Morgunblaðið - 03.01.1980, Page 10

Morgunblaðið - 03.01.1980, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 1980 Góðan dag, góðir áheyrendur. Ég óska yður öllum gleðilegs nýárs og læt þá ósk og von í ljós, að þetta nýbyrjaða ár megi verða þjóð vorri farsælt og bera með nokkrum hætti eitthvað gott í skauti sínu oss öllum til handa. Fullvel veit ég að þessi dagur sækir misjafnlega að eins og aðrir, skuggi sorgar og þreng- inga hvílir yfir mörgu húsi nú eins og endranær. Stundum finnst manni að hefðbundin nýárskveðja geti hljómað hjá- róma þar sem þannig stendur á. Þess vildi ég þó óska að nýárs- dagurinn mætti verða sem flest- um vonardagur, og þó einkum þeim sem mest þurfa á uppörvun að halda, þeim sem í nauðum eru staddir, í sorgarhúsi, á sjúkra- beði, í fangavist eða sálarkröm. Sagt er að tíminn lækni öll sár. Ekki gerir hann það til fulln- ustu, en þó er gott að festa sér í hug þá reynslu sem er jafngömul mannkyninu, að græðimáttur tímans er mikill, einkum ef vér vitandi vits leyfum trú og von að korria til liðs við hann. Sólin er enn einu sinni farin að hækka á lofti. Mörgum verður það á nýárs- degi að líta um öxl og renna augum yfir farinn veg, árið sem leið. Hvers er að minnast, spyrja menn, og hver svarar fyrir sig, ýmist í leyndum hugans eða í heyranda hljóði í hópi fjölskyldu og vina. Fyrir mitt leyti vil ég fyrst og fremst minnast vin- semdar og trausts sem lands- menn hafa enn sem fyrr sýnt konu minni og mér, og fyrir það þakka ég nú, þegar ég flyt hér ávarpsorð til þjóðarinnar á tólfta nýársdeginum í röð. Þakklátum huga minnist ég einnig gestrisni og hlýhugar sem við sannreyndum á liðna árinu í þremum þjóðlöndum öðrum sem fulltrúar íslensku þjóðarinnar. Það hefur verið yfirlagt ráð okkar að stilla opinberum og hálfopinberum utanlandsferðum í hóf, þótt kostur hafi verið á fleiri en farnar hafa verið. En svo vildi til að á árinu sem leið fórum við þrjár slíkar ferðir. Fyrst til eyjarinnar Manar til þess að taka þátt í hátíðahöldum eyjarskeggja vegna þúsund ára minningar um stofnun þingsins þar, sem þeir kalla Tynwal, en það er sama og Þingyöilur á voru máli. Því næst fórum við í opinbera heimsókn til Belgíu í boði konungshjónanna þar og loks til Noregs í boði háskólans í Osló og norska vísindafélagsins vegna minningarhátíðar um Snorra Sturluson. Vera má að þessi upptalning þyki óþarfur fréttalestur, en ég vil ekki láta fram hjá mér fara það tækifæri sem ég hef hér til að skýra frá þeirri miklu vinsemd í garð Islands sem við hittum hvar- vetna fyrir, og lifandi áhuga á högum vorum. Spyrja má að hvaða gagni slíkar opinberar heimsóknir séu, og raunar hef ég oft spurt sjálfan mig að því. Ég held þó, að ef vér sækjumst í alvöru eftir vináttu og skilningi annarra þjóða, þá séu þær gott framlag tii þess málefnis, góð landkynning á sinn hátt. Til góðs vinar liggja gagnvegir segir í fornum spekimálum, og ef til vill eru þessi gömlu orð einmitt rétta svarið við þeirri spurningu sem ég hreyfði, hvaða gagn væri að þjóðhöfðingjaheimsóknum landa í milli. Vér höfum á nýliðnu ári minnst tveggja mikilmenna sögu vorrar. Vér höfum rakið fyrir oss líf og starf Snorra Sturluson- ar, af því að nú eru liðnar átta aldir síðan hann fæddist. Slíkt var vel við hæfi, því í bókum Snorra reis íslensk miðalda- menning hæst, sú sem enn er þjóðarstolt vort og hefur borið hróður landsins víða, og í ævi- sögu og örlögum Snorra speglast saga þjóðarinnar á afdrifaríkum tímum og má enn draga lær- dóma af þeim umbrotum. Þó að Snorri sé ein af aðalpersónum öllu til að kanna sögu vora og endurheimta landsréttindi vor, þau sem kynslóð Snorra Sturlu- sonar átti sinn drjúga hlut í að rann úr höndum þjóðarinnar. Kjörorð Jóns Sigurðssonar var Eigi að víkja, og getur þýtt margt, meðal annars að aldrei megi láta undan síga í sókn þjóðarinnar að markmiðum frelsis og menningar í þessu landi, á hvaða vettvangi sem er. Það merkir einnig að ekki skuli æðrast og þaðan af síður ör- vænta, þó að eitthvað gefi á bátinn. Það er vissulega ekki vanþörf á að brýna þetta fyrir sér, nú þegar umræða um efna- hagsmál og baráttan fyrir að halda í horfi því hagsældarþjóð- félagi, sem vér viljum hafa, skyggja svo að ekki verður um villst, á þau markmið sem í raun og veru eru öllum æðri. Það væri barnaskapur að fara hrakyrðum minni sú setning að í fornöld væri iandið viði vaxið milli fjalls og fjöru. Það gerir óskin og draumurinn um íslenskan skóg. Vér vitum nú að sá draumur getur ræst. Ekki þarf að efa að allir séu sammála um að gróðurvernd hvers konar sé landnámsmál, framtak til að gera landið feg- urra og betra. Og er þá komið að sígildu íslensku umhugsunar- efni, en það er landið sjálft sem vér byggjum, kostir þess og ókostir, hvernig það sé sem lífvænlegur mannabústaður. Þégar raunsætt er á allt litið, hvernig það standi undir þeim kröfum sem til þess verður að gera, miðað við það líf sem vér viljum lifa og verðum að lifa. Ef til vill eru slíkar hugsanir óvenju áleitnar einmitt nú, þeg- ar brugðið hefur til kaldari veðráttu en verið hefur um langt Samstaða i erfiðleikum verður að nást með skynsemi og góðum vilja Sturlungu og margt sé eftir honum haft, er víst fátt eða ekkert gripið beint af vörum hans annað en tvisvar sinnum þrjú orð, en þau eru líka gulls ígildi og merkilega lík því að þau væru meitluð kjörorð. Út vil ek, sagði Snorri þegar konungur bannaði honum för til íslands. Hví skyldum vér ekki víkka merkingu þeirra orða: Ég vil heim til íslands, hvað sem það kostar, og láta vera einkunnar- orð í skildi íslendinga. Eigi skal höggva, sagði Snorri, og í þau orð getum vér lagt íslenska fordæmingu á athæfi þeirra manna sem með sverði vega og gera sig að svo miklum herrum að taka líf annarra að geðþótta sínum. Þær freítir berast nú dögum oftar úr sumum heims- hlutum að menn séu gripnir og leiadir fyrir aftökusveitir eða lagðir að velli á annan hátt eins og búfénaður, fyrir engar eða ósannaðar sakir. Það er sár- grætilegt að þurfa að minnast þess við þessi áramót að virð- ingarleysi fyrir mannslífum og mannreftindum færist enn í aukana í heiminum ef nokkuð er. Litlu fáum vér orkað gegn þeim ósköpum annað en lýsa sam- stöðu vorri með þeim sem gegn slíku vinna, leggja lóð vort á vogarskálina þegar færi gefst, og stæla viljann til þátttöku undir kjarnyrði Snorra: Eigi skal höggva. Og vér höfum nýlega minnst Jóns Sigurðssonar forseta, þegar öld var liðin frá dánardægri hans, og minnumst vér hans að vísu ár hvert, því að hann er frelsishetjan, sem varði lífi sínu um þjóðmálabaráttuna frá degi til dags og þá sem í henni standa, því að hún er hluti af lífinu sjálfu og snýst um grund- vallarskilyrðin fyrir því að þjóð- in fái búið í landi sínu. En það væri hörmulegt upp á að horfa, ef svo ætti að fara að vandamál og sundurþykkja stigmagni hvort annað með sífelldri víxl- verkan, uns allt lendir í úrræða leysi. Samstaða í erfiðleikum verður að nást með skynsemi og góðum vilja, til þess að treysta þann grundvöll sem allt hvílir á. Þetta er óumflýjanlegt frum- atriði, en í hita dagsins og vanda starfsins má þó aldrei gleymast, að þótt nauðsynlegt sé, er það ekki einhlítt eða endanlegt markmið, heldur frelsi og menn- ing þjóðarinnar, fagurt mannlíf í' landinu. Lífið má aldrei verða brauðstritið eintómt og orða- skak um það, og landið er ekki eingöngu auðsuppspretta til þess að fæða og klæða þjóðina svo sem best má verða. Það er einnig ættjörð, móðurmold, föðurland, það eina sem vér munum nokkru sinni eignast. Landið og erfðirn- ar hafa mótað oss og eru sam- grónar tilfinningalífi voru og eiga að vera það. Og þjóðfélagið sem vér höfum komið upp, er ekki sambærilegt við fyrirtæki, vel eða illa rekið eftir atvikum. Það er samfélag um íslenska menningu, gamlan arf og nýja sköpun, ætlunarverk íslensku þjóðarinnar. Þetta má aldrei úr minni líða, hvort sem árar betur eða verr á sviði hinna daglegu veraldlegu þarfa. Sameinuðu þjóðirnar hafa þann hátt á, að helga tiltekin ár Nýársávarp forseta íslands, dr. Kristjáns Eldjárn sérstökum brýnum verkefnum. Þetta hefur gefist vel og leyst úr læðingi öfl sem að vísu voru til en hætti til að blunda og þurftu þess með að við þeim væri ýtt. Síðast var það alþjóðaár barns- ins, barnaárið. Nú hafa norrænu félögin ákveðið að kalla þetta ár norræna málaárið, og íslenskir menn hafa^útnefnt það ár trés- ins. Hvort tveggja málefnið er gott, og þarf hvorugt að skyggja á hitt. Norræna málaárið á að styrkja samheldni og einingu norrænu þjóðanna með því að beina athygli að málum Norður- landaþjóða, hvernig þau sam- eina og að hverju leyti þau sundurskilja þessar þjóðir sem vilja og eiga að standa saman. I þessu efni má áreiðanlega nokkru góðu til leiðar koma. Ar trésins er á sinn hátt barnaár, því að íslensk tré mega heita börn að aldri og vexti. Arið á að vera brýning um að koma þess- um börnum til meiri þroska, vera enn eitt átak í þeirri viðleitni að láta gróðurinn sækja á auðnina. Þetta er gamall óskadraumur og framtíðarnauð- syn. Af samanlögðum barnalær- dómi loðir held ég einna fastast í skeið og þau tíðindi berast að síðastliðið ár hafi verið eitt hið jafnkaldasta sem um getur síðan mælingar á slíku hófust. Og ekki brást það að sá kuldi sagði illilega til sín á því ári og kann þó að draga lengri slóða. Vér höfum verið á það minnt hvar vér erum á hnettinum. Það gerði einnig sá góði maður sem fyrir allmörgum árum laumaði því að þjóðinni að ísland væri á mörk- um hins byggilega heims. Hversu oft skyldu menn hafa borið sér þetta spakmæli í munn síðan? Og þó var það engin ný speki, og engin speki yfirleitt. Öll lönd heims eru byggileg mönnum, ef þar er vatn, gróður og dýralíf, og það er víðast. Kalt veðurfar ræður hér engum úr- slitum. Dómur um það hvort land er byggilegt eða ekki fer algjörlega eftir því við hvaða stig verkmenning á að lifa og hversu hátt þjóðfélagið stefnir. Nú er tæknivæðing og vísinda- þekking tuttugustu aldar komin til sögu, og vér eigum hlutdeild í hvoru tveggja. Þetta hefur fært oss í hendur áður óþekkt vald yfir nát.túrunni, til að hagnýta kosti hennar og vinna bug á því mótdræga, og gjörbreytt öllum hugmyndum og dómum um hvað sé byggilegt land og hvað ekki. Sú sannleiksögn sem þó leyndist í þeim orðum að ísland væri á mörkum hins byggilega og óbyggilega á jörðinni, er nú að engu orðin, af því að vér ráðum nú yfir þessum nútíma úrræð- um. Hið kalda ár 1979, sem illa lék íslenskan landbúnað og hefði fyrr á tíð getað valdið harðind- um og jafnvel hungursneyð, var Þorbjörg Aradóttir, Jóhanna Steinþórsdóttir og Sigurður Steinþórs- son í hlutverkum sínum. Ungmennafélag Gnúp- verja sýnir Glerdýrin Eystra-Geldingarholti, 2. jan. UNGMENNAFÉLAG Gnúpverja frumsýndi sjón- leikinn „Glerdýrin" eftir Tennessee Williams í Ár nesi sunnudaginn 30. des. Leikstjóri er Halla Guð- mundsdóttir í Ásum, er einnig gerði leikmynd. Saumaskap og smíði leik- tjalda önnuðust félagar í Ungmennafélagi Gnúp- verja. Með hlutverkin, sem eru aðeins fjögur, fóru Þor- björg Aradóttir, Jóhanna Steinþórsdóttir, Sigurður Steinþórsson og Hjalti Gunnarsson. Frumsýningargestir tóku leiknum mjög vel og voru leikstjóri og leikarar hyllt- ir í leikslok með langvinnu lófataki og blómum. Ég held að það sé allra mál, er þessa sýningu sáu, að hér hafí vel til tekist. Leikend- ur skiluðu vandmeðförnum hlutverkum vel undir ör- uggri og ágætri leikstjórn. Svo og allir aðrir, sem að þessari sýningu stóðu. Þeg- ar þannig er að málum unnið er það ómetanlegt innlegg til aukins félags- og menningarlífs. Næstu sýningar á leikn- um verða á Hvoli föstu- dagskvöld kl. 21 og í Ara- tungu á laugardag á sama tíma. Síðan er ráðgert að sýna leikinn víðar á næst- unni. Jón.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.