Morgunblaðið - 20.01.1980, Page 2
34
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 1980
Með vaxandi samskiptum Kínverja við umheiminn hafa umgengnisvenjur orðið
frjálslegri. Myndin er tekin í samkomusal You-Yi gistihússins í Peking þar sem hægt er
að fá sér snúning eftir vestrænni danstónlist.
sagði hún, „þetta er reglulegt sóðatal."
Segja má að getnaðarvarnir séu eina
hlið málsins sem sæmandi þykir að
viðurkenna sem staðreynd. „Pillunni" er
dreift ókeypis til allra kvenna og þær eru
óspart hvattar til að aðstoða við að halda
fólksfjölgun í skefjum með því að taka
hana. Fjöldi karla tekur þátt í tilraun,
sem undanfarin ár hefur verið gerð með
getnaðarvarnatöflur, en sérfræðingar
víða um lönd telja þetta lyf einna
líklegast þeirra, sem tilraunir eru gerðar
með, til að koma að notum sem getnaðar-
vörn fyrir karla.
Greinarhöfundur var staddur í lyfja-
búð í miðri Peking þegar kona, á að gizka
fertug, vatt sér inn og bað um „pilluna".
Afgreiðslustúlka leit á hana með tor-
tryggni og greinilegri vanþóknun og
spurði: „Fyrir þig?“ „Nei, nei,“ flýtti
konan sér að segja, „það er fyrir dóttur
mína.“ Greinilega féll þessi skýring ekki
í góðan jarðveg, því ekki hvarf vandlæt-
ingarsvipurinn af afgreiðslustúlkunni.
Ástæðan var eflaust sú, að þótt hár
konunnar væri farið að grána gat hún
vart verið svo gömul að hún ætti dóttur,
sem komin væri á réttan aldur. Til þess
hefði hún þurft að vera a.m.k. fimmtug,
því að í Kína hefst kynlíf kvenna ekki
fyrr en um 25 ára aldur, í fyrsta lagi, því
að lög heimila þeim ekki að ganga í
hjónaband fyrr. Líklegasta skýringin á
þessu samtali er sú að konan hafi
skammazt sín fyrir að viðurkenna að hún
hefði enn kynmök við eiginmann sinn,
komin á þennan aldur.
. Ping kallar höfundur hálffertuga
skrifstofustúlku, sem hann komst í kynni
við og fékk til að ræða opinskátt um
afstöðu sína til hjónabandsins. Hún
hafði kynnzt manni sínum þegar bæði
stunduðu nám í menntaskóla. Hann var
meðlimur í flokknum og líklegur til að
öðlast frama. Ping segir það fyrst og
fremst hafa verið fyrir tilstilli umsjón-
arkennara hennar að hún féllst á að
giftast manninum, því að kennarinn, sem
einnig var flokksfélagi, leit svo á að þessi
ráðahagur væri hinn ákjósanlegasti.
Nú heldur Ping því fram að hún hafi
aldrei verið hið minnstá hrifin af manni
sínum og að hjónabandið hafi frá
upphafi verið henni hin mesta raun.
„Mér fannst allt, sem viðkom kynlífi,
saurugt. Ég þoldi aldrei að hann kæmi
nálægt mér og reyndi jafnan að komast
hjá því að láta hann snerta mig. En hann
var sterkari en ég og fékk sínu fram-
gengt. Fyrir okkur bæði var þetta
hreinasta andstyggð." Brátt kveðst hún
hafa komið sér upp nokkurs konar
ósjálfráðu varnarkerfi. „Þegar hann fór
að láta vel að mér var eins og ég væri að
fá hjartaslag. Ég fann til þrengsla yfir
brjóstinu og átti bágt með að ná
andanum. Yfirleitt hljóðaði ég upp og þá
varð maðurinn minn skelfdur og lét mig
í friði." Ping fór í læknisskoðun, en
lækninum tókst ekki að finna neitt
athugavert. „Auðvitað sagði ég læknin-
um aldrei hver ástæðan var, — slíkan
viðbjóð er ekki hægt að ræða.“ Ping taldi
óhugsandi að samfarir stæðu lengur en
þrjár til fjórar mínutur, en í hjónabandi
hennar hafði þeirri athöfn jafnan lokið
með því að eiginmaðurinn hafði sig í
burtu. Henni ofbauð þegar henni var
sagt frá því að til væru bandarískir
sérfræðingar, sem árum saman hefðu
helgað sig rannsóknum á kynferðislegu
atferli mannskepnunnar, og að bækur
með niðurstöðum Kinseys og Hikes
hefðu um árabil verið metsölubækur um
allt landið. „Hvílík tímasóun," sagði hún.
Hún kvaðst aldrei hafa hlotið fræðslu
um kynferðismál af nokkru tagi, hvorki
frá foreldrum sínum, félögum né í
skólanum, að undanskildum fyrirlestri
um getnaðarvarnir, sem haldinn var á
vinnustaðnum, og hún hafði ekki hirt um
að hlusta á nema með öðru eyranu, þar
sem henni þótti málefnið mjög ógeðfellt.
Breytt afstaða
I lok menningarbyltingarinnar varð
þess vart að viðhorf ungs fólks, og þá
fyrst og fremst virkra þátttakenda í
henni, til kynferðismála var farið að
breytast. Sú þróun hefur haldið áfram en
hún hefur verið mjög hægfara og fara
litlar sögur af henni utan Peking. Þar
eru t.d veitingastaðir, r.em fjölsóttir eru
af ungu fólki og feróamönnum. Einn
þessara staða er „Fr'ð.ukaffi" í miðborg-
inni. Þar safnast saman fólk af öllu tagi
til að drekka bjór eða fá sér aðra
hressingu og sýna sig og sjá aðra.
Popp-tónlist frá Hong Kong ómar um
sali frá japönskum kassettutækjum,
vændiskonur eru þar á stangli, og fyrir
áramótin lét lögreglan til skarar skríða
og handtók á staðnum 16 slíkar ásamt
fylgdarmönnum, á einu bretti. Vændis-
konurnar voru ákærðar fyrir að „ófrægja
þjóðina" með athæfi sínu.
Undanfarna mánuði hefur verið að
koma í ljós að afstaða kínverskra
fjölmiðla til samskipta kynjanna er að
breytast. Til skamms tíma var einfald-
lega ekki minnzt á þessa hlið daglegs lífs,
en nú hefur dagblað eitt, sem sérstaklega
er ætlað æsku landsins, breytt um stefnu
og birtir nú öðru hverju lesendabréf og
svör við þeim. Þar gefst unga fólkinu
tækifæri til að leita ráða vegna sinna
hjartans mála.
Nýlega birtist bréf í þessum dálki frá
Xiao Li (Li litla) sem sagður var frá
Henan-héraði í norðurhluta landsins.
Erindið var „vandamál, sem veldur mér
blygðun, þ.e.a.s. sjálfsfróun. í meira en
ár hefur mig langað til að hætta þessu,
en ég get það ekki. Ég finn að þetta
dregur úr mér mátt og hef áhyggjur af
því að það kunni að hafa áhrif á kynlíf
mitt þegar ég hef gengið í hjónaband, og
jafnvel að ég kunni þá að reynast
getulaus."
Ye Gonghsao, prófessor við læknaskól-
ann í Peking, er fenginn til að svara
bréfinu, og eru útskýringar hans á þessa
leið: „Sjálfsfróun er í sjálfu sér ekki
sjúkdómur, heldur athöfn sem ber vott
um hömluleysi, er smám saman getur
orðið að slæmum ávana. Sé þetta stund-
að reglulega verður það til að örva
starfsemi kyntauganna, en örvun þeirra
hefur í för með sér máttleysi, doða,
þreytu, minnisleysi og aðra kvilla, sem
valda tregðu í námi og starfi. í alvar-
legum tilfellum verður afleiðingin tauga-
áfall."
En prófessorinn vekur athygli á því að
svartnættið sé ekki algjört: „Ég get
fullvissað þig um, að hægt er að sigrast
algjörlega á þessu vandamáli. Þú skalt
byrja á því að einbeita eins miklu af orku
þinni og mögulegt er að náminu og
skipuleggja tómstundir þínar til þátt-
töku í menningar- og íþróttaiðkun. Áður
en þú ferð að sofa skaltu fara út og
skokka og fara síðan i heitt fótabað og
reyna síðan að sofna um leið og þú ert
kominn upp í rúm. Þegar þú vaknar um
morguninn skaltu ekki lúra áður en þú
ferð fram úr. Gættu þess að sofa ekki
liggjandi á maganum og sofðu ekki undir
of mörgum ábreiðum."
Hagstjórnartæki
í borgum Kínaveldis mega konur,
lögum samkvæmt, ekki ganga i hjóna-
band fyrr en þær hafa náð 25 ára aldri,
og karlar fá ekki leyfi til þess fyrr en
þeir eru 27—28 ára. I sveitum er
aldursmarkið víða nokkru lægra. Til að
ganga í hjónaband þarf sérstakt vottorð
frá trúnaðarmanni kínverska kommún-
istaflokksins á vinnustað, og er tilgang-
urinn í samræmi við þá stefnu yfirvalda
að letja fólk fremur en hvetja til að rugla
saman reytum sínum. Hafi viðkomandi
óflekkað pólitískt mannorð — þ.e.a.s. sé
ekki stimplaður gagnbyltingarsinni og
hvorki afkomandi landeiganda né kapít-
alista — þá fæst leyfið yfirleitt vafn-
ingalaust. Annars verður rekistefna, sem
endað getur með synjun, þótt ekki sé það
algengt.
Gangur skilnaðarmála er svipaður.
Flokksdeildin á vinnustað rannsakar
málavexti áður en heimilt er að sækja
um skilnað hjá hlutaðeigandi stjórnvöld-
um, og þrátt fyrir yfirlýstan tilgang
hj úskaparlöggj afarinnar um einföldun
slíkra mála verður reyndin oft sú að
samfélagið stendur gegn því í lengstu lög
að þau nái fram að ganga.
Þessi afskiptasemi þjóðfélagsins varð-
andi hjúskaparmál er í rauninni hag-
stjórnartæki, sem fyrst og fremst er
ætlað að stemma stigu við fólksfjölgun í
landinu, en einnig að koma í veg fyrir los
og rótleysi, sem hljótist af hjónaskilnaði.
Hvað fólksfjölgun varðar verður ekki séð
að þetta hagstjórnartæki hafi komið að
tilætluðum notum, því að frá valdatöku
kommúnista árið 1949 er talið að þjóð-
inni hafi fjölgað úr 540 milljónum í 960
milljónir. Fólksfjölgun er alvarlegasta
þjóðfélagsvandamál Kínverja um þessar
mundir, að því er yfirvöld telja, og hafa
yfirvöld sett sér það mark, að um
aldamótin hafi tekizt að snúa þróuninni
við.
— Á.R. (Heimild: Fox Butterfield,
The New York Times Magazine)
7
víkíT
f' 0 Kaupmenn — verslunarstjórar! /
AVEXTIRIÞESSARI
^ Klementínur — appelsínur — sítrónur
greipaldin — epli rauð — epli græn —
epli dönsk — bananar — vínber græn — peru
AVEXTIR ALLA DAGA
Eggert Kristjánsson hf.
Sundagörðum 4, sími 85300