Morgunblaðið - 10.02.1980, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. FEBRUAR 1980
47
Algeng sjón i Vestur-Afriku: Stígur milli tveggja þorpa og menn með
farangur sinn á höfðinu.
Götulifsmynd. Bakau er þorp rétt utan við höfuðborgina Banjul. Eins
og sést á byggingarefni húsanna hefur vestræn menning hafið innreið
sína. Bárujárn og járn úr útflöttum oliutunnum er mikið notað i
byggingar. .
Ég ákvað fljótlega, og í samráði
við vin minn hjá þjóðháttafræði-
stofnuninni, að snúa mér fyrst og
fremst að þeim sem byggja á
Islam. Taldi ég mig á þann hátt
geta áttað mig á sambandi þess-
ara gömlu galdra eða töfra og
múhammeðstrúarinnar.
En fyrir flestum þessara marina
eru töfrar eða „magic" ekki yfir-
náttúruleg eða dulræn fyrirbrigði,
heldur aðeins hluti af raunveru-
leikanum sem beitt er til þess að
ná fram ákveðnum markmiðum.
En galdramennirnir lifa ein-
göngu á þessum starfa sínum, og
þegar fólk kemur til þeirra ýmiss
konar erindagerða þykir hæfa að
færa þeim eitthvað í leiðinni,
matvæli eða peninga. Aðallega er
starf þeirra fólgið í ráðgjöf hvers
konar, spádómum, leiðþeiningum
og í því að útbúa verndargripi, svo
og særingum. Slíka gripi bera
flestir á sér, og þeir fást aðeins
hjá galdramönnunum. Yfirleitt
eru þetta haganlega gerðir leður-
pungar með ýmsum efnum í,
venjulega afar fallegir og vandað-
ir gripir. Galdramönnunum til
aðstoðar við þessa smíði eru sér-
stakir leðursmiðir, en hlutirnir
eru gerðir eftir alveg sérstökum
reglum og undir yfirumsjón
gakiramanna.
Sem dæmi um það hvað getur
verið í þessum pungum er, að
stundum eru þar sett grös marg-
skonar, tilvitnanir úr Kóraninum
og fleira, en gripir þessir eru
yfirleitt af þremur gerðum:
í fyrsta lagi eru það jákvæðir
gripir, nokkurs konar verkfæri
eða hjálpartæki til notkunar í
margvíslegum tilgangi. Þá eru það
eiginlegir verndargripir til varnar
einhverju sérstöku, og loks hlutir
sem eiga að láta illt af sér leiða, til
dæmis að drepa eða skaða aðra.
Það hvort galdramaðurinn legg-
ur eitthvert siðferðilegt mat á til
hvers á að nota gripina, eða hvaða
mat það er fer venjulega eftir því
hve mikið hann er í tengslum við
Islam.
En yfir þessu öllu er mikil
leynd, og það er aðeins á vitorði
galdramannsins og þess sem grip-
inn fær, til hvers hann er ætlaður.
Viti það fleiri er ekki gagn að
honum lengur, hann verndar,
meðal annars, í krafti þess að
aðrir en eigandinn vita ekki fyrir
hverju gripurinn er eða til hvers
hann var gerður. Máttargildi þess-
ara gripa byggist á því að fólk
hefur trú á gildi þeirra. Að
minnsta kosti má fullyrða að trúin
hefur stóru hlutverki að gegna
hvað máttargildi gripanna snertir.
Eins og við töluðum um áðan
eru töfrar hluta af raunverunni að
áliti þessa fólks og hér er um að
ræða sjálfstæð öfl, sem eru óháð
manninum. Guð hefur gefið ölium
mönnum og reyndar öllu sem lifir,
hið svokallaða „Nyamo“ eða
lífskraft. Ein leiðin til að efla
lífskraft sinn er með töfrum eða
„magical charms" og þar koma
þessir gripir sem við höfum
minnst á, til sögunnar. Sumir
sálarfræðingar hafa bent á að
máttur töfranna liggi í þeirri
fullvissu eða trú, sem töfrunum
fylgir. Þannig breyti þessi trú
hegðan eða atferli manna og þar
með viðbrögðum annarra og hafi á
þann hátt áhrif eða afl til breyt-
inga á því sem er. Samkvæmt
þessari skoðun minnka töfrarnir
þær togstreytur sem við eigum við
að etja innra með okkur og þannig
verði til sálarafl, „áfgangs" ef svo
má að orði komast, sem við getum
síðan notað okkur til framdráttar.
Ekki skal hér dómur á það lagður
hvort þessi skoðun, sem er í raun
og veru „afgöldrun", eigi við rök
að styðjast og þess ber að geta að
heimurinn er ekki bara svartur og
hvítur eins og segir í sjónvarps-
auglýsingunni ágætu.
Margar gerðir
galdramanna.
Galdramönnunum á þessu
svæði má annars skipta niður í
marga flokka, eftir því í hverju
þeir sérhæfa sig. Sumir hafa til
dæmis fengist við að lækna geð-
sjúka með góðum árangri, aðrir
fást við særingar ýmiss konar, enn
aðrir við lyflækningar og svo
framvegis. Oft virðist til dæmis
mega skipta þeim niður eftir því
hvort þeir fást við hvítan galdur
eða svartan. Þá fást margir þeirra
við spádóma, en slíkt hefur fylgt
mannkyninu frá ómunatíð. Þeir
spá með ýmsum hætti, svo sem
með því að kasta upp skeljum og
ráða síðan í afstöðu þeirra er þær
hafa lent á jörðinni. Sumir spá svo
aftur í hreyfingar eða dauðateygj-
ur fugla sem fórnað hefur verið,
og dæmi eru um að spáð sé í flug
fugla eins og þekkt var meðal
fornþjóða.
En þetta kemur allt heim og
saman við það sem margir hallast
að, að við búum yfir ýmsum
hæfileikum sem við þekkjum ekki
sjálf, og að spádómshæfileikar
fólks bendi ef til vill til þess að
skilgreining okkar og skipting
tímans í fortíð, nútíð og framtíð sé
ekki alveg einhlít eða ekki nægin-
lega fullkomin nálgun á fyrirbær-
ið. Hugsanlega er um að ræða
einhvers konar „flæði" okkar aftur
og fram um „fortíð", „nútíð" og
„framtíð".
Niðurstöður rannsókna á for-
spárhæfileikum fólks má túlka á
þann veg að við séum misjafnlega
hæf til að sjá fyrir um óorðna
hluti eða þá að við höfum öll
meira eða minna upplýsingar um
framtíð okkar, upplýsingar sem
við eigum ef til vill misjafnlega
erfitt að komast að „eða heyra til.“
Sjálfsagt ad
svindla á hvítum
— Hvernig kemur þetta land
Evrópubúum fyrir sjónir, er þetta
mjög frábrugðið öllu því sem við
þekkjum hér?
„Já, þetta er annar heimur, og
öll viðmiðun er gjörólík. Það sem
okkur kann að finnast fallegt
finnst þeim ljótt, það sem við
teljum skemmtilegt finnst þeim ef
til vill leiðinlegt og svo framvegis.
Fólkið þarna virtist mér vera
duglegt, og oft varð ég var við að
konurnar unnu á ökrunum lið-
langan daginn í steikjandi hita.
Minna verður þó úr dugnaðinum
þegar unnið er fyrir hvíta menn,
en sjálfsagt þykir að svíkja þá og
pretta. Þeir hugsa sem svo, að þeir
séu fátækir, en hvítir menn ríkir,
og því sé það ekki nema réttlátt að
grætt sé á þeim.
Atvinnuleysi er þarna mikið og
landlægt, og má til dæmis nefna
að hjá fjölskyldunni sem ég bjó
hjá höfðu aðeins 4 af 10 karl-
mönnum vinnu. Aðalfæðan hjá
þeim eru hrísgrjón, og eru þau
flutt inn í stórum stíl, þó að
ræktun þeirra í landinu fari í vöxt
með tilkomu hjálpar frá öðrum
löndum. Með hrísgrjónunum er
síðan borðað, eftir því sem efni
leyfa, fiskur, jarðhnetustappa eða
kjötmeti og kryddað þannig að
svíður í þarminn.
Þetta er mikið karlaveldi, og
snæða þeir sér, en konur og börn
annars staðar. Konur eru þó
líklega rétthærri þarna en í mörg-
um íslömskum ríkjum, og stafar
það meðal annars af því að þær
hafa stóru hlutverki að gegna til
dæmis við akuryrkjuna. Menn lifa
þarna í fjölkvæni ef þeir hafa efni
á, en almenn fátækt gerir það þó
ekki algengt.
Af öðru sem má nefna í sam-
bandi við þessa þjóð, er að þarna
er meðalaldur ekki hár, einkum
vegna mikils ungbarnadauða.
Lífsþægindi í okkar skilningi eru
lítil, og virðist fólk oft ekki
sækjast eftir þeim. Yfirleitt virt-
ist mér fólk úti í sveitum landsins
heilbrigðara en það sem bjó í
nágrenni höfuðborgarinnar. Þar
er vestræn menning að hefja
innreið sína, með öllu því sem
henni fylgir fyrir frumstæðar
þjóðir. Hótel eru til dæmis orðin
allnokkur í Banjal og nágrenni, og
þangað eru innfæddir farnir að
fara á diskótek og njóta annarr
slíkra unaðssemda sem hinn vest-
urheimski heimur hefur upp á að
bjóða.
Miklar líkur eru því á að þetta
þjóðfélag eigi eftir að umbyltast
og taka stórum breytingum.
Hverfa þannig í núverandi mynd
sinni. Því miður eru ekki allar
breytingar til góðs og oft vill það
verða við slík stakkaskipti að
þekking sem fylgt hefur mannin-
um frá ómuna tíð skolast burtu og
týnist. Þannir munu áhrif þessara
galdralækna trúlega hverfa við
þær breytingar sem nú eiga sér
stað á þessu svæði og þar með
þekking þeirra.
Heimleiðis
á dönskum dalli
Annars vil ég ítreka það, að ég
er ekki neinn sérfræðingur um
þetta land eða þá þjóð sem það
byggir, svo lengi var ég ekki í
landinu. Ég reikna hins vegar með
því að ég fari þangað aftur á þessu
ári til að vinna áfram að verkefn-
inu.
Ég kom heim nú fyrir jólin er ég
var orðinn uppiskroppa með skot-
silfur, en styrkur sem ég hafði
vonast eftir að fá hjá Norrænu
Afríkustofnuninni, brást.
Raunar átti ég ekki fyrir fari
heim, og hélt því til Dakar,
höfuðborgar Senegal, og þar tókst
mér eftir nokkurt þref að fá far
með danska lýsisflutningaskipinu
Tegelholmen, sem var á leið til
Liverpool. Þegar skipið þurfti svo
að leita hafnar í Tenerife á
Kanaríeyjum fór ég frá borði og
komst heim með flugvél Flugleiða
sem hafði verið að flytja farþega
út fyrir jólin.
Síðan ég kom heim hef ég svo
verið að vinna með dr. Erlendi
Haraldssyni dularsálarfræðingi
að rannsóknum hans á dulrænni
reynslu íslendinga, og hef ég þar
starfað í samvinnu við háskólann í
Utrecht í Hollandi.
Þá er ég nú að hefja störf hjá
Sálfræðideild skóla í Reykjavík,
auk þess sem ég mun vinna að
ritgerðinni," sagði Jón Ársæll að
lokum. _ ^jj
UNISEFfrá,/4fíAA/
Utvarpssegulbandstæki
i bíla með stereo móttakara
TC 850/860 ML
Bylgjur: LW/MW/FM/MPX
Magnari: 6 wött
Hraöspólun: Áfram og til baka
Auto Reverse Suöeyóir (Noise killer)
Styrkstillir fyrir móttöku
TC -25 ML
Bylgjur: LW/MW/FM/MPX
Magnari: 6 wött
Hraöspólun: Áfram
123.000.-
76.500.- I