Morgunblaðið - 13.03.1980, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 13.03.1980, Qupperneq 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. MARZ 1980 t Eiginmaöur minn og faöir okkar JOHANN G. GUÐMUNDSSON Stóövarstjóri pósts og síma, Akureyri, andaöist 11. marz. Hjördís Óladóttir og börn. t Dóttir okkar ÞURÍÐUR INGIBJÖRG ÞÓRARINSDÓTTIR er látin. Sólveig Magnúsdóttir, Þórarinn Guómundsson Móöir okkar og amma GUDRÚN SVEINSDÓTTIR, frá Hvammstanga lést í Borgarspítalanum 11. marz. Jaröarförin auglýst síöar. Sigríóur Þóróardóttir, Debóra Þóröardóttir, Þuríöur Þóröardóttir, Sveínn Þóröarson Þór Magnússon. t Bróöir minn, ÞORBERGUR SVEINSSON frá Setbergi, Akranesi er látinn. Jónína Sveinsdóttir. t Elskuleg móðir mín, dóttir, systir og fóstursystir GUÐRÍÐUR ÓLAFSDÓTTIR Fannborg 1, Kópavogi lést á Borgarspítalanum mánudaginn 10. marz. Útför hennar veröur gerö frá Kópavogskirkju mánudaginn 17. marz kl. 14.00. Ingólfur Þór Björnsson, Sígríöur J. Tómasdóttir, systkini og fóstursystur. t Faöir okkar, stjúpi, tengdafaðir, afi og langafi ODDSTEINN GÍSLASON Efstasundi 13, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 14. marz kl. 10.30. Börnin. t Bróöir minn HAUKUR VIGFUSSON, Auðbrekku 29, Kópavogi, verður jarösunginn frá Fossvogskirkju, föstudaginn 14. marz kl. 1.30. Sigurður Vigfússon. t Útför sonar míns GUNNARS AÐALSTEINSSONAR, vélstjóra, sem lést hinn 8. þ.m. fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 13. þ.m. kl. 3 síödegis. Sólveig Helgadóttir. t Þökkum innilega samúö og vinarhug vegna andláts fööur okkar ÓLAFS GÍSLASONAR, Hestgeröi, Suðursveit. Björn Ólafsson, Jóhanna Ólafsdóttir, Rósa Ólafsdóttir, Torfhildur Ólafsdóttir, og fjölskyldur. Minning Hrefna Ólafsdóttir yfirhjúkrunarkona Fædd 23. júní 1918. Dáin 5. mars 1980 Hrefna Ólafsdóttir fæddist í Reykjavík og voru foreldrar henn- ar Olafur Elíasson húsasmíða- meistari og Ólafía Vigfúsdóttir. Foreldra sína missti hún á unga aldri og ólst þvi upp hjá skyldfólki sínu. Hrefna lauk prófi frá Kvenna- skólanum í Reykjavík 1934 og prófi frá Hjúkrunarskóla íslands árið 1941. Starfaði hún jafnan síðan við hjúkrun, fyrst á fæð- ingardeild Landspítalans í mörg ár, deildarhjúkrunarkona við Holdsveikraspítalann í Kópavogi og síðan yfirhjúkrunarkona á Kópavogshæli frá 1964 til dauða- dags. Arið 1941 giftist hún Jóni Sumarliðasyni bifreiðaeftirlits- manni en hann andaðist 8. maí 1976. Börn þeirra hjóna eru: Ólafur Reynir, iðnaðarmaður, búsettur í Svíþjóð og á hann eitt barn, Kristin Frey; Guðrún Sif, gift Davíð Guðmundssyni frkvstj., og eiga þau tvö börn, Andrés Jón og Bríetu; Hallgrímur Smári verslun- arstj., giftur Jóhönnu Bergmann og eiga þau tvö börn, Hrefnu og Jón. Ég kynntist þeim Hrefnu og Jóni er ég fluttist í Kópavog 1951. Heimili þeirra var með miklum myndarbrag og því oft mjög gestkvæmt, enda vinir og kunn- ingjar margir. Það kom því í hlut húsmóðurinnar, auk útivinnunar, að sjá um margþætt heimilisstörf og var það ærið álag en alltaf var hún kát og hress í dagsins önn. Hún var velviljuð, hafði samúð með þeim sem höfðu orðið undir í lífsbaráttunni og lagði ekki illt til nokkurs manns. Æviskeiðið er nú á enda runnið og hennar er sárt saknað á hælinu í Kópavogi, þar sem hún vann hin síðari ár, vel virt og metin af öllum jafnt sjuklingum sem sam- starfsfólki. Við þökkum henni samfylgdina og óskum henni velfarnaðar á nýjum leiðum. Aðstandendum sendi ég samúð- arkveðjur. Jósafat J. Líndal. Hrefna Ólafsdóttir var fædd í Reykjavík, 23. júní 1918, dóttir hjónanna Ólafs Elíassonar húsa- smíðameistara í Reykjavík og Ólafíu Vigfúsdóttur konu hans. Hún lauk námi við H.S.Í. í maí 1941. Sama ár giftist hún Jóni Sumarliðasyni bifreiðaeftirlits- manni og bjuggu þau lengst af í Kópavogi. Börn þeirra eru þrjú, Ólafur Reynir, Guðrún Sif og Hallgrímur Smári. A árunum 1952—61 vann hún á sumrin í afleysingum á Land- spítalanum, en árið 1962 hóf hún störf á Kópavogshæli. Vinnudagur hennar þar varð langur, hún vann óslitið í 18 ár á þeim stað, lengst af sem yfirhjúkrunarkona, jafn- Minning Haraldur Halldórs- son fyrrv. bóndi Fyrir nokkru komst í tal milli undirritaðs og sonar Haralds Halldórssonar á Efri-Rauðalæk, að engin minningargrein hafði birtst í tilefni andláts hans. Lauk hann samtalinu með því, að ég lofaði að skrifa nokkrar línur til minningar um vin minn, Harald, en nú eru liðin nærri því tvö ár síðan hann lést. Haraldur var fæddur að Syðri-Rauðalæk 13. október 1897. Foreldrar hans voru Valgerður Runólfsdóttir, Syðri- Rauðalæk, og Halldór Magnússon heimilismaður þar. Haraldur ólst upp á Syðri-Rauðalæk undir hand- leiðslu móður sinnar og móður- bróður, Gunnars Runólfssonar, og foreldrar þeirra, Runólfs Hall- dórssonar, hreppsstjóra, og konu hans, Guðnýjar Bjarnadóttur. Barnafræðsla fór að miklu leyti fram í heimahúsum í sveitum landsins á þeim árum, sem Har- aldur var að alast upp. Einn vetur var hann í barnaskólanum á Eyrarbakka hjá Pétri Guð- mundssyni og hafði mjög gott af veru sinni þar. Árin 1913—15 var Haraldur í Flensborgarskóla, en vorið 1918 lauk hann búfræðiprófi frá Hvanneyrarskóla eftir 2 vetur og eitt sumar við verklegt nám. Eftir það fór Haraldur á námskeið í dýralækningum. Stundaði hann dýralækningar í mörg ár meðan lærðir dýralæknar voru fáir og erfitt að ná til þeirra. Haraldur var heppinn og vel að sér í dýralækningum og ávallt reiðu- búínn að gera allt til hjálpar, sem hægt var, þegar til hans var leitað. Eftir að Haraldur lauk námi vann í nokkur ár við búið á Syðri- Rauðalæk, en var þó jafnhliða nokkrar vertíðir á togurum. Árið 1929 hóf Haraldur búskap á Efri-Rauðalæk og bjó þar fyrir- myndarbúi til ársins 1972, en þá tók yngsti sonur hans, Helgi, við jörð og búi. Haraldur giftist 1941 eftirlifandi konu sinni. Ólafíu Sig- urþórsdóttur Ólafssonar frá Gaddastöðum. Veitti Ólafía stóru heimili forstöðu með rausn og myndarbrag, og var ávallt manni sínum samhent í umfangsmiklum búskap. Haraldur var mikill fram- kvæmdamaður, ræktaði jörðina og bætti mikið. Hann var brautryðj- andi í vélvæðingu og framförum í flestu, sem var landbúnaði við- komandi. Haraldur var góður skepnuhirðir, fóðraði vel allan búpening og hafði lag á því að fá góðan arð af búinu. Hann var mikill áhugamaður um búfjár- rækt og var formaður búfjárrækt- arfélaga og Búnaðarfélags Holta- hrepps í mörg ár. Einnig var hann forðagæslumaður í sveit sinni um , margra ára skeið. Haraldur hafði mikinn áhuga á félagsmálum og mörgu því, sem raátti verða til framfara og bætts j hags heimilanna og heildarinnar. Árið 1927 gekkst hann fyrir stofnun .Sjúkrasamlags Holta- hrepps. Mun það hafa verið fyrsta sjúkrasamlagið, sem stofnað var í sveit hér á landi. Hann var formaður sjúkrasamlagsins frá | byrjun og þar til hreppasjúkra- samlög voru lögð niður með breyttum lögum frá Alþingi. Vegna hinna mörgu félagsmála- starfa, sem Haraldur annaðist ásamt dýralækningum, sem voru tímafrekar, var hann oft að heiman og kom sér þá vel að Ólafía hafði þrek og yfirsýn til þess að sjá heimilinu borgið bæði innan húss og utan. Þess ber einnig að geta, að nær alla bú- skapartíð Haralds á Efri-Rauða- læk var þar sami vinnumaðurinn, Jón Sigurðsson, ágætur maður, sem húsbændurnir gátu ávallt treyst fyrir umsjón búsins. Har- aldur hafði mikið yndi af ferðalög- um, en þó sérstaklega ferðum til fjalla og veiðivatna á Landmanna- afrétti. Til veiðivatna fór Harald- ur árlega meðan heilsan entist. Haraldur var bókhneigður og las mikið af góðum bókum m.a. ævisögur og ferðasögur, sem gátu tekið hug hans allan meðan les- málið entist. Börn þeirra hjóna, Ólafíu og Haralds eru Sigrún, gift Eiríki Sigurjónssyni, Lýtingsstöðum, Runólfur bóndi, Syðri-Rauðalæk, giftur Elsí Júníusdóttur, Valur fulltrúi, Hellu, giftur Sigrúnu Bjarnadóttur, Halldór sjómaður, Vestmannaeyjum, giftur Aðal- heiði Sigurgrímsdóttur, og Helgi bóndi, Efri-Rauðalæk, giftur Unni Hróbjartsdóttur. Barnabörn Ól- afíu og Haralds eru 14 að tölu. Hjá þeim hjónum ólust einnig upp að verulegu leyti Vilhjálmur Valde- marsson, Gunnar Torfason, Ragn- ar Helgason og Þór Ostensen. Auk þess voru ávallt mörg börn á Efri-Rauðalæk til sumardvalar. Allur sá fjöldi sem naut um- hyggju og góðvildar hjá Ólafíu og Haraldi í æsku hefir ávallt síðan sýnt þeim tryggð og þakklæti, en þó sérstaklega börn Gunnars Torfasonar. Efri-Rauðalækur er vel í sveit settur, þar er jarðvegur góður, tún grasgefin og haglendi gott. Þar er fagurt útsýni eins og er víða í Holtunum og fjallahringur til- komumikill og víður. I þessu umhverfi ólst Haraldur upp og lifði þar ævina alla. Hann bar mikla tryggð til æskistöðvanna og ættarbyggðar sinnar. Haraldur á Rauðalæk var traustur og ábyggilegur eins og hann átti kyn til. Hann var vinfastur og áhugasamur um allt, sem til heilla horfði og betur mátti fara, eins Gunnar á Syðri- Rauðalæk, móðurbróðir hans, sem hafði hvers manns traust, sem hann þekkti. Haraldur andaðist á sjúkrahús- inu á Selfossi 21. mars 1978. Hann átti við vanheilsu að búa síðustu árin. Reyndi þá á umhyggju til hinstu stundar. Haraldur á Rauðalæk var góður maður og nýtur. Margar góðar minningar eru við hann tengdar og munu þær lengi geymast. Ingólfur Jónsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.