Morgunblaðið - 13.03.1980, Side 1

Morgunblaðið - 13.03.1980, Side 1
48 SÍÐUR 61. tbl. 67. árg. FIMMTUDAGUR 13. MARZ 1980 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Eyðilagður sovéskur skriðdreki við aðalveginn frá Kabul til sovézku landamæranna. Afganskir upp- reisnarmenn hafa gert margar árásir á veginn. Brzezinski vill öílugTÍ stuðning' Washington, 12. marz. AP. RÁÐUNAUTUR Jimmy Cart- ers forseta í þjóðaröryggis- málum, Zbigniew Brzezinski, hvatti í dag Vestur-Evrópu- ríki og Japan til að grípa til „áþreifanlegri ráðstafana" ásamt Bandarikjunum gegn Sovetríkjunum vegna hernað- aríhlutunarinnar i Afganist- an. Samsæri gegn Zia uppvíst í Pakistan Islamabad, 12. marz AP. FYRRVERANDI hershöfðingi og um 15 vinstrisinnaðir liðsfor- ingjar eru i haldi í Pakistan, grunaðir um samsæri gegn her- foringjastjórn Mohammed Zia- UI-Haq samkvæmt áreiðan- legum heimildum í Islamabad í dag. Pakistanstjórn hafði áður borið til baka fréttir um bylt- ingartilraun gegn Zia hershöfð- ingja. Samkvæmt heimildunum voru samsærismennirnir hand- teknir snemma i þessum mánuði áður en þeir gátu framfylgt áætlunum sinum. Tajjamul Hussain hershöfðingi, sem var handtekinn, var rekinn úr Pakistansher 1976 vegna ásakana um samsæri gegn Zulfikar Ali Bhutto þáverandi forsætisráð- herra og var í stofufangelsi þar til Zia lét hann lausan 1978. Hussain hvarf frá heimili sínu í Lahore fyrr í mánuðinum og stjórnvöld hafa ekki svarað kröfu dómstóls, sem fjölskylda hans leitaði til, um opinbera rannsókn á hvarfi hans. Hussain er sakaður um að hafa staðið í föstu sam- bandi við liðsforingjana, sem voru handteknir, og Begum Nusrat, ekkju Bhutto, sem er sameiningar tákn stuðningsmanna hans ásamt dóttur sinni, sem er í stofufangelsi með henni í Lakana í Sind-eyði- mörkinni. Liðsforingjarnir munu vera í haldi í Attouc-virki við Indusfljót. Enginn þeirra hefur meira en höfuðsmannsgráðu. Þeir eru sagð- ir hafa haldið reglulega fundi heima hjá Hussain og gagnrýnt Zia fyrir að draga taum Banda- ríkjamanna eftir innrás Rússa í Afganistan. Sumir þeirra voru sagðir telja að afstaða Zia mundi leiða til árekstra við Rússa og vilja stefnu í anda Indiru Gandhi. Andófsmenn í Brno mótmæla Vin, 12. marz. AP. UM 150 tékkneskir andófsmenn hafa strengt þess heit að efna til opinberra mótmælaaðgerða í Brno á laugardaginn gegn þyngingu fangelsisdóms yfir verkamanni úr borginni, Petr Cibulka, sem er sagður hafa sætt illri meðferð í fangelsi og vera við slæma heilsu. Tékkneskir útlagar segja að ný réttarhöld hafi hafizt gegn Cibulka í Pilsen í dag. Seint í síðasta mánuði hermdu fréttir að 136 andstæðingar stjórnar- innar ráðgerðu svipuð mótmæli en þau virðast ekki hafa farið fram. Heimildirnar herma að sækj- andi hafi krafizt fimm ára dóms yfir Cibulka sem var dæmdur í tveggja ára fangelsi 1978 fyrir að skipuleggja ólöglega tónleika og dreifa ólöglegum ritum og hljómplötum. Heilsa Cibulka mun hafa versnað vegna „óþol- andi aðbúnaðar" í fangelsinu þar sem Cibulka efndi til minnst þriggja mánaða hungurverk- falls. Dómurinn var þá þyngdur um fimm mánuði en ekki er vitað um ástæður réttarhaldanna nú. Fargjöld hækkuð Waxhington. 12. marz. — AP. BANDARÍSKA flugmálastjórn- in heimilaði í dag bandarískum flugfélögum að hækka fargjöld um 8% á Norður-Atlantshafsleið- um, 6,1% á Suður-Ameríkuleið- um og 9% á Kyrrahafsleiðum frá og með 1. aprfl vegna hækkunar á eldsneyti og annars kostnaðar- auka. Flugfélögin höfðu tilkynnt, að á síðustu fjórum mánuðum hefði eldsneytisverð hækkað að meðal- tali í mánuði um 3,73 cent gallonið á Norður-Atlantshafs- leiðum, 3,37 á Suður-Ameríku- leiðum og 3,91 cent á Kyrrahafi. Flugmálastjórnin spáði því, að 1. maí mundi eldsneytið kosta 1,17 dollara á Norður-Atlants - hafi, 1,07 í Suður-Ameríku ogl,14 dollara á Kyrrahafi. í janúar 1979 kostaði gallonið um 40 cent að meðaltali. Hann sagði í harðorðri yfirlýsingu á fundi með fréttamönnum að þessi ríki ættu að sjá sóma sinn í því „að bregðast ekki eingöngu við þessari ögrun með mælskulist heldur á áþreifan- legan hátt.“ Hann sagði: „Samstaða bandalagsins krefst þess, sameiginlegt öryggi Vesturlanda krefst þess.“ Athugasemdir Brzezinskis virt- ust beinast gegn efasemdum um harðnandi afstöðu Carters gegn Sovétríkjunum er hafa valdið því að efnahagslegar refsiaðgerðir Bandaríkjanna hafa aðeins tak- markaðan stuðning. Kanzlari Vestur-Þjóðverja, Helmut Schmidt, sagði í dag að hann hefði fengið bréf frá Leonid Brezhnev forseta þar sem hann mæti stöðu Rússa eftir innrásina í Afganistan. „Það hefur ekki að geyma vísbendingar um að sam- skipti Þjóðverja og Rússa kunni að versna. Það hefur heldur ekki að geyma vísbendingar um að heimsástandið batni." sagði Schmidt á blaðamannafundi. Schmidt neitaði að segja frá efni bréfsins í einstökum atriðum, en kvað tóninn í því hófsaman og tilgang þess að fá stuðning við afstöðu Rússa í heimsmálum. Schmidt fékk bréfið þegar hann var á leið til Bandaríkjanna í síðustu viku. Nánasti ráðunautur Valery Giscard d’Estaings Frakklands- forseta, Michel Poniatowski, fer til Washington á morgun og frétt- ir herma að hann hafi meðferðis orðsendingu frá forsetanum með tillögu um fund æðstu manna Frakklands, Bandaríkjanna, Sov- étríkjanna og Vestur-Þýzkalands til að leysa Afganistanmálið og deilumálin í Miðausturlöndum. Þá segir Poniatowski að hann hafi engin fyrirmæli frá forsetanum meðferðis. Haft er eftir Poniatowski í vestur-þýzka tímaritinu Stern að Carter hafi „hagað sér eins og fífl“ í utanríkismálum og að innrás Rússa í Afganistan hafi verið afleiðing veikleika Bandaríkjanna eftir að þau „drógu sig einhliða út úr heimsmálunum" í kjölfar Wat- ergate og stríðsins í Víetnam. Carrington í Búkarest Búkarcst, 12. marz. AP. UTANRIKISRÁÐHERRA Breta, Carrington lávarður, kom i dag til Búkarest í tveggja daga opinbera heim- sókn i boði Rúmeníustjórnar. Þetta er fyrsta heimsókn ráð- herra rikisstjórnar Margret Thatcher forsætisráðherra til Austur-Evrópu. Gert er ráð fyrir því að Carrington geri rúmenskum ráðamönnum grein fyrir áætlun þeirri sem hann lagði fram í síðasta mánuði um að Afganist- an verði hlutlaust land eftir brottflutning sovézkra her- sveita. Brezkir embættismenn segja að tillagan hafi verið „misskilin“ í Austur-Evrópu. Tilræði gegn fv. Líbanonsforseta Beirút, 12. marz. — AP. FYRRVERANDI forseti Líbanons, Camille Cham- Billinn sem sprakk nálægt bíl Camille Chamoun fyrrverandi Libanonforseta i Beirút i gær. Einn lífvarða hans beið bana og þrir slösuðust. oun, einn af leiðtogum kristinna hægrimanna í borgarastríðinu, komst með naumindum lífs af þegar reynt var að ráða hann af dögum í dag. Fjarstýrðri sprengju hafði verið komið fyrir í bíl sem bifreið Chamouns ók fram hjá og lífvörð- ur Chamouns beið bana þegar sprengjan sprakk og þrír menn aðrir slösuðust. Chamoun slapp sjáPur með smáskrámur í andliti. Chamoun og frjálslyndir stuðn- ingsmenn hans stóðu utan við erjur sem hófust milli kristinna manna innbyrðis í kjölfar borg- arastríðsins og öttu saman and- stæðingum Sýrlendinga úr Fal- angistaflokknum og stuðnings- mönnum Sýrlendinga undir for- ystu Suleiman Franjieh fyrrver- andi forseta. Sprengingin varð á svæði þar sem hvorki líbanski herinn, gæzlulið Sýrlendinga né vopnaðar sveitir hægrimanna halda uppi eftirliti svo að ekki er ljóst hverjir stóðu að tilræðinu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.