Morgunblaðið - 03.01.1980, Page 38
38
Þórsarar
l»ÓR sigraði á jólamóti Ak-
ureyrar i handknattleik.
sigraði KA 33—26 i eldfjör-
ugum og góðum leik. Þór
hefur ekkert gengið í 2.
deiidinni það sem af er
vetrinum. Pálmi Pálmason.
fyrrum landsliðsmaður úr
Fram, lék með liðinu að
þessu sinni og var allt annað
að sjá til liðsins.
Stjörnuhlaup
FH
FH-ingar gangast fyrir öðru
Stjörnuhlaupi vetrarins 12.
janúar næstkomandi. Hefst
hlaupið klukkan 14 við
Lækjarskólann og verður
vegalengdin í karlaflokki
rúmir fimm kílómetrar, en
tveir í kvennaflokki. Bún-
ingsaðstaða verður í Lækj-
arskólanum.
íslandsmót
fatlaðra í
lyftingum
ÍSLANDSMÓT í lyftingum
fatlaðra fer fram í Sjón-
varpssal laugardaginn 12.
janúar 1980.
Keppt verður i eftirtöld-
um þyngdarflokkum: 52 kg,
56 kg, 60 kg, 67,5 kg, 82,5
kg, 90 kg og yfir 90 kg.
Þetta er í fyrsta sinn sem
keppt er í öllum þyngdar-
flokkum á íslandsmóti fatl-
aðra.
Lyftingasamband íslands
hefur tekið að sér að annast
um framkvæmd mótsins í
samstarfi við íþróttafrétta-
ritara Sjónvarpsins.
Þátttökutilkynningar
þurfa að sendast lþrótta-
sambandi fatlaðra, íþrótta-
miðstöðinni, Laugardal, Box
864, eigi siðar en 7. janúar
n.k.
Kvikmyndir
frá Olympíu-
leikunum
KVIKMYNDASÝNING
verður í MÍR-salnum,
Laugavegi 178, laugardag-
inn 5. janúar ki. 15. Sýndar
verða nokkrar stuttar, sov-
éskar frétta- og heimilda-
kvikmyndir, sem gerðar
hafa verið á undanförnum
mánuðum og misserum í
tilefni Olympíuleikanna
1980, en sumarleikarnir
verða sem kunnugt er háðir
í Moskvu og nokkrum öðr-
um borgum Sovétrikjanna í
júli-mánuði n.k. í myndun-
um er greint frá margvísleg-
um undirbúningsfram-
kvæmdum, staðháttum.
keppnisaðstöðu o.s.frv.
Skýringar með kvikmynd-
unum eru á norsku og
ensku. Aðgangur að kvik-
myndasýningunni í
MlR-salnum er ókeypis og
öllum heimill meðan húsrúm
leyfir.
Aöalfundur
hjá BFH
AÐALFUNDUR Badminton-
félags Hafnarfjarðar fer
íram í veitingahúsinu Gafl-
inn laugardaginn 5. janúar.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 1980
Knattspyrnudeildin velti 75 milljónum
Sextíu þúsund áhorfendur
sáu leiki Vals í sumar
— Ég TEL að íþróttahreyfingin
væri betur á vegi stödd ef menn
hefðu þá meginreglu að gefa ekki
Framarar
fá liðsauka
FRAMARAR eru ef að likum
lætur að fá til liðs við sig nýjan
Bandarikjamann til að styrkja
körfuliðið, en sem kunnugt er,
hætti John Johnson að leika með
Fram laust fyrir áramótin. Léku
Framarar tvo leiki i úrvalsdeild-
inni án Bandarikjamanns og töp-
uðu báðum. Er staða liðsins i
deildinni eigi góð.
Nýi maðurinn er 19 ára gamall
bróðir Danny Shous og kemur
hingað til lands á vegum Bob
Starr. Er kappinn að sögn afar
snjall, enda mun liði Fram ekki
veita af.
Kðrluknattlelkur
l....... .... —......a
kost á sér í nefndir og ráð nema í
3 til 4 ár i senn, sagði Pétur
Sveinbjarnarson fyrrverandi
formaður knattspyrnudeildar
Vals er Mbl. spjallaði lítillega við
hann en Pétur hefur nú nýverið
látið af störfum sem formaður
knattspyrnudeildarinnar og skil-
að mjög góðu og athyglisverðu
starfi af sér.
í nýútkominni skýrslu
knattspyrnudcildarinnar má sjá
að deildin velti 74,7 milljónum
króna á síðasta ári, og gjöld
hennar voru 69,8 milljónir. At-
hyglisvert hversu ein knatt-
spyrnudeild veltir miklu fjár-
magni þegar samanburður er
gerður á heildarveltu ÍSÍ. Og í
ljósi þess að þau 17 sérsambönd
sem þar starfa eru styrkt um
aðeins rúmlega 20 milljónir á ári.
Hagnaður deildarinnar var á
árinu tæpar 5 milljónir króna. Það
er athyglisvert að knattspyrnu-
deildin greiðir ÍBR og KRR hærri
skatta en sem nemur styrkveit-
ingu. Valsmenn greiddu Reykja-
víkurborg um 5 milljónir króna í
vallarleigu á árinu sem var að
líða. Leiktekjur Vals á árinu voru
47.2 milljónir en aðrar tekjur 27,4
milljónir. Þjálfarakostnaður var
14.2 milljónir. Tekjur Vals af
Evrópukeppninni síðastliðið ár
voru 21 milljón en kostnaður 17,1
milljón.
Það er mjög athyglisvert að
knattspyrnudeild Vals á nú í
varasjóði sem var myndaður fyrir
um þremur árum rúmar 40 millj-
ónir króna. Var hann fyrst og
fremst stofnaður með það í huga
að taka á móti áföllum sem kynnu
að verða vegna þátttöku í Evrópu-
mótum.
Aðsóknarmet:
Aðsókn að leikjum Vals síðast-
liðið ár var með eindæmum. Alls
greiddu 60 þúsund manns að-
gangseyri að leikjum Vals. Og er
það nýtt aðsóknarmet að íslensk-
um íþróttum almennt. Sé miðað
við félagslið. Valur vann 15 titla á
árinu og hlutu tvo íslandsmeist-
ara í 3. flokki og 4. flokki.
Meistaraflokkur Vals hefur leikið
alla úrslitaleiki í bikarkeppni KSÍ
síðastliðin 4 ár. Nýkjörinn for-
maður knattspyrnudeildar Vals er
Jón Gunnar Zoéga.
- þr.
• Pétur Sveinbjarnarson, fráfar-
andi formaður knattspyrnudeild-
ar Vals, telur að íþróttahreyfing-
in á íslandi væri betur á vegi
stödd ef forráðamenn nefnda og
ráða sætu ekki lengur en í 3 til 4
ár í senn, en ekki i áratugi eins
og tiðkast all viða og sjá má ef
grannt er skoðað.
Engin breyting á toppnum
Úrslitin ráðin á botninum?
Vegna veðurs var mörgum
leikjum frestað i ensku deildar-
keppninni á nýársdag. M.a. var
frestað leikjum Liverpool og
Manchester Utd. Engin breyting
varð því á stöðu tveggja efstu
liðanna. Á laugardaginn fór hins
vegar fram heil umferð í deild-
arkeppninni. Liverpool og
Manchester Utd. unnu þar sem
fyrri daginn örugga sigra þó við
erfiða mótherja væri að etja.
Liverpool yfirspilaði WBA á úti-
velli og mörkin hefðu getað orðið
mun fleiri en þau tvö sem Dave
Johnson skoraði. MU tók Arsenal
í bakaríið á Old Trafford og þar
hefðu úrslitin hæglega getað orð-
ið 5—7 núll miðað við gang
leiksins. En leikmenn MU létu
sér þrjú nægja. Gordon McQueen,
Joe Jordan og Sammy Mcllroy
skoruðu mörk liðsins.
Úrslit leikja á laugardaginn urðu
þessi:
Brighton — Man.City 4—1
Bristol C — Aston Villa 1—3
Cr.Palace — Middlesbr. 1—2
Everton — Derby ' 1—1
Ipswich — Wolves 1—0
Leeds — Norwich 2—2
Southampton — Bolton 2—0
Tottenham — Stoke 1—0
Stórsigur Brighton kom nokkuð
á óvart, Ray Clarke skoraði
tvívegis fyrir liðið og þeir Peter
Ward og Gerry Ryan sitt markið
hvor, en eina mark City skoraði
Stuart Lee. Garry Shaw var á
skotskónum fyrir lið sitt, Aston
Villa, en hann skoraði öll mörk
liðsins gegn Bristol City, sem
svaraði aðeins með vítaspyrnu
Gerry Gow.
Palace tapaði óvænt heima gegn
Boro, Gerry Francis skoraði eina
mark CP, en sigurmörk Boro
skoruðu Graeme Hedley og Mark
Hodgeson. Ipswich hélt sigur-
göngu sinni áfram og sigraði
Úlfana með marki Terry Butcher
og John Pratt skoraði eina markið
í leik Tottenham og Stoke.
Andy King skoraði mark Ever-
ton gegn Derby sem náð hafði
forystunni með marki Roger Da-
vis. Bolton átti aldrei glætu gegn
Southampton og 2—0 var með
minnsta móti. Phil Boyer og Dave
Peach skorðuðu mörk liðsins. Og
Norwich gerði sitt þriðja jafntefli
í röð á Elland Road í Leeds, þar
sem Kevin Bond og Alan Taylor
jöfnuðu mörk þeirra Kevin Hird
og Ray Hankin. Úrslit í 2. og 3.
deild á laugardaginn urðu þessi:
Birmingham — Cardiff 2—1
Fulham — Sunderland 0—1
Leicester —QPR 2—0
Newcastle — Charlton 2—0
N.County — Burnley 2—3
Oldham — West Ham fr.
Orient — Luton 2—2
Shrewsbury — Bristol R. 3—1
Swansea — Preston 1—0
Watford — Cambridge 0—0
Wrexham — Chelsea 2—0
• Ipswich gengur vel þessa dag-
ana, ekki síst vegna frammistöðu
Hollendinganna Franz Thijssen
(mynd) og Arnold Milhren.
3. deild
Brentford — Swindon 1—3
Chester — Blackpool 1—0
Colchester — Rotherham 1—1
Mansfield — Exeter 1—1
Millwall — Gillingham 2—0
Oxford — Hull 3—0
Plymouth — Chesterfield 1—0
Reading — Barnsley 7—0
Sheffield Utd. — Grimsby 1—1
Southend — Wimbledon 1—3
Sem fyrr segir, var mörgum
leikjum frestað á fyrsta degi nýja
ársins, í fyrstu deild leikjum Stoke
og Liverpool, Man. Utd. og Bolton,
Tottenham og Wolves og Aston
Villa gegn Man. City. En eftirfar-
andi leikir fóru fram:
Bristol C — Brighton 2—2
Everton — Nott.Forest 1—0
Leeds — Derby 1—0
Coventry — Middlesbr. 2—0
Ipswich — WBA 4—0
Cr.Palace — Norwich 0—0
Southampton — Arsenal 0—1
Brighton hélt áfram stigasöfn-
un sinni, en liðið var heppið gegn
BC. Það var sjálfsmark Dave
Rodgers sem færði Brighton ann-
að stigið í leiknum. Aður hafði
Gerry Gow skorað tvívegis úr
vítaspyrnum fyrir BC, en Ray
Clarke svaraði fyrir Brighton.
Brian Kidd skoraði sigurmark
Everton í verðskulduðum sigri
gegn Nottingham Forest og Kevin
Hird skoraði sigurmark Leeds
gegn Derby á elleftu stundu. Og
það var Willy Young sem skoraði
sigurmark Arsenal gegn South-
ampton.
Ipswich var lið dagsins að þessu
sinni, malaði WBA mélinu
smærra. Tvö mörk í hvorum
hálfleik, Paul Mariner og Johp
Wark í þeim fyrri og Russel
Osman og Franz Thijssen í þeim
síðari. Coventry átti einnig góðan
dag, lagði Boro að velli með
mörkum Andy Blair og Garry
Gillespie. Þá var ekkert skorað í
leik Palace og Norwich og var
hvorugt liðið hinu fremra.
Helstu leikir í 2. deild voru
þessir:
Birmingham — QPR 2—1
Luton — Chelsea 3—3
Leicester — Bristol R. 3—0
Newcastle — Sunderland 3—1
Arcie gamli Gemmel skoraði
sigurmark Birmingham gegn
QPR. Þá má geta þess að gamli
enski landsliðsmiðherjinn Stuart
Pearson var á skotskónum fyrir
West Ham gegn Orient. WH
sigraði 4—0 á útivelli og skoraði
Pearson tvö af mörkum liðsins.
í. DEILD
Uverpuol 22 14 6 2 49:14 34
Manch. lltd. 23 13 6 4 36:16 32
Araenal 24 9 10 5 28:19 28
Southamptun 24 11 4 9 3fi:29 26
Norwich City 24 8 10 6 37:33 2fi
Aston Villa 22 8 9 5 27:22 25
Ipswich Town 24 11 3 10 33:30 25
I Middlesbroutrh 23 10 5 8 24:21 25
I l.oeds llnited 24 8 9 7 28:30 25
| Notth. Forest 23 10 4 9 33:29 24
| Crystal Palace 23 7 10 6 25:24 24
Coventry 24 11 2 11 37:42 24
Wolverh. 22 9 5 8 26:29 23
Tottenham 23 9 5 9 29:35 23
Everton 24 6 10 8 29:30 22
Manch. City 23 9 4 10 25:35 22
W. Bromwich 23 fi 8 9 31:32 20
Brixhton 23 7 6 10 31:36 20
Stoke City 23 fi 7 10 26:31 19
Bristol City 24 5 8 11 20:23 18
Dcrby County 24 fi 4 11 22:25 16
Bolton 23 1 9 13 16:40 11
2. DEILD
Newcastic 24 13 7 4 39 24 33
I.uton Town 24 11 9 1 43 27 31
Chelsea 24 14 3 7 40 28 31
Lciceater 24 11 8 5 40 27 30
Birminxham 23 12 5 6 31 23 29
Sunderland 21 11 5 8 34 29 27
Wrcxham 24 12 3 9:730 25 27
West Ilam 22 12 2 8 29 22 26
(Juecn’s P.R. 23 10 5 8 42 29 25
Swansea 24 10 1 10 26 32 24
Preston 24 6 11 7 30 28 23
Orient 23 7 9 7 28 36 23
Notts County 24 7 8 9 32 30 22
('ardiff 24 8 5 11 22 31 21
Cambrittde 24 5 10 9 31 33 20
Shrewsbury 24 8 3 13 32 34 19
Oldham 22 6 7 9 22 26 19
Watford 23 6 7 10 18 25 19
Burnley 24 5 8 11 28 43 18
I Hristol Kovers 23 6 5 12 32 41 17
Charlton 23 5 7 11 21 40 17
Kulham 22 6 3 13 23 40 15
'i