Morgunblaðið - 13.03.1980, Page 13

Morgunblaðið - 13.03.1980, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. MARZ 1980 1 3 Sigrún Gísladóttir skrifar frá Stokkhólmi: Sænskir skólar I Skólaleiði hefur aukist mjög. Þessir nemendur segjast ætla i framhaldsskóla að loknu skyldunámi. Helmingur kennaranna við barnaskólann þeirra er réttindalaus. Skólamál hafa verið ofarlega á baugi í sænskum fjölmiðlum og vandamál skólanna eru algengt umræðuefni meðal fólks al- mennt. Ekki hvað síst fyrir þá sök að óánægjuraddir foreldra, nemenda og kennara hafa stöð- ugt gerst háværari. Ljóst er að stefna sósíaldemókrata í skóla- málum, en þeir hafa mótað stefnuna síðastliðin 40 ár, hefur ekki tekist sem skyldi. Það er sorglegt þegar tekið er tillit til þess óhemju fjármagns sem Svíar verja til þessa málaflokks. Við á Islandi höfum gjarnan litið til frænda okkar Svía sem eins konar fyrirmyndar í skóla- málum, og ef til vill með dálítilli öfund, því ekki hefur þeim mál- um verið ^ert jafn hátt undir höfði á Islandi. Hefur orðið „sænskt" smám saman orðið eins konar gæðastimpill þegar um er að ræða nýjungar eða breytingar á sviði fræðslumála. En eins og ástand skólamála er í Svíþjóð í dag þá heldur sá gæðastimpill ekki lengur gildi sínu. Áberandi er hvað skólamál eru flokkspólitísk í Svíþjóð og háð stefnu þess flokks sem þau mál hefur hverju sinni. Stefna sósíaldemókrata undanfarna áratugi hefur verið sú að breyta hinum gamla, stranga og óvægna skóla, þar sem lítið sem ekkert tillit var tekið til nem- andans sem einstaklings, þannig að skóiinn lagaði sig fremur að þörfum nemandans og yrði jafn- framt mannúðlegri stofnun. Svíar hafa verið áberandi opnir fyrir öllum nýjungum og hafa veitt miklu fé til margvíslegrar tilraunastarfsemi í skólum. Allir eru á einu máli um að ýmsar breytingar hafa betrumbætt skólann og að margt gott megi segja um sænska skólann í dag, en það breytir ekki þeirri stað- reynd að jafnmargt hefur mis- tekist. Það eru ekki aðeins óánægjuraddir foreldra, nem- enda og kennara sem bera þess vitni heldur og sú blákalda staðreynd, að fjöldi sænskra barna útskrifast eftir níu ára skólagöngu, og er vart læs eða skrifandi á eigin tungu. Samkvæmt niðurstöðum könnunar, sem gerð var nýlega í Norður-Stokkhólmi, kom í ljós að meira en annar hver nemandi á fyrsta ári í framhaldsskóla (gymnasium) þarf hjálpar- kennslu annaðhvort í lestri eða rituðu máli (stafs., ritgerð) og oft í hvoru tveggja. Fyrir rúmum áratug voru allir framhaldsskól- ar (skólar milli grunnskóla og háskóla) sameinaðir mennta- skólanum (gymnasiet). Þannig að í dag er „gymnasium" sam- heiti fyrir alla framhaldsskóla. Skróp og skólaleiði hafa aukist áberandi í grunnskólunum (barna- og unglingaskólum) og þeir nemendur verða stöðugt fleiri, sem eru leystir undan síðasta skólaskylduárinu (9. bekk). Það sem í flestum tilvik- um er afgerandi fyrir námsár- angur barna í sænskum skóla í dag er heimili barnsins og náms- gáfur. Ljóst er að erfiðleikarnir í skólunum eru mismunandi mikl- ir eftir landsvæðum, skólum og jafnvel bekkjum, en verst er ástandið í hinum nýbyggðu út- hverfum stórborganna. Þar eiga skólarnir í mestu erfiðleikum við að fá menntað og hæft kennara- lið. Síðastliðið haust var skort- urinn á kennurum meiri en nokkru sinni og sérstaklega á Stokkhólmssvæðinu. í einu út- hverfanna er fjórði hver kennari réttindalaus og í öðru tæplega helmingur allra, sem starfa við barnaskólann, réttindaiaus. Ástæðan fyrir kennaraskortin- um er ekki vöntun á kennara- menntuðu fólki, né sú að önnur sambærileg störf séu betur borg- uð, heldur hin erfiða vinnuað- staða í skólunum. Kennararnir þola ekki lengur ástandið eins og það er orðið, gefast upp og fara í önnur störf. Fjöldi þeirra kenn- ara á Stokkhólmssvæðinu, sem hafa horfið frá kennslu, hefur tvöfaldast á síðustu tveimur árum. Það eru ekki lengur aðeins þeir eldri sem gefast upp, heldur einnig ungir og áhugasamir kennarar. Þeir sætta sig ekki við óróleikann í skólunum, geta ekki annast kennsluna eins og þeir hefðu viljað og finnst þeir vera misheppnaðir sem kennarar. Á síðastliðnu ári voru stofnuð samtök, sem berjast fyrir bættri þekkingu í skólum — það eitt talar sínu máli um ástandið í dag. Samtökin eru ekki í tengsl- um við neinn stjórnmálaflokk og meðlimirnir eru úr öllum flokk- um. Markmið samtakanna er að skólarnir hafi kerfisbundið nám og heimaverkefni, fastari reglur, próf og einkunnir, og að bókin verði aðalkennslugagnið. Einn talsmaður samtakanna, sænskur innflytjandi, sagði það vera erf- itt fyrir þann sem kæmi frá öðru lapdi að skilja, hvað hefði eigin- le^a gerst með sænska skólann. Hvernig má skýra andstöðuna við_ að prófa þekkingu nemend- 9nna? Því skilur fólk það ekki að nám krefst mikillar vinnu? Hvaðan kemur hræðslan við kennslubókina? Til þess að fá hugmynd um þróun skólamála síðustu áratugi má benda á að stefnan hefur verið sú að hafa blandaða bekki (blandaða hvað snertir náms- getu), þar sem kennslan taki mið af getu hvers einstaklings. Þann- ig að sérhver nemandi fái að læra með þeim hraða sem best hæfi hans getu og þroska. En á síðasta áratug hefur þetta mark- mið horfið í skuggann. Skyndi- lega mátti einstaklingskennslan ekki leiða til þess að duglegir og áhugasamir nemendur færu hraðar yfir námsefnið, því það yki enn á bilið milli þeirra og heildarinnar. Takmarkið með slíkri stefnu getur tæplega verið jafnrétti nemendanna sem ein- staklinga, heldur miklu fremur að gera alla eins. A síðustu tveimur áratugum hafa uppeldislegar nýjungar beinlínis flætt yfir skólana. Ym- is afbrigði af „frjálsum uppeldis- aðferðum" hafa verið settar til höfuðs „hefðbundinni þekk- ingarmiðlun". Mismunandi form hinnar nýju uppeldisfræði hafa verið viðtekin allt of greiðlega og oft að óathuguðu máli. Þetta hefur leitt til þess að einblínt hefur verið á aðferðir, en þáð mikilvæga — innihald menntun- arinnar — hefur horfið í skugg- ann. Hlutverk skólans sem þekk- ingarmiðlara er á stöðugu und- anhaldi fyrir því þjóðfélagslega hlutverki sem honum er ætlað að gegna. Nýjasta umbótin, „SIA- reformen" (felur í sér lengdan samfelldan skóladag allra barna), á ekki hvað síst sinn stóra þátt í þeirri þróun. Margir telja að skólinn sé á góðri leið með að verða eins konar geymslustaður fyrir börnin. Mikil mótstaða hefur nú komið í ljós við þessari breytingu og bent er á að hlutverk skólans í þjóðfélaginu sé og eigi að vera að miðla þekkingu. Nú þegar velferðarríkinu er ógnað, það er stöðnun í iðnaði og minni hagvöxtur, þá er enn meiri ástæða til að huga að menntamálunum. Menntun og rannsóknir tilheyra þeim aðal- gögnum sem að haldi koma við að rétta þjóðina úr stöðnun og erfiðleikum. En þá er þörf á menntun sem setur þekkingu og getu á oddinn. Þess vegna standa sænsk skólamál á krossgötum í dag. Næsta grein mun fjalla um forskólann og ýmislegt almennt um grunnskólann í Svíþjóð. Hlutverk skólans sem þekkingarmiðlara er á stöðugu undanhaldi fyrir þvi þjóðfélagslega hlutverki, sem honum er ætlað að gegna. Snorri Þórisson: Aðstöðumunur Einhverstaðar las ég um dag- inn, að íslensk kvikmyndaöld væri gengin í garð. Þetta voru vinsam- leg orð prentuð á tollfrjálsan pappír. Nú kann einhver að spyrja hvað tollar komi þessum orðum við. Mergur málsins er nefnilega sá, að kvikmyndaöld íslenskra kvikmynda er ekki á næstu grös- um, heldur er íslensk kvikmynda- gerð að sligast vegna tolla og gjalda til ríkisins. Það virðist vera sem stjórnvöld hafi strengt þess heit að ganga milli bols og höfuðs kvikmyndagerðamanna. A meðan prentiðnaðurinn og annar iðnaður nýtur tollfríðinda, má kvikmynda- gerðin greiða tolla af öllum hráefnum og tækjum, sem til kvikmyndagerðar þarf. Tökum nú sem dæmi höfund kvikmyndar og rithöfund. Báðir þessir aðilar hafa það sameigin- legt, að þeir vilja koma hugsunum sínum á framfæri, túlka þær fyrir almenningi. En hver er aðstöðu- munur þessara aðila? Rithöfund- urinn þarf ekki annað en penna og blað. Þegar hann hefur lokið við að skrifa sögu sína eða ljóð, fer hann til útgefanda með sitt verk eða beint í prentsmiðju og fær bók sína prentaða á tollfrjálsann pappír með tollfrjálsum prentvél- um. Kvikmyndagerðamaðurinn fer eins að í fyrstu. Hann byrjar með penna og blað, en eftir það skilja leiðir með þeim. Kvikmyndagerða- maðurinn þarf filmur og kvik- myndatæki til að geta lokið sínu verki. Allt sem að kvikmyndagerð snýr er tollað eins og um lúxus sé að ræða. Á meðan prentverkið greiðir ekki tolla ... og söluskatt, hvorki af hráefni né vélum, er verið að kaffæra kvikmyndagerð í þessum gjöldum. Erlent myndefni, kvikmyndir fyrir kvikmyndahús svo og sjón- varp, er ailt tollfrjálst. Þegar erlendir kvikmyndagerðarmenn koma til íslands, fá þeir að koma með filmur sínar til landsins og taka á þær, án þess að greiða toll af þeim. Það sama gildir um öll tæki, sem þeim fylgja. Svo er því haldið fram að kvikmyndaöld sé gengin i garð með tilkomu kvik- myndasjóðs. Ef það dæmi væri skoðað nánar, er ég hræddur um að það snerist við, þannig að kvikmyndagerð styrkti ríkið, en ekki öfugt. Öll gjöld, sem kvikmyndagerð greiðir til ríkisins, eru margfalt hærri en það, sem ríkið lætur til kvik- myndasjóðs. Þeir kvikmynda- gerðamenn, sem fengu styrk úr sjóðnum á síðasta ári, fengu niðurfellingu á tollum og vöru- gjaldi af hráfilmum, og tækja- leigu, sem þeir þurftu að greiða erlendis, en söluskatt var þeim gert að greiða. Nú hefur fyrsta myndin, sem styrkt var úr kvikmyndasjóði litið dagsins ljós, og hefur fengið góðar móttökur bíógesta. Ríkissjóður hefur einnig tekið henni með opnum örmum og hyggst nú hafa af henni drjúgar tekjur í formi söluskatts. Lætur nærri að upp- hæð sú, sem ríkissjóður fær af þessari mynd verði meiri en heild- arupphæðin sem veitt var úr kvikmyndasjóði á s.l. ári. Snorri Þórisson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.