Morgunblaðið - 13.03.1980, Page 36

Morgunblaðið - 13.03.1980, Page 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. MARZ 1980 Oddur A. Sigurjónsson: Aðfaraorð Tæplega verður hjá því komizt, að rifja stuttlega upp framvind- una í rösklega 30 ára sögu íslenzkra skólamála, ef við ætlum að meta, hvernig til hefur tekizt. En ástæðulaust er, að dvelja lengi við hvern þátt, þar eð nokkuð rækilegar umræður fóru fram nokkuð frameftir líðandi áratug. Því verður aðeins stiklað hér á hinu stærsta. Fræðslulögin frá 1946 verða þá fyrst fyrir. Þvínæst reynt áð meta hverju þau skiluðu okkur og loks fjallaði um ríkjandi ástand. Þá verður trauðla komizt hjá því, að minnast á breyttar aðstæð- ur um menntun kennara, svo mjög sem fræðslan er háð þeim þætti. Enn má bæta við nokkrum um- ræðum um handfjöllun æðstu yf- irvalda skólanna. Brotið blað Veigamestu breytingar á stefnu og starfi framhaldsskólanna á lægri stigum voru þrjár, þó fleira og smærra kæmi einnig til. 1. Gerð var ákveðin stefnumörkun í bóknámi um tengingu við nám í æðri skólum, s.s. með upptöku landsprófs þar sem gagnfræða- skólarnir fengu samræmd rétt- indi, til að koma nemendum sínum, t.d. í menntaskóla og kennaraskóla, stæðust þeir landspróf með tilskildum ár- angri. 2. Skipta mátti nemendum í verk- náms- og bóknámsdeildir með talsvert frábrugðnum náms- skrám. 3. Skólaskylda var lengd um eitt ár. Verður nú vikið að hverju þess- ara atriða fyrir sig. Um hið fyrsta má segja, að það náði víðast hvar þeim árangri, sem til var ætlazt þar sem skortur hæfra kennara stóð ekki í vegi. Var hér um að ræða þýðingarmikla réttarbót fyrir skólana — einkum í dreifbýl- inu — ekki sízt fyrir möguleikana til að geta numið í heimahögum ári lengur en áður. I reynd var 2. liður fremur viljayfirlýsing, að vísu tímabær og merkileg. Hún kom, eða gat kom- ið, að fullu gagni þar, sem aðstæð- ur voru fyrir hendi til að fram- fylgja henni, svo og vilji skólayf- irvalda í héraði. Því miður var þetta hvorugt víða fyrir hendi og loks hlaut það að krefja rækilegs undirbúnings og þar með hafa langan aðdraganda. Þá voru lok þessarar brautar í nokkurri óvissu, einkum um rétt- indi, sem nemendur hlytu að loknu námi. Um lengingu skólaskyldunnar er það helzt að segja, að hún átti að vera til að grunnfesta rétt ungmenna til frekara náms en áður. Hér var einkum stefnt að því, að unglingar í dreifbýlinu færu ekki á mis við skólagöngu, svo sem nokkuð hafði borið á og misgengjust þannig miðað við þéttbýli. Raunasagan af þessari viðleitni varð hins vegar sú, að dreifbýlis- menn hömuðust gegn þessum rétt- indum, unz þeir fengu því fram- gengt, að undanþágur voru gefnar. Framkvæmd laganna Þar sem þessi lög voru rúm rammalög, sem var í alla staði skynsamlegt, skipti auðvitað mestu máli hvernig úr þeim ynn- ist. Því varð það sammæli á fundi, sem Fræðslumálastjóri kallaði saman með skólastjórum að óska eftir því, að reglugerðum yrði ekki hraðað, en skólastjórar ættu þess kost að hittast árlega og bera saman bækur sínar um fram- kvæmd laganna. Voru slíkir fund- ir haldnir á hverju vori og má óhætt fullyrða, að þeir voru hinir gagnlegustu fyrir bæði skólayfir- völd og nemendur. Upphaflega mun hafa verið ætl- azt til að skólaskyldunni lyki með landsprófi, sem allir nemendur -gengju undir, enda voru tvenn mörk, sem nemendur gátu keppt að og þó staðizt prófið en með misjöfnum réttindum. Fljótlega kom í ljós, sem engum skólamanni mun hafa komið á óvart, að nemendur voru æði misjafnlega í stakk búnir bæði að þroska og námsgetu, til þess að keppa að hinu svokallaða efra marki. Því reyndist fljótlega nauðsyn- legt að lina nokkuð á kröfum fyrir þá, sem lakar stóðu. Þýddi það raunar, að vildu menn keppa að efra marki, gat það seinkað för- inni um eitt til tvö ár. Hins vegar va það sammæli, að lækka ekki kröfur til þeirra, sem hugðu á framhaldsnám, enda myndi það hafa þann árangur einan að kunn- áttustaðall hrapaði. Reynslan af þessum háttum varð svo, að um það bil fjórðungur nemenda var þess umkominn að geta haldið hik- og tafarlaust sitt strik í námi. En hinum seinfærari var á engan hátt bægt frá, þó þeim gengi nokkru hægar. Síðan þróuðust málin þannig, að fjórði bekkur var stofnaður og varð skólalok fyrir þá, sem ekki hugðu á framhaldsnám, en gagn- fræðapróf en við það voru frá fyrri tímum bundin nokkur starfsrétt- indi. , Þá gerðu ýmsir skólar nokkurt átak, til að koma frekar á móts við þarfir hinna seinfærustu eftir því sem ástæður leyfðu. Sjöundi áratugurinn varð nokk- uð róstusamur í skólamálum álf- unnar og víðar. Bar þar mest á allskonar kröfugerðum nemenda og gjarnan um gerbreytta skóla- hætti bæði um kennslu, námsefni o.fl. Sumt af þessu átti rétt á sér, enda væri þá skynsamlega á málum haldið af hálfu skólanna og varast kollsteypur, sem sjaldan kunna góðri lukku að stýra, sízt í skóiamálum, sem þarfnast fremur hægfara þróunar en einhvers gusugangs. öldur af þessum hrær- ingum bárust vitanlega hingað. Sálfræðingaþáttur Fremur skammt er síðan svo- kallaðir sálfræðingar tóku að skjóta hér rótum, þó nú vaxi með álíka hraða hér í mannfélagsakr- inum og ýmsar óþurftaplöntur áður. Þegar alls er gætt, er starfsheit- ið sjálft ærið vafasamt, að minnsta kosti ef það ætti að benda til váindanáms og vinnubragða. Flestum kemur saman um, að mannssálin muni -eitt af því fáa, sem ekki verður sett í tölvu, til þess að fá marktækar niðurstöður. Eigi að síður virðist þessu fólki mikið í mun að hafa á sér vísindalegt yfirbragð og fetar þar í slóð hinna fornu alkemista, sem nefndir hafa verið „gullgerðar- menn“ á íslenzku og fyrirfundust við hirðir fákænna en gírugra kónga á miðöldum. Þóttust þeir geta breytt öðrum málmum í gull með ýmsum fáránlegum og herfi- legum skrípalátum, og voru ýmsir sem trúðu. Samkvæmt eðli málsins og vegna hins geysi-fjölbreytilega geðslags og gáfnafars manna, get- ur hér ekki verið um að ræða nein vísind. En vitanlega er hægt að hauga saman tilgátum — teoríum — sem geta passað við einn og einn, enda deilast skoðanir allvíða í hópi „fræðinganna". í heild virðist mér afraksturinn Oddur A. Sigurjónsson. ekki óáþekkur því, sem þjóðsögur herma, þegar seiðskrattar galdra- aldar voru að losa sig við tilbera og sendu þá upp á öræfi, til þess að tína saman lambaspörð á nógu víðu svæði að það yrði þeim að aldurtila. Neytt er ýmissa bragða til þess að gera allskonar framslátt trú- legri um kunnáttu þeirra í „sálar- fræðum". Þar á meðal, að taka líkingadæmi af t.d. hrútum eða öðrum ferfætlingum. Það mun vera nokkuð öruggt, að blessaðar skepnurnar séu ólíklegar til að geta andæft á prenti ýmsum firrum, sem þær eru þannig gædd- ar í „lærðum orðræðum" fræð- inganna. Hitt er og líklegt, að þeim lægi í léttu rúmi þvílíkt flapur, þó skilið gætu. Telja verður það eitt af „undr- um íslands“, hve margir af fyrir- mönnum í menntamálum hér hafa látið glepjast, þó jafnvel vits- muna- og kunnáttuskorti væri ekki til að dreifa, að ekki sé talað um hina. Eru dæmi um það bæði nærtæk og furðuleg, s.s. að sálfræðingum er ætlað, skv. núverandi fræðslu- lögum, að vera einskonar ríki í ríkinu innan skóla og standa utan við valdsvið skólastjóra að mestu. Verður nú um sinn vikið að öðrum. Fræðslulögin 1974 Um og undir áratugamótin (’60—’70) var komin töluverð hreyfing einkum meðal hinna ný- vígðu menningarfrömuða (?) um að nauðsyn bæri til að setja ný fræðslulög. Var óspart vitnað í Svía, sem hefðu nú með höndum gerbreytingu á fræðslukerfi sínu. Var sú staðreynd þyngstu rökin fyrir bráðri þörf okkar til breyt- inga. Þá var komið á allgott skipu- lagslegt samræmi í undirbúningi og og framkvæmd framhaldsskól- anna og með batnandi hag myndi geta tekizt að koma í framkvæmd verknámi, enda nokkuð verið að því unnið, þó of seint gengi. Dreifbýlismenn höfðu nú söðlað um í viðhorfi til skólaskyldu og höfðu uppi háværa kveinstafi um það misrétti (!) sem þeir væru beittir. Svokallaðir sálfræðingar, upp- eldisfræðingar og félagsráðgjafar, en tvær síðartöldu stéttir voru í örum vexti að tölu til, ruddust um fast og tókst ótrúlega vel að ná eyrum ráðamanna, fengu þess vegna óeðlilega mikil ítök í fyrir- ætlunum. Var nú hafizt handa um, að umskapa íslenzkt fræðslukerfi „á svenskra móð“, þótt engin raun væri á hann komin. Óhætt er að segja, að meirihluti skólastjóra og yfirleitt reyndari menn í þeim hópi, lét sér fátt um finnast og þæfðust við. Alþingis- menn voru og margir dauftrúaðir á hið sænska Evangelium. A almanna vitorði er, að þegar þetta laga-óbermi var loks kreist í gegnum Alþingi, var það raun- verulega gegn vilja meirihluta þings, en talin notuð handbrögð, sem enskir kalla „Black mail“. En undanfari þessa var furðu- legt ævintýri. Menntamálaráð- herra í vinstri stjórn Ólafs Jó- hannessonar skipaði 5 manna nefnd til að leggja síðustu hönd á frumvarp. Til þess voru valdir menn, sem með einni undantekn- ingu höfðu ekki komið nálægt rekstri skóla og fyrir afrekum þessa eina var yfirleitt ekki hróp- að húrra. Arangurinn varð að vonum. Frumvarpið og þar með lögin líktust engu meir en illa gerðum graut, þar sem saman var sullað ákvæðum, sem ýmist áttu heima í lagasetningu eða reglugerðum og margt afgreitt með hálfyrðum. Þessi „flauelsgrautur" er svo und- irstaða fræðslukerfisins nú. En það var meira blóð í kúnni. Starfsskilyrði skólastjóra voru stórlega skert með setningu alls- konar „ráða“, s.s. kennararáða og nemendaráða, að ógleymdu hinu „æðsta ráði“ í ráðuneyti mennta- mála í höfuðstaðnum, sem sí og æ var káfandi ofan í skólastarfið með ótímabærum og óraunhæfum fyrirmælum. Þar voru mest að verki sömu „flauelsgrautargreif- arnir", sem höfðu ráðið síðustu gerð laganna. Samræmingin, sem náðzt hafði í framkvæmd námsins, var tætt sundur, lögð áherzla á, að flokka ekki nemendur með svipaða náms- getu saman í bekksagnir, en þess í stað sulla saman fólki af öllum getustigum og til þess að fela umkomuleysið var svo stórdregið úr námskröfum og linað á eðli- legum aga. Minna má á feluleikinn um einkunnagjafir, að ekki sé nú talað um „kúrfuteikningar" þar sem nemendur voru fyrirfram flokkað- ir með námsárangur allt frá 0-10. Kennaramenntunin Ég hygg, og það mun vera almennt viðurkennt af málsmet- andi mönnum, að allt frá því að Kennaraskólinn var stofnaður, hafi hann staðið vel fyrir sínu. Hann naut löngum forystu ágætra manna, sem skildu að fræðsla verður að þróast eftir ákveðnum stefnumörkunum og þar verður yfirleitt ekki gengið á sjö mílna skóm. Hitt var svo annað mál, að vel fór á að auka við nám þar meðan reist var á fornum grunni. Því mátti teljast fullkomlega tíma- bært að auka við skólann með stúdentsprófsréttindum, sem og gert var. Var þá hægt að huga að því að koma í framtíðinni upp háskóladeild við Háskóla íslands fyrir kennara, sem æsktu frekara náms. Eðlilegt var í alla staði, að í þá deild ættu aðeins að hafa rétt stúdentar úr kennaraskólanum, sem hefðu notið undirstöðumennt- unar úr þeim skóla. En ofsi hinna skammsýnu út- lendingadindla var slíkur, að það þótti ekki annað hæfa en að gera Kennaraskólann nær því beint að Kennaraháskóla! Sýnt var, að þar með mundi fljótlega slitna.þráðurinn við und- irstöðumenntun kennara, að því svo viðbættu, að íslenzka ríkinu hefur ekki orðið allt of auðvelt að halda uppi háskólanámi í einum háskóla hvað þá tveim, ef nafn ætti að vera gefandi þeirri starf- semi. Arangurinn af þessu flani lét ekki lengi á sér standa. Nú sitjum við upp án almenns kenn- araskóla, en með þessa háskóla- písl, sem auðvitað er hvorki fugl né fiskur sem háskóli. En nú kynni einhver að spyrja. Hvað þekkir þú þarna til? Er þetta ekki hreinn sleggjudómur? Vissulega getur það hent mig, að fella sleggjudóm og málefnisins vegna vildi ég gjarnan að svo væri hér. En því miður er ekki þannig málum háttað. Ég leyfi mér að benda á hinn fræga námsvísi í Breiðholti, sem höfundar telja sig þurfa að láta fylgja orðskýringar vegna lítt eða ekki skiljanlegs orðfæris. Enn- fremur allar kennsluleiðbein- ingarnar með nýjum kennslubók- um, sem þurfa þykir að láta fylgja og nema tugum blaðsíðna ef ekki hundruðum. Ætla má, að skólinn þekki nokkuð sitt heimafólk. Hvílík er sú reisn, sem íslenzk- um kennurum er ætluð? Og hvað hefur þetta blessað fólk verið að gera á námstímanum? Spyr sá, sem ekki veit, en vildi gjarnan fá upplýst. Eru þetta nokkuð annað en tilburðir blinds, til að leiða blind- an? Stjórn menntamálanna Algengt er að heyra því fram haldið, að dýrsta eign hverrar þjóðar sé góð menntun landsins barna. Hefur vissulega oft verið meira logið. En þá skyldum við halda, að þurfa þætti að vanda sérlega vel til þegar ráða á æðstu yfirmenn menntamálanna. Velja til þess menn, sem hafa í senn kunnáttu, yfirsýn og vilja til að handleika þetta fjöregg. En hefur þetta verið raunin? Svipist menn nú um bekki. Er ekki leyfilegt að efast um vandað val, þegar við vitum, að starfi ráðherra hefur verið fleygt í mann með rífa barnaskólakunn- áttu? Eða þegar við heyrum ráð- herra úthella þeirri vizku(?) yfir landslýð, að menn, sem hafi setið 9 ár í grunnskóla, séu færir í hvað sem er. Eða fréttum það — sannfréttum — að ráðherra eyði tíma sínum í að undirrita 1600 setningarbréf til kennara, sem liðleg skrifstofudama hefði auð- vitað getað gert í hans umboði, sennilega betur og á skemmri tíma. Væri nokkur furða þótt óspilltum almenningi, sem kynn- ist svona vinnubrögðum og fram- slætti, dytti öðru fremur í hug naut í álögum? Naumast er unnt að hugsa sér virðulegra eða þjóðnýtara verk- efni en yfirstjórn menntamálanna ef menn hafa getu og umfram allt vilja til að setja metnað í að rækja starfið sómasamlega. Það getur kostað átök og íhygli. En slíkt má aldrei leiða til þess að óvöldu fólki sé fengið í hendur að gæta festarendans. Þess verður að krefjast af ráðamönnum, að þeir séu ekki sífellt að „sóa kröftum sínum á veiku tökin". Getum við ekki verið sammála Einari Ben um að það, „Að skiljist við æfinn- ar æðsta verk í annars hönd, er dauðasökin"? Krafan, sem sett hefur verið fram hér að ofan um skilyrðis- lausa hæfni menntamálaráðherra, ætti ekki að vera áhorfs- eða deilumál. Ótrúlegt er, að slíkur maður fyndist ekki, ef leitað er í alvöru og einlægni. Þeir eru vissulega margir, sem hafa horft með vaxandi ugg á framvindu síðustu ára í skólamál- um okkar, þótt lítið hafi farið fyrir umræðum. Að mínu mati dugir ekkert minna en að skera upp herör gegn þeim ófarnaði, sem hlýtur að leiða af því að halda Yerðum við hyggn- ari af þegar skeðum skaða?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.