Morgunblaðið - 13.03.1980, Side 4

Morgunblaðið - 13.03.1980, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. MARZ 1980 BOSCH rafgeymar Veriö tilbúin i vetrarkuldum og frostum. öruggari gangsetning meö BOSCH rafgeymi. BRÆÐURNIR ORMSSON "/, LÁGMÚLA 9 SÍMI 38870 vandaðaðar vörur Máiningar- sprautur Margargerðir. Hagstætt verð. Oliufélagíð Skeljungur hf Shell I Heildsölubirgðir: Smávörudeild Sími: 81722 Fimmtudagsleikritið klukkan 20.10: Kostir og gallar þess að eiga fagra eiginkonu... í kvöld verður flutt í útvarpi leikritið „Kona bakarans". franskur namanleikur eftir Marc- el Pagnol. Þýðinguna gerði Ragn- ar Jóhannesson, en leikstjóri er Ilaraldur Björnsson. í helstu hlut- verkum eru: horsteinn Ö. Steph- ensen. Guðbjörg Þorbjarnardótt- ir. Róbert Arnfinnsson. Ævar Kvaran, Jón Aðils og Ilaraldur Björnsson. Leikritið. sem er rösk- lega 100 mínútur að lengd. var áður flutt 1957. Þetta leikrit Pagnols byggist á sögunni „Jean le bleu“ eftir Jean Giono UM BAKARAFRÚNA FÖGRU. Þó að bakarinn sé fær í sinni grein, vilja margir kaupa af honum brauð einungis vegna þess að frúin hefur handleikið það. En það er gallinn við fagrar eiginkon- ur, að þær eru eftirsóttar, og bakarinn brennir sig á því, eða öllur heldur ... hann brennir góðu brauðin sín. Marcel Pagnol fæddist í Aubagne í Suður-Frakklandi árið 1895. Hann kenndi lengi ensku í framhalds- skólum, bæði í Marseille og París, en sneri sér síðan að leik- og kvikmyndastarfsemi. Stofnaði hann m.a. tvö kvikmyndafélög og stjórnaði mörgum myndum. Leikrit hans eru þrungin gamansemi, og persónulýsingar oft frábærar. Pagnol varð heimsfrægur fyrir leikrit sitt „Topaze" (1928), sem sýnt var hér í Þjóðleikhúsinu fyrir rúmum aldarfjórðungi. Þá hlaut Marseille-þríleikur hans („Marius", „Fanny“ og „César") miklar vin- sældir. Útvarpið hefur áður flutt „Top- az“ 1954, „Matreiðslumeistarann" 1970, „Marius" og „César" 1971. Útvarp í kvöld klukkan 22.40 Rætt við þrjá Vestfjarðagoða í útvarpi í kvöld klukkan 22.40 er á dagskrá þátturinn Að vestan, sem er í umsjón Finnboga Hermannssonar kennara á Núpi í Dýrafirði. En í þáttum þessum hefur Finn- bogi fjallað um ýmis málefni er snerta Vestfirði sérstaklega. í þættinum í kvöld verður ekki brugðið útaf þeirri venju, og verður nú rætt við þrjá þing- menn Vestfirðinga, sem allir eru kunnir fyrir að láta hagsmuna- mál kjördæmis síns til sín taka. Allir hafa þingmenn þessir verið ráðherrar um lengri eða skemmri tíma, og tveir þeirra farið með málefni sjávarútvegs- ins sem eru hvað mikilvægust séð frá sjónarhóli. afkomenda stuðningsmanna Þórðar kakala á Vestfjörðum. Þessir menn eru þeir Matthías Bjarnason fyrrum sjávarútvegs- ráðherra, Sighvatur Björgvins- son fyrrum fjármálaráðherra og Steingrímur Hermannsson sjáv- arútvegsráðherra. Þeir eru sem fyrr segir allir þingmenn Vest- fjarðakjördæmis, fulltrúar þriggja flokka, Sjálfstæðis- flokks, Alþýðuflokks og Fram- sóknarflokks. Alþýðubandalagið á hins vegar engann þingmann af Vestfjörðum. Þrír Vestfjarðagoðar, sem koma við sögu í þættinum Að vestan í útvarpi klukkan 22.40 i kvöld, þeir Matthias Bjarnason, Sighvatur Björgvinsson og Steingrimur Ilermannsson. Útvarp Reykiavik FIMMTUDfcGUR 13. mars MORGUNINN____________________ 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. 7.10 Leikfimi. 7.20 Bæn 7.25 Morgunpósturinn. (8.00 Fréttir). 8.15 Veðurfregnir. Forystugr. dagbl. (útdr.) Dagskrá. Tón- leikar. 8.45 Tilkynningar. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: Dagný Kristjánsdóttir held- ur áfram að lesa þýðingu sína á sögunni „Jóhanni“ eftir Inger Sandberg (3). 9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn- ingar. 9.45 Þingfréttir. 10.00 Fréttir. 10.10 Veður- fregnir. 10.25 Morguntónleikar Eyvind Möller leikur Píanó- sónötu í A-dúr op. 59 nr. 1 eftir Friedrich Kuhlau / Lucia Negro, Gulilla von Bahr og Knut Sönstevold leika Tríó í G-dúr fyrir píanó, flautu og fagott eftir Ludwig van Beethoven. 11.00 Verzlun og viðskipti: Umsjón Ingvi Hrafn Jóns- son. 11.15 Tónleikar. Þulur velur og kynnir. SÍDDEGID_________________ 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til- kynningar. Tónleikaksyrpa. Létt- klassisk któnlist, dans- og dægurlög og lög leikin á ýmis hljóðfæri. 14.45 Til umhugsunar Jón Tynes félagsráðgjafi sér um þáttinn. 15.00 Popp. Páll Pálsson kynn- ir. 15.50 Tilkynningar. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Tónlistartími barnanna Stjórnandi: Egill Friðleifs- son. 16.40 Útvarpssaga barnanna: „Dóra verður átján ára“ eft- ir Ragnheiði Jónsdóttur. Sig- rún Guðjónsdóttir les (9). 17.00 Siðdegistónleikar Nicanor Zabaleta og Sinfón- 14. mars 20.00 Fréttir og veður. 20.30 Auglýsingar og dagskrá. 20.40 Prúðu lcikararnir. Gestur í þessum þætti er leikkonan Dyan Cannon. Þýðandi Þrándur Thorodd- sen. 21.05 Kastljós. Þáttur um inniend málefni. Umsjónarmaður Ómar Ragnarsson fréttamaður. iuhljómsveit Berlínarút- varpsins leika Konsertseren- öðu fyrir hörpu og hljóm- sveit eftir Joaquin Rodrigo; Ernst Márzendorfer stj. / Sinfóníuhljómsveit íslands leikur Hugleiðingar um íslenzk þjóðlög eftir Franz Mixa; Páll P. Pálsson stj. / Tékkneska filharmoníusveit- in leikur „Skógardúfuna“, sinfónísk Ijóð eftir Antonin Dvorak; Zdenek Chalabala stj. 18.00 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. KVÖLDIÐ 19.00 Fréttir. Tilkynningar 22.05 Faðir Sergi. Rússnesk biómynd, byggð á sögu eftir Leo Tolstoj og gerð i tilefni af því að 150 ár eru liðin frá fæðingu hans. Aðalhlutverk Sergi Bond- artsjúk. Myndin er um fursta nokk- urn. Kasatski að nafni, scm gerist einsetumaður. Þýðandi Ilaliveig Thorlac- ius. 23.35 Dagskrárlok. _____________zz_____________✓ 19.35 Daglegt mál Helgi Tryggvason fyrrum yf- irkennari flytur þáttinn. 19.40 íslenzkir einsöngvarar og kórar syngja. 20.10 Leikrit: „Kona bakar- ans“ eftir Marcel Pagnol. Samið eftir sögu Jeans Gions. Áður útv. 1957 Þýð- andi: Ragnar Jóhannesson. Leikstjóri: Ilaraldur Björns- son. Persónur og leikendur: Bakarinn/ Þorsteinn Ö. Stephensen, Kona hans/ Guðbjörg Þorbjarnardóttir, Smalinn/ Róbert Arnfinns- son, Markgreifinn/ Ævar Kvaran, Presturinn/ Jón Að- ils, Kennarinn/ Haraldur Björnsson. Aðrir leikendur: Árni Tryggvason, Gestur Pálsson, Guðmundur Páls- son, Helgi Skúlason, Hildur Kalman, Klemenz Jónsson, Rósa Sigurðardóttir, Valde- mar Helgason og Þorgrímur Einarsson. 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. 22.30 Lestur Passíusálma (34). 22.40 Að vestan Finnbogi Hermannsson kennari á Núpi í Dýrafirði sér um þáttinn. Að þessu sinni talar hann við þrjá þingmenn Vestfjarðakjör- dæmis: Matthías Bjarnason, Sighvat Björgvinsson og Steingrím Hermannsson ráð- herra. 23.00 Kvöldstund með Sveini Einarssyni. 23.45 Fréttir. Dagskrárlok. FÖSTUDAGUR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.