvort þessar tillögur
koma fram eða ekki.“ Sighvatur
sagði ennfremur, að það plagg, sem
Alþýðubandalagið hefði lagt fram í
viðræðunum væri „nánast almennur
leiðari úr Þjóðviljanum, sem ekki er
nokkur lífsins leið að meta til
aðgerða í efnahagsmálum".
Sjá tillögur vinstri flokkanna
í stjórnarmyndunarviðræðun-
um á bls. 16 og 17 og yfirlýs-
ingu Alþýðubandalagsins frá
því í fyrrakvöld á bls. 18.
KVARTANIR og athugasemdir
hafa verið gerðar við gæði talsverðs
magns af rækju. sem Niðursuðu-
verksmiðja K. Jónssonar og Co. á
Akureyri framleiddi fyrir Þýzka-
landsmarkað. Illuti framleiðslunn-
ar var sendur utan í októbermánuði.
en í heild var samið um sölu og
framleiðslu á rækju frá fyrirtækinu
fyrir um 200 milljónir króna. Sam-
kvæmt upplýsingum Morgunblaðs-
ins mun þessi rækja einnig hafa
verið sett á markað hér innanlands
og sömuleiðis verið kvartað yfir
henni hér á landi.
Gylfi Þór Magnússon fram-
kvæmdastjóri Sölustofnunar lagmet-
is staðfesti í samtali við Mbl. í gær,
að umboðsmaður fyrirtækisins í
V-Þýzkalandi hefði kvartað yfir gæð-
um rækju i 3endingu sem þangað fór
í október. — Enn eru þetta aðeins
athugasemdir þeirra og varan er í
Þýzkalandi og eftir að rannsaka hvað
í raun er þarna um að ræða, sagði
Gylfi Þór Magnússon. Kristján
Jónsson forstjóri fyrirtækisins á
Akureyri vildi ekki ræða þetta mál
þegar Morgunblaðið innti hann eftir
því í gær.
Aðallega munu kvartanir yfir
þessari vöru vera vegna lyktar, en
fleiri atriði munu hafa þótt að-
finnsluverð. Sýni voru tekin af þess-
ari framleiðslu og þau rannsökuð af
sérfræðingi Rannsóknastofnunar
fiskiðnaðarins á Akureyri. Hann
gerði engar athugasemdir við vör-
una.
Morgunblaðið ræddi í gær við Geir
Arnesen og Grím Valdimarsson hjá
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins í
Reykjavík. Sögðu þeir að þessi fram-
leiðsla hefði verið athuguð á Akur-
eyri samkvæmt ákveðnum reglum og
ekkert aðfinnsluvert komið fram í
þeim rannsóknum. Aðspurðir sögðu
þeir það rétt, að framleiðendur hefðu
að einhverju leyti breytt uppskrift
eða aðferðum við framleiðslu upp í
þennan samning. Grímur Valdim-
arsson tók sérstaklega fram, að
þegar slíkar kvartanir bærust væru
þær gjarnan ofstopafullar fyrst í
stað, en þegar nánar væri skoðað
væri iðulega ekkki um eins alvar-
legan hlut að ræða og í fyrstu mætti
halda. í þessu tilfelli væri í raun
erfitt að meta hvað væri á seyði og
það yrði varla ljóst fyrr en búið væri
að rannsaka á ný sýni úr þeirri
sendingu, sem fór til Þýzkalands í
október.
dagar
til
jóla
Akureyri og Lissa-
bon heitustu stað-
ir Evrópu í gærdag
MIKIÐ tjón varð á Akureyri og á
nokkrum öðrum stöðum Norðan-
lands síðdegis í gær, en mikið rok
gekk þá yfir Vestfirði og Norður-
landið. í gær var þó einnig annað,
sem var athygli vert í sambandi
við veðurfarið á Akureyri. Þar
mældist 14 stiga hiti þegar mest
var og í Evrópu gat aðeins
Lissabon í Portúgal státað af jafn
miklum hita og Akureyri. Víðar á
landinu var mikill hiti í gær og
t.d. var 13 stiga hiti á Reyðarfirði
um tíma í gær og einstök veð-
urblíða. Morgunblaðið spurðist
fyrir um það á Veðurstofunni í
gærkvöldi hvort miklar breyt-
ingar væru fyrirsjáanlegar á
veðrinu. Veðurfræðingur taldi að
áfram yrði suðvestanátt og sagði
aðspurður, að lítlar líkur væru á
jólasnjó að þessu sinni.