Morgunblaðið - 13.03.1980, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. MARZ 1980
JHnrgaii Útgefandi nXiIaí»ií> hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Ritst jórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson.
Fréttastjóri Björn Jóhannsson.
Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar:
Aðalstræu 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033.
Áskriftargjald 4.500,00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 230
kr. eintakið.
Kveðjuorð
um Olafslög
Sjaldan hefur verið eins mikið veður gert út af setningu
nokkurrar löggjafar um efnahagsmál og fyrir réttu ári, þegar
vinstri stjórnin var að burðast við að koma á svonefndum
Olafslögum, þ.e. lögunum um stjórn efnahagsmála o.fl. Alþýðu-
flokkurinn krafðist höfundarréttar að lögunum en Ólafur Jóhann-
esson heiðursins. Alþýðubandalagið var með margvíslegan fyrir-
slátt en féllst að lokum á öll meginatriðin. Stjórnarsambúðin fékk
á sig blæ einbeitni og baráttuvilja og engu var líkara en
ráðherrarnir og fylgismenn þeirra teidu sig loksins hafa höndlað
hamingjuna. Nú yrði auðvelt að ráða við allan efnahagsvanda.
En hvað hefur gerst síðan? Hvernig hafa lög þessi reynst?
Höfundurinn, Alþýðuflokkurinn, rauk úr stjórnarsænginni nokkr-
um mánuðum eftir lagasetninguna, en hinir, sem eftir sátu, voru
hinir hróðugustu og forsætisráðherrann minnti landslýð á það, að
fara yrði aftur til þess tíma, þegar Island var konungdæmi til að
finna fyrirmynd þess, að lög væru nafnkennd manni og þá auðvitað
konungi.
í Ólafslögum eru sett alls kyns ákvæði um það hvaða aðferðum
skuli beitt við efnahagsstjórnina. Greinilegt er, að ríkisstjórn
Gunnars Thoroddsens ætlar að hafa öll þau ákvæði að engu. Hún
hefur ekki beitt sér fyrir því, að fyrir Alþingi sé lögð
þjóðhagsáætlun, sem hafa skal til hliðsjónar við samningu
fjárlagafrumvarps. Engin slík áætlun hefur verið lögð fyrir það
þing, sem nú situr. Starfsstjórn Alþýðuflokksins sá ekki ástæðu til
þess og forsætisráðherra hennar taldi sér ekki skylt að flytja
stefnuræðu. Núverandi forsætisráðherra ætlar ekki heldur að
flytja stefnuræðu eins og mælt er fyrir um í þingsköpum og í
Ólafslögum segir, að þjóðhagsáætlun skuli lögð fram svo
tímanlega, að umræður um hana geti farið fram á sama tíma og um
stefnuræðuna.
I umræðum um nýframlagt fjárlagafrumvarp hefur Ragnar
Arnalds fjármálaráðherra bent á það, að tíðkast hafi um nokkurra
ára bil, að lánsfjáráætlun ríkisstjórnarinnar sé seinna á ferðinni
en fjárlagafrumvarpið, til dæmis hafi hún ekki verið afgreidd fyrr
en í apríl í fyrra. Þetta er rétt hjá fjármálaráðherra, hins vegar er
hann bundinn af lögum í þessu efni, sem aðrir hafa ekki verið. í
Ólafslögum segir, að ríkisstjórnin skuli leggja fyrir Alþingi
fjárfestingar- og lánsfjáráætlanir fyrir eitt ár í senn og skuli þær
fylgja fjárlagafrumvarpi. Með þessum áætlunum á einnig að fylgja
frumvarp um heimildir til lántöku innanlands og utan. Þá á einnig
að fylgja þeim stefnumótun í meginatriðum næstu þrjú árin eftir
lok þess fjárhagsárs, sem fjárlagafrumvarpið tekur til. Loks skal
samkvæmt Ólafslögum með fjárlagafrumvarpi ár hvert leggja
fram áætlun, er lýsi í aðalatriðum meginstefnu í ríkisbúskapnum
næstu þrjú árin eftir lok þess fjárhagsárs, sem fjárlagafrumvarpið
tekur til. Ríkisstjórnin hefur brotið öll þessi lagaákvæði. Þess ber
að geta, að í Ólafslögum eru engin ákvæði um refsingu fyrir brot á
lögunum.
I Ólafslögum er sérstakur kafli, sem fjallar um samráð
stjórnvalda við samtök launafólks, sjómanna, bænda og atvinnu-
rekenda og í október sl. var gefin út reglugerð af forsætisráðherra
um framkvæmd þessa kafla. Síðan hefur ekkert gerst og
lagaákvæðið alveg gleymst, að minnsta kosti hefur ekkert heyrst
um að ríkisstjórn Gunnars Thoroddsens hafi kallað samráðsaðila
til funda um þjóðhags-, fjárfestingar- og lánsfjáráætlanir,
tekjustefnu og forsendur þeirra, eins og mælt er fyrir um í
Ólafslögum. Hvað þá að þessum aðilum hafi verið kynntir formlega
einstakir liðir í fjárlagafrumvarpi í því skyni að leggja grundvöll
að samræmdum ákvörðunum á sviði opinberra fjármála, peninga-
og lánamála, lífeyrismála og verðlagseftirlits af opinberri hálfu,
svo sem segir í Ólafslögum.
Nýlega var vakið máls á því á Alþingi, að ríkisstjórnin 'hefði
hafnað í frámkvæmd stefnu Ólafslaga um verðtryggingu sparifjár
og lánsfjár. Sparifjáreigendur hafa verið sviknir um lögbundið
loforð af hálfu stjórnvalda.
Hvað stendur þá eftir af þessum lögum kunna menn qþ spyrja.
Jú, á einu sviði hafa þau verið framkvæmd undanbragðalaust til
þessa og það er varðandi kerfisbundna vísitöluskerðingu launa. Á
þriggja mánaða fresti hafa launþegar kynnst því ákvæði laganna
með því að fá lægri vísitölubætur á laun sín en sem nemur hækkun
framfærsluvísitölunnar. Og nú hyggur ríkisstjórn Gunnars Thor-
oddsen á það ráð að færa sér í nyt ákvæði laganna, um að skattur
til að draga úr áhrifum hækkunar olíuverðs á framfærslukostnað
heimila, sem hita hús sín með olíu, skuli ekki leiða til hækkunar
vísitölubóta.
Framsóknarmenn litu á Ólafslög sem kórónu sköpunarverks
framsóknaráratugarins. 1 Ivað stendur eftir tæpu ári frá því að lögin
voru sett? Lesendur geta sjálfir um það dæmt af því fáeina, sem
hér hefur verið tínt til. í raun eru lögin ekki annað en fánýtar
umbúðir utan um enn eina aðferð ríkisvaldsins til að grípa inn í
gerða kjarasamninga með lögum. í stað þess að þverbrjóta hverja
grein laganna á fætur annarri, hefði ríkisstjórn Gunnars
Thoroddsens átt að sjá sóma sinn í því að leggja til, að þau yrðu
felld úr gildi.
Alyktun sambandsstjórnar og framkvæmdastjórnar VSI:
Kröfugerð ASI er
hreinn blekkingarleikur
SAMEIGINLEGUR fundur sam-
bandsstjórnar og framkvæmda-
stjórnar Vinnuveitendasambands
Islands var haldinn í gær og var
þar samþykkt að fela 5-manna
samningaráði VSÍ áfram yfir-
stjórn ailra samningaviðræðna á
grundvelli ályktunar kjaramál-
aráðstefnu VSÍ frá því í október.
Þá samþykkti fundurinn jafn-
framt að skipa sérstaka samráðs-
nefnd um samningamálin með
fulltrúum allra aðildarsamtaka
Vinnuveitendasambandsins. í
ályktun, sem fundurinn sam-
þykkti. er sagt, að VSÍ sé-ekki
reiðubúið að ganga að kröfum,
sem leiða til nýrra gengisfellinga
og verðhækkana og að í komandi
samningum verði ekki unnt að
semja um aukinn kaupmátt, enda
hafi vöxtur þjóðartekna stöðvazt.
Ályktun fundarins er svohljóðandi:
Vinnuveitendasamband Islands legg-
ur þunga áherzlu á, að í kjarasamning-
um verði ekki meiru skipt en fyrir
hendi er og er því ekki reiðubúið að
ganga að kröfum, sem leiða til nýrra
gengisfellinga og verðhækkana. I kom-
andi kjarasamningum verður ekki unnt
að semja um aukinn kaupmátt enda
hefur vöxtur þjóðartekna stöðvazt.
• Á síðasta ári var ekki um að ræða
aukningu á þjóðartekjum og engar
horfur eru á að þær aukist á þessu ári.
Eins og sakir standa er þvi útilokað að
ná því kaupmáttarstigi sem samið var
um 1977. Af þeim sökum getur VSl ekki
fallist á grunnkaupshækkunarkröfu
Alþýðusambandsins, enda getur hún
aðeins leitt til skerðingar á krónunni.
• Kröfur ASÍ um nýtt verðbótakerfi
eru svo óraunhæfar að þær geta ekki
talist umræðugrundvöllur í samninga-
viðræðum. VSÍ hafnar þeim alfarið,
enda óviðunandi að verðbólgan sé látin
raska umsömdum launahlutföllum.
• Þá lýsir Vinnuveitendasambandið
yfir því, að ógerlegt er að auka
launakostnað fyrirtækja með nýjum og
auknum fríðindum eins og þeim sem
fólgin eru í sameiginlegum sérkröfum
ASI, á sama tíma og aðstæður leyfa
ekki að kaupmáttur beinna ráðstöfun-
artekna verði aukinn. Jafnframt er
vakin athygli á því að þær sameigin-
legu kröfur, sem ASÍ hefur nú birt, eru
aðeins upphaf kröfugerðar sérsam-
banda og einstakra verkalýðsfélaga
innan ASI. Vinnuveitendasambandið
getur ekki fallist á að byrja samninga-
viðræður um sameiginlega kröfugerð
Alþýðusambandsfélaganna meðan
heildarkröfurnar liggja ekki fyrir.
• Kröfugerð Alþýðusambandsins und-
ir yfirskini launajöfnunar er hreinn
blekkingarleikur. Á sama tíma og sett
er fram handahófskennd launajöfnun-
arstefna með sameiginlegum kröfum
um breytt verðbótakerfi er stefnt að
því að hún verði brotin niður með
sérkröfum einstakra félaga og sam-
banda m.a. með því að afnema þær
skerðingar á kaupálögum og ákvæðis-
vinnutöxtum, sem í gildi hafa verið, er
leiða myndi til margfalt meiri hækkun-
ar en fram kemur í blekkingarkröfun-
um. Kröfugerð af þessu tagi getur því
mjög torveldað samningaviðræður.
Kröíur VSÍ
Vinnuveitendasamband íslands
ítrekar stefnuyfirlýsingu kjaramála-
ráðstefnu sinnar frá því í október sl. og
leggur því höfuðáherzlu á eftirfarandi
atriði við endurnýjum kjarasamninga:
1. Breytingar á kjarasamningum verði
gerðar innan þeirra marka að þær hafi
ekki í för með sér aukinn heildarlauna-
kostnað.
2. Samningstími verði til 1. janúar
1982.
3. Heimilt verði að endurskoða kaup-
liði samninga 1. janúar 1981 með
hliðsjón af þróun þjóðartekna.
4. Eftirtaldar breytingar verði gerðar
á núgildandi verðbótaákvæðum, sem
sett voru á með lögum um stjórn
efnahagsmála o.fl. nr. 13/1979:
Breytingar á verði innlendrar vöru
og þjónustu, er stafa af hækkun launa,
hvort sem er vegna verðbóta eða
grunnkaupshækkana hafi ekki áhrif á
verðbótavísitöiu.
Breytingar á óbeinum sköttum og
gjöldum hafi ekki áhrif á verðbótavísi-
tölu.
Breytingar á opinberum niður-
greiðslum vöruverðs hafi ekki áhrif á
verðbótavísitölu.
Frekara tillit verði tekið til við-
skiptakjarabreytinga en nú er gert.
Verðbætur á laun skulu reiknast á
sex mánaða fresti og greiðist hlutfalls-
lega eins á öll laun.
5. Unnið verði að gerð samræmds
heildarkjarasamnings.
Þríhliða viðræður
Vinnuveitendasamband íslands lítur
svo á, að útilokað sé að stemma stigu
við ríkjandi óðaverðbólgu nema með
samræmdum aðgerðum stjórnvalda og
aðila vinnumarkaðarins. Með skírskot-
un til sérkröfugerðar ASÍ á hendur
vinnuveitendum og stjórnvöldum og
með tilliti til kröfu VSÍ um nýtt
verðbótakerfi, er miðar að því að draga
verulega úr víxlverkunaráhrifum milli
verðlags og launa, telur Vinnuveitenda-
sambandið nauðsynlegt að hafnar verði
þríhliða viðræður vinnuveitenda,
launþega og ríkisstjórnar svo fljótt
sem aðstæður leyfa eftir að mynduð
hefur verið starfhæf ríkisstjórn. Þessar
þríhliða viðræður fari fram með það
markmið fyrir augum, að finna sameig-
inlega lausn á aðsteðjandi efnahags-
vanda þannig að unnt verði að endur-
nýja kjarasamninga án nýrra gengis-
fellinga og verðhækkunarskriðu og án
þess að afkomu- og atvinnuöryggi verði
telft í meiri tvísýnu en orðið er.
Munum bíða ef tir
ákvörðun S.V.R.
— Segir Karl Árnason forstöðumaður
SVK um vagnakaup frá Ungverjalandi
„NEI, ákvörðun hefur ekki verið
tekin, og bæjarráð Kópavogs sam-
þykkti á fundi sínum á þriðju-
dagskvöld að huga að því sem
Reykjavíkurborg gerir í þessu
sambandi," sagði Karl Árnason
forstöðumaður Strætisvagna
Kópavogs í samtali við blaðamann
Morgunblaðsins í gær. Karl fór
sem kunnugt er út til Ungverja-
lands á dögunum með starfs-
mönnum Reykjavíkurborgar, til
að kanna ungversku strætisvagn-
ana Ikarus, sem boðnir hafa verið
til kaups.
„Við erum ekki aðili að þessu
útboði eins og fram hefur kornið,"
sagði Karl ennfremur, „en við
höfum áður notfært okkur stærð
SVR í tilvikum sem þessum með
góðum árangri. Síðast gengum við
til dæmis inn í kaup SVR sem
viðbót er þeir keyptu Benzbílana
1974. Þá fór ég með Reykvíkingun-
um eins og ég gerði núna og
skoðaði það sem um var að ræða.“
Karl sagði SVK vera að hug-
leiða að kaupa tvo til þrjá bíla, en
ekkert hefði þó verið ákveðið í því
sambandi. Bæjarráðsmenn vildu
sem fyrr segir bíða eftir ákvörðun
Reykjavíkurborgar, og einnig
kynna sér betur skýrslu þá er Karl
skilaði eftir heimkomuna frá
Búdapest.
Karl var að því spurður hvort
skýrsla hans væri ungversku
vögnunum hagstæðari en skýrsla
sendinefndar SVR.
„Það virðist vera, svo virðist
vera sem mér lítist betur á
vagnana en þeim,“ sagði Karl. „Ég
hafði þeirra skýrslu ekki til hlið-
sjónar og við unnum ekkert sam-
an, þótt skömm sé frá að segja,"
sagði Karl ennfremur. „Ég er í
ferðinni allri fulltrúi Kópavogs."
— Kanntu nokkrar skýringar á
því hvers vegna þér líst betur á
vagnana en Reykvíkingum? Gerið
þið aðrar kröfur í Kópavogi?
„Ja, við höfum nú keypt dýra
bíla eins og vitað er, og í þessari
ferð skoðaði ég einnig vagna hjá
Leylandverksmiðjunum. Ég sé
auðvitað að margt er betra í
dýrari bílum, ég viðurkenni það og
það kemur fram í minni skýrslu.
En hins vegar finnst mér að skoða
verði þetta eins og ég gerði. Ég er
að skoða bíla sem standa til boða á
þessu verði, og hvaða kröfur
getum við gert, sem þeir ekki
uppfylla og sem er svona mikils
virði? Ég set auðvitað út á margt
eins og Reykvíkingar gera, til
dæmis vatnskassann og reimar, en
þetta er að mínum dómi alls ekki
óyfirstíganlegt þegar litið er á
verðmuninn.
Við erum til dæmis með Ley-
landbíla, sem allir eru með vatns-
kassann undir. Það hefur ekki
valdið neinum vandræðum, við
bara þvoum kassann af og til.“
— Þú segir að taka verði mið af
því að vagnarnir séu ódýrir. En nú
kemur það fram í skýrslu sendi-
manna SVR, að elstu vögnum
þeirra hafi verið ekið á aðra
milljón kílómetra, en Ikarusvagn-
arnir eru sagðir hafa aðeins sjö
ára „líftíma" eða hálfa milljón
kílómetra. Það þýðir helmingi
styttri ending.
„Mér finnst í þessu tilfelli að
taka verði mið af því,“ svaraði
Karl, „að þeir hafa óneitanlega
meiri og betri aðgang að nýjum
bílum en við í Kópavogi. Þeir stíla
kannski upp á það. Nú hvort
bílarnir eru ónýtir eftir þennan
tíma kom alls ekki fram. Við sáum
til dæmis enga bíla sem þeir voru
að leggja. Þetta finnst mér að
hafa verði í huga án þess að ég sé
að dæma þar um,“ sagði Karl að
lokum.
Um 40 manns taka
þátt í leikriti
Sæluvikunnar
í ar
Sauðárkróki 12. marz.
SÆLUVIKULEIKRIT Leikfélags
Sauðárkróks að þessu sinni er
„Týnda teskeiðin" eftir Kjartan
Ragnarsson. Þetta Ieikrit var
frumsýnt í Þjóðleikhúsinu haust-
ið 1977 og hlaut mikla aðsókn
eins og önnur leikrit Kjartans.
Leikstjóri er Ásdís Skúladóttir,
en Leikfélag Reykjavíkur lét
hana lausa frá öðrum störfum
þar til að leikstýra þessari sýn-
ingu, en þetta er fyrsta leiksýn-
ingin sem hún leikstýrir. Aðstoð-
arleikstjóri er Jón Ormar Orms-
son og leikmynd er eftir Jón
Þórisson.
Æfingar hófust 6. febrúar og
frumsýning verður 16. marz
klukkan 21. Leikritið verður sýnt
daglega Sæluvikuna út nema mið-
vikudag og föstudag, en þá verða
tvær sýningar á leikritinu hvorn
dag. Með aðalhlutverk fara Elsa
Jónsdóttir, Hafsteinn Hannesson,
Haukur Þorsteinsson og Helga
Hannesdóttir. Með önnur hlutverk
fara Bragi Haraldsson, Guðbjörg
Bjarman, Guðbjörg Hólm, Jón
Ormar Ormsson og Stefán Sturla
Sigurjónsson. Alls hafa um 40
manns unnið að þessari sýningu.
Formaður Leikfélags Sauðárkróks
er Helga Hannesdóttir og fram-
kvæmdastjóri er Erling Örn Pét-
ursson. — Kári