Morgunblaðið - 13.03.1980, Page 35

Morgunblaðið - 13.03.1980, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. MARZ 1980 35 bónussamningar í fyrstihúsum, en þeir voru með þeim fyrstu sem gerðir voru hér á landi, um svipað leyti og á Isafirði. Nú er búið að gera heildarsamning um ákvæðis- vinnu á frystihúsum sem gildir frá miðju ári 1978, en hér er enn í gildi fyrrgreindur bónus-samning- ur og ekkert ákveðið um aðild að heildarbónussamningi fyrir allt landið. Þá er við lýði sérstakur samn- ingur um vaktavinnu ofl. í fiski- mjölsverksmiðjunum og var hann undirritaður 30. júní 1977. Þá var gerður hér sérstakur samningur um löndun á kassafiski 24. júní 1977, og samningur um kaup- tryggingu hafnarverkamanna frá 4. apríl 1979. Er hér um reynslu- samning að ræða. Þá var gerður hér sérstakur samningur um vaktavinnufyrir- komulag í síldar- og loðnuvinnslu í frystihúsunum, og var samningur- inn undirritaður 29. október sl., og mun vera sá eini á landinu. Sérkjarasamningar bjóða fremur upp á átök Ekki verður sagt að sérkjara- samningar í Vestmannaeyjum tákni endilega að um óhagstæða samninga fyrir vinnuveitendur sé að ræða. í nokkrum tilfellum hafa aðilar verið sammála um að nauð- syn væri á slíkum samningi, og nú síðast í síldar- og loðnuvinnslu. Aftur á móti bjóða sérkjara- samningar frekar upp á átök á vinnumarkaði, sem síðar verður vikið að. Það hefur vakið athygli um land allt, að á undanförnum árum hafa átök á vinnumarkaði í Eyjum orðið tíðari en annars staðar. Mun ég hér greina frá nokkrum málum sem upp hafa komið hér í Eyjum, og miða ég við tímabilið frá ágúst 1977. Fyrstu átökin, sem bundin voru eingöngu við Eyjar, var deila um síldarsöltunarsamninga sem und- irritaðir voru 13. ágúst 1977 á Hornafirði. Vildi stjórn Snótar ekki sætta sig við samkomulagið, en því miður tóku engir fulltrúar frá Snót og atvinnurekendum hér þátt í samningagerðinni. Var þessi deila, sem snerist fyrst og fremst um túlkunaratriði og flokkun á aðstoðarfólki við síldarsöltun leyst 20. september 1977, og kom því ekki niður á síldarsöltuninni það haust. 60 millj, kr. í vexti vegna útflutningsbanns Hin miklu átök á vinnumarkaði, sem hófust í kjölfar febrúarlag- anna 1978, komu mjög hart niður á atvinnurekstri hér í Eyjum, útflutningsbann hófst 15. apríl um land allt, en þó var nokkuð um undanþágur, en hér var banninu framfylgt af meiri hörku en ann- ars staðar. Utflutningsbanninu var aflétt um land allt 24. júlí 1978, en það tók aftur gildi í Vestmannaeyjum 26. júlí og gilti með litlum undanþágum til 29. ágúst 1978. Voru Vestmannaeyjar eini staðurinn á landinu sem þannig var ástatt um á þessu tímabili. Útflutningsbannið hafði í för með sér gífurlegan kostnað fyrir fiskvinnslufyrirtækin, þar sem ekki var hægt að afskipa framleiðslunni, og þurftu því fyrirtækin að greiða mikla vexti af birgðunum sem þannig var haldið hér heima með þessum aðgerðum. Og má þar nefna, að Fiskimjöls- verksmiðja Einars Sigurðssonar greiddi 60 millj. kr. í vexti vegna útflutningsbannsins, en þá upp- hæð má tvöfalda miðað við verð- lag í dag. Bönnuöu loðnulöndun án þess að vera í deilu Þá var hér sett á vaktavinnu- bann og bann við móttöku loðnu í júlí og fram til 7. ágúst 1978, og var þetta eini staðurinn á landinu fyrir utan Siglufjörð, sem bjó við þetta ástand, en á Siglufirði var deila milli verkalýðsfélagsins og Síldarverksmiðja ríkisins um Þeir kynntu erindin sem flytja á a ársfundi Rannsóknaráðs ríkisins fyrir blaðamönnum. Fyrir borðsendanum situr dr. Vilhjálmur Lúðvíksson. framkvæmdastjóri Iiannsóknaráðsins. Ljósm. mu. Rax. Arsfundur Rann- sóknaráðs ríkisins Jón Kjartansson. Ljósm. Mbl. Sigurgeir i Eyjum vinnutilhögun í verksmiðjum S.R., og var félagið í Eyjum á engan hátt aðili í þeirri deilu. Það var ekki fyrr en eftir afskipti bæjaryfirvalda hér að Verkalýðsfélagið aflétti löndunar- og vaktavinnubanninu. Vegna meintra svika ríkisstjórnar Á árinu 1979 kom upp mjög sérstæð deila hér í Eyjum, en hún var á þá leið, að Verkakvennafé- lagið Snót bannaði félagsmönnum sínum að vinna eftirvinnu á föstu- dögum frá 15. apríl, vegna meintra svika þáverandi ríkisstjórnar á loforðum í sambandi við félags- málapakkann, en þar hafði ASÍ gert kröfu um niðurfellingu á eftirvinnu í áföngum, Vinnuveit- endur bentu á að þarna væru þeir dregnir inn í deilu verkalýðsfélaga og stjórnvalda, enda hafði ekkert samráð verið haft við þá um framkvæmd félagsmálapakkans, og því mjög óeðlilegt að láta þetta bitna á fyrirtækjum úti í Vest- mannaeyjum. Eftirvinnubannið á föstudögum féll niður af sjálfu sér 1. júní 1979. Var Snót eina félagið á öllu landinu sem fór í þessar aðgerðir. Eg hef nú rakið það helsta í vinnudeilum hér í Eyjum á undan- förnu 2‘/2 ári, á milli verkalýðsfé- laga og atvinnurekenda. Þrátt fyrir þessi miklu átök sem áttu sér stað á árinu 1978, hafa samskipti Cr fiskvinnslunni. Vinnuveitendafélags Vestmanna- eyja og Verkalýðsfélags Vest- mannaeyja og Snótar verið á margan hátt góð. í því sambandi vil ég segja frá einu máli sem kom upp vorið 1978, mitt í öllu útflutningsbanninu. Á fundi með forystumönnum vinnuveitenda og atvinnurekenda í apríl 1978 var rætt um fram- kvæmd laga og reglugerðar um orlof, en þá hafði áður verið minnst á það hvort ekki væri mögulegt að ávaxta orlofsfé starfsfólks frystihúsanna hér heima. Eftir að hafa grandskoðað reglugerð um orlof, sem þá var í gildi, varð að samkomulagi að gera sérstakan samning um fram- kvæmd orlofsgreiðslna, ávöxtun o.fl. Tók samkomulagið gildi frá 1. maí 1978, þ.e. í byrjun orlofsárs, og tók Útvegsbankinn að sér geymslu orlofsfjárins og greiddi fyrir það almenna innlánsvexti. Áðilar að þessu samkomulagi voru Verkalýðsfélag Vm., Snót og fisk- vinnslufyrirtækin. Síðan gerðist bæjarsjóður aðili að samkomulag- inu og einnig hafa nokkur fyrir- tæki tekið þetta upp og lagt inn fé á orlofsreikninga í Útvegsbankan- um. Þá mun eitthvað um það að fyrirtæki hafi orlofsreikninga fyrir starfsmenn í Sparisjóðnum. Að ávaxta orlofsfé á hagkvæmastan hátt Ekki hafði þetta samkomulag verið lengi í gildi þegar lögfræð- ingur Pósts og síma svo og for- stöðumaður Póstgíróstofunnar í Reykjavík fóru að láta heyra í sér vegna þessa. Kom lögfræðingur- inn til Eyja um haustið og hélt fundi með aðilum, en allir stóðu fast saman og lögðu á það áherslu, að í reglugerð um orlof væri gert ráð fyrir að ávaxta ætti það á sem hagkvæmastan hátt. En almennir innlánsvextir voru og eru mun hærri en þeir vextir sem Póstgíró- stofan greiðir. Með nýjum orlofs- lögum sl. vor hækkaði Pósturinn vextina í 11%, en vextir af orlofsfé starfsfólks á orlofsreikningum hér er nú 31%. Á Alþingi hefur nú verið lögð fram tillaga sem gerir ráð fyrir því að geymsla orlofs geti farið fram á viðkomandi stað með sérstöku samkomulagi milli vinnuveitenda og verkalýðsfélaga. Er því vonandi að fullur sigur vinnist í þessu máli, en þarna vorum við Vestmannaeyingar fyrstir til að gera slíkt samkomu- lag. Á fyrsta orlofsári sem sam- komulagiö gilti, þ.e. 1. maí 1978 til 30. apríl 1979, voru lagðar inn á orlofsreikninga kr. 236.7 millj. og greiddir vextir kr. 26.7 millj. og frá 1. maí 1979 til 24. jan. sl. var búið að leggja inn kr. 235 millj. á orlofsreikninga. Af þessu sést hve þýðingarmikið það er fyrir okkur Eyjamenn að halda slíkum fjár- munum hér innanbæjar til ávöxt- unar í stað þess að senda þessa peninga til Reykjavíkur. Að mínu áliti er samkomulagið um orlof ánægjulegasti atburðurinn sem samtök atvinnurekenda og verka- lýðsfélaga hafa gert hér í Eyjum, síðan þessir sömu aðilar gengust fyrir stofnun Lífeyrissjóðs Vest- mannaeyinga á sínum tíma, þrátt fyrir andstöðu ýmissa aðila í Reykjavík. ÁRSFÚNDUR líannsóknaráðs ríkisins hefst í Háskólabíói n.k. föstudag kl. 14 með ávarpi menntamálaráðherra. Ingvars Gíslasonar. formanns ráðsins. Á fundinum verða siðan flutt 5 erindi en formaður framkva>mda- nefndaj Rannsóknaráðs. Ilar- aldur Ásgeirsson, mun slíta fund- inum. Auk þessa verður i anddyri Háskólabíós sýning frá ran- nsóknastofnunum atvinnuveg- anna og loks mun á fundinum koma út ársskýrsla Rannsúkna- ráðs ríkisins fyrir árið 1978 og 1979. í skýrslunni er greinargerð um störf ráðsins þessi tvö ár auk þess sem þar er m.a. að finna yfirlit yfir allar rannsóknastofn- anir scm starfa á sviði raunvís- inda. 0.71% af framleiðslu- tekjum varið til rannsóknastarfa Á fundi sem fréttamenn voru boðaðir til hjá Rannsóknaráði ríkisins vegna fyrirhugaðs árs- fundar var gerð grein fyrir þeim erindum sem haldin verða. Dr. Vilhjálmur Lúðvíksson fram- kvæmdastjóri Rannsóknaráðs ríkisins mun ræða um rannsókna- starfsemi og þjóðarbúskapinn. Byggir hann erindi sitt á könnun sem Rannsóknaráð ríkisins gerði árið 1977 um það hversu miklu fjármagni er varið til rannsókna- og þróunarstarfsemi hér á landi og hve margir taki þátt í slíkum störfum. Upplýsinga er aflað og niðurstöður unnar í samræmi við skilgreiningar sem settar eru fram af Efnahags- og framfara- stofnuninni og í tengslum við sams konar athuganir í öðrum löndum. Helstu niðurstöður könnunar- innar eru þær að árið 1977 vörðu íslendingar 2583 milljónum króna til hreinnar rannsókna- og þróun- arstarfsemi sem er 0,71% af vergri þjóðarframleiðslu það árið. Við rannsóknastörf var unnið sem svarar 631 ársverki sem er 0,63% af þeim ársverkum sem unnin voru þ'að árið. í samanburði við OECD lönd eru íslendingar í 4.-5. neðsta sæti þegar miðað er við fjármagn til rannsókna- og þróun- arstarfa sem hundraðshluta þjóð- artekna. Landgræðsluáætlunin og áhrif náttúrufars á mannvirkjagorð Dr. Björn Sigurbjörnsson flytur næst erindi um rannsóknir vegna landgræðsluáætlunar 1975—1979, hinnar svokölluðu þjóðargjafar, þ.e. landnýtingartilraunir, vist- fræðirannsóknir og gróðurkorta- gerð. Þá mun Ríkharður Kristjánsson flytja erindi eftir Hákon Olafsson um áhrif náttúrufars á mann- virkjagerð. Hákon er á námsferða- lagi í Bandaríkjunum og getur því ekki flutt erindið sjálfur. Hann gerir m.a. grein fyrir hvaða nátt- úrufarslegir þættir valda sérstök- um erfiðleikum í Reykjavík og lágmarkstíðni alvarlegra alkalí- skemmda í Reykjavík og nágrenni. Kemur þar í ljós að engar al- kalískemmdir eru í Keflavík en vandamál vegna alkalískemmda er mjög mikið og alvarlegt vanda- mál í Reykjavík. Loks fjallar Hákon um fjárhagslegan ávinning rannsókna á sviði byggingariðnað- arins. Raunhæft að veiða 200 þúsund tonn af kolmunna á ári Þriðja erindið flytur Sigurjón Arason um kolmunnatilraunir sem gerðar voru á sl. ári. Niður- staða þessara tilrauna er sú að kolmunnaveiðar við Island eiga að geta aukist verulega og raunhæft væri að stefna að a.m.k. 200 þúsund tonna veiði árlega. Sigur- jón gerir ráð fyrir því að nýtingin á þessum 200 þúsund tonnum verði 25.000 tonn í skreiðarverkun og 175.000 tonn í fiskmjölsvinnslu. Söluverðmæti kolmunnaafurð- anna yrði þá 10.800 milljónir. Ef áætlaður olíukostnaður er dreginn frá kemur í ljós að verðmætasköp- un við kolmunnaveiðar ætti að geta orðið 7.600 milljónir króna. Mikið óunnið í rannsókn háhitasvæða Loks mun Sveinbjörn Björnsson frá Raunvísindastofnun Háskól- ans flytja erindi um rannsóknir og undirbúning virkjunar háhita- svæða. Þar kemur það m.a. fram að Islendingar eiga mikið óunnið í rannsókn háhitasvæða. Tillögur Sveinbjörns eru að við eigum að stefna markvisst að því að ljúka forathugun og frumhönnun álit- legustu virkjunarstaðanna svo að þeir geti verið tiltækir þegar tækifæri til nýtingar koma. Að lokum segir Sveinbjörn að auka þurfi tilraunir í vinnslutækni jarðhita og taka skipulag vinnslu háhita fastari tökum í sterkri stofnun sem annast vinnslutækni og gerð háhitavirkjana á svipaðan hátt og Landsvirkjun gerð vatns- orkuvera. Frá Eyjum. EFÞAÐERFRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.