Morgunblaðið - 13.03.1980, Page 20

Morgunblaðið - 13.03.1980, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. MARZ 1980 Sigurður Þórðarson: I leiðara Morgunblaðsins frá 9. janúar s.l. er vitnað til ræðu, sem Ólafur Örn Arnarson, yfirlæknir á Landakotsspítala, flutti nú um áramótin, þegar hann tók við yfirlæknisstarfi við þá stofnun. Ólafur spyr hvort tilvera þeirra Landakotsmanna sé tryggð, og svarar hann sjálfúr og segir „ekki endilega". Greinir hann síðan frá því, að stjórnskipuð nefnd vinni að gerð tillagna um Heilbrigðisstofn- un íslands, en samfara því væri komið á miðstýringu allra heil- brigðisþjónustu, bæði hvað varðar spítalarekstur og heilsugæslu utan sjúkrahúsa. Ólafur heldur Daggjaldakerfið Frá árinu 1969 hefur kostnaðar- hlutdeild ríkisins í sjúkrahúsa- rekstrinum verið ákvörðuð af daggjaldanefnd. Daggjöld eru ákveðin út frá fjölda legudaga og raunverulegum reksturskostnaði. Frá því að daggjaldanefnd tók til starfa hefur sjúkrakostnaður far- ið sí vaxandi. Töluverð gagnrýni hefur fram komið á framkvæmd daggjaldakerfisins. Hefur hún einkum beinst að eftirfarandi at- riðum. í fyrsta lagi er sterk tilhneiging til að líta svo á;að rekstrarfjármögnun sjúkrahús- brigðisþjónustunni rekstri þeirra sjúkrastofnanna, sem stjórnað er af sveitarfélögum eða einkaaðilum. Þar af leiðandi er ekki rétt að alhæfa eins og höfundur leiðara Morgunblaðsins og Ólafur Örn gera, að rekstur sjúkrastofnanna í höndum einka- aðila og sveitafélaga taki rekstri í höndum ríkisins fram. Nærtækt dæmi í þessu tilliti er rekstur þriggja hliðstæðra stofnanna hvað þjónustu snertir þ.e. Sólvangur í Hafnarfirði, Hafnarbúðir í Reykjavík og langlegudeild Land- spítalans að Hátúni 10B. Daggjald útreiknað af daggjaldanefnd fyrir Sólvang er í janúar 1980 22.000 kr. á hvern legudag. Láta mun nærri að hliðstætt gjald í Hátúni væri það notað, væri um 24% hærra. Daggjald fyrir Hafnarbúðir miðað áfram og segir, að hér sé á ferðinni dæmigerð oftrú miðstýr- ingarmanna á ágæti kerfisins. Menn líti heilbrigðisþjónustuna sem færibandavinnu og engin mannleg sjónarmið komi þar nærri. Morgunblaðið tekur undir ofangreind sjónarmið Ólafs í nefndum leiðara og bætir við, að blindan sé hættuleg hjá þeim, sem sitja árið um kring við innvið kerfisins og ímyndi sér, að hægt sé að leysa allan vanda, með því að styrkja það. Vitnar síðan til þróunar skólamála, máli sínu til stuðnings. Hvetur síðan þá sem að þessu vinna, að leita annarra leiða en þeirra, sem miða að eflingu miðstjórnarvaldsins. Sá er þetta ritar hefur haft nokkur afskipti af þeirri hugmynd sem vitnað er til í nefndum leiðara Morgunblaðsins, tel ég því nauð- synlegt að gera nánari grein fyrir aðdraganda og tilefni þessa máls. Áður en vikið verður frekar að þeim hugmyndum um hlutverk Heilbrigðisstofnunar íslands í stjórn heilbrigðismála hér á landi og þeim öðrum leiðum, sem nefnd er fjallaði um breytta fjármögnun heilbrigðisþjónustunnar benti á, er nauðsynlegt að gera grein fyrir stöðu þessara mála nú og þeim annmörkum, sem menn hafa kom- ið auga á, við framkvæmd núver- andi skipulags. Ríkisspítalar Sjúkrast. Reykjavíkurborgar Landakotsspítali St. Jósepsspítali, Hafnarf. Sólvangur, Hafnarf. í ræðu Ólafs Arnar, yfirlæknis og leiðara Morgunblaðsins kemur fram, dæmigerð oftrú á ágæti einkageirans til þess að leysa öll mál á betri veg en önnur rekstr- arform. Lagður er fyrirfram dóm- ur á allt það, sem gert er á vegum hins opinbera, að það sé óhæfa og bein sóun fjármuna. Svo vel vill til, að hægt er að leggja nokkurt mat á ágæti einkarekstursins ann- ars vegar og reksturs í höndum sveitarfélaga og ríkisins hins veg- ar innan heiibrigðisþjónustunnar. Vekur þetta til umhugsunar um hagkvæmni þess að ekki fari saman fjárhagsábyrgð á rekstri og stjórnunarábyrgð. Á árinu 1979 má ætla að hlutur ríkissjóðs í tilkostnaði sjúkrahúsa í landinu hafi numið um 38 milljörðum króna, þar af er hlutur ríkissjóðs í tilkostnaði (þ.m.t. ríkisspítalar) 34,4 milljarðar króna, sem svara til um 14 -16% af áætluðum útgjöldum ríkissjóðs á því ári. Ríkisvaldið sjálft fer ekki með beina stjórn þessara mála nema að 'h hluta. % hlutar eru tilfærslur til heilbrigðisstofn- enna sem sveitarfélög og einkaað- ilar veita stjórn. við rekstraráætlun Borgarspítal- ans fyrir árið 1980 er hins vegar um það bil 60% hærra en dag- gjaldið á Sólvangi. í þessu tilliti er rétt að hafa í huga að þessar þrjár rekstrareiningar að sumu leyti mismunandi. I fyrsta lagi, er rétt að slá þann varnagla að þjónusta við hina öldruðu kann að vera eitthvað frábrugðin án þess þó að það ráði úrslitum. I öðru lagi, og það sem mestu skiptir er að rekstrareiningarnar eru mjög misstórar. Á Sólvangi eru um 100 sjúkrarúm, í Hátúni um 70 en í Hafnarbúðum einungis um 25 rúm. Ákvörðunin um rekstur Hafnarbúða þrátt fyrir óhag- kvæmni er fyrst tekin af yfirvöld- um Reykjavíkurborgar, sem síðan er samþykkt af heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu og þar með veitir stofnuninni rekstrar- leyfi. Nú má færa þau rök að þörfin fyrir vistrými fyrir aldraða hafi verið slík að nauðsyn bar til að opna Hafnarbúðir, þó svo um mjög óhagstæðan rekstur yrði að ræða. Hvað sem því líður, þá eru það stjórnvöld Reykjavíkurborgar en ekki ríkisvaldið sem knýr á um að þessi stofnun taki til starfa, vitandi það að ríkissjóður greiðir allan kostnað við vistun langlegu sjúklinga og þar með rekstur Hafnarbúða. Á undanförnum árum hefur tala fæddra barna farið lækkandi hér á landi. Á sama tíma hefur aðstaða fyrir þessa þjónustu verið bætt og aukin. í því sambandi má benda á nýju fæðingardeild Landspítalans og nú endurbygg- ingu gömlu fæðingardeildarinnar. Þá hefur aðstaða úti á lands- byggðinni, til að taka við þessari þjónustu aukist til muna, með tilkomu nýrra sjúkrahúsa á Akra- anna, sé sjálfvirkt og sjálfstýrt. Höfuðvandamálið í sjúkrahúsmál- um, sé fjáröflun til nýbygginga. Stofnkostnaður er hinsvegar til- tölulega lítill miðað við reksturs- kostnað. Talið er að 2—3 ára reksturskostnaður jafngildi stofnkostnaði við heilbrigðisstofn- anir. í öðru lagi er bent á að stjórnend- ur sjúkrastofnana hafa litið svo á og reynsla sýnt, að rekstrarhalli fæst jafnan bættur fyrr eða síðar. Þar af leiðandi forðast stjórnend- ur þessara stofnanna að sýna rekstrarafgang. Svo má ætla að minnsta kosti. í þriðja lagi að þar sem fjöldi legudaga, er höfuðatriði á ákvörð- un þess fjármagns sem viðkom- andi stofnun fái, hafi það leitt til þess að sjúklingar liggi lengur inná stofnunum en þörf krefur. Með fjárlögum ársins 1977, var sú ákvörðun tekin að ríkisspítalar skyldu teknir útaf daggjaldakerf- inu og fengju bein framlög af fjárlögum, en með þessari ákvörð- un var ætlunin að gera samanburð við daggjaldakerfið og kanna rétt- mæti þeirrar gagnrýni sem fram hefur komið á daggjaldakerfið. Ef borin er saman kostnaður nokkurra sjúkrastofnanna á ára- bilinu 1976^1978 þ.e.a.s. heild- argjöld að frádregnum sértekjum kemur eftirfarandi í ljós. Fjárhæðir í m.kr. Prósentur 1976 1978 hækkanir 3.903 9.159 134% 1.727 4.040 134% 816 2.100 157% 120 335 179% 190 433 128% Þegar þessar tölur eru skoðaðar nánar, kemur í ljós að kostnaðar- „Er tilvera okkar tryggð? Ekki endilega?“ Fyrri hluti hækkanir eru mestar hjá Landa- kotsspítala og St. Jósepsspítala í Hafnarfirði. Á þessu tímabili hafa verið gerðar formbreytingar á rekstrarstjórn þessara stofnanna, þar sem kaþólska reglan hefur látið af stjórn eða dregið verulega úr áhrifum sínum. Á þessu árabili hafa ekki orðið umtalsverðar breytingar á legudagafjölda þess- ara stofnanna. Aíleiðing núverandi skipulags Þó mikilvægt sé, að bera saman tölur segja þær ekki ætíð allt. Um nokkurt árabil hef ég haft tæki- færi til að fylgjast með gangi mála innan heilbrigðisgeirans. Á þeim tíma hafa komið í ljós ýmis atriði, sem ætla mætti að betur geti farið og eru bein afleiðing þess skipulags, sem ríkir innan heilbrigðisþjónustunnar. Ýmislegt bendir til þess að ekki sé ætíð mestrar hagkvæmni gætt í Miðstýring í heil- nesi, Akureyri, Neskaupstað og Selfossi. Þrátt fyrir þessa þróun hefur nánast engin endurskipulagning á rekstri fæðingastofnanna átt sér stað, á höfuðborgarsvæðinu, ef undan er skilin að fæðingardeild hjá Sólvangi í Hafnarfirði, var lögð niður þegar nýja fæðingar- deild Landspítalans var tekin í notkun. Nýverið hefur verið gerð athugun á því, hvað þurfi að efla starfsemi fæðingardeildar Land- spítalans mikið, til þess að hún ein gæti veitt þá þjónustu sem innt er af hálfu annarra heilbrigðisstofn- ana á höfuðborgarsvæðinu. Niður- staða þessarar athugunar er að með tiltölulega litlum viðbótar- kostnaði vegna aðstöðusköpunar, geti fæðingardeild Landspítalans sinnt þessari þjónustu fyrir um 40% af þeim tilkostnaði, sem núverandi þjónusta kostar hjá Fæðingarheimili Reykjavíkur- borgar, en sú stofnun er við sömu götu og fæðingardeild Landspítal- ans. Á síðustu árum hefur verið gert átak í að bæta þjónustu við þá sem búa við áfengisvandamál. Áhuga- menn hafa gegnt mikilvægu hlut- verki í að vekja athygli á þessum málum. Þá hafa sumir þessara áhugamannahópa, komið upp að- stöðu til lækningar, en síðan hefur ríkið fengið að borga brúsann. Ríkið sjálft hafði þó fyrir skömmu bætt skipulag og aðstöðu þessarar þjónustu m.a. með deild fyrir drykkjusjúka að Vífilsstöðum. Spyrja má hvort nægjanlegt skipulags samstarf og samvinna hafi verið hjá öllum aðilum og þá tekið tillit til þess, sem fyrir var þegar ákvarðað var um aðstöðu- sköpun og þjónustumagn, „einka- framtaksins." Nýverið hefur spurst, að stjórn Landakots hafi ákveðið kaup þvottahúss af einkaaðila. Skömmu fyrir kaupin hófust mikil skrif í blöðum sem hnigu í þá veru, að sýna fram á óhagkvæmni reksturs þvottahúsa ríkisspítalanna. En þetta átti að sanna, ókosti rekstr- ar í umsjá hins opinbera svo að ekki verði um villst. Búið var að afla þeirra einu sanninda sem tryggja myndu tilveru þeirra Landakotsmanna um ókomin ár. Svo rammt kvað að, að talsmaður eins stjórnmálaflokks sagði opin- berlega að hér væri á ferðinni eitt þeirra atriða, sem staðfesti van- mátt ríkisins að gera nokkurn skapaðan hlut af viti. Af hálfu sjórnarnefndar ríkisspítala fór fram athugun á málum þvottahúss ríkisspítalanna og kannað réttmæti þessarar gagnrýni. Athugun þessi leiddi í ljós, að kostnaður hjá þvottahúsi ríkisspítalanna var hagstæðari, auk þess sem það veitti meiri þjónustu, en hjá því þvottahúsi sem Landakotsmenn skiptu við og eru nú búnir að kaupa. Þetta er í sjálfu sér eðlilegt þegar haft er í huga að þvottahús ríkisspítalanna er eflaust fullkomnasta þvottahús sinnar tegundar hér á landi, hvað tækjabúnað snertir. Afkastageta þvottahúss ríkisspítalanna er það mikil, að það getur annað öllum þvotti frá Landakotsspítala, auk þeirra verkefna sem það nú hefur, enda í upphafi hugsað, sem mið- stöð þvotta fyrir sjúkrahús á þessu svæði. Mér er spurn, við hverju eru menn að vara, þegar deilt er á miðstýringu í sjúkrahúsmálum. Ekki verður af því sem að ofan segir ályktað að sveitarfélögin eða einkaaðilar beri ögn meiri ábyrgð á hvernig fjármunum í heilbrigð- isgeiranum er varið en ríkisstofn- anir, nema síður sé. Af dæmunum að framan þarf ekki að álykta, að rekstri sjúkra- stofnanna sé almennt svona farið. Þau vekja þó til alvarlegrar um- hugsunar um hvort það sé ekki fyrst og fremst skortur á skipulagi og ósamræmið milli annars vegar ákvörðunarvaldsins um rekstur og hins vegar fjármögnun og mat á hagkvæmni, sem leiðir til tog- streitu og ágreinings. Eins og nú horfir við, verður ekki annað sagt en skipulag skorti á sjúkramálin í heild. Til dæmis er engin mótuð stefna til um sérhæfni einstakra sjúkrahúsa, eða reglugerðar- ákvæði um búnað þeirra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.