Morgunblaðið - 13.03.1980, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. MARZ 1980
25
ð inn á sýningu hjá Balt
alsstööum
— Ég vildi skipta um tækni —
festast ekki í því að mála
hefðbundið með olíulitum, þung-
um og dökkum. Ég byggi ekki
lengur aðeins á litum, heldur og
línum, og er einhvern veginn
smátt og smátt að kveðja þessi
hefðbundnu mótív og leita nýrra
fanga, sagði Baltasar listmálari
er blaðamaður Mbl. leit inn á
sýningu hans á Kjarvalsstöðum í
gær og lét í ljós þá skoðun, að
veruleg breyting væri sýnilega
að verða á bæði viðfangsefnum
hans og litameðferð. Yfir sýn-
ingunni er í leikmanns augum
léttur og litskrúðugur blær og
stór verk hans átta talsins sem
Baltasar
t.d. eru gerð eftir kvæði Einars
Benediktssonar „Fákar" sér-
stæð.
„Þetta má eiginlega segja að
sé uppgjör milli mín og hesta-
myndanna sem ég' hef verið að
mála í mörg ár,“ sagði hann. „Nú
er ég ekki aðeins að mála
hestana fysiskt, heldur hesta
sem áhrif. Ég hef þekkt þetta
ljóð lengi og það hafði kitlað mig
að reyna að vinna upp úr því
samkvæmt þeim áhrifum sem ég
hafði orðið fyrir. Ég býst við ég
hafi nálgast viðfangsefnið eins
og ég geri mér í hugarlund að
tónskáld nálgist að gera sinfóníu
Ljósm. Mbl. ÓL. K. Magn.
— Stundum er ég ánægður
með það sem ég geri og í heild er
ég dús við þá þróun sem mér
finnst hafa orðið á ferli mínum
síðustu ár. En víst vill maður
alltaf gera betur, leita eftir því
að útfæra nánar það sem ég vildi
sagt hafa.“
Baltasar sýnir þarna fjörtíu
og tvær myndir og eru þær
unnar á tímabilinu 1978—1980.
Hann sagðist hafa orðið var við
að ungt fólk sem hefði komið á
sýninguna hefði orðið töluvert
hrifið og eins hefði hann orðið
var við ágætar undirtektir full-
trúa á Norðurlandaráðsþingi,
sem skoðuðu sýninguna í tengsl-
um við boð sem þeim var haldið
á Kjarvalsstöðum.
Með vorinu fer Baltasar ásamt
Kristjönu, konu sinni, vestur til
Arizona til nokkurra mánaða
dvalar, og kváðust þau hyggja
gott til glóðarinnar, að sjá sig
þar um og nota tímann til að
anda að sér nýju lofti og fást við
ný viðfangsefni. „Auk þess er
nauðsynlegt að fá sér átthaga-
hvíld öðru hverju — ekki sízt
eftir sýningar," sagði Baltasar
að lokum.
Sýning Baltasars stendur til
sunnudagskvölds.
104 °F
„Það sem keisarans er ....“
Rafmagnsskortur til-
finnanlegur við Djúp
Nýr fréttaritari hefur tekið
til starfa fyrir Morgunblaðið.
Er það Ágúst Gíslason, Botni,
ísafjarðardjúpi, birtist hér á
eftir fyrsta fréttabréfið frá hon-
um:
Botni, 25. febrúar 1980.
I dag geisar hér afspyrnusuð-
vestan rok og er bæði rafmagns-
og símasambandslaust, enda vart
fært milli húsa. Annars hefur
tíðarfar hér verið með eindæmum
gott í vetur og nánast blíðviðri
allan þorrann, allt fram á ösku-
dag að breytti.
Þá verður það að teljast frétt-
næmt, að vegir eru hér nú sem á
vordegi og hefur verið fólksbíla-
fært hér inn um Djúp, jafnvel allt
norður að Kaldalóni, frá því í
endaðan nóvember en þá hafði
verið ófærð um tíma, en vegna
framboðsfundar, sem haldinn var
í Reykjanesskóla, voru vegir mok-
aðir. Tók það frambjóðendur 10
klst. að komast frá Isafirði inn í
Reykjanes með aðstoð snjóruðn-
ingstækja en þangað er 3 klst.
akstur í venjulegu.
Hafði fólk sæmilega skemmtun
af fundi þessum en ekki er því að
neita að mörgum fannst að fund-
urinn hefði mátt vera málefna-
legri en raun varð á. \
Jólahald fór hér tíðindalítið
fram og var veður hið blíðasta um
hátíðarnar. Messað var í Vatns-
fjarðarkirkju á jóladag og þann
27. desember hélt kvenfélagið
Sunna jólatrésskemmtun í
Reykjanesskóla, sem var einkum
börnunum góð skemmtun.
Það má segja, að Kvenfélagið
Sunna sé eini félagsskapurinn
sem er starfandi hér í hreppi, en
það hélt einnig þorrablót í Djúp-
mannabúð þann 16. febrúar.
Fengu konurnar til liðs við sig
Ásgeir Sigurðsson og Gunnar
Hólm frá ísafirði til að leika fyrir
dansi, sem dunaði til kl. 4.30
stanslaust, enda ekki dansað á
hverju kvöldi hér við Djúp. Að-
sókn var einstaklega góð eða 80
manns og kom fólk jafnvel á bát
norðanyfir Djúpið til að taka þátt
í þorrablótinu.
Rafmagn hefur verið hér af
mjög skornum skammti í vetur og
hefur það fólk sem komið hefur
sér upp rafhitunarbúnaði og
keypt til þess ákveðin marktaxta,
lítt getað notað þetta og því
neyðst til að kynda hús sín meira,
og minna með olíu en slíkt er sem
allir vita algjör húskross í dag.
Ástand þetta skapast af vatns-
leysi, annars vegar í Blævardals-
árvirkjun að norðanverðu við
Djúp og hins vegar í Sængurfoss-
virkjun sem er hér í botni Mjóa-
fjarðar. Mestu mun þó ráða að
enn hefur ekki verið lokið við
vatnsmiðlun, sem byrjað er á hér
við Sængurfossvirkjun, en vitað
er með nokkurri vissu, að virkjun
þessi, sem er 750kw, muni veita
okkur meira en nóg rafmagn
þegar lokið hefur verið við
vatnsmiðlunina.
Þessa daga er Orkubú Vest-
fjarða hins vegar að setja upp
200-250KW dísil-rafstöð í Reykja-
nesi sem varaaflsstöð fyrir Inn-
djúpið en þessa stöð má samkeyra
með Sængurfossvirkjun og mun
hún væntanlega komast í gagnið
nú í vikunni og vonum við að
raforkuskorturinn verði þar með
úr sögunni."