Morgunblaðið - 20.01.1980, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 1980
63
15 til 40 ára kaupa mest af
hljómplötum í Bandaríkjunum
50,5% krakka á aldrinum 6—19
ára keypti 5 eða fleiri plötur á ári
í samanburði við 50,9% á aldrin-
um 20—29, 41,4% á aldrinum
30—39, 41,8% á aldrinum 40—49,
34,4% á aldrinum 50—59, og
31,5% á aldrinum 60—99.
Það sem helst er merkilegt við
þessa skoðanakönnun er að pró-
.sentin virðast ekki lækka mikið
með aldrinum, og þeir sem á
annað borð byrji að safna
hljómplötum haldi því áfram að
mestu leyti fram eftir aldri. Hvort
í nýlegri skoðana-
könnun sem birt var í
Billboard kom í ljós að
56% Bandaríkjamanna
kaupa eina eða fleiri
breiðskífu á ári. Einnig
kom í ljós að 10% keyptra
platna er keypt af 1%
kaupenda. en flestir á
aldrinum 15—40 ára
kaupa plötur að staðaldri.
þessar niðurstöður séu sambæri-
legar við kaupvenjur okkar á
hljómplötum er ekki gott að segja,
þess má geta að kassettur eru ekki
teknar með í þessari könnun, en
framleiðendur vilja halda því
fram að sala hljómplötunnar hafi
minnkað verulega vegna aukinnar
sölu á óáteknum kassettum.
Og ef þið viljið flokka ykkur þá
taldi könnunin 15 plötur og meira
á ári vera mikið, 7—14 eðlilegt, en
6 eða minna lítið.
HIA
Heiðruðu útgefendur 226
hljómplatna á árinu 1979
• Það hefur verið til siðs í
tónlistarheiminum að veita við-
urkenningar fyrir góða sölu
hljómplatna. Plötur verða að
gullplötum og platinumplötum í
dag. en urðu að gull- og silfur-
plötum hér áður fyrr. . „
I Banda-
ríkjunum, sem er líklega stærsti
markaður hljómplötunnar hvað
magn snertir þó við sláum þá þó
líklega út í sölu á mann, eru það
Samtök aðilja hljómplötuiðnað-
arins sem fyigjast með sölu
platna og veita þessar viður-
kenningar.
A árinu 1979 voru veittar viður-
kenningar fyrir 226 hljómplötur
54 fengu platinum, en 172 fengu
gull.
En árið áður, 1978, voru aftur á
móti veitt 122 platinum, og 254
gull.
En þetta var þó ekki alveg svona
svart, því í byrjun 1979 voru
teknar upp nýjar reglur sem
kváðu svo á að 120 dagar þyrftu að
líða áður en viðurkenning væri
veitt, sem þýðir að inn í myndina
1979 vantar alveg fjóra síðustu
mánuðina, sem er besti sölutím-
inn.
42 breiðskífur fengu platinum en
12 smáskífur og 112 breiðskífur
fengu gull á móti 60 smáskífum.
Þar af runnu 16 platinum plötur
og 53 gullplötur til CBS, 13
platinum og 30 gull til Polygram,
og 11 platinum og 28 gull til WEA,
en þetta eru risarnir þrír sem ráða
nú vfir hátt í % hluta iðnaðarins.
HIA
ALLIR VILDU AUÐGAST
Fyrir jólin varö mikiö kapphlaup í popplöndun-
um tveimur, Bretlandi og USA, milli „Greatest
Hits“-platna. Allir vildu auögast á einfaldan máta.
Út komu Greatest Hits-plötur frá ABBA, Rod
Stewart, Bee Gees, Manfred Mann, Moody Blues,
Mantovani(l), Hot Chocolate, Elvis Presley, Diana
Ross, Electric Light Orchestra, Kenny Rogers, 10
CC, Chic, Bachelors, England Dan og John Ford
Coley og Neil Young, aö ógleymdri Donnu
Summer.
Af þessum plötum hefur Slagbrandur valiö
fjórar til umsagnar að þessu sinni, plötur ELO,
ABBA, Bee Gees og Rod Stewart, en þetta eru allt
listamenn sem hafa sett svip á liöinn áratug og
óvíst nema þeir haldi því áfram, allavega voru
síöustu plöturnar frá öllum fjórum þeirra toppar.
„GREATEST“
Bee Gees (RSO)
Bee Gees voru sniðugri en
svo að kalla þessa plötu „Great-
est Hits“ en „Greatest“ titill
gefur þeim óneitanlega meira
svigrúm. Efnið á þessari plötu
er allt frá síðastliðnum fimm
árum, eða frá því er þeir tóku að
framleiða diskótónlist.
Á plötunni eru öll þeirra
bestu lög þessa skeiös, sérlega
skemmtilega niöur raðað, þar
sem líkum hughrifum er safnað
á hverja hlið. Það fer ekki á milli
mála að þessir bræður eru
miklir fagmenn á sviði laga-
smíöa og úrvinnsla þeirra sér-
lega fáguð og eru þessi ein-
kenni líklega sterkust þegar
leitaö er skýringa á vinsældum
þeirra. Á hliö eitt eru lögin „Jive
Talking,, sem hóf merki þeirra í
diskómúsíkinni, „Night Fever",
„You Should Be Dancing" og
„Staying Alive“ úr kvikmyndinni
„Saterday Night Fever" auk
„Tragedy". Allt eru þetta lög
gerð fyrir miklar danshreyf-
ingar.
Á hlið tvö eru aftur á móti
hugljúfari tónmyndir frá þeim
bræðrum en meöal laga þar eru
„How Deep Is Your Love“,
„Love So Right“, „Too Much
Heaven" og „Fanny" auk „Don’t
Throw It All Away“, hér í fyrsta
sinn í útfærslu Bee Gees á
plötu, en bróðir þeirra, Andy
Gibb, hefur gert þetta lag vins-
ælt.
Hlið þrjú er einnig hugljúf
með lögum eins og „Love Me“
og „More Than A Woman".
Rokkhrifin blönduð diskó-
hljómum og töktum enda svo
plötuna, en á hlið fjögur eru lög
eins og „Wind of Change",
„Spirits" og „Night On Broad-
way“.
„ROD STEWART
GREATEST HITS
VOLUME ONE“
(Riva)
Þaö hrikalegasta við útgáfu
þessarar plötu er titillinn þar
sem út hafa komið yfir tíu
„Greatest Hits“-plötur frá Rod.
Þessi er kannski ekkert verri
en aðrar slíkar frá honum en
ólíklegt er þó, að margir eigi
eftir að verða sér úti um slíka
plötu frá Rod, sem á annaö
borð hafa haft það í huga.
„Do Ya Think l’m Sexy“ er
hérna á plötunni, „Maggie
May“, „Hot Legs“, „Sailing", „I
Was Only Joking", „The Killing
Of Georgie” og „You’re In My
Heart”. Flest þessara laga eru
róleg og falleg en þannig hefur
undirrituöum ætíð líkaö best við
kappann sem er annars hvers
manns hugljúfi þegar hann
heyrist en sést ekki, þó hann sé
kannski ágætis skemmtiefni á
stundum. Þó hefðu mátt vera
fleiri „Great Hits“ hérna. „Magg-
ie May“ náði jú fyrsta sæti, líka
„Sailing”, „I Don’t Want To Talk
About lt“, „The First Cut Is The
Deepest”, „Do Ya Thing l’m
Sexy“ komst í annað sæti, eins
gerði „The Killing Of Georgie”,
„Your’e In My Heart” komst í 3.,
„Tonight’s The Night” komst í 5.
En lagið „You Wear It Well“
komst líka í 1. sæti, en er ekki
hér, „Angel/What Made Mil-
waukee Famous” komst í 4., en
er ekki, „Oh No Not My Baby”
komst í 6. en er ekki, „Farewell”
komst í 7. og „This Old Heart Of
Mine“ komst í 4. sæti en er ekki
heldur. Og þessi lög eru bæði
eldri og yngri en lögin hér
þannig að valið er nokkuð
tilviljanakennt.
„ELO’s GREATEST
HITS“
Electric Light
Orchestra (Jet)
Þetta er ekki fyrsta „Greatest
Hits“-platan þeirra en líklega sú
besta. Hér eru eingöngu lög
sem hafa orðið vinsæl þó
reyndar ekki fyrstu lögin.
Þeir styðjast greinilega við
vinsældir sínar í USA í vali
laganna en elstu lögin eru
„Showdown” og „Ma Ma Ma
Belle” af „On The Third Day“,
bæði ágæt rokklög. „Can’t Get
It Out Of My Head“ er kannski
ekki dæmigert fyrir bestu
breiðskífu þeirra, „Eldorado”,
en ágætt samt, síðan eru „Evil
Woman” og „Strange Magic" af
„Face The Music“, „Living
Thing”, „Rockaria” og „Thele-
phone Line“ af „A New World
Record”. Af „Out of The Blue“
koma svo auðvitað „Turn To
Stone”, „Mr. Blue Sky“ og
„Sweet Talking Woman". En
ekkert af „Discovery” sem er
ágætt fyrir þá sem uppgötvuðu
þá á þeirri plötu.
Lögin standa öll undir nafni,
en varla væri hægt að kalla
þessa plötu „Best Of“, en það
er líka alltaf matsatriöi.
Platan er heilsteypt eins og
ferill þeirra, en kannski furðu-
lega tilbreytingarlítil miöað við
fimm platna feril.
GREATESt HITS VOL.
2
ABBA (Polydor)
ABBA höfða líklega til flestra
hérlendis. Á sinni „Greatest
Hits” plötu eru þau með 14 lög
sem öll hafa orðið geysivinsæl í
óskalagaþáttum útvarpsins að
minnsta kosti.
Meðal þessara laga eru
„Money Money Money”, „Danc-
ing Queen”, „Chiquitita",
„Thank You For The Music”,
„Knowing Me Knowing You“,
auk nýrri laga eins og „Angel-
eyes“, og „Does Your Mother
Know“ og „Gimme Gimme
Gimme” en það er í fyrsta sinn á
breiðskífu á þessari plötu.
Elsta lagiö er „Rock Me“ frá
1975, en annars eru lögin flest
frá síðustu þrem árum.
Uppröðun laga er ágæt og
platan líður vel inn um annaö
eyrað og út um hitt, en er þó
viss skrásetning í sögu dægurt-
ónlistar.
HIA