Morgunblaðið - 13.03.1980, Síða 16

Morgunblaðið - 13.03.1980, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. MARZ 1980 Listaþing Lífs og lands: ^^^^USTIRNAR ORDNAR AÐ HORNREKUM Samtökin Líf og land gengust helgina 16. og 17. fyrir mikilli krufningu á listalífi í landinu. Þá efndu þau til listaþings á Kjarvalsstöðum, sem var mjög vel sótt. Hlýddu menn þar á yfir 30 erindi, sem komin eru út og fást í bókabúðum. Lauk þinginu sídegis á sunnudag með pallborðsumræðum, þar sem fulltrúar listgreinanna ræddu ásamt hagfræðingum það, sem fram hafði komið. En inn á milli var listflutningur, tónlist, ljóðalestur og gerningar. Listaþinginu var skipt í 4 hluta, byrjað á að ræða stöðu listar, en um það voru flutt 10 erindi á laugardagsmorgni. Kom margt athyglisvert fram. Og verða hér birtir örstuttir kaflar úr þeim erindum. Fundarstjóri var Guðmundur Steinsson rithöfundur. Jón óttar Ragnarsson, formað- ur Lífs og lands, sagði í ávarpi í upphafi ráðstefnunnar m.a.: „Er það ekki dæmigert að þjóð, sem telur að bókmenntir hafi verið lífgjafi hennar á hörmungarárum miðalda og raunar allt fram á þessa öld, skuli — um leið og birta tók til og efnahagur batnaði — hafa tekist að gera listirnar að hornrekum í þjóðfélaginu. Færa má mörg rök fyrir því að „bók- menntaþjóðin" sé að verða búin að sólunda þeim menningararfi sem hún fékk í vöggugjöf. Jóhannes Nordal seðlabankastjóri orðaði þetta svo á fyrsta borgarfundi Lífs og lands um Manninn og umhverf- ið: „Á það hefur verið bent að vestræn þjóðfélög hafi á tímabili ótrúlegra ytri breytinga, sem fylgt hefur í kjölfar iðnbyltingar, sífellt verið að ganga á siðferðilega og menningarlega sjóði fortíðarinnar á svipaðn hátt og gengið hefur verið á auðlegðir náttúru og um- hverfis.“ Eg er þeirrar skoðunar að hið sama gildi um íslenzka menningu og gróðurinn í landinu, að hún þoli verr áföll en menning þeirra þjóða sem búa við heitara loftslag og betri lífsskilyrði frá náttúrunnar hendi. Og margt bendir til þess að við þurfum því meir á henni að halda eftir því sem efnahagur batnar og tóm- stundum fjölgar." Og hann lauk máli sínu: „Við skulum stefna að því að þetta þing geti stuðlað að því að listsköpun verði brátt metin að verðleikum í íslenzku þjóðlífi í stað þess að vera hornreka samfélagsins. Því án listar engin hvatning, enginn metnaður og loks ekkert sjálf- stæði og engin þjóð.“ • Skrökvar, skreytir og skáldar Guðbergur Bergsson rithöf- undur flutti fyrsta erindið um stöðu listar á Islandi. M.a. sagði hann: „Maðurinn virðist vera gæddur takmarkalausum hæfi- leikum til að skrökva að sjálfum sér. Það sama gildir um þjóðir. Sá skreytir sig sem grípur til skreytni. En hins vegar hafa einhverjir eðlisþættir mannsins takmarkalausa þörf fyrir að segja sannleikann, sem er síbreytilegur og að líkindum aldrei með öllu sannur. Um þjóðir gildir eitthvað svipað. Þær samræma þessa eig- inleika báða í þörf, sem er venju- lega kölluð menning; hún skrökvar og skreytir og skáldar en um leið snýst hún gegn eðli sínu með sönnum leik í stað skreytiþarfar. Oft dansa þó saman sannleikurinn og skrautið, en þjóðir hafa til- hneiginu til að kalla þann dans- leiða úrkynjun menningarinnar. Hvers vegna? Við einhverjar aðstæður, sem Jón óttar Ragnarsson enginn kann að skýra með alger- lega viðhlítandi rökum og dæmum blómgast menningin oft af því að inn í hana berst voldugur aðskota- hlutur, eða sökum þess að menn- ingarskrautið og sannleikurinn fúna innan frá, en ekki vegna árásar utan að komandi afls. Þá snýst menningin og þjóðin sjálfri sér til varnar. Fúinn sem að innan vex virðist berast úr of þjóðlegri mold, sem er full af sjálfsánægð- um lambaspörðum. Það hefur aldrei gefist vel í landbúnaði að beita of mörgu sauðfé á tún. Eins er menningunni hættuleg mikil lambahjörð, því henni fylgja roll- ur sem naga niður í rót. En lömbin verða heldur ekki framleidd í tilraunaglösum. Því er auðsætt að engin ákveðin lausn er til í hringrásinni gras og spörð án þess að eyðilegging, melting, vöxtur og bitvargur hafi rétt á sér.“ • Fylling tilverunnar Erindi Aðalsteins Ingólfssonar listfræðings nefndist Hvers vegna list? og hefst á þessum orðum: „Það eru engin ný sannindi að tjáning sé okkur i blóð borin. Með hegðan okkar allri, orðum og æði, erum við áð tjá okkur upp á hvern einasta dag, frá fæðingu til dauða. Svo kölluð listræn tjáning er beint framhald þess arna, en í henni víkkum við sjónhring okkar og opinberum einhverjar niðurstöður sem ekki varða okkur eina, heldur stóran hóp manna eða þjóðfélagið atlt. Við gefum kenndum okkar einhverja lögun eða form, í mynd, tónlist dansi, riti. Kannske þykir einhverjum árangurinn „listavel" gerður og sé hann krafinn frekari skýringa, vefst honum tunga um tönn: Verkið segir „satt“, honum líður vel í návist þess, það opnar augu hans fyrir nýjum möguleik- um, það skýrir á einhvern hátt mannleg samskipti. En þótt njót- Guðbergur Bergsson andinn geti ekki skýrt viðbrögð sín við þessum umræddu verkum, veit hann þó að hann geturekki af þeim séð. Þau eru fylling í tilveru hans, vídd sem hann ekki skynjar annars staðar." • 50 frumsamin ísl. skáldrit á ári Ólafur Jónsson bókmennta- gagnrýnandi, lagði eiginlega fram tvö erindi, annað í útgefnum bæklingi og hitt flutti hann sem framhald þess. Hann segir m.a.: „Af töluyfirliti yfir bókaútgáfu á íslenzku allt frá árinu 1887 má sjá hvernig útgáfan smávex fram eftir allri þessari öld með rýmkun bókamarkaðar samfara bættum efnahag og aukinni menntun og breyttum þjóðfélagsháttum að öðru leyti. Árið 1887 voru gefnar út 32 bækur, þar af 3 skáldrit frumsamin og 5 þýdd. Árið 1900 var útgáfan komin upp í 75 bækur á ári, en komst yfir 100 árið 1908. Um fyrra stríð er útgáfan 100— 140 bækur á ári. Skáldskapur er mikill hluti árlegrar bókaútgáfu: um og yfir fjórðungur útgáfunnar telst jafnan tilefnisflokksins bók- menntir. Einhvern tíma á þessu skeiði skapast bókmenntum og rithöfundum lífvænleg starfskjör, nógu vænleg til þess að höfundar eins og Halldór Laxness, Davíð Stefánsson og aðrir gátu gefið sig að skáldskap sínum hér heima, sem Jóhann Sigurjónsson, Jónas Guðlaugsson, Gunnar Gunnarsson ekki gátu einum eða tveimur áratugum fyrr. Halldór segir frá því í Ungur ég var að aldrei hafi hvarflað að sér að gerast rithöf- undur á dönsku eins og þeir Jóhann og Gunnar á undan hon- um. Um stríðsárin verður skyndi- leg breyting á bókamarkaðinum, þá tvöfaldast bókaútgáfa á fáum árum eykst úr rúmlega 300 út- gefnum bókum alls árið 1938 í Aðalsteinn Ingólfsson rúmlega 600 árið 1946. Eftir það stendur útgáfan í stað, eða er með köflum verulega minni, nema ef hún er að aukast nú á allra síðustu árum með nýrri útgáfutækni. Af töluyfirliti yfir útgáfuna má ennfremur ráða að hún sé í býsna föstum skorðum frá ári til árs, svipað hlutfall einstakra efnis- flokka og bókmenntagreina þótt til langs tíma sé litið. Til dæmis að taka hafa frumsamin íslenzk skáldrit í fyrstu útgáfu verið um það bil 50 talsins á ári í mörg undanfarin ár.“ • Ef menn vissu í raun Hörður Ágústsson myndlistar- maður talaði um íslenzka mynd- list í hnotskurn, með myndum. Hann segir: „Lítum andartak yfir þau þrettándualdarverk, sem hér hafa verið sýnd og skoðuð. Að mínum dómi eru þau hátindurinn í íslenzkri miðalda list og bera vitni hámenningaranda. I þeim er samfelld og samræmd listræn sýn, borin uppi af vilja og krafti menningar sem er í sókn. í þeim er ferskleiki nýsýnar. Á þessu skeiði er andlegu lífi og þar með listinni unnað umfram meðallag. Listinni eru fengnir fjármunir sem því nemur að tryggja að einungis það besta og fullkomn- asta nái fram að ganga. Lista- menn 13. aldar voru ekki alþýðu amatörar, heldur atvinnulista- menn. Hér kom reyndar fleira til en andlegheitin ein. Islenzkt þjóð- félag 13. aldar var sama eðlis og samstiga þjóðum Evrópu, þar sem landbúnaðarfólk, sem stundaði sjálfsþurftarbúskap var að sækja í sig veðrið eftir upplausn formið- alda og framsækin kirkja hjálpar til að koma á það agaböndum og gefa lífi þess tilgang. Á íslandi hafði þó farið fram ofurlítil fram- úrstefnutilraun í skipan samfé- lagsins sem einmitt er að fara út um þúfur á 13. öld. E.t.v. er það spennan milli þeirrar vonar og óvonar sem knúði Islendinga sterkar en ella hafði verið. Getur það verið tilviljun að Flatartungu- fjalir eru gerðar á sama tíma og Islendingar læra að draga til stafs, að Upsa-Kristur er úthögg- inn um líkt leyti og Ari fróði og Haukadalsskólinn setja á bók fræði sín? Er það út í bláinn að Egla, Laxdæla, Eyrbyggja, Eddurnar, Heimskringla og aðrar sögur norrænna þjóða eru settar saman um svipað leyti og Val- þjófsstaðarhurðin er skorin, Fitja- kaleikurinn drifinn og myndirnar í Fysíologus dregnar? Er það e.t.v. kaldhæðni örlaganna að svana- söngur íslendinga, Njála, er hugs- uð og sett niður á skinn ofurlítið seinna en Laufásstoðir eru til- reiddar og seinasta stórverki ólafur Jónsson íslenzkra bókmennta Grettlu er ekki lokið fyrr en á sömu öld og Marteinsklæðið er saumað? Hér er e.t.v. sá einn munur á, að miklu meira hefur tortímst af sjónlista- verkum en bókum. íslendingar hafa löngum grátið glæsta fortíð. Sumum hefur fundist nóg um. Mér er þó nær að halda að söknuðurinn yrði enn meiri ef menn vissu í raun, hvílíkum firnum af glæsi- búnaði listar hefur verið í súginn komið seinni aldir á íslandi. Fallið er meira, niðurlægingin, ömur- legri en orð fá lýst.“ • Ómerkilegri en kallar fyrir 100 árum Atli Heimir Sveinsson tónskáld ræddi íslenzka tónlistarsögu. M.a. sagði hann er hann talaði um aldur tónlistar: „Ég hefi orðið var við að margt fólk heldur að mér sé illa við Beethoven af því að ég kompónera ekki í sama stíl og hann. Raunar komponeraði Beet- hoven ekki í sama stíl og Mozart og var samt ekkert illa við hann. Ég hefi alltaf sagt: maður á ekki að stæla stíl gömlu meistaranna en reyna að vinna í anda þeirra. Beethoven reyndi að breyta tón- listinni og það reyna mörg tón- skáld hér á landi í dag. Það ætti að vera leyfilegt. Það er dálítið und- arlegt að lifa og starfa við þá skoðun alls þorra músikalsks fólks að ég og félagar mínir séu miklu ómerkilegri listamenn en alvar- legir kallar sem lifðu fyrir hundr- að árum eða meir — Jóhann Sebastían van Mozart og kó. Þetta er öðruvísi í vísindum — nú eru allir betri og klárari en þeir sem uppi voru fyrir 100 árum. Síðar, þegar hann talar um þjóðlega músik segir Atli Heimir: „Mér finnst Debussy vera þjóðleg- astur allra tónskálda. Músik hans mótast af frönskum hugsunar- hætti, smekk, lífsskoðun og um- hverfi. En hann notar engin þjóð- lög — allra síst frönsk. Aftur á móti má finna alls konar áhrif í verkum hans — frá Rússlandi, Spáni, Java — frá kaþólskum messusöng og djassi. Allt sá hann með frönskum augum. Vinnuað- ferðir eru franskar — það gerir útslagið. Hvað er unnt að segja meira um íslenzka tónlistarsögu? Kaldalóns var mikill íjúflingur. Lög hans eru töluvert frábrugðin Danmarks melodier og lögum Mendelsohns. Ég veit ekki hvort Kaldalóns sá nokkurn tíma óperu — ítalska óperu. En raddblær óperunnar, fegurðar- og tæknikröfur hennar lifa í flestum lögum hans. Það gerir hái tónninn, sem hægt er að halda endalaust út, og er ávallt

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.