Morgunblaðið - 13.03.1980, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. MARZ 1980
Þorskaflinn 23 þús.
meiri en í fyrra
Samdráttur í öðrum botnfiskafla
ÞORSKAFLI báta og togara í
febrúarmánuði var 13 þúsund tonn-
um meiri en í sama mánuði i fyrra.
Frá áramótum er þorskaflinn orð-
inn tæplega 23 þúsund tonnum
meiri en tvo fyrstu mánuði síðasta
árs. Botnfiskaflinn þessa tvo mán-
uði varð 102.696 tonn á móti 86.326
tonnum á sama tímabili í fyrra og
er munurinn 16.370 tonn, þannig
að aukningin á milli ára byggist
eingöngu á þorskveiðinni, þar sem
annar botnfiskafli hefur í raun
minnkað.
Heildarbotnfiskafli bátanna í
febrúar var 25.639 tonn og togaramía
34.931 tonn, heildarbotnfiskaflinn í
febrúar varð 60.570 tonn á móti 51.706 í
febrúar 1979. Þorskur í afla bátanna
19.182 tonn í febrúar og togaranna
28.708 og þorskur samtals 47.890 tonn á
móti 34.854 tonnum í febrúar 1979. Frá
áramótum hafa veiðst liðlega 78 þús-
und tonn af þorski, en 55.217 tonn
fyrstu tvo mánuði síðasta árs.
Um allt land er um aflaaukningu að
ræða frá því sem var í fyrra, nema
hvað þorskafli væri heldur minni á
Austfjörðum en í febrúarmánuði í
fyrra. Mun minna af aflanum hefur
verið selt erlendis í ár en 2 fyrstu
mánuði síðasta árs og stafar það af
lágu verði og ótryggu verði.
Heildarveiði á hörpuskel í febrúar
nam 717 tonnum á móti 880 í febrúar í
fyrra. Heildarveiði á rækju nam 1152
tonnum í febrúar á móti 1349 tonnum í
fyrra. Loðnuaflinn í febrúar varð
144.798 tonn, en 249.872 tonn í'febrúar í
fyrra.
Þessar tölur frá í ár eru byggðar á
bráðabirgðatölum Fiskifélags Islands.
Meðan þingmenn og ráðherrar
fengu tveggja vikna hlé frá
þingstörfum voru smíðaðir tveir
nýir ráðherrastólar, þar sem
ráðherrarnir voru orðnir fleiri
en stólarnir.
Að sögn Friðjóns Sigurðsson-
ar skrifstofustjóra alþingis eru
nýju stólanir smíðaðir úr eik og
kostaði hvor stóll um sig 900
þúsund krónur.
Ljósm. Mbl. Emilía.
S'
Islenzkur lækn-
ir hlýtur gull-
verðlaun í
sérfræðinámi
SJÓMAÐURINN, sem lézt er
hann féll útbyrðis af Vest-
mannaeyjabátnum Gjafari
síðastliðinn föstudag, hét Sævar
Jensson. Hann var 31 árs, til
heimilis að Bergstaðastræti 43
A í Reykjavík. Sævar var ógift-
ur og barnlaus.
Fjármálaráðherra hafnar grunnkaupshækkunum,
en býður viðræður um samningsrétt og félagsmál
RAGNAR Arnalds, fjármálaráð-
herra sendi í gær stjórn og samning-
anefnd Bandalags starfsmanna ríkis
og bæja bréf, þar sem segir, að áform
rikisstjórnarinnar til þess að draga
úr verðbólgu, sé algerlega háð þvi að
ekki verði almennar grunnkaups-
hækkanir á þessu ári. „Hins vegar
mun það fyrst og fremst ráðast i
frjálsum samningum á almennum
vinnumarkaði, hver þróunin verður.
Býður rikisstjórnin BSRB upp á
viðræður um „félagslegar fram-
kvæmdir", rýmkaðan samningsrétt o.
fl. Kristján Thorlaeius, formaður
BSRB sagði i gær að hann teldi það
Verðtryggð lán Lífeyrissjóðs verzlunarmanna:
Ársgreiðslan af 3 millj. jöfn
mánaðarlaunum verkamanns
EITT ár er nú frá því er Lífeyris-
sjóður verzlunarmanna tók upp
100% verðtryggingu lána, 2% vexti
og 25 ára lánstima. Lán sjóðsins
eru nú 3 milljónir króna og að þvi
tilefni leitaði Morgunblaðið upp-
lýsinga um það, hvað menn þyrftu
að þessu ári liðnu að greiða i
afborganir og vexti.
Samkvæmt upplýsingum Péturs
Blöndal, framkvæmdastjóra sjóðsins,
greiðir lántakandi hjá sjóðnum nú 60
þúsund krónur í vexti, 2%, afborgun-
in miðað við 25 ára lánstíma er 4%,
sem gerir 80 þúsund krónur. Síðan
greiðir viðkomandi hækkun á því,
sem orðið hefur vegna vísitölu, sem er
50% á þessu fyrsta lánsári. Árgreiðsl-
an verður því samtals 270 þúsund
krónur, sem lántakandi greiðir á
'þessu fyrsta ári af 3ja milljón króna
láni. Við þetta hefur höfuðstóll láns-
Þingflokkur sjálfstæðismanna:
Guðmundur Karlsson kos
inn í fjárveitinganefnd
ÞINGFLOKKUR sjálfstæðismanna
kaus I gær Guðmund Karlsson til
að taka sæti Pálma Jónssonar i
fjárveitinganefnd Alþingis. Kosið
var i milli Guðmundar og Egils
Jónssonar og hlaut Guðmundur 10
atkvæði og Egill 4.
Enginn ráðherranna sat þing-
flokksfundinn í gær, en Ólafur G.
Einarsson formaður þingflokksins
sagði I samtali við Mbl., að hann.
hefði rætt við þá alla fyrir þing-
flokksfundinn og hefði þa,, orðið
niðurstaðan, að ráðherrarnir féll-
ust á að þingflokkurinn tilnefndi
mann i fjárveitinganefnd i stað
Pálma í trausti þess, að mál Egg-
erts Haukdals yrði tekið fyrir og
hann tekinn inn í þingflokk sjálf-
stæðismanna.
„Ég greindi frá þessu í þingflokkn-
um og einnig því, að ég hefði sagt, að
mál Eggerts væri ekki unnt að
afgreiða samhliða kosningunni í
fjárveitingahefnd, en því sjónarmiði
hafði verið vel tekið í samtölum
mínum við ráðherrana," sagði Ólaf-
ur. „Það stendur, að þetta mál
verður að ræða frekar heima í héraði
áður en þingflokkurinn afgreiðir
það. Ég mun hins vegar beita mér
fyrir því, að skriður komist á málið
og hef í dag rætt það við Steinþór
Gestsson og Guðmund Karlsson og
formann Sjálfstæðisflokkins.
Um helgina verður haldinn fundur
fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í
Árnessýslu og ég reikna fastlega
með, að þetta mál verði þar á
dagskrá".
ins hækkað og skuldar þá lántaki
4.320.000 krónur.
Pétur kvað laun mannsins hafa
hækkað meira en verðbólgan hefði
hækkað á síðasta ári, eða um 60 til
70%. Nefndi hann sem dæmi, að í
fjárlögum væri gert ráð fyrir að laun
hafi hækkað um 65% yfir heildina,
þannig að þótt lánin hafi hækkað um
50 til 55%, næði það ekki hækkun
launanna. Enda sagði Pétur, að lánin
væri þannig upp byggð, að árgreiðsl-
an héldi í við ein mánaðarlaun árlega.
Fari menn í launataxta, t.d. Dags-
brúnar, 4. taxta eftir 4 ár, kemur í
ljós að í marz í fyrra voru þau 178.902
krónur, en eru í dag 270.626 krónur.
Hækkunin er rúmlega 51%. Mánaðar-
laun þessa taxta eru sem sé hin sömu
og afborgunin af 3ja milljón króna
láni í Lífeyrissjóði verzlunarmanna.
Guðmundur Karlsson
Hækkun á töxt-
um efnalauga,
þvottahúsa
og vörubíla
HEIMILUÐ hefur verið hækkun á
töxtum efnalauga og þvottahúsa. Taxt-
ar efnalauga hækka um 12% en taxtar
þvottahúsa um 10%.
Þá hefur einnig verið samþykkt
hækkun á töxtum vöruflutningabif-
reiða á langleiðum og er hækkunin
13,8% að meðaltali.
Þessar hækkanir hafa þegar tekið
gildi.
ekki smekklegt að ræða þetta svar
rikisstjórnarinnar áður en samninga-
nefnd BSRB hefði um þær fjallað, en
hún hefur verið kölluð saman á
föstudag.
Helga Gunnarsdóttir, talsmaður
„áhugasamra félaga" innan BSRB, sem
er eins konar arftaki „Andófs 79“ sagði
í gær um þetta svar: „Þessi atriði, sem
upp eru talin, eru væntanlega þessi nýi
félagsmálapakki. Þau eru í sjálfu sér
ágæt, en verða auðvitað ekki látin í
askana. í raun áttum við ekki von á
góðum undirtektum, en þetta svar er
langt, langt fyrir neðan allar vonir.
Þarna er ekki einu sinni minnst á þau
5%, sem þeir hafa fagnað hjá ASÍ. Ég
held, að það hljóti að verða að samn-
inganefndin sýni tilboði sem þessu þau
viðbrögð, sem það á skilið. Forysta
BSRB getur ekki komið til þeirra, sem
eru í lægstu 10 launaflokkunum og
sagt, að fólk 16 ára og fram til tvítugs
fái lífeyrissjóð, samningsrétt og meiri
fræðslu. Fólk lifir ekki af slíku."
„Það vita þeir, sem að kjararáninu
hafa staðið," sagði Helga, „að það er nú
orðið 15% og með viðskiptakjararýrn-
uninni komið í 20%. Ég get því ekki séð
að þetta sé neitt, sem félagsmenn geti
sætt sig við. Við munum fylgjast með
þessum málum. Við bjuggumst við að
þessi félagsmálapakki yrði bæði skýr-
ari og þegar engar grunnkaupshækkan-
ir eru í spilinu, vona ég að félagsmenn
vakni við vondan draum og hugsi sér til
hreyfings. Ég tel að ríkisstjórnin hafi
átt að kynna sér kröfugerðina betur og
sjá, hvað farið er fram á, áður en slíkt
sem þetta er afhent. „Áhugasamir
félagar" munu standa við kröfugerðina
og veita þann þrýsting, sem þeir hafa
yfir að ráða til þess að skapa umræðu
um kjaramálin."
f bréfi sínu býður Ragnar Arnalds
upp á viðræður um rýmkaðan samn-
ingsrétt BSRB, m.a. með breytingum á
lagaákvæðum, sem binda samnings-
tímann við 2 ár, svo og að samnings-
rétturinn nái til hálfopinberra starfs-
manna. Boðið er upp á viðræður um
breytingar á lögum lífeyrissjóða opin-
berra starfsmanna, þannig að 16 ára og
eldri verði sjóðsfélagar. Boðið er upp á
viðræður um aðild opinberra starfs-
manna að atvinnuleysistryggingum og
um stofnun starfsmannaráða í ríkis-
stofnunum. Þá er BSRB boðin aðild að
ráðstöfun þess fjár, sem ætlað er að
verja til félagslegra framkvæmda á
þessu ári, sbr. stjórnarsáttmálann, m.a.
til að greiða fýrir kjarasamningum.
REYNIR Tómas Geirsson, Iæknir,
lauk í janúarmánuði síðastliðnum
brezku sérfræðiprófi í kvensjúk-
dómum og fæðingarhjálp, en hann
hefur undanfarin ár verið við
sérnám í þeirri grein í Skotlandi.
Prófið þreyttu um 250 manns
hvaðanæva að úr heiminum og
hlaut Reynir Tómas gullverðlaun
fyrir beztan árangur og frábæra
frammistöðu. Hann er fyrsti
íslendingurinn, sem lýkur þessu
prófi.
Reynir Tómas Geirsson
Talsmaður „áhugasamra félaga“ innan BSRB:
Félagsmálapakki verð-
ur ekki í askana látinn
2 ráðherrastólar á 1.8 milljónir kr.
Daglegir fundir
um nytt fiskverð
YFIRNEFND verðlagsráðs sjáv-
arútvegsins kom saman til fundar
í gær um nýtt fiskverð og annar
fundur verður í dag. í viðræðum
við fulltrúa i yfirnefndinni i gær
kom fram, að ákvörðun fiskverðs
þolir litla bið að þeirra áliti.
I viðræðum fulltrúa frystihúsanna
við ráðherra fyrir skömmu kom
fram, að hallinn á frystihúsa-
rekstrinum sé nú 6—7% og til að
leysa vanda fiskvinnslunnar þarf
ríkisstjórnaraðgerðir. Sjómenn fara
hins vegar fram á hækkun fiskverðs
til samræmis við launahækkanir,
sem urðu um síðustu mánaðamót.