Morgunblaðið - 03.01.1980, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 1980
23
Langt verkfall í
stáliðnaði Breta?
London. 2. janúar. AP.
VERKFALLSVERÐIR tóku sér í dag stöðu við stálver
um allt Bretland við upphaf fyrsta allsherjarverkfalls
yfir 100,000 stálverkamanna á Bretlandi í 54 ár. Verði
ekki af samningum innan skamms tíma kynni það að
hafa í för með sér að British Leyland-bifreiðaverksmiðj-
urnar, umfangsmikil niðursuða matvæla og annar
meiriháttar iðnaður stöðvist innan örfárra vikna.
Sir Charles Villers, yfirmaður
brezku stálverksmiðjanna, sagði í
dag að enn væru dyrnar opnar
fyrir samningum, en varaði við að
frekar mætti búast við löngu
verkfalli en stuttu.
Deilan stendur um laun og ber
nokkuð á milli.
Vinnuveitandinn
hefur boðið hækkanir er nema um
sex af hundraði og bónus fyrir
framleiðni, en samtök verkamann-
anna hafa krafist 16% hækkunar
launa, en meðaltekjur stálverka-
manns á viku eru 75 sterlings-
pund, eða um 70 þúsund krónur.
Af hálfu verksmiðjanna hefur
verið skýrt frá því að íþyngja
verði skattgreiðendum ef samið
verður um meiri hækkanir en sex
af hundraði, en verksmiðjurnar,
sem eru ríkisreknar, eru reknar
með gífurlegum halla og hafa þær
fengið af almannafé um fjóra
milljarða sterlingspunda, eða sem
næst fjögur þúsund milljörðum
króna, síðustu sex árin.
Pietro Nenni
Nenni
ítalskri nýlendusveit í Libýu. Hann
var þá settur í fangelsi í fyrsta sinn,
en var oft síðar hnepptur í fangelsi. I
þetta sinn var klefafélagi hans
Benito Mussolini.
Hann var fæddur í Faenna í
Mið-Ítalíu árið 1891. Hann varð
mjög eindreginn andstæðingur fas-
ismans á Ítalíu að loknu fyrra stríði
og hann hélt síðar til Spánar og tók
þátt í borgarastyrjöldinni og barðist
gegn Franco. í heimsstyrjöldinni
síðari varð hann einhver þekktasti
andstæðingur nazista og fasista og
lét mjög að sér kveða og þótti vinna
hin mestu dirfskuverk í þágu mál-
staðar þess sem hann trúði á.
Hann varð utanríkisráðherra
Italíu 1946. Hann stýrði Sósíalista-
flokknum í tuttugu ár og hafði þá
látinn
gefur viðvörun
Tyrkland:
Herinn
Ankara 2. jan. AP.
YFIRMAÐUR herráðs Tyrk-
lands, Kenan Evren hershöfðingi,
og yfirmenn flughers, flota og
landhers birtu i dag mjög ein-
dregna viðvörun til stjórnmála-
flokka landsins. Þar er hvatt til
að þeir geri allt til þess að berjast
gegn pólitískum hryðjuverka-
Salisbury, 2. janúar. AP.
LEIÐTOGAR svartra
skæruliða kröfðust í dag
meiri tíma til að tilkynna
sína menn til sérstakra
stöðva í landinu, en sam-
kvæmt vopnahléssam-
komulaginu rennur tím-
inn út á miðnætti á föstu-
dag nk.
Síðdegis í dag höfðu aðeins 4.500
skæruliðar skilað sér á stöðvarn-
ar, en talið er að skæruliðarnir séu
um 15.000, og sumir höfðu áætlað
að þeir væru allt að 30.000.
Háttsettur maður í röðum
skæruliða sagði að erfiðlega hefði
gengið að koma fregnum um
vopnahléið til skæruliða, og „ef
landsstjórinn veitir okkur ekki
frest er hann óvinur okkar".
Skýrt var frá því í röðum
skæruliða að Nkomo og Mugabe
myndu snúa til Rhódesíu um
næstu helgi, Mugabe á laugardag
og Nkomo á sunnudag.
Vopnahlésráðið í Rhódesíu var
42 f órust
í eldsvoða
Chapais, Qucbcc, 2. janúar. AP.
UNGUR maður situr í varðhaldi
grunaður um að vera valdur að
eldsvoða er a.m.k. 42 létu lifið i.
Sást til mannsins, sem er 21 árs,
þar sem hann var að fikta með
vindlingakveikjara við jólatré í inn-
gangi samkomuhúss þar sem um 350
manns voru samankomnir á gaml-
árskvöldsfagnaði. Sjónarvottar
sögðu að skyndilega hefði tréð orðið
alelda og eldur fljótt borist um húsið
sem var mjög skreytt birkigreinum.
í eldsvoðanum misstu þrjátíu börn
foreldra sína og ein fjölskylda missti
fimm ættmenni. Flestir hinna látnu
urðu innlyksa við útgöngudyr í
einum enda hússins. Sjónarvottur
skýrði frá að hann hefði séð mann
bjarga fjölmörgum út um glugga á
eldhúsi hússins en siðan orðið eldin-
um að bráð.
hreyfingum og aðskilnaðarsam-
tökum. Er litið svo á af hálfu
stjórnmálafréttaritara að ekki
felist í þessari yfirlýsingu aðvör-
un um íhlutun hersins, en hins
vegar sé ekki hægt að útiloka að
herinn hugsi sér til hreyfings i
framtíðinni ef þessi „undirbún-
ings-viðvörun“ beri ekki þann
kvatt saman til fundar í dag í
fyrsta sinn vegna óaldar sem ríkir
í landinu í kjölfar vopnahlésins,
en ofbeldisverk eru þar tíð. Þá
voru friðargæslusveitir kallaðar
út í fyrsta skipti í dag vegna
árásar á búgarð.
árangur sem til sé ætlast. Yfirlýs-
ingin var afhent Fahri Koruturk
forseta landsins.
í yfirlýsingu sinni sagði Evren
að í viðræðum sínum við yfirmenn
hersins hefði komið fram að und-
anförnu, að mikið þætti við liggja
að stjórnmálaflokkarnir gerðu
eitthvað raunhæft í málinu til að
stemma stigu við þeim pólitísku
hryðju- og skemmdarverkum, sem
væru að heita mætti daglegt
brauð í Tyrklandi og hefðu verið
um langa hríð. Liti herinn þetta
mjög alvarlegum augum.
Þessum ásökunum er ekki beint
einvörðungu gegn Demirel forsæt-
isráðherra sem nýlega hefur tekið
aftur við starfi forsætisráðherra,
heldur eru allir stjórnmálaflokkar
hvattir til að leggja lóð sitt á
vogarskálarnar, enda verði það
ekki liðið að menn fótum troði það
frelsi sem stjórnarskráin veiti og
syngi sumir alþjóðasöng kommún-
ista í stað tyrkneska þjóðsöngsins.
Rómaborg, 2. jan. AP.
PIETRO NENNI, einn þekktasti
leiðtogi Sósíalistaflokksins á Ítalíu.
lézt árla nýársdags á heimili sínu.
Banamein hans var hjartaslag.
Hann varð 88 ára gamall. Nenni
þótti sérstaklega litríkur stjórn-
málamaður og í nærfellt sjötiu ár
hefur hann verið tengdur öllum
meiriháttar atburðum í ítalskri
sögu.
Hann hóf þátttöku í stjórnmálum
tvítugur að aldri með því að skipu-
leggja verkfall sem beindist gegn
1959 — Alaska verður ríki í
Bandaríkjunum.
1777 — Orrustan um Princeton.
1521 — Marteinn Lúther bann-
færður.
Afmæli. Marcus Tullius Cicero,
rómverskur stjórnmálaleiðtogi
og rithöfundur (106 f. Kr. — 43 f.
Kr.) — Clement Attlee, brezkur
stjórnmálaleiðtogi (1883—1967)
— Herbert Morrison, brezkur
stjórnmálaleiðtogi (1883—1951).
Andlát. George Monck, hermað-
ur, 1670 — Joseph Joffre,
hermaður, 1931.
nána samvinnu við kommúnista-
flokk landsins og fékk Stalínverð-
launin á þessum árum. Eftir að
leiðir þessara aðila skildu við innrás
Sovétríkjanna í Ungverjalandi 1956
tók hann þátt í því ásamt með
kristilegum demókrötum að mynda
þá mið-vinstristjórn sem var síðan
við völd á Ítalíu 1962 til 1976. Hann
gegndi embættum aðstoðarforsætis-
ráðherra í þremur ríkisstjórnum
Aldo Moros, var utanríkisráðherra
hjá Mariano Rumor og hann var
skipaður senator til æviloka af
Ítalíuforseta 1970.
Innlent. 1903 Landvarnarflokk-
ur stofnaður — 1597 Heklugos
hefst — 1875 Stórfelld eldgos í
Dyngjufjöllum valda miklu tjóni
— 1969 Verksmiðja eyðileggst og
önnur skemmist í stórbruna á
Akureyri — 1898 f. Pálmi Hann-
esson.
Orð dagsins. Við Höfum alltaf
nógu mikinn tíma ef við aðeins
viljum nota hann rétt — Johann
Wolfgang von Goethe, þýzkt
skáld (1749-1832).
Kosið á Indlandi í dag:
Verða kosningarnar
stórsigur Indiru?
Nýja Delhi. 2. janúar.
INDIRA Gandhi fyrrver-
andi forsætisráðherra
Indlands mun ná völdum
á nýjan leik og vinna
meiri háttar sigur í þing-
kosningunum sem fram
fara á Indlandi á morg-
un, miðvikudag, segir í
niðurstöðum skoðana-
könnunar sem var birt í
Nýju Delhi fyrir hclgina.
Könnun þessi var birt í viku-
ritinu India Today sem kemur út
í Delhi og þar segir að Kongress-
flokkur I muni fá 291 þingmann
af 528 í neðri deild indverska
þingsins, og þar með meirihluta.
Þetta er í fyrsta skipti sem
Indiru Gandhi hefur verið spáð
meirihluta, en öllum hefur borið
saman um, að hún myndi vinna
mikinn sigur en skorta nokkuð á
að hún fengi meirihluta. Voru
ýmsir stjórnmálasérfræðingar á
því að Janata-flokkurinn — eða
það brot hans sem býður fram
undir því nafni og undir forystu
Jagivans Rams — myndi ef til
vill ganga til samstarfs við hana,
þótt Ram hafi þvertekið fyrir
það í kosningabaráttunni.
Könnun þessi var gerð fyrir
tveimur vikum og er ekki nein-
um getum að því leitt hvernig
hinum tveimur aðalkeppinaut-
um hennar, Ram og Charan
Singh, muni reiða af. Blaðið
byggði á samtölum við 8.441
kjósanda í 35 kjördæmum í
þrettán af 22 fylkjum Indlands. í
könnuninni er sagt að öll sólar-
merki bendi til þess að Gandhi
fái allt að 80 prósentum í Rae
Bareli, kjördæmi sínu, og Sanjay
sonur hennar, umdeildur í meira
lagi, muni vinna mikinn per-
sónulegan sigur í sínu kjördæmi.
Indira Gandhi hefur undan-
farnar vikur þeytzt um Indland
þvert og endilangt og haldið
margar kosningaræður á hverj-
um degi. Hún hefur þar viður-
kennt að sér hafi á árum áður
orðið á nokkur mistök, en of-
sóknir þær sem hún og fjöl-
skylda hennar hafi sætt ekki
verið í neinu eðlilegu hlutfalli
við yfirsjónir hennar. Hún hefur
heitið að koma efnahag landsins
á réttan kjöl og reyna að ráða
bót á því ófremdarástandi sem
ríkt hefur á Indlandi síðan í
kosningunum 1977 þegar Janata-
bandalagið var myndað til að
koma henni frá völdum. Þar
hefur lengst af verið hver höndin
upp á móti annarri og var svo
komið að það hafði klofnað í
fjórar fylkingar.
Jagivan Ram og Charan Singh
hafa báðir verið hressir og
baráttuglaðir í kosningabarátt-
unni og spáð sínum flokkum
meirihluta, en það er með
ólíkindum að slíkt verði. Á
kjörskrá eru um 360 milljónir
manna. Á ýmsum stöðum hefur
komið til óeirða í kosningabar-
áttunni og um áramótin var til
dæmis einn frambjóðandi
Kommúnistaflokks Indlands
sem er hlynntur Sovétríkjunum
— skotinn til bana á ferðalagi.
Alls munu um tólf manns hafa
látið lífið í óeirðum og hermdar-
verkum, sem rekja má til kosn-
inganna.
Indira Gandhi Sanjay Gandhi Jagivan Ram Charan Singh
Skæruliðar í Rhódesíu:
Biðja um frest
Þetta gerðist 3. janúar