Morgunblaðið - 06.02.1980, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 1980
25
fclk í
fréttum
+ Þessi mynd gœti heitið Lifsgleði og Coca Coia. — fcn hér er annars á ferðinni fréttamynd frá lokum
kappaksturskeppninnar „Brazilía Grand Prix“ sem fram fór í Sao Paulo fyrir skömmu. — Fremstur
á myndinni er sigurvegarinn, franski ökuþórinn Rene Arnoux, ásamt fallegri coca-cola stúlku. — Að
baki hans eru þeir sem fylgdu eftir fast á hæla hans í kappakstrinum. Ástralíumaðurinn Alan Jones
og Italinn Elio de Angelis (til h.).
í Vati-
kaninu
+ Á venjulegum móttökudegi Jóhannesar Páls páfa
annars, í Vatikaninu fyrir skemmstu, var meðal
þeirra sem hann veitti áheyrn, ung sirkus-sýningar-
dama, sem vildi endilega hafa dálitla sýningu
páfanum til heiðurs. — Hann situr í stólnum og horfir
á sirkusdömuna, Darix Togni, sýna kúnstir sínar.—
Tító á
gjörgæzlu-
deild
+ Þessi mynd var tekin í sjúkrastofu Josip Broz Titos
forseta Júgóslavíu á gjörgæzludeild í Ljubljana-sjúkrahús-
inu Þeir sem komnir eru til að heimsækja
forsetann eftir hinum miklu aðgerð, er vinstri fótur hans
var að mestu tekinn, eru tveir af frammámönnum
kommúnistaflokks Júgóslavíu, Lazar Kolisevski og Stevan
Doroniski.
Ibúar við Hraun-
bæ 2.723 en 1 íbúi
við Austurstræti
ÍBÚATALA hinna ýmsu gatna i
Reykjavík er mjög mismunandi
eða allt frá einum upp í nærri
þrjú þúsund. Langfjölmennasta
gatan er Hraunbær, en við hana
búa 2.723 ibúar, næst i röðinni er
Kleppsvegur með 1.757 ibúa.
Þriðja fjölmennasta gatan er
Vesturberg með 1.562 ibúa, í
fjórða sæti er Háaleitisbraut með
1.490 íbúa og sú fimmta er
Langholtsvegur með 1.010 ibúa.
Fast á eftir þessum götum
fylgja Álfheimar með 923 íbúa_og
Álftamýri með 906 íbúa. Síðan eru
nokkrar götur með 6—7 hundruð
íbúa svo sem Bólstaðarhlíð með
741 íbúa, Engjasel með 641, 603
búa við Flúðasel og Hátún, 755 við
Hringbraut, 751 við Hvassaleiti,
646 við Laugarnesveg, 748 við
Safamýri, 610 við Sólheima og 701
við Rauðalæk.
Þá má nefna nokkrar götur þar
sem aðeins er skráður einn íbúi
m.a.: Austurstræti, Dugguvogur,
Funahöfði, Laugamýrarblettur,
Pósthússtræti og Stekkjarbakki.
Sýningin Listiðn
íslenskra kvenna
SÝNINGIN Listiðn íslenzkra
kvenna er nú i undirbúningi og
miðar vel áfram. Margar lista-
konur munu sýna verk sín en
sýningin verður opin 16.—24.
febrúar á Kjarvalsstöðum.
Reynt verður að gera sýning-
una sem mest lifandi, til dæmis
með þvi að sýna vinnubrögð
fyrri tima sem og nútima vinnu-
brögð. Konur munu sitja og
spinna á rokk og snældu og
knipplingakona sýnir.
»
Ymis skemmtiatriði verða á
boðstólum, svo sem einsöngur
Ólafar Harðardóttur, Hamra-
hlíðarkórinn syngur, Þjóðdansa-
félag Reykjavíkur sýnir þjóð-
dansa og tízkusýningar verða
undir stjórn Unnar Arngríms-
dóttur. Gunnar Bjarnason hönn-
Kuldaskór
Loðfóöruö dömu-,
herra- og barnaleöur-
kuldastígvél aftur fáan-
leg.
VE RZLUNIN
GEYSiB"
UAStMINN ER:
22480 kií
JHvroiuthbibíh
uður setur sýninguna upp. Mats-
nefnd frá félaginu Listiðn hefur
valið sýningarmuni.
(Frétt (rá Bandalagi kvenna).
WIKA
Allar stæörir og geröir.
SdtuBflaaiigKyir
JJÍ9(n)@@®(ra <St (S®
Vesturgötu 16,sími 13280.
SÍKfí
Hitamælar
@ÖM(Hlaiíy®y(r
Vesturgötu 'I 6,
simi 13280