Morgunblaðið - 03.01.1980, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 1980
Hrönn Pétursdótt-
ir — Minningarorð
Kveðja frá Ilúsmæðrafé-
lagi Reykjavíkur.
Fædd 25. júlí 1932.
Dáin 21. des. 1979.
í dag verður til moldar borin
Hrönn Pétursdóttir, formaður
Húsmæðrafélags Reykjavíkur, en
hún lést 21. des. sl. aðeins 47 ára
að aldri.
Hrönn var fædd í Reykjavík 25.
júlí 1932. Hún ólst upp hjá móður
sinni, Agústu Guðmundsdóttur, og
stjúpföður sínum, Sigurði Magn-
ússyni, í vesturbænum, nánar til-
tekið við Hringbraut. Þann 10. júlí
1955 giftist Hrönn eftirlifandi
eiginmanni sínum, Gunnari K.
Gunnarssyni, og árið 1958 fluttu
þau að Sörlaskjóli 92, sem verið
hefur heimili þeirra síðan. Það var
því með sanni að Hrönn taldi sig
borinn og barnfæddan vestur-
bæing. Þau Gunnar eignuðust
þrjár dætur sem allar eru foreldr-
um sínum til mikils sóma. Agústa,
fædd ’55, gift Hirti Emilssyni og
eiga þau eina dóttur, Hrönn, sem
nú er 8 mánaða. Sigrún, fædd ’60,
stundar nám í M.R. og Gunnhild-
ur, fædd ’67, er því enn í grunn-
skóla.
Hér fyrr á árum stundaði
Hrönn mikið íþróttir, aðallega
handbolta en lagði einnig stund á
frjálsar íþróttir, skíði og sund.
Hún fór ung i K.R. og vann þar
margfalda sigra með stöllum
sínum í meistaraflokki kvenna í
handbolta. Allt til hins síðasta
hélt hún mikilli tryggð við sitt
gamla íþróttafélag og lagði þar
fram krafta sína á ýmsan hátt.
Hrönn var mjög mikill íþrótta-
maður í eðli sinu og lifði lífi sínu
samkvæmt því.
Allt frá æsku var Hrönn félags-
lynd með afbrigðum enda fór hún
fijótlega að láta hin ýmsu félags-
mál til sín taka. Hún átti sæti í
mörgum nefndum á vegum ýmissa
félagasamtaka svo sem hjá
Bandalagi kvenna í Reykjavík,
Hvöt, félagi sjálfstæðiskvenna, og
síðast en ekki síst Húsmæðrafé-
lagi Reykjavíkur.
Hún gekk ung í Húsmæðrafélag
Reykjavíkur og þar eins og annars
staðar fór ekki hjá því að henni
yrði fljótlega veitt athygli og falin
ýmis trúnaðarstörf. I nokkur ár
var Hrönn varaformaður félagsins
en formaður þess frá 1975. Við
sem unnum með henni getum best
um það borið hversu mikill styrk-
ur hún var félaginu á allan hátt.
Hún var þeim eiginleikum gædd
að vera fljót að átta sig á
hlutunum, heil í starfi, hreinskilin
og laus við alla yfirborðskennd og
hræsni. Hún var glaðlynd og sein
til reiði. Eg minnist þess aldrei að
hafa heyrt hana láta sér um munn
fara fúkyrði eða illmæli til nokk-
urs manns. Það var fátt sem henni
var eins illa við og deilur enda var
hún venjulega sú sem gekk á milli
og bar klæði á vopnin ef eitthvað
bar útaf eins og stundum vill
verða þegar sitt sýnist hverjum.
Engri manneskju hef ég kynnst
sem gat sett ofan í við mann á jafn
elskulegan hátt og Hrönn en
þannig að maður hlaut að taka
tillit til þess sem hún sagði. Hún
var gædd óvenju mikilli orku og
styrk bæði andlega og líkamlega.
Mér er það minnisstætt að fyrir
einu og hálfu ári er fyrrverandi
formaður Húsmæðrafélags
Reykjavíkur og heiðursfélagi þess,
Helga Guðnadóttir
— Minningarorð
Fædd 3.1.1928.
Dáin 11.12.1979.
I dag, 3. janúar, hefði Helga
Guðnadóttir, frænka mín, orðið 52
ára gömul. En hún varð ekki nema
51 árs. Hún dó fyrir aldur fram
þann 11. desember sl.
Stjúpdóttir Helgu, Agla Marta
Marteinsdóttir, og nágranni henn-
ar og vinur, Sigurður Markússon,
minntust hennar fallega í minn-
ingargreinum, sem birtust á út-
farardegi hennar þann 18. des. sl.
Eg mun því ekki í þessum fáu og
síðbúnu minningarorðum rekja
æviferil hennar og uppruna. Það
hefur áður verið gert.
A seinni árum átti ég því láni að
fagna að kynnast Helgu. Var hún
þá gift Marteini Jónassyni, fram-
kvæmdastjóra Bæjarútgerðar
Reykjavíkur, miklum ágætis-
manni. Þá hafði ýmislegt á daga
hennar drifið. Hún var búin að
eignast tvær elskulegar dætur,
Elínu og Hafdísi. Marteinn og
Helga eignuðust dótturina Jó-
hönnu Halldóru, sem ber fallegt
svipmót foreldranna. Fermdist
hún í vor sem leið.
Helga var mjög vel gerð kona,
bæði til sálar og líkama. Aldrei
heyrði ég hana tala illa um
nokkurn mann. Hún var létt í
lund, gamansöm og einstaklega
laus við allt víl, meira að segja
æðraðist hún ekki, þegar henni
mátti vera ljóst, að undankomu-
leiðir voru að lokast. Komum við
hjónin í heimsókn til hennar á
spítalann, þegar svo var komið.
Var hún þá svo uppörvandi í tali,
t
Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og
jarðarför móöur okkar, tengdmóður og ömmu,
SIGRUNAR JÚLÍUSDÓTTUR
Garði, Dalvík
Sérstakar þakkir færum viö læknum og hjúkrunarfólki hand-
læknisdeildar Fjóröungssjúkrahússins á Akureyri.
Garöar Björnsson, Anna Björnsdóttir,
Höröur Björnsson, Guöný Rögnvaldsdóttir,
Hrönn Björnsdóttir, Míkael Jóhannesson,
Gylfi Björnsson, Elín Skarphóöinsdóttir,
barnabörn og aörir aöstandendur.
t
Þökkum innilega samúö og vináttu við minningarathöfn og útför
SIGUROLA BJÖRGVINS JONSSONAR,
* fró Hrísey,
Áslaug Kristjánsdóttir,
María Árnadóttir, Jón Valdimarsson
Narfi Björgvinsson, Hanna Hauksdóttir,
Teitur Björgvinsson, María Narfadóttir,
stjúpsynir, tengdadætur, barnabörn, systkini og fjölskyldur
29
Jónína Guðmundsdóttir, andaðist
þá báru konur úr kvennasamtök-
um hér í Rvk. kigtu hennar úr
kirkju. A þeim sama tíma var
Hrönn á sjúkrahúsi og þá þegar
var henni kunnugt um að sá
sjúkdómur er nú hefur orðið henni
að aldurtila hafði búið um sig í
líkama hennar. Þrátt fyrir það
klæddi hún sig upp úr sjúkrarúmi
og mætti til þess að votta hinum
látna formanni félagsins virðingu
sína og bera hana hinsta spölinn.
Ég nefni þetta atvik hér til þess að
leggja áherslu á það hve miklum
styrk Hrönn bjó yfir, ekki aðeins
líkamlega heldur og andlega.
Húsmæðrafélag Reykjavíkur
kveður nú í dag ástkæran for-
mann, vin og félaga. Margs er að
minnast og slíkar minningar
verða ekki færðar á prent í stuttri
kveðju. Ég sem þessar línur rita er
þess ekki umkomin að vita eða
skilja hvers vegna einum er ætlað
að hverfa á braut á miðju ævi-
skeiði en öðrum ekki. Það er svo
að ég skammast min fyrir að
viðurkenna að hún hafði haft
hlutverkaskipti við okkur, sem þó
komum í heimsóknina með því
hugarfari að auka henni bjartsýni
og styrk í veikindum hennar.
Fórum við því sporlétt af hennar
fundi. Og þannig var Helga fram á
síðasta dag.
Eins og ég gat um áðan, var
Helga einnig líkamlega vel á sig
komin, þar til hún kenndi veikinda
sinna fyrir um einu ári síðan. Fyrr
á árum stundaði hún mikið íþrótt-
ir og komst í fremstu röð íþrótta-
manna í tveimur greinum. Kom til
álita að senda hana á Ólympíu-
leika en af því varð ekki vegna
fjárskorts.
Helga og Marteinn reistu sér
glæsilegt heimili í Fossvoginum.
Þangað var gott að koma, enda
heimilið hlýlegt og hjónunum lag-
ið að gera gestum til hæfis.
Ég og fjölskylda mín vottum
eiginmanni, börnum og öðrum
aðstandendum Helgu dýpstu sam-
úð.
Kristinn Ólafsson.
margt sem erfitt er að skilja og
erfitt að sætta sig við. Góður
vinur er genginn, en minningin
lifir. Nú eru þau tímamót sem
allir kristnir menn leiða hugann
að fæðingu þess sem kenndir
okkur að trúa á upprisuna og eilíft
líf. Megi sú trú verða ástvinum
Hrannar styrkur í þungum trega.
F.h. Húsmæðrafélags
Reykjavíkur
Margrét S. Einarsdóttir.
Kveðja frá Hvöt,
félagi sjálfstæðiskvenna
í Reykjavík
Við fráfall Hrannar Pétursdótt-
ur sér Hvöt, félag sjálfstæðis-
kvenna í Reykjavík, á bak einum
af sínum virkustu félögum. Hrönn
átti sæti í stjórn félagsins um
árábil, sat í trúnaðarráði þess,
starfaði í nefndum og var fulltrúi
félagsins á landsfundum Sjálf-
stæðisflokksins og á landsþingum
sj álf stæðiskvenna.
Það gilti einu hvar í flokks- og
félagsstarfi Hrönn skipaði sér
hverju sinni, hún var ævinlega
þátttakandi af lífi og sál, gerði sér
grein fyrir hvar þungamiðja hvers
verkefnis var og lagðist þar á
málið.
Hrönn hafði átt við vanheilsu að
stríða og á fyrri hluta ársins 1979
ágerðust veikindin svo, að hún
varð að dvelja á sjúkrahúsi uns
yfir lauk í þann mund er jóla-
hátíðin gekk í garð.
Það urðu Hrönn mikil vonbrigði
að hún gak ekki setið Landsfund-
inn 3.-6. maí sl. eins og hún hafði
verið kjörin til frá Hvöt. Hún var
bundin sjúkrabeði og varð að láta
Vesturbær:
Hávallagata. Miðbær.
Austurbær:
Hverfisgata 4 — 62.
sér nægja að fylgjast með úr
fjarlægð, en áhugi hennar þá
staðfesti öðru fremur hversu ein-
lægur sjálfstæðismaður hún var
og framgangur sjálfstæðisstefn-
unnar henni hjartans mál.
Seinasta verkefnið, sem hún tók
þátt í hjá Hvöt var dreifing
sérstaks bæklings, sem félagið
ásamt Landsambandi sjálfstæð-
iskvenna gaf út í tilefni Alþjóða-
árs barnsins. Hrönn var í hópnum,
sem í marsbyrjun annaðist dreif-
inguna í Reykjavík og það var
skemmtileg reynsla að fara með
henni á hvern vinnustaðinn af
öðrum, þar sem hún tók fólk tali á
léttan og góðlátlegan hátt, skynja
hversu vel kynnt hún var og
frambærilegur fulltrúi Sjálfstæð-
isflokksins.
Við, sem áttum því að fagna að
eiga nána samvinnu við Hrönn,
vitum að hún var mannþekkjari
og mikilsvirði að styðjast við
sjónarmið hennar á mönnum og
málefnum. Stundum er sagt til
glöggvunar á eiginleikum fólks:
„Segðu mér hvernig viðkomandi er
í samstarfi og ég skal segja þér
hvernig hann er.“ Úr prófraun
samstarfs kom Hrönn með ágæt-
iseinkunn, eftir hana stendur
ófyllt skarð og henni fylgja þakkir
félagsmanna í Hvöt.
Það er ævinlega sárt að sjá fólki
á besta aldri kippt burt frá
hálfnuðu starfi, en sársaukinn
hlýtur að vera mestur hjá þeim er
næstir standa og til þeirra beinum
við samhug okkar, með vissunni
um að það var í anda Hrannar
Pétursdóttur að stækka og stælast
við hverja raun.
Björg Einarsdóttir.
Uthverfi:
Árbær I. Karfavogur
Selvogsgrunnur
Kópavogur:
Hlíðavegur II, Hófgerði
JRtoirgptttM&Mfr
Enskir samtalstímar
Enskir úrvals kennarar.
Málaskólinn Mímir.
S. 10004 — 11109 kl. 2—7 e.h.
Uppl. í síma 35408
Hressingarleikfimi kvenna
Kennsla hefst aftur mánudaginn 7. janúar í leikfimisal Laugarnesskóla.
Fjölbreyttar æfingar — músik — slökun
Get bætt við nokkrum konum. Innritun og upplýsingar í síma 33290.
Astbjörg S. Gunnarsdóttir,
íþróttakennari