Morgunblaðið - 03.02.1980, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. FEBRÚAR 1980
27
Kristjánsson, íþróttafulltrúi í
Reykjavík, í samtali við Mbl. í
vikunni. — Það er þó ýmislegt í
þátttöku almennings í íþróttum,
sem við vitum, engetum ekki reitt
fram tölur um. I Reykjavík eru
íþróttir stundaðar í um 30 íþrótta-
sölum og alls staðar er það sama
upp á tengingnum, færri komast
að en vilja. Þegar nýtt íþrótta-
mannvirki er opnað fyllist það um
leið af áhugasömu fólki.
— Það er einnig straumur á
aðra staði. Við getum nefnt skokk
og skautaiðkun á Melavellinum,
sífellt fleiri sjást á skokki um
allan bæ, skautaiðkun er mikið
stunduð á Melavellinum, Tjörn-
inni og víðar þegar færi gefst á
slíku. Badminton og borðtennis
Bláfjöllin heilla marga og þegar
flest er í fjöllunum eru langar
biðraðir eftir að komast í lyfturn-
ar.
má nefna og það er hægt að halda
lengi áfram, segir Stefán, en við
spyrjum hann hverju þakka megi
aukinn áhuga á íþróttum hvaða
nafni, sem þær nefnast.
— Það er fyrst og fremst vax-
andi skilningur fólks á nauðsyn
þess að iðka einhverja íþrótt, augu
fólks eru smám saman að opnast
fyrir útiveru og hreyfingu. Ahug-
inn er greinilega vaxandi á öllum
sviðum íþrótta, bæði keppnis-
íþrótta og almenningsíþrótta, og
vonandi verður framhald á því,
segir Stefán Kristjánsson.
-áij.
’amankominn á mótmælafundinum við sovéska sendiráðið.
Spjöld fundarmanna báru áletrunina Sovétríkin burt úr Afganistan.
Verk Alfreðs
Flóka í Djúpinu
ALFREÐ Flóki hefur opn-
að sýningu á myndum
sínpm í Djúpinu, galleríi
sem er í kjallara veitinga-
staðarins ' Hornsins við
Hafnarstræti í Reykjavík,
en sömu eigendur reka
bæði galleríið og veitinga-
staðinn. ,
A myndinni eru
myndlistarmennirnir Al-
freð Flóki (t.v.) og Richard
Valtingojer.
Nýr veitingastaður í Kópavogi
NÝR veitingastaður var
opnaður í Hamraborg 4 í
Kópavogi í gær, laugardag-
inn 2. febrúar. Staðurinn,
sem ber nafnið Steikhúsið
Versölum, er í eigu Jenný-
ar Árnadóttur og Bjarna
Alfreðssonar.
Steikhúsið er innréttað í
frönskum Versalastíl og
tekur 36 til 44 manns í sæti.
Verður þar framreiddur
matur ásamt léttu víni kl.
9—21 virka daga en kl.
9—11.30 um helgar.
Hluti af veitingasal Steikhússins.
Ljósm.: RAX
ALLTAF —
EFTIR AÐ ÞU HEFUR
NOTAÐ ÞAÐ EINU SINNI
Það hreinsar, verndar og fægir i sömu yf irferð flesta þá
hluti sem tilheyra hús- og heimilishaldi.
Svo sem: Stál, tin, messing, aluminium, silfur, gull.
Einnig bakaraofna, eldavélar, potta, katla, straujárn,
vaska, baðker, gluggarúður og spegla.
Setjið Starglanz i votan klút og nuddið bletti og óhreinindi
af. Þurrkið síðan og þá sjáið þið muninn.
Heildsölubirgðir
0.J0HNS0N & KAABER HF.