Morgunblaðið - 20.01.1980, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 1980
39
Afmœliskveðja:
Þórhallur Þorláksson
Betra miklu þykir mér en ekki
að hafa þó farið eina langferð um
ævina fótgangandi með bakpoka
um heiðarvegi og hálsa, firði og
dali vors fagra lands. Frá þeirri
ferð eru líka margar góðar minn-
ingar, ekki sízt vegna þess að
förunauturinn var af beztu „sort“.
Ég ætla að skeggræða stundar-
korn um þann heiðursmann við
yður, lesendur góðir, ef þið megið
vera að því að renna augum yfir
skrifið, vegna þess að hann átti
sextugsafmæli á dögunum.
Þórhallur heitir maðurinn og er
Þorláksson, kunnur maður í stétt
kaupsýslumanna, enda ber hann
hið besta skynbragð á tölur, hvort
heldur á hverflyndi eða staðfestu
talna, og kemur honum fátt á
óvart í þeim efnum, því að hann
fylgist vel með í markaðsmálum
margs konar. Engu að síður hefðu
hæfileikar hans getað bent honum
inn á aðrar brautir og hann orðið
góður liðsmaður víða.
Þórhallur Þorláksson er vest-
firzkra ætta, fæddur á Isafirði, en
fluttist barn að aldri með foreldr-
um sínum til Akureyrar og þaðan
til Reykjavíkur eftir nokkur ár.
Foreldrar hans voru Þorlákur
Einarsson og Þórunn Franzdóttir,
hörkuduglegt greindarfólk sem
gaman var að kynnast. Þau eru nú
bæði látin fyrir þó nokkrum árum.
Þórhallur gekk í Verzlunarskóla
íslands óg útskrifaðist þaðan 1938,
gerðist eftir það verzlunar- og
skrifstofumaður hjá bókav. Sigf.
Eymundssonar, heildv. Garðars
Gíslasonar og Landsíma íslands.
En þar kom að vestfirzka sjó-
mannsblóðið sagði til sín. Hann
sneri sér að útgerð um hríð ásamt
bræðrum sínum, en ekki leið á
löngu unz hann lagði aðaláherzlu
á innflutning útgerðarvarnings
ýmiss konar, einkum netabúnaðar
togskipa, og síðustu 20—25 árin er
fyrirtæki hans, „Marco“, í tölu
hinna þekktustu í þeirri grein.
Hefur Þórhallur sýnt mikla fyrir-
hyggju og hagsýni í viðskiptum,
ekki sízt við Japani og Portúgali.
Hefur hann farið marga ferðina í
viðskiptaerindum til þessara
landa og annarra og er því senni-
lega kominn í tölu hinna víðförn-
ustu íslendinga. Nú er Örn sonur
hans farinn að létta rækilega
undir með honum við rekstur
fyrirtækisins, en þar að auki hefur
Þórhallur notið góðra starfskrafta
bróður síns, Halldórs, við ýmislegt
er að rekstrinum lýtur.
A þessum erfiðu tímum, þegar
allt er í hnút í efnahags- og
viðskiptamálum ríkisins og vönt-
un virðist vera tilfinnanlega á
góðum „fjármálahausum", hefur
mér oft komið til hugar að verzl-
unarskólaárgangurinn okkar frá
1938 gæti sem bezt lagt til for-
sjármenn í þeim efnum, sem
líklegir væru til árangursríkara
starfs en aðrir hafa náð fram, og
þar er Þórhallur Þorláksson hvað
fremstur í flokki.
Velgengni Þórhalls er ekki að-
eins á efnahags- og viðskiptalegu
sviði. Hann hefur líka verið láns-
maður í einkalífi, kvæntur glæsi-
legri afbragðskonu, Guðríði Ein-
arsdóttur, og saman eiga þau
fjögur börn, einkar vel gerð til
líkama og sálar. Þau hjónin hafa
búið fagurlega um sig á heimili
sínu í Laugarásnum, og er þar
ætíð gaman að koma, enda oftast
eitthvað nýtt að sjá. Listaverkin á
þeim bæ eru mörg og sum einstak-
ir kjörgripir. Þar klingir líka
iðulega klassísk tónlist af ýmsu
tagi, því að húsráðendur unna
góðri músík. „Lengi býr að fyrstu
gerð“. Þórhallur sótti tónlistar-
skólann hér í Reykjavík um skeið
á yngri árum og lagði stund á
fiðluleik.
Aðra grein listar hefur Þórhall-
ur iðkað dálítið sér til ánægju. Það
er skáklistin. Við höfum verið
klúbbfélagar í áratugi, og hef ég
líklega öðrum oftar orðið fyrir
barðinu á harðskeyttum leikjum
hans. Þórhallur er bjartsýnis-
maður í skákinni, og þótt sú
bjartsýni gangi ekki ætíð fram til
uppfyllingar, gengur hann jafn
ódeigur og sigurreifur að næsta
tafli. Þess vegna er skemmtilegt
að sitja gegnt honum við skák-
borðið.
íslenzkur málsháttur segir:
„Margur verður af aurum api.“
Þetta er ekki mælt út í hött en
væri alrangt, ef gefið væri'í skyn
að þetta gilti um alla. Þórhallur er
gersamlega óspilltur af velgengn-
inni, óbreyttur í framkomu, alþýð-
legur og notalegur, hreinn og
beinn. Þetta tel ég meiriháttar
kost á hverjum sem er. Og þannig
veit ég að Þórhallur heldur áfram
að vera allar götur til endadæg-
urs.
Tími er afstætt hugtak. Það
varð mér ekki hvað sízt ljóst á
gönguferð okkar Þórhalls um
Vestfirði fyrir margt löngu. Þegar
við inntum eftir því á einhverjum
bænum, hvað lengi væri gengið
yfir hálsinn eða heiðina framund-
an til næsta bæjar handan við,
brást ekki að leiðbeinandinn
nefndi u.þ.b. helmingi skemmri
tíma en hann reyndist vera,
stundum meira en svo. Og gengum
við félagar þó fullum fetum, enda
ungir þá, að vísu með nokkra byrði
á baki.
Síðan þetta var hafa ævidagar
okkar nær þrefaldast, og satt að
segja finnst mér spölurinn mikl-
um mun styttri en það. Þarna
sannast því enn betur kenningin
um afstæði tímans.
Ég man ekki lengur gerla, hvað
okkur Þórhall tók langan tíma að
ganga frá Kollabúðum til Arn-
gerðareyrar, þar sem Þorskafjarð-
arheiði er helzti áfanginn, eða þá
yfir heiðarhálsana milli fjarða frá
Dýrafirði til Patreksfjarðar, en ég
man vel hvað landið var svipmikið
á þessum slóðum, veðrið oftast
gott og viðtökur góðar hjá frænd-
fólki og venzlafólki okkar beggja,
bæði á Þingeyri og Sveinseyri við
Tálknafjörð. Eini dökki bletturinn
var slæmskan, sem hljóp í félaga
minn kvöldið og nóttina, er við
tjölduðum í varpanum á Hrafns-
eyri, en hann bar það af sér með
karlmennsku og reis upp nær
alheill að morgni, og áfram var
haldið.
Þannig hefur Þórhallur aldrei
látið neinn bilbug á sér finna í
einu eða neinu. Og nú er hann
búinn að fylla sjötta áratug
æviára 'sinna. Sá áfangi náðist 10.
þ.m. Þá var hann kominn vestur
um haf með konu sinni, og munu
þau væntanleg heim um rnánaða-
mótin. Ég vona að þau njóti
góðrar dvalar og sendi þeim beztu
árnaðaróskir.
Baldur Pálmason.
Húsnæði
óskast
2ja til 3ja herb. íbúö
óskast til leigu sem fyrst.
Fyrirframgreiðsla. Upplýs-
ingarísíma 24671.
V_____________________/
Hjartans þakkir færi ég
börnum mínum, tengda-
börnum, barnabörnum,
þeirra fjölskyldum og öll-
um vinum mínum sem
færöu mér fallegar gjafir
á 75 ára afmæli mínu 15.
janúar og geröu mér
daginn ógleymanlegan.
Lifiö heil
Ólafía Gudrún
Sumarlidadóttir
Thorens
Traustbyggður og hárnákvæmur,
enda svissnesk hag/eikssmíð.
í nærfellt hundrað ár hafa THORENS THORENS spilara. sem að ytra útlitirhafa tekið
verksmiðjurnar framleitt plötuspilara. sífellt miklum stakkaskiptum. Verðið er enn setn f\ rr
endurbætta af svissnesku huoviti o® haoleik. hasstætt. Sé miðað við sæði serir
Traust hönnun. tæknileg fullkomnun jiú tæpast betri kaup í öðrum
og takmarkalaus nákvæmni eru aðalsmerki plötuspilurum.
THORENS. Þess vegna eru THORENS
spilarar mjög sjaldséðir gestir á verkstæðum.
Við kvnnum nú nvjar gerðir
THORENS
ER TRAUSTSINS
VERÐUR
Leiðandi fyrirtæki
á sviði sjónvarps
útvarps og hljómtækja
VERZLUN OG SKRIFSTOFA: LAUGAVEGI 10.SÍMI: 27788 (4 LÍNUR).