Morgunblaðið - 13.03.1980, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 13.03.1980, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. MARZ 1980 5 Athugasemd frá Is- landsdeild Amnesty UNDANFARIÐ hefur verið fjallað í fjölmiðlum um aðgerðir gegn Coca Cola verksmiðjum hér og annars staðar vegna meintra ofbeldisverka í Coca Cola verk- smiðjunni í Guatemala. Að gefnu tilefni vill íslandsdeild Amnesty International taka fram, að alþjóðasamtökin hafa engin afskipti haft af slíkum aðgerðum, enda er það yfirlýst stefna þeirra, að letja hvorki né hvetja til efnahagslegra refsiað- gerða vegna mannréttindabrota. I Morgunblaðinu 22. febrúar sl. birtist yfirlýsing frá Coca Cola Company í Atlanta í Bandaríkjunum. í henni er setn- ing, sem íslandsdeild A.I. telur ástæðu til að gera athugasemd við. Þar segir: „Það er einnig mjög mikilvægt að gera sér ljóst, að hin réttu og löglegu yfirvöld í Guatemala-ríki hafa hvorki bor- ið fram ákærur í þessu máli né því síður dæmt nokkurn aðila fyrir ábyrgð á ofbeldisverkun- um.“ Við lestur þessarar setningar ber að hafa í huga, að „rétt og lögleg" stjórnvöld í Guatemala hafa árum saman staðið beint eða óbeint að ofbeldisverkum. Samkvæmt skýrslum Amnesty International voru um 20 þúsund manns myrtir í pólitískum til- ræðum í Guatemala á árunum 1966—1976. Ástandið hefur ekki batnað síðan, svo sem fram kom í greininni Dagatal ofbeldis, sem fjölmiðlar greindu frá í október í haust, að tilmælum íslandsdeildar A.I. Með beinum hætti hafa stjórnvöld staðið að ofbeldis- verkum m.a. þegar fátækir bændur og leiguliðar hafa reynt að leita réttar síns vegna upp- töku og eignarnáms á jörðum þeirra. Kunnasta dæmið eru fjöldamorðin á indjánum í bæn- um Panzos í maí 1978, þegar 100 indjánar voru drepnir, þar af 25 konur og 5 börn. Með óbeinum hætti hafa stjórnvöld staðið að ofbeldis- verkum með því að leyfa svo- nefndum „dauðasveitum" að leika lausum hala. Morðsveitir þessar hafa birt lista með nöfn- um manna, sem þær segjast hafa „dæmt til dauða“, einkum fyrir afskipti af verkalýðs- og stjórn- málum, félagsmálum og menn- ingarmálum indjána. Miðað við hve lítið hefur verið reynt til þess af hálfu stjórnvalda á undanförnum árum að rannsaka starfsemi þessara sveita og handtaka forsprakka þeirra, og miðað við hve greiðan aðgang þær virðast hafa átt að upplýs- ingum stjórnvalda kemur engum á óvart, sem fylgst hefur með málum í Guatemala, að hin „réttu og löglegu" yfirvöld lands- ins hafi hvorki borið fram ákær- ur vegna ofbeldisverkanna í Coca Cola verksmiðjunni þar né dæmt nokkurn aðila fyrir ábyrgð á þeim. 25. febrúar 1980. Ný stjórn í Samtökum um vestræna samvinnu SAMTÖK um vestræna samvinnu (SVS) héldu aðalfund sinn fyrir nokkru og var ný stjórn kosin á fundinum. Hefur hún nú skipt með sér verkum. Stjórnin er þannig skipuð: formaður: Guð- mundur H. Garðarsson, varafor- maður: Björgvin Vilmundarson, ritari: Björn Bjarnason, gjaldkeri: Jón Abraham Ólafsson, með- stjórnendur: Ásgeir Jóhannesson, Hrólfur Halldórsson, Hörður Ein- arsson, Jón Hákon Magnússon, Kristján G. Gíslason og Páll Heiðar Jónsson. Guðmundur H. Garðarsson Vatnsskortur í Eyjum á hæstu álagstoppum Hlaut alþjóðlega viður- kenningu fyrir hug- myndir um afbrotavarnir Grétar Norðfjörð lögreglu- flokksstjóri hlaut nýlega alþjóð- lega viðurkenningu fyrir hug- myndir er hann lagði fram i hugmyndasamkeppni í afbrota- vörnum. Tók hann þátt í alþjóð- legri samkeppni lögreglumanna um hugmyndir um afbrotavarnir Grétar Norðfjörð lögregluflokks- stjóri. og varnir gegn umferðarslysum og var hann einn i hópi 25 manna er fengu viðurkenningu fyrir hugmyndir sínar. Mbl. ræddi stuttlega við Grétar Norðfjörð og innti hann eftir því hvernig það kom til að hann tók þátt í þessari samkeppni. — Við fengum sendar upplýs- ingar um þessa keppni, en fyrir henni stóð alþjóðlegur félagsskap- ur lögreglumanna, sem komnir eru á eftirlaun. í október 1978 var lögreglustöðvum um heim allan gert kunnugt um þessa samkeppni og máttu taka þátt í henni allir starfandi lögreglumenn og datt mér í hug að senda inn nokkrar hugmyndir. — Það sem frá mér kom var sérstök áætlun um skipulag af- brotavarna í smábæ og eru þær hugmyndir byggðar á reynslu af starfi mínu af afbrotavörnum hér í Reykjavík og nágrenni. Einnig setti ég þarna með vissar hug- myndir, sem við höfum í hyggju áð framkvæma hér þegar tækifæri gefst til, en þar sem ég hefi verið einn með þennan málaflokk í lögreglunni hefur ekki verið hægt að vinna nema nokkuð takmarkað. Grétar sagði það vissulega ánægjulegt að fá þessa viðurkenn- ingu, þarna væri sýnt að starfið hérlendis væri á réttri leið þar sem mönnum þættu hugmyndirn- ar verðar viðurkenningar og væri þessi viðurkenning hvatning til að halda áfram á sömu braut og færa starfsemina út eftir föngum. Þær hugmyndir, sem hlutu við- urkenningu í samkeppninni, verðá fyrst gefnar út á þýzku og sendar til lögreglustöðva um allt Þýzka- land og síðar er ætlunin að þær verði þýddar á fleiri tungumál og þeim dreift til annarra landa. Að lokum sagði Grétar, að nú hyllti undir að fjölgað yrði þeim starfsmönnum í lögreglunni er sæju um afbrotavarnir og ætti þá að hrinda í framkvæmd ýmsum hugmyndum, sem ekki hefði verið hægt enn vegna fámennis og yrði þá um víðtækara starf að afbrota- vörnum að ræða, en það hefur sýnt sig að slíkt starf hefur komið að mjög góðu gagni. VATNSSKORTUR hefur ann- að slagið gert vart við sig í Vestmannaeyjum, einkum þegar í gangi er mikil vinnsla á loðnuhrognum, en þá tæm- ast oft miðlunargeymar vatnsveitunnar eða því sem næst, að því er Morgunblaðið fékk upplýst á bæjarskrif- stofunum í Vestmannaeyjum í gær. Stafar vatnsskorturinn þá af því að vatnsæðarnar frá landi eru of litlar' og vatns- miðlunartankar í Eyjum of litlir til að mæta álagstoppum í fiskvinnslu, og hefur þessi skortur orðið einu sinni til tvisvar á ári undanfarin ár. Hefur þá verið brugðist við á þann hátt að biðja notendur að spara kalda vatnið. Þetta ástand er hins vegar aðeins tímabundið, því vænt- anlega verður tekin í notkun sjóveita á þessu ári, en þá verður hreinn sjór notaður að hluta til við fiskvinnsluna í Vestmannaeyjum í stað fersk- vatns. II WOOVtB HOOVER ekki bara ryksuga... Teppahreinsarinn frá HOOVER ekki aöeins ryksugar teppið, hann hreinsar aö auki úr því margskonar önnur óhreinindi sem ryksuga nær ekki eins og t d • Klístur *Þráöarenda • Dýrahár • Sand úr botni • Bakteriumyndandi sveppa- og gerlagróður Jafnframt ýfir hann ftosiö svo að teppið er ætíö sem nýtt á aö líta, og það á jafnt viö um snöggtsem rya. Fjölþætt notagildi fylgihluta. Og það er staðreynd að teppið endist þér lengur. HOOVER Galloway-sæðingar ganga vel; Hátt á annað þúsund skammtar afgreiddir NÚ HAFA hátt á annað þúsund skammtar af sæði úr Gallo- waynautum verið sendir frá Einangrunarstöð holdanauta i Hrísey til frjótækna víðs vegar um land en fyrsta islenzka kýrin var sædd með slíku sæði í nóvembermánuði sl. Að sögn Ólafs. E. Stefánsson- ar nautgriparæktarráðunauts hjá Búnaðarfélagi íslands er ekki vitað betur en allt hafi gengið vel og engar kvartanir hafa borizt þess efnis að kýr hafi ekki haldið. Fyrstu Galloway- blendingskálfarnir munu vænt- anlega fæðast um mánaðamótin ágúst-september og bíða menn að vonum spenntir eftir árangr- inum. Alls hefur verið safnað 5400 skömmtum af sæði í nautastöð- inni í Hrísey og er sæðið geymt djúpfryst í Hrísey og á Hvann- eyri. FALKIN N SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.