Morgunblaðið - 20.01.1980, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 20.01.1980, Blaðsíða 14
46 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 1980 Æskulýðsstarf þjóð kirkjunnar 20 ára NÚ ERU 20 ár liðin síðan þjóð- kirkjan fékk sinn fyrsta æsku- lýðsfulltrúa, var það sr. ólafur SKúlason, dómprófastur. Síðar hafa þeir sr. Jón Bjarman, fanga- prestur, sr. Hjalti Guðmundsson, dómkirkjuprestur, sr. Bernharð- ur Guðmundsson, fréttafulltrúi, sr. Guðjón Guðjónsson, sem nú er prestur í Svíþjóð, og sr. Þorvald- ur Karl Helgason, prestur í Njarðvíkum, gegnt starfinu. Nú- verandi æskulýðsfulltrúi er sera Ingólfur Guðmundsson, áður lektor við Kennaraháskólann. Hrefna Tynes hefur starfað við æskulýðsstarf kirkjunnar síðustu tíu árin. Heimild fékkst til að ráða að- stoðaræskulýðsfulltrúa 1971. Gegndi fyrstur því starfi Guð- mundur Einarsson, nú fram- kvæmdastjóri Hjálparstofnunar kirkjunnar, þá Jóhannes Tómas- son, blaðamaður, og síðan 1977 Stína Gísladóttir BA. 1977 fékkst heimild til að ráða annan aðstoðaræskulýðsfulltrúa með Norðurland sem aðalstarfs- vettvang. Fyrstur gegndi því Jó- hann Baldursson, nú kennari á Akureyri, og síðan Oddur Al- bertsson, sem sérmenntast hefur í Svíþjóð til safnaðarstarfs. Æskulýðsstarfið hefur haft töluverða útgáfu með höndum. Má þar nefna fermingarkver tvenn, fræðsluefni fyrir sunnudagaskóla, söngkver með nótum og hjálpar- gögn fyrir æskulýðshópa af ýmsu tagi. (Fréttabréf biskupsstofu). AKAI Nauðungaruppboð sem auglýst var Í32., 34. og 36. tölublaöi Lögbirtingablaös- ins 1979, á Skeifu v/Nýbýlaveg, þinglýstri eign Kristínar Viggósdóttur, fer fram á eigninni sjálfri þriöjudaginn 29. janúar 1980 kl. 11:00. Bæjarfógetinn í Kópavogi. <p símanúmer Æ' ITSTJ0RN OG CVDIEOmFIIR' iisiamiRiriui i yrun. 10100 IIRIÝ^INRAR- Mif U L I WflSmíUífiilla 22480 lCrDCIAI^ Mrianciiia 83033 NNtNtHtHHNIIIINNNNHWHNN ísraelska flugfélagið E1A1 að rétta úr hlutunum ? texti: Jóhanna Kristjónsdóttir grátt silfur saman og gripu hvert tækjfæri til að hafa í frammi skemmdarverk gegn flugfélaginu á allan handa máta, hafa nú undirritað samninga við stjórn fyrirtækisins, þar sem þeir fallast á tímbundnar launalækkanir og nemur lækkunin allt að 40 pró- sentum. Þá hafa flugmenn skrifað undir það að fara nú sjálfir að borga tekjuskatt af launum sínum, en fram til þessa hefur E1 AL greitt lungann af sköttum þeirra. Upphæð sú, sem starfsfólki hefur verið greidd í erlendum gjaldeyri, hefur verið lækkuð og ýms hlunnindi flugliða afnumin, ýmist um tíma eða fyrir fullt og allt. Þetta hljómar allfurðulega og þegar að því er hugað hvað varð til að breyta þessu verður málið enn sérstæðara. Það er sum sé einn maður, Avraham Shavitz, sem FRÁ margslungnum vanda Flugleiða hefur verið sagt í blöð- um og ekki ætlunin að fara út í það hér, hvernig það mál allt er vaxið. ísraelska flugfélagið EL AL hefur iðulega verið nefnt sem hliðstæða Flugleiða vegna erfið- leika þess og hefur enda staðið á barmi gjaldþrots um langa hríð. Á síðustu mánuðum hefur marg- sinnis komið til tals að hætta rekstri þess endanlega. Loks var svo komið, að fjármálaráðherra Israels, Yigael Hurvitz, gaf síðasta frestinn. Ef lausn yrði ekki fundin á málefnum fyrirtækisins fyrir ákveðinn dag væri ekkert um annað að ræða en að menn pökkuðu saman. Þóttust nú menn sjá sína sæng uppreidda og hörm- uðu margir þessi fyrirsjáanlegu málalok og þótti sem það væri stórkostlegur hnekkir þjóðarstolti ísraela að geta ekki sigrast á þessum vandamálum þótt marg- brotin og mikil væru. Nokkru áður hafði nýr fram- kvæmdastjóri verið ráðinn til E1 AL, Avraham Shavit, þekktur iðnrekandi, og höfðu verið bundn- ar vonir við að honum tækist að aðhafast eitthvað það sem til lausnar mætti verða. Áður en að því er vikið er þó rétt að rekja nokkuð aðdraganda málsins. Fyrir fáeinum árum hafði EL AL á sér frábært orð sem traust og merkt flugfélag. Þjónusta þess var í sérflokki bæði á jörðu niðri og í vélunum, ekki skeikaði mínutu í áætlunum auk þess sem öryggisgæzla um borð í vélunum var með sérstökum brag og mjög svo lofsverðum. Nú er rétt að taka það fram í leiðinni, að ég hef margsinnis síðustu árin flogið með þessu félagi og aldrei orðið vör við annað en þetta gengi öldungis prýðilega fyrir sig, að minnsta kosti það sem að farþegum sneri. En hvað um það, vandamálin hafa hrannast upp. Þjónustan hefur versnað, óstundvísi er sögð landlæg, slaknað hefur á öryggis- ráðstöfunum, hin margumrædda „opna stefna", sem rakin er til Carters, hefur komið illa við EL AL sem fleiri flugfélög. Gríðar- legar olíuverðshækkanir hafa komið óþyrmilega niður á því og síðast en ekki sízt hafa svo himinhá laun flugmanna verið töluverður baggi. Aukin heldur hefur verið mjög alvarlegur og vaxandi rígur milli hinna ýmsu starfsstétta þess og vinnumórall- inn innan fyrirtækisins stöðugt farið versnandi. Hafi einn starfs- hópur kríað fram launahækkun hefur sá hinn næsti farið snarlega í verkfall til að knýja fram ögn meira og svo koll af kolli. Það ',efur nú gerzt, að EL AL virðist "tla að klöngrast yfir v.: . n- Starfsmenn EL AL, sc~. fyrir fáeinum vikum eltu þakka má að þessum árangri er náð. Og til að gefa hugmyndir um hvaða upphæðir er þarna um að tefla má nefna, að flugáhafnir afsala sér samtals sjö milljónum dollara, þar af féllst starfsfólkið á að lána EL AL um tíma þrjár milljónir þeirra, en hitt verður endurgreitt samkvæmt samkomu- lagi. Israelar eru mjög hreyknir af því hversu þarna hefur til tekizt. Þeir segja að ekki hafi fyrr í þrjátíu ára sögu Israels verið gerður kjarasamningur um launa- lækkun. Þetta hafi tekizt vegna þess að sjálfsvirðing þeirra hafi boðið þeim að hlaupa undir bagga þegar í óefni var komið, fórnar- lund og sjálfboðaliðshugsjónin sem margir héldu að væri að dvína með ísraelum hafi þarna komið fram í sinni ljúfustu mynd. Samt verður ekki komist hjá því að segja upp um eitt þúsund starfs- mönnum og munu þeir hætta þann 1. apríl Víkur nú loks að Avrahams þætti Shavit forstjóra í þessu máli. Þegar hann tók við bjuggust flestir við að hann hefði reist sér hurðarás um öxl með því að ætla sér að rétta við hag fyrirtækisins. Tap EL A1 var yfir 50 milljónir dollara á sl. ári og var búizt við að það færi yfir 70 milljónir á þessu ári og var það vægilega áætluð tala. Shavit kvaðst ætla að gera viðamiklar breytingar. Hann til- kynnti samstundis ýmiss konar samdráttaraðgerðir, boðaði launa- lækkun og fjölda uppsagna. „Þetta Nýr forstjóri þess, Avraham Shavit, „talaði starfsliðið í kaf“ og fékk það til að fallast á tíma- bundnar launa- lækkanir sem nema allt að 40 prósentum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.