Morgunblaðið - 20.01.1980, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 20.01.1980, Blaðsíða 1
Sunnudagur 20. janúar Bls. 33—64 Með örfáum undantekning- um klæðast kínverskar konur ólögulegum jökk- um og pokalegum síðbux- um, og venjulega virðist hvort tveggja vera a.m.k. tveimur númerum of stórt. Þessum klæðnaði virðist beinlínis ætlað að fæla frá þá, sem kynnu að vilja nálgast þær í vafasömum hugleiðingum, og yfirleitt verður ekki betur séð en öllum klæðnaði Iandsmanna sé ætlað það hlutverk eitt að skýla nekt þeirra, og það svo kirfilega að flkur eru allar hnepptar upp í háls, ermar ná langleiðina fram á fingurgóma og þeir hartnær tveir millj- arðar buxnaskálma, sem prýða leggi þessarar þjóðar, ná niður fyrir efri brúnina á skónum. Allt sem snertir ástir og kynlíf er feimnismál. Þegar maður kyssir konu jafngildir það bónorði og kynmök fyrir hjónabandið koma ekki til greina. 28 ára gömul kona kom nýlega að máli við móður sína, miður sín, viku áður en hún ætlaði að giftast manninum, sem hún elskaði afar heitt. Hann hafði gert sig líklegan til að kyssa hana og hún kom ekki auga á aðra lausn á vandamálinu en þá að slíta trúlofuninni. En meður því að móðirin var skynsöm og vel menntuð kona tókst henni að telja dótturinni hughvarf um leið og hún útskýrði fyrir henni staðreyndir lífsins. Greinarhöfundur innti 27 ára gamla leiðsögukonu sína í Shanghai eftir því hvaða hugmyndir hún hefði gert sér um æskilega kosti þess manns, sem hún gæti hugsað sér að giftast. „Ég hef aldrei hugleitt neitt slíkt,“ svaraði hún um leið og fát kom á hana og hún greip fyrir munninn, sem í Kína er augljóst feimnis- merki. „Mig langar ekkert til að dansa, fara út með karlmönnum eða horfa á sjónvarp. Ég vil heldur vera heima og lesa og fræðast áður en ég fer að sofa. Ég fer á fætur á hverjum morgni klukkan sex til að skokka.“ Rótgróin hefð Margir útlendingar telja þessa blygð- unarsemi bera vott um „sjarmerandi" sakleysi og heilbrigðan hugsunarhátt. Ymsir telja þetta meira að segja merki um að Kínverjar hafa náð svo miklum siðferðisþroska að þeir séu hreinlega hafnir yfir að sinna hinum „óæðri hvötum", og eigi hin göfuga „hugsun Maós“ formanns þar ekki minnstan þátt Þessi almenna siðprýði Kínverja er þó ekki öll þar sem hún sýnist. Þegár skyggnzt er undir yfirborðið koma í ljós alls konar vandamál, sem bæling þessa eðlisþáttar mannlegs lífs hefur í för með sér. Nauðganir færast stöðgut í vöxt, og eitt og annað bendir til þess að ungt fólk muni á næstu árum slíta sig úr þessum viðjum og hafi ekki síður áhuga á rómantík og því sem henni fylgir en jafnaldrar í öðrum löndum. Er ekki fjarri lagi að ætla að í uppsiglingu sé ný „menningarbylting" í Kína, — bylting gegn alræðisvaldi og miðstýringu einka- lífsins í þágu „framleiðni og hagsmuna heildarinnar". Sú afstaða Kínverja til kynferðismála, sem hér hefur verið lýst, er ekki nýtt fyrirbæri, eins og margir virðast halda, og sannarlega er hún ekki afleiðing af Ekki alls fyrir löngu varð fertugur deildarstjóri í kínverska íþróttaráðuneytinu uppvís að því að eiga vingott við konu, sem ekki var eiginkona hans. Maðurinn var kvæntur og tveggja barna faðir, og hafði fram að þessu verið vel látinn, enda dæmigerður mektarborgari á kínverska vísu, einn af þeim fáu, sem inngöngu fá í kommúnistaflokk- inn, eljusamur í bezta lagi og hefði gengið vel að feta sig upp eftir mannvirðingastig- anum í hinu opinbera embættiskerfi. Á Vesturlöndum hefði vinnufélögum slíks manns ekki orðið mikið fyrir þvi að afsaka breytni af þessu tagi. Eiginkona hans hefði að likindum óskað eftir skilnaði, eða a.m.k. velt þeim möguleika fyrir sér. í Kína var litið á málið sem afbrot. Fyrstu viðbrögð mannsins, sem varð ber að þessari hneisu, voru tilraun til að hlífa fjölskyldu sinni við yfirvofandi skömm. Rétt hjá íþróttaráðuneytinu í Peking liggur aðaljárnbrautin um borgina. Kvöld eitt. að loknum vinnudegi, gekk hinn bersyndugi embættismaður að teinunum, þar sem hann lagðist niður og mætti örlögum sinum. í samræmi við viðtekna siðvenju var birt yfirlýsing þar sem atvik málsins voru nákvæmlega rakin. Skjalinu var dreift til allra starfsmanna ráðuneytisins. Síðan var ástkona hins látna manns kölluð fyrir opinberan fund, þar sem hún var látin svara til saka. Ekki bætti það um fyrir henni að hún var gift, en fundurinn stóð lengi yfir og var hún harðlega gagnrýnd og auðmýkt. Þessi sorgarsaga er dæmi um eitt leyndardómsfyllsta svið daglegs lífs í Kína, — það sem snertir viðhorfin til kynlífs. Stjórnvöld láta sér fátt mannlegt óviðkomandi og stuðla mjög að fræðslu og upplýsingu almennings um hin margvíslegu efni, nánast allt nema kynlíf. í menningarbyltingunni var hugtakið ást fordæmt sem ímynduð og úrkynjuð smáborgaraleg firra. Það er ekki almennt háttalag elskenda í Kína að leiðast á opinberum stöðum, en færist þó í vöxt. „hugsun Maós,“ eða valdatöku kommún- ista í landinu 1949. Frá fornu fari hafa Kínverjar litið svo á að ástamál séu ekki annað en hluti af miklu stærra og mikilvægara máli, sem sé hjönabandinu. Sú þjóðfélagsstofnun sé langtum mikil- vægari en svo að hún geti talizt einkamál tveggja aðila, þar komi fleira til, svo sem hagsmunir fjölmargra ættingja og í víðtækari skilningi þorpsins, byggðar- lagsins, landshlutans og þjóðarinnar. Því skipti meginmáli að búa tryggilega um hnútana og það sé svo vandasamt verk, að tveimur ungum manneskjum sé ekki fyrir því treystandi. Það kemur því í hlut foreldranna að sjá velferð afkvæmanna borgið, m.a. með hinni flóknustu samn- ingagerð, og áður var algengt að brúður hefði aldrei litið brúðguma sinn augum fyrr en hún var flutt til heimilis tilvonandi tengdaforeldra þar sem brúð- kaup var haldið. En þegar þetta var höfðu Kínverjar enn ekki fengið þá viktoríönsku hug- mynd, að kynlíf væri syndsamlegt. Kyn- hvötin var eins og hver annar eðlisþáttur mannsins, eins náttúruleg þörf, eins og það að vilja seðja hungur sitt. Konfúsí- usar-spekingurinn Mancius skilgreindi kynhvötina, sem náttúrulega þörf, sem fullnægja þyrfti við réttar aðstæður á viðeigandi tíma. Segja má, að Kínverjar hafi um aldir skipulagt kynferðismál fremur en að þeir hafi bælt niður slíkar hvatir með þjóðinni. Vændi var ekki fordæmt sem óhæfa, heldur var það viðurkennt sem einn þáttur þjóðlífsins. í bókmenntum Kínverja er rómantík ekki veigamikill þáttur, gagnstætt því sem er í vestrænni menningu, en klám var hins vegar háþróuð list, sem bæði konur og karlar höfðu miklar mætur á. „Gullna lótusblómið" heitir gömul kínversk skáldsaga, en þar er að finna hispurs- lausar og afar greinargóðar lýsingar á kvennamálum auðugs kaupmanns, sem er svo atorkusamur á því sviði að hann ofreynir sig að lokum og bíður bana af. Þetta óþvingaða viðhorf til kynferðis- mála háfa íbúar Formósu og Hong Kong að verulegu leyti enn þann dag í dag. Sóðaskapur Ekki einasta hafa kínverskir kommún- istar komið því á að hagsmunir heildar- innar skuli settir ofar einstaklings- bundnum „duttlungum" varðandi ásta- mál, heldur virðast þeir hafa upprætt þá skoðun með þjóðinni, að kynlíf sé ekki syndsamlegt. I staðinn hefur verið tekin upp einstrengingsleg skírlífisstefna, sem óhjákvæmilega hlaut að leiða til þving- unar og bælingar. Ástir og kynlíf samræmast ekki byltingarhugsjóninni og eru ekki samboðin hinum hugprúðu hjörtum, sem slá í takt og taka kipp við tilhugsunina um viðreisn og uppbygginu hins nýja Kína. Þegar kínverskir fjölmiðlar minnast á mál, sem snerta náin kynni karla og kvenna utan hjónabands, er orðalagið ávallt á þessa leið: „þátttaka í sóðalegum tengslum karla og kvenna“ eða „ósiðlegt samband karla og kvenna". Jafnvel hlutlaust orðalag eins og „að hafa samband" særir siðferðiskennd margra Kínverja. Greinarhöfundur spurði vin- konu sína, sem er í kommúnistaflokkn- um, hvað henni fyndist um þetta orða- samband. „Þú ættir ekki að tala svona,"

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.