Morgunblaðið - 03.01.1980, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 03.01.1980, Qupperneq 40
á ritstjórn og skrifstofu: 10100 ]IUrgunl>!flbiÍ> Síminn á afgreiðslunni er 83033 2M«r0unt>Int>it> FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 1980 Póstræningiim enn ófundinn PÓSTRÆNINGINN í Sandgerði var ófundinn, þegar Morgunblaðið hafði tal af Rannsóknarlögreglu ríkisins soint í gærkvöldi, en hún annast rannsókn málsins ásamt lögreglunni í Keflavík. Rániö var framið í pósthúsinu í Sandgerði laust eftir klukkan 8.30 í (rærmorgun. Ræninginn réðst að póstmeistaranum Unni Þorsteins- •dóttur og veitti henni höfuðhögg svo hún hlaut heilahristing og missti meðvitund.'Síðan tók ræninginn lykl- ana af Unni, opnaði peningaskáp pósthússins og haföi á brott með sér tæplega 400 Jrúsund krónur í pening- um. Meira var af peningum í skápn- um, svo og ávísanir, en ræninginn lét það liggja óhreyft. Unnur hefur aðeins getað gefið takmarkaða lýsingu á ræningjanum, sem var karlmaður. Hans er nú ákaft leitað. Fyrir tæpu ári var framið póstrán í Sandgerði. Þá var Unni ógnað og hún neydd til að opna peningaskáp- inn fyrir ræningjanum, sem tók þaðan 488 þúsund krónur. Það mál hefur ekki verið upplýst. Sá mögu- leiki er fyrir hendi að mati lögregl- unnar að sami maður hafi verið að verki í bæði skiptin. Sjá «Enn er framiö póstrán í Sandgerði“ á bls. 3. I.jósm. Kristján. í þessum peningakassa voru fjármunir þeir, scm póstræninginn í Sandgerði hafði á brott með sér, tæplega 400 þúsund krónur. Viðræður Geirs halda áfram GEIR HALLGRMSSON formað- ur Sjálfstæðisflokksins hélt áfram yfir áramótin viðræðum sinum við forystumenn í stjórn- málum og atvinnuiifi til þess að kanna moguleika á myndun nýrr- ar ríkisstjórnar. Ilann hefur m.a. rætt við áhrifamenn í Alþýðu- bandalaginu. JtlorgntibZabft Frá 1. janúar 1980 kostar mánaðaráskrift Morgunblaðs- ins kr. í.500.00 og eintakið í lausasölu kr. 230.00. Grunn- verð auglýsinga verður kr. 2.700.00 pr. dálksentimetra. Geir Hallgrímsson varðist í gær allra frétta af viðræðum sínum, en hann tók sérstaklega fram að hann vonaðist til þess, að í ljós myndi koma um það leyti er þing kæmi saman, hvort stjórnarmynd- unartilraunir hans tækjust eða ekki. Alþingi kemur saman að öllu forfallalausu hinn 8. janúar næstkomandi. Viðræður Geirs Hallgrímssonar hafa í raun ekki útilokað neitt stjórnarmynstur enn. Þær hafa heldur ekki gefið neina þá vísbendingu, sem gefið hefur ástæðu til að settar yrðu upp viðræðunefndir flokka í milli. Siðustu minútur ársins í Vestmannaeyjum. Ljósmynd MU.: Sigurgelr 011 launþegasamtök landsins meö lausa samninga: Misjafnlega gengur að móta kröfugerðina ÖLL helztu launþegasamtök landsins hafa lausa samninga frá og með áramótum. Mótun krafna launþega- samtakanna hefur þ<'> gengið mis- jafnlega og hafa sum þegar lagt kröfur sínar fram en önnur ekki. Alþýðusamband tslands hefur enn ekki fullmótað kröfur sínar og verð- ur það ekki gert fyrr en á kjaramála- ráðstefnu sambandsins. sem haldin verður hinn 11. janúar næstkomandi. Næstkomandi laugardag, 5. janúar. verður sérstök ráðstefna Verka- mannasambands íslands, þar sem rætt verður um, hvort endurskoða beri kjaramálastefnuna frá Akureyri eða ekki. Mun mótun krafna ASÍ fara eftir niðurstöðu ráðstefnu VMSÍ og i raun, hvort sámstaða næst um sameiginlegar kröfur ASÍ. Bandalag starfsmanna ríkis og bæja samþykkti hinn 28. nóvember síðastliðinn launakröfu fyrir banda- lagið. Krafa bandalagsins er allt frá 18% og upp í 39% miðað við gildandi Iaunatöflu BSRB. Þá hefur Bandalag háskólamanna einnig lagt fram launa- kröfur sínar, þar sem krafizt er „samninganna í gildi”, þ.e.a.s., að laun hækki sem nemur kjaraskerðingu frá því er síðasti kjarasamningur var gerður. Skerðingin nemur 16,7% og þyrftu laun að hækka nú um 20,1%, sem er krafan, sem bandalagið leggur fram í þrennu lagi, 9% frá 1. nóvem- ber 1979, 5% frá 1. maí 1980 og 5% frá 1. nóvember 1980. Sjómenn munu einnig vera með lausa samninga, en kjarasamningur þeirra var settur síðastliðið sumar með lögum vinstri stjórnarinnar um bann við verkfalli yfirmanna á far- skipum. Þeim samningi hafa bæði yfir- og undirmenn sagt upp og er t.d. Sjómannafélag Reykjavíkur með í undirbúningi um þessar mundir alls- herjaratkvæðagreiðslu um heimild til vinnustöðvunar „þegar þurfa þykir" eins og það er orðað í fréttatilkynn- ingu frá félaginu dagsettri 19. des- ember síðastliðinn. Þá er þess að geta, að yfirnefnd Verðlagsráðs sjávarútvegsins hefur enn ekki ákveðið fiskverð, sem er nátengt launamálum sjómanna. Yfir- nefndin varð sammála um það rétt fyrir jól, að óska eftir því við stjórnvöld, að heimiluð yrði frestun til að ákveða fiskverð til 7. janúar, en lögum samkvæmt átti verðið að liggja fyrir 1. janúar. Ríkisstjórnin heimil- aði þessa frestun á aðfangadag. Við fiskverðsákvörðun gera sjómenn ítrustu kröfur ti’. kauphækkunar. Ákvörðun mín stendur - segir Albert „ÁKVÖRÐUN mín stendur óbreytt, og ég mun gefa kost á mér eins og ég hef áður tilkynnt,“ sagði Albert Guðmundsson, alþingismaöur og borgarfulltrúi. Albert sagði að undirbúningur að framboðinu myndi væntanlega hefj- ast innan tíðar. Albert sagði fram- boð sitt til forsetaembættis ekki óbreytt Guðmundsson hafa áhrif á störf sín. Hann myndi halda áfram, fram að kosningunum að vinna að málum, sem hann hefði starfað að og verið trúað fyrir. Morgunblaðið spurði í gær nokkra aðila, sem orðaðir hafa verið við forsetaframboð. Aðeins Albert gaf jákvætt svar, en svör annarra eru birt á miðsíðu blaðsins í dag. Flugleiðum að flugfélagi Verður DC-10 þotan seld? FLUGLEIÐUM hefur verið boðin I Sigurður Helgason forstjóri aðild að flugfélagi er Luxemborg- Flugleiða tjáði Mbl. í gær að armenn hugleiða nú að stofna til fulltrúar Luxemborgarmanna að annast flug á langleiðum, en væru væntanlegir til íslands félag þeirra, Luxair, annast ein- bráðlega til að fjalla um þessi göngu flug á stuttum flugleiðum. I mál, en þau væru aðeins á boðin aðild i Luxemborg umræðustigi. Aðspurður um rekstrarörðug- leika Flugleiða sagði Sigurður að sótt hefði verið um niðurfellingu lendingargjalda í Luxemborg og Keflavík, en svör hafa ekki fengist enn. Nema lendingargjöld í Kefla- vík á einu ári kringum 3—4 hundruð milljónum króna. Sigurð- ur var spurður hvort til umræðu hefði komið að selja DC-10 þotu félagsins og kvað hann ekki hafa verið tekna ákvörðun um það, en allar leiðir hefðu verið ræddar og skoðaðar. Sjá viðtal við Sigurð Helga- son á bls. 23. Albert Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.