Morgunblaðið - 13.03.1980, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. MARZ 1980
15
þaö auöskiliö, aö eftirfarandi mynd-
ir 4 og 5, um svæðanýtins;u ok
íbúafjölda eru aðeins til grófrar
viðmiðunar.“
Maður hlýtur að spyrja si(í þeirrar
spurningar hvort þeir sem setja
fram þær fullyrðingar um skipulag-
ið, sem i upphafi er getið hafi
yfirleitt kynnt sé það eða Krundvöll
þess.
Endanleg nýting á svæðunum er
háð ákvörðunum, sem teknar verða á
deiliskipulagsstiííi hverju sinni enda
hefur svo ávallt verið. Á árinu 1978
var undirbúin deiliskipulansvinna
svæðanna í Keldnaholti og var þá
gerð athugun á hvaða þéttleiki
svæðanna yrði heppilegastur. Voru
valin til viðmiðunar þrjú svæði í
Reykjavík þ.e.a.s. Smáíbúðahverfi
(hluti), Fossvogur (hluti) og Breið-
holt I. Niðurstöður þessara athug-
ana er að finna í greinargerð frá
Þróunarstofnun frá október 1978.
Tilfæra má hér nokkur atriði til að
sýna fram á hversu tilhæfulausar
fullyrðingar eru á ferðinni þegar
rætt er um að nýting Úlfarsfells-
svæðisins miðist við þeíta byggð
fjölbýlishúsa eingöngu.
1 dæmunum er miðað við íbúa á
ha. á íbúðalóðum. í Breiðholti I er
það 183.6, í Fossvogi 98.8 og í
Smáíbúðahverfi 143.3.
Ef ibúðasvæðin við Keldur eru
reiknuð nákvæmlega eins og kort
syna, þá má reikna með að undir
íbúðarhús fari 83 ha. og þeir eigi að
rúma um 15 þúsund manns. Það væri
181 íbúi á ha. að meðaltali á
íbúðarlóðum eða svipaður þéttleiki
og í Breiðholti 1.
Sé hinsvegar reiknað með stækk-
unarmöguleika má bæta við 26 ha. á
heildina.
Þannig nýtist fyrir íbúðarhús í
viðbót 18 ha. eða samtals 101 ha.
Þetta miðað við 15 þúsund íbúa gæfi
149 íbúa á ha.
Er þetta miðað við þaö að 70%
landrýmis nýttist undir íbúðabyggð.
Öllu sennilegra er þó, að það séu ekki
nema 65% og gæfi það því þá 160
íbúa á ha. Þetta þýðir að þéttleiki
slíkrar b.vggðar er á bilinu Smá-
íbúðahverfi, raðhús í Breiðholti og
fjölbýli í Fossvogi. Sjá vonandi
flestir að hér er ekki um að ræða
„þétta byggð fjölbýlishúsa ein-
göngu".
Þó er miðað við hámarks nýtingu
(50 þúsund á Úlfarsfellssvæðinu).
Rétt er að lokum að geta þess, að
með gerð skipulagsins var reynt að
taka mið af reynslu þeirra skipu-
lagsaðgerða, sem framkvæmdar
hafa verið allt frá því að fyrstu
kröfur • um dreifibyggingu komu
fram eftir 1920. Slíkt skipulag skil-
aði ekki þeim árangri, sem vonast
var eftir fremur en sú byggð blokka
og háhýsa, sem ruddi sé til rúms
eftir heimsstyrjöldina síðari. Byggð-
in á Úlfarsfellssvæðinu er hugsuð
sem þéttbyggðir byggðakjarnar með
verulegu sérbýii. Atvinnustaðirnir
fléttast meir íbúðabyggðinni en áður
og frekar áherzla lögð á stór sam-
felld útivistarsvæði sem tengja
þessa byggðarkjarna saman heldur
en stærri útivistarsvæði í byggðinni
sjálfri."
Ekki hefur reynt á
hvort Keldnaland
sé ófáanle>?t
í umsögn Þróunarstofnunar er
gefið í skyn að veruleg vandkvæði
verði á því að fá Keldnalandið til
þeirra nota sem aðalskipuiagið ger-
ir ráð fyrir, að um afdrífaríka hluti
sé að ræða. þar sem land þetta átti
að nota sem næsta áfanga til
útfærslu bvggðar?
„Meginregla skipulags er að skipu-
leggja með heildarhagsmuni fyrir
augum, en ekki hver er eigandi.
Keldnaland er fýsilegt til byggðar og
rökrétt framhald á byggð Reykja-
víkur. Ekki hefur enn reynt á, hvort
samningar er mögulegir um þann
hluta Keldnalands, þar sem aðal-
skipulag ráðgerir byggð eða hvort
beita þarf eignarnámi. Rannsókn-
arstöðin á Keldum getur haldið
áfram starfsemi á eðiilegan hátt,
enda ráð fyrir því gert að Keldur
haldi 40—60 ha. Við áteljum að
ekkert hefur verið gert í því um
langan tima að ná *samningum um
Keldnaland og höfum óskað eftir
ítarlegri skýrslu borgarstjóra um
það mál og stöðu þess.“
Þá segir að möguleikar gætu
verið á að nýta til byggingar sva-ði
sem fram að þessu hafi verið talin
nauðsynleg vatnsverndunarsvæði,
t.d. við Grafarholt norðan Rauða-
vatns. Selás og Norðlingaholt?
„Við teljum með öllu ótímabært að
aflétta nú vatnsverndun á þeim
svæðum sem liggja að Bulluaugum.
Við vekjum athygli á því, að um-
fangsmiklum virkjunarframkvæmd-
um Vatnsveitu Reykjavíkur á svæð-
unum við Jaðar og Mylluiæk, sem
staðið hafa yfir í rúman áratug, er
ekki lokið.
Vinnslugeta svæðanna er óþekkt
og verður ekki úr henni skorið fyrr
en dæling í fullum mælikvarða hefur
farið fram á báðum vinnslusvæðun-
um samtimis í lélegu vatnsári. Áhrif
slíkrar dælingar á rennsli Elliða-
ánna er einnig óþekkt og þyrfti að
kanna. Við viljum benda á, að hreint
vatn er auðlind, sem er ómetanleg í
heimi, sem býr í vaxandi mæli við
skort á þeim gæðum. Enginn veit
hvaða möguleikar þessi auðlind
kann að gefa til þess að koma á fót
nýiðnaði í Reykjavík. Við teljum
nauðsynlegt að fá greinargerð
Vatnsveitustjóra um þessi efni og
vísum að öðru leyti til greinargerðar
borgarverkfræðings."
íbúaspáin óraunhæf
Fullyrt er í umsögninni. að
íbúaspáin frá 1976 sé alltof há. en á
henni sé öll áa'tlanagerð varðandi
aðalskipuiagið byggð á. Vísað er til
breyttrar ihúaþróunar og sagt að
búast megi við að íhúafjöldi borgar-
innar 1995 verði svipaður og hann
er í dag. Ilér er um veigamikinn
þátt að ræða. og hvað hefur þú að
segja um þetta atriði?
„Reynslan hefur sýnt, að spár um
fólksfjölda eru ávallt óvissar. Mikil
ásókn er í byggingarlóðir í
Reykjavík og má benda á, að þegar
ióðir voru auglýstar í janúar s.l.
bárust tæplega 1000 umsóknir. Ljóst
er ennfremur að Reykjavík verður
að halda hlut sínum gagnvart ná-
grannasveitarfélögum í fólksfjölgun
á höfuðborgarsvæði. Ef fólksfjölgun
verður minni en spáð er og ef
eftirspurn eftir lóðum verður minni,
þýðir þaö í raun að uppbygging
verður hægari og framkvæmd skipu-
lagsins tekur mið af því. Við teljum
þess vegna að breytt fólksfjölgun-
arspá nú sé ekki rök fyrir því að
fresta staðfestingu og framkvæmd
aðalskipulagsins.“
Þá er sagt að mikil nauðsyn sé á
þvi. að vinna nýja atvinnuspá. bæði
vegna hreyttrar íhúafjöldaþróunar
og eins vegna þess. að þessum þa'tti
séu gerð ónóg skil í endurskoðun-
inni frá 1977?
„Á það má fallast, að æskilegt sé
að gera ýmsar frekari athuganir og
áætlanir um framtíðaruppbyggingu
iðnaðar- og atvinnustarfsemi í borg-
inni. Slík áætlunargerð er hinsvegar
tímafrek og erfitt að komast að
óyggjandi niðurstöðum. Væri slíkt
verðugt verkefni í næstu endurskoð-
un aðalskipulags, en um þetta atriði
þarf nána samvinnu við skipulags-
stofnun höfuðborgarsvæðisins.
Reykjavíkurborg hefur nú engar
iðnaðarlóðir á boðstólum. Sú stað-
reynd á frekar að vera hvöt til að
flýta staðfestingu og framkvæmd
aðalskipulags. Skortur á iðnaðarlóð-
um mun hamla þróun atvinnulífs í
borginni og koma í veg fyrir að
borgin gegni forystuhlutverki í at-
vinnumálum landsmanna.“
Sökin hjá
vinstri mönnum
Að lokum. Ililmar. er sem sagt
ekki nein ásta'óa að þínu mati til
þess að fresta staðfestingu aðal-
skipulagsins?
„Nú vofir yfir í Reykjavík algjór
lóðaskortur vegna þess dráttar sem
þegar hefur orðið á staðfestingu
skipulagsins, en við Birgir ísleifur
höfum innan borgarstofnananna
lýst ábyrgð á öllum drætti á stað-
festingunni á hendur vinstri meiri-
hlutans í skipulagsnefnd og borgar-
stjórn.
Allt er einnig í óvissu um deili-
skipulag kvosarinnar og þær fram-
kvæmdir, sem óskað er eftir að hefja
þar. Enn er í gildi gatnakerfi
aðalskipulagsins frá 1965, sem þegar
er farið að hamla framkvæmdum á
þeim stað og óvíst hvernig skipu-
lagsstjórn ríkisins tekur á umsókn-
um um einstakar byggingar.
Það er eindregin skoðun okkar að
vinda eigi bráðan bug að því að
staðfesta skipulagið. Breytingum,
sem liggja í augum uppi má koma að
strax, sbr. þéttingu byggðar.
Á fundum skipulagsnefndarinnar
höfum við harðlega gagnrýnt um-
sögn Þróunarstofnunarinnar um
nauðsyn staðfestingar skipulagsins.
Kynning á vatnsúða-
kerfum til eldvarna
Það er hlutverk embættismanna og
éTnstakra borgarstofnana að vera
hinUm pólitísku yfirvöldum til ráðu-
neytis, í þessu tilviki skipulagsnefnd
og borgarráði. Nauðsynleg starfs-
regla embættismanna er að benda á
þær leiðir, sem til greina koma í
hverju máli og skýra kosti og ókosti
hverrar fyrir sig. Því miður hefur
ekki verið farin sú leið í þessu máli,
heldur rituð skýrsla, sem er mjög
einhliða og beinist að því að rífa
niður það, sem áður hefur verið
samþykkt í þessum efnum og er þar
oft æði langt seilst til fanga. T.d.
vantar með öllu í þessa greinargerð
að skýra hvaða afleiðingar það
kunni að hafa, ef það dregst að fá
aðalskipulag staðfest, þannig að
deiliskipulag og framkvæmdir þurfi
enn að dragást. Þessi hlutdrægu
vinnubrögð höfum við harðlega
gagnrýnt og teljum þau ekki viðun-
andi. — Verður nú vikið að einstök-
um efnisþáttum umsagnarinnar i
þeirri röð, sem þeir þar koma fram.“
— ágás.
KYNNING á vatnsúðakerfum til
eldvarna verður í Byggingarþjón-
ustunni að Hallveigarstíg 1 í
Reykjavík. Kynning þessi er í
samvinnu við Brunamálastofnun
ríkisins og hefst n.k. föstudag, 14.
mars kl. 13. Þar mun Einar
Eyfells verkfræðingur flytja er-
í KVÖLD, fimmtudagskvöld, teflir
enski stórmeistarinn Antony Mil-
es fjöltefli í Keflavík. Taflið fer
fram í Fjölbrautaskóla SuðuV-
indi, sýna skyggnur og kvikmynd
og Héðinn Emilsson deildarstjóri
mun fjalla um þessi mál frá
sjónarhóli tryggingamannsins.
Kynning þessi er fyrst og fremst
sniðin fyrir hönnuði, tæknimenn,
byggingarmeistara, trygginga-
menn og sveitarstjórnarmenn.
nesja og hefst kl. 20. Suðurnesja-
menn eru hvattir til að fjölmenna
og hafa með sér töfl.
Miles teflir fjöltefli í Keflavík
heimilistæki hf
HAFNARSTRÆTI 3 — 20455 — SÆTÚN 8 — 15655
DUÁTT
Ntl ER
ÞITT
TÆKITÆRI
til aö eignast 20“
Philips litsjónvarp á
ótrúlega hagstæðu veröi.
Aöeins kr. 569.000
Philips 20“ C 011 littækin hafa:
PHILIPS
★ ln-line myndlampa.
★ 8 rásir.
★ Sjálfvirka myndstillingu.
★ Spennujafnara, sem þolir frá 160—260 volt.
★ Hátalara 4“x6“.
★ Viðarkassa meö hnotulíki (betri hljómur).
★ Málin eru 40x41x48 cm (bxhxd).
★ Að sjálfsögðu Philips mynd og litgæði.