Morgunblaðið - 03.01.1980, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 03.01.1980, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 1980 ÁRAMÓTABRENNUR — Alls voru 22 áramótabrennur á höfuðborgarsvæðinu á gamlárskvöld og tók Kristinn ljósmyndari Mbl. þessa mynd við eina þeirra. Svartsýnir og óttumst enn frekari uppsagnir - segir formaður Flugvirkjafélagsins MEÐAL þeirra starfsmanna Flugleiða er sagt hefur verið upp eru 32 félagar í Flugvirkjafélagi íslands, þ.e. 16 flugvélstjórar og 16 flugvirkjar. Mbl. ræddi í gær við Einar Guðmundsson formann Flugvirkjafélagsins og spurði um viðbrögð félagsins við uppsögnum Flugleiða. — Ekki er hægt að segja annað en menn séu svartsýnir og óttist jafnvel frekari uppsagnir, en tíminn sker úr um það. Nú þegar fyrir dyrum standa samningar við Luxemborgarmenn er ekki að vita nema að starfsemi Flugleiða fari algjörlega í hendurnar á erlendum aðilum. En við skiljum vart hvers vegna svo miklar uppsagnir þurfa að koma til, við höfum t.d. margoft bent á að færa mætti verulega mikla viðhalds- og eftirlitsvinnu Þrettándahátíð í íþróttahöll- inni á Selfossi ÞRETTÁNDAHÁTÍÐ verður haldin í íþróttahöllinni á Selfossi 6. janúar n.k. og er hún til styrktar ungum Selfyssingi, sem fyrir nokkrum árum slasaðist það alvarlega í bílslysi að hann hefur þurft að dvelja á sjúkra- húsum síðan. Þeir sem koma fram á hátíðinni sem hefst klukkan 22.00 eru m.a. Brimkló, Halli og Laddi, HLH-flokkurinn, Mánar, Rut Reg- inalds og Strengjasveitin. Forsala aðgöngumiða er þegar hafin á nokkrum stöðum, m.a. á Selfossi, í útibúum Kaupfélags Árnesinga í Hveragerði, Eyrar- bakka og Stokkseyri og loks í Hljómplötuverzluninni Skífunni í Reykjavík. Allir sem koma fram gefa sitt framlag. Rúður brotnar í sex verzlunum Á NÝÁRSNÓTT voru brotnar rúður í sex verzlunum við Fella- garða í Breiðholti og er hér um geysimikið tjón að ræða. Voru unglingar þarna að verki. Þá var farið inn í bókaverzlunina Emblu, sem er í verzlanasamstæð- unni og stolið þaðan einhverju af bókum. hingað heim og skapa þannig vinnu fyrir mun fleiri flugvirkja en nú er. Aðspurður um starfsaldur flug- vélstjóranna sagði Einar að elsti maður í starfi er sagt hefði verið upp ætti að baki 30 ára feril og hafa allir flugvélstjórarnir er sagt var upp starfað á DC-8 vélum. Meðal flugvirkja væri starfsaldur- inn heldur lægri, en þeir hafa unnið við allar flugvélategundir Flugleiða . Ekki kvað Einar sér- stakar viðræður fyrirhugaðar milli flugvirkja og Flugleiða, en þeir myndu þó reyna að grafast nánar fyrir um ástæður þessara upp- sagna. Taldi hann að fremur hefði átt að leita verkefna fyrir DC-8 þotuna erlendis en selja hana og fá heldur samþykkta ríkisábyrgð eða framlag til rekstrar félagsins. Að- spurður um atvinnumöguleika er- lendis sagði Einar m.a.: — Við vitum að talsvert miklir atvinnumöguleikar eru erlendis fyrir flugmenn, flugvirkja og flug- vélstjóra, en við erum Islendingar og viljum búa hér og því mætti t.d. minna á það sem einhver sagði að ef við hefðum viljað flytja til útlanda værum við löngu farnir! En málið er heldur ekki svo einfalt, taka verður með í reikninginn hversu margir aðrir missa atvinnu sína vegna samdráttar Flugleiða, tollverðir, starfsmenn Fríhafnar- innar o.fl. og kemur þetta þannig niður á þjóðarheildinni. Tvennt slas- ast í hörð- um árekstri ALLHARÐUR árekstur varð á Vesturlandsvegi við Hulduhóla um klukkan 20.30 í gærkvöldi og lentu saman lítill fólksbíll og langferðabíll. Ökumaður smá- bílsins og farþegi voru fluttir á slysadeild og reyndust meiðsl öku- mannsins smávægileg, en farþeg- inn handleggsbrotnaði og hlaut sár og brot í andliti. Smábíllinn var mjög illa farinn eftir áreksturinn, en litlar skemmdir urðu á langferðabíln- Fjalakötíurinn: „Tvöfalt sjálfsmorð44 Fjalaköttur- inn sýnir í kvöld, fimmtudagskvöld kl. 21, á laugar- daginn kl. 17 og á sunnudag- inn kl. 17,19.30 og 22 i Tjarnarbíói myndina „Dou- ble Suicide“, Tvö- falt sjálfsmorð, eft- ir Masahiro Shinoda. Myndin er japönsk frá árinu 1968. Aðalhlut- verkin eru leikin af Kichiemon Nakamura og Shima Iwashita. Þessi mynd er úr kvikmyndinni „Tvöfalt sjálfs- morð“ sem Fjala- kötturinn tekur til sýningar i kvöld. 19 P. Stefánsson og Hekla hf. samein- ast á nýjan leik Óhjákvæmilegt að segja upp 14—16 starfsmönnum við sameininguna — Áætluð sala fyrirtækjanna nam um 7 milljörðum króna árið 1979 FYRIRTÆKIN Hekla h/f og P. Stefánsson h/f sem rekin hafa verið undanfarin ár i eigu sömu aðila hafa nú verið sameinuð og tekur Hekla h/f við öllum rekstri fyrirtækjanna að því er segir í fréttatilkynningu sem Mbl. hefur borist. í tilkynningunni segir ennfremur að breyttar aðstæður á bifreiðamarkaðnum, verðbólga og stöðugt aukinn kostnaður við rekstur fyrirtækja og annarrar atvinnustarfsemi valdi því, að nú sé nauðsynlegt að sameina rekstur fyrirtækjanna á nýjan leik. en þau voru rekin saman fram til ársins 1973 þegar heppilegt þótti að skipta þeim. Þá segir að ekki verði hjá því komist að segja upp 12—14 starfsmönnum P. Stefánsson h/f og 2 starfsmönnum Heklu h/f vegna sameiningarinnar. Fréttatilkynn- ing Heklu h/f fer hér á eftir: Frá og með 1. janúar 1980 verða fyrirtækin P. Stefánsson h/f og Hekla h/f sameinuð og frá þeim tíma tekur Hekla h/f við öllum rekstri er hingað til hefur farið fram á vegum P. Stefánsson h/f. Þessi tvö fyrirtæki hafa verið í eigu sömu aðila um árabil og lengst af var ekki um að ræða sjálfstæðan rekstur á vegum P. Stefánsson h/f. Árið 1973 var hins vegar talið hagkvæmt að P. Stef- ánsson h/f hæfi sjálfstæðan rekstur og hefur fyrirtækið rekið bifreiðainnflutning, varahluta- sölu og viðgerðarþjónustu síðan. Breyttar aðstæður á bifreiða- markaðnum, verðbólga og stöðugt aukinn kostnaður við rekst.ur fyrirtækja og annarrar atvinnu- starfsemi valda því, að nú er nauðsynlegt að sameina rekstur þessara tveggja fyrirtækja á ný. Vegna þessara breytinga verður ekki hjá því komizt að segja upp 12—14 starfsmönnum P. Stef- ánsson h/f og 2 starfsmönnum Heklu h/f. Stjórnendur Heklu h/f munu gera það sem í þeirra valdi stendur til þess að tryggja þeim starfsmönnum fyrirtækjanna, sem sagt hefur verið upp störfum með samningsbundnum fyrirvara atvinnu. Hér er um hæft starfs- fólk að ræða, sem rækt hefur störf sín af samvizkusemi og ræktarsemi við fyrirtækin. Við sameininguna leggst niður öll starfsemi, er hingað til hefur farið fram í húsakynnum P. Stefánsson h/f að Hverfisgötu 103 og flyzt hún smám saman í starfsstöð Heklu h/f að Laugavegi 170—172. Helztu breytingar, sem eru samfara sameiningu fyrir- tækjanna eru þessar: 1. Bifreiðasala Frá 1. janúar 1980 verður sala nýrra bifreiða á vegum Heklu h/f eingöngu í bifreiðasal fyrirtækis- ins að Laugavegi 170—172. Verða þar til sölu nýjar Volkswagen og Audi bifreiðar svo og bifreiðar frá japanska fyrirtækinu Mitsubishi Motor Corporation af tegundinni Galant, Lancer og Colt. Einnig verða þar á boðstólum nýjar bifreiðar frá brezka fyrirtækinu British Leyland af gerðunum Morris og Rover. Frá sama tíma fer sala notaðra bifreiða fram í bifreiðasal fyrirtækisins að Síðumúla 33, Reykjavík (áður sýningarsalur P. Stefánsson h/f). 2. Bifreiða- varahlutir Frá 1. janúar 1980 flyzt sala varahluta í Mitsubishi bifreiðar í varahlutaverzlun Heklu h/f, að Laugavegi 170—172, en varahlutir í bifreiðar frá British Leyland verða enn um sinn seldir að Hverfisgötu 103. Stefnt er að því að afgreiðsla þeirra varahluta hefjist að Laugavegi 170—172 eigi síðar en 1. marz 1980. 3. Bifreiða- verkstæði Nú þegar eða frá 1. janúar 1980 flytjast viðgerðir á bifreiðum frá Mitsubishi að Laugavegi 170— 172. Viðgerðir á bifreiðum frá British Leyland munu flytjast þangað eigi síðar en 1. marz 1980. Þar til fara þær viðgerðir fram eins og hingað til að Hverfisgötu 103. Samkvæmt þessu mun nokk- ur tími líða þar til sameining rekstrar þessara tveggja fyrir- tækja hefur farið fram. Það er von Heklu h/f að hinir fjölmörgu viðskiptavinir fyrirtækjanna verði fyrir sem minnstum óþæg- indum af þessum sökum. Forstjóri Heklu h/f er Ingi- mundur Sigfússon, en fram- kvæmdastjórar þeir Agnar Frið- riksson (fjármál), Árni Bjarnason (VW-Audi, British Leyland, heim- ilistæki), Lýður Björnsson (hjól- barðadeild, skrifstofustjórn), Sig- fús Sigfússon (Mitsubishi bifreið- ar, notaðar bifreiðar) og Sverrir Sigfússon (véladeild). Starfsmannafjöldi Heklu h/f verður um 120 manns. Áætluð sala fyrirtækjanna, er nú hafa verið sameinuð, nam um 7 millj- örðum króna á árinu 1979. Sótt um stækkun útvarpshússins RÍKISÚTVARPIÐ hefur sótt um leyfi til byggingarnefndar Reykja- vikur til að breyta og stækka fyrirhugaða byggingu sína á lóð við Hvassaleiti og hefur stækkun- arbeiðninni verið vísað til umsagn- ar skipulagsnefndar. Að sögn Karls Guðmundssonar verkfræðings, byggingarstjóra verksins, er hér um að ræða stækk- un þar sem í ráði er að hýsa sjónvarpið í því húsnæði sem út- varpið átti eingöngu að hafa afnot af í fyrsta áfanga hússins, sem er um þriðjungur af endanlegri stærð hússins. Nemur stækkunin rúmum 4.400 rúmmetrum eða um 1000 fermetrum að sögn Karls, en hug- myndin er jafnframt sú að eftir því sem húsið verður byggt og starf- semi útvarps og sjónvarps krefji flytjist sjónvarpið í þann hluta hússins, sem því hefur frá upphafi verið ætlaður staður. Karl Guð- mundsson sagði að teikningar að fyrirhuguðum breytingum væru hjá byggingarnefnd og væri miðað að því af hálfu útvarpsins að hægt verði að bjóða út uppsteypu hússins á næsta vori verði fjármagn útveg- að af yfirvöldum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.