Morgunblaðið - 13.03.1980, Page 39

Morgunblaðið - 13.03.1980, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. MARZ 1980 39 framt því að hún veitti Holds- veikraspítalanum í Kópavogi for- stöðu frá 1963 til 1975, að ekki var lengur þörf fyrir þaístofnun og hún því lögð niður. Öll sín störf vann hún af nærgætni og hlýju, sem gerði hana mjög vinsæla meðal vistfólks og starfsfólks stofnunarinnar. Hún mætti stundvíslega á morgn- ana og mótaði daginn þannig, að öllu var breytt til betri vegar. Hún var alltaf tiltæk hvenær sem hennar var þörf á degi eða nóttu. Fyrir hönd okkar allra, vist- manna og samstarfsmanna þökk- um við henni góða viðkynningu og sendum börnum hennar og öðrum aðstandendum samúðarkveðjur. Ragnhildur Ingibergsdóttir, yfirlæknir. Ég undirrituð vil hér minnast Hrefnu Ólafsdóttur nokkrum orð- um. Fyrstu kynni mín af henni voru þegar ég nýútskrifuð úr Þroskaþjálfaskójanum hóf störf á Kópavogshæli. Ég var þá ung og reynslulítil og þurfti oft að leita ráða hjá mér reyndara fólki, þannig upphófust okkar kynni, sem gegnum árin leiddu til traustrar og góðrar vináttu. Við ræddum oft saman um fleira en vinnuna og kom þá fyrir að talið barst að börnum okkar og þó Hrefnu börn væru löngu uppkom- in myndaðist sú skoðun hjá mér að hún hefði verið ein af þeim konum sem naut þess að vera móðir, og mikil var gleði hennar að afloknu sumarleyfi sem hún hafði átt á erlendri strönd með börnum og barnabörnum. Á hverjum morgni kom hún við hjá mér á leið í vinnu sína, alltaf á sömu mínútunni, sem sýndi henn- ar samviskusemi. Því sló á mig óhug daginn eftir að hún veiktist þegar hún kom ekki á sínum tíma, svo óvenjulegt var það. Hrefna var ekki kona orðmörg, en það sem hún sagði stóð hún við og held ég að hún hafi oft á tíðum verið misskilin, sérstaklega af fólki sem þekkti hana skamman tíma. Hún talaði ekki um sín störf, heldur vann þau af snyrtimennsku og samviskusemi. Einn af hennar góðu eiginleikum kom sér oft vel á okkar fjölmenna vinnustað, það var hvað hún hafði einstaklega gott lag á að gera gott úr því sem aflaga fór og afstýrði oft á sinn hljóðlega hátt leiðindum. Ég veit að margur vistmaðurinn saknar Hrefnu, hún var þeim eins og akkeri í þessum síbreytilega starfsmannafjölda, sérstaklega þeir vistmenn sem bjuggu í starfs- mannahúsinu. Nú hin síðari ár var Hrefna eina starfsmanneskjan sem þar bjó og var hún ævinlega boðin og búin að rétta hjálpar- hönd, þó það væri í hennar hvíldartíma, þar af leiðandi var staða hennar oft ónæðissöm, en undan því kvartaði hún aldrei. Að lokum vil ég fyrir hönd vistmanna og starfsmanna á vinn- ustofum Kópavogshælis votta börnum og öðrum aðstandendum Hrefnu okkar innilegasta samhug, en huggun er harmi gegn, að hún þurfti ekki lengi að líða, því bágt hefði hún átt með að geta ekki verið sjálfbjarga, svo dæmigerð sjálfstæð kona var hún og þannig munum við minnast hennar. Kristjana Sigurðardóttir þroskaþjálfi Okkur þroskaþjálfa langar í fáum orðum að þakka Hrefnu Ólafsdóttur samstarfið á liðnum árum. Við flestar kynntumst ekki aðeins hjúkrunarfræðingnum Hrefnu, heldur líka manneskjunni sem bak við bjó. Hún vildi allra veg sem mestan og deildi með okkur gleði okkar ef vel gekk og áhyggjum ef miður fór. Sama var um samskipti hennar við vistfólk. Þau voru mjög góð og ég veit að hennar verður sárt saknað af vistfólkinu í sambýli sem átti hauk í horni þar sem hún var. Börnum hennar og öðrum að- standendum sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur. Hafi hún þökk fyrir allt og allt. Þroskaþjálfar á Kópavogshæli. Jónas Sigurðsson — Minningarorð Fæddur 19. desember 1899. Dáinn 12. febrúar 1980. Margt kemur í hugann, þegar vinur kveður og hverfur til ann- arra dvalarstaða tilverunnar, sem lítt eru kunnir þeim, sem eftir eru og bíða síns tíma. Okkur verður þá fyrst fyrir, að minnast góðra kynna við horfinn samferðamann, og þótt lífsleið hans hafi verið löng orðin, hnykk- ir manni ætíð við, að heyra andlátsfregn, þess sem lengi hefur verið með okkur á vegi lífsins. Jónas Sigurðsson er fæddur hinn 19. desember 1899 að Ystuvík í Þingeyjarsýslu (við Eyjafjörð austanverðan) og ólst upp hjá foreldrum sínum. Þau systkinin voru sex og eru enn 4 þeirra á lífi. Foreldrar hans voru hjónin Guð- rún Jónasdóttir og Sigurður V. Guðmundsson, bóndi í Ystuvík, síðar fiskimatsmaður á Akureyri. Árið 1925 giftist Jónas Rósu Kristjánsdóttur frá Jódísar- stöðum í Eyjafirði (F. 3. júní 1895). Þau voru þá bæði starfandi við smjörlíkisgerð á ísafirði, og áttu þar heima í fimm ár eftir það. Til Reykjavíkur fluttu þau árið 1930 og komu sér upp stóru húsi og fallegu heimili við Laugarnes- veg 45 og áttu þar heima síðan. Jónas vann fyrst í allmörg ár í smjörlíkisgerðinni Ljóma og stjórnaði þeirri framleiðslu, enda iðnlærður í þeirri grein. Síðan vann hann við akstur í fáein ár. Þá vann hann næst um nokkurra ára skeið í Rúgbrauðsgerðinni í Borg- artúni og sá um smjörlíkisfram- leiðslu þess fyrirtækis. Síðan tók hann aftur upp starf við leigu- bílaakstur, og var það hans aðal- starf eftir það. Fórst honum það svo vel úr hendi að aldrei olli hann slysi eða varð fyrir slysi í því starfi. Þau Jónas og Rósa eignuðust þrjú börn, sem öll eru á lífi. Elst er Guðrún Elín, fædd 26. janúar 1926 á ísafirði, sama daginn og bæjarbúar þar voru að fagna komu sólarinnar, og drekka sól- arkaffið í tilefni þess, eins og þar er venja. Guðrún Elín er gift Vigfúsi Guðmundssyni, trésmið og eiga þau 7 börn. Hin börnin eru fædd í Reykja- vík: Steingrímur (f. 13. ágúst 1933) starfar við fyrirtækið Völur, er giftur Kristrúnu Jónsdóttur og eiga þau saman tvö börn. Auður er yngsta barnið (f. 3. apríl 1936). Hún er búsett í Washington og starfar þar hjá Alþjóðabankanum. Maður hennar er bandarískur, Daniel Williams og stundar fast- eignasölu. Jónas missti konu sína hinn 12. október 1962. Síðustu árin naut hann umönnunar og verndar Þórs Vigfússonar dóttursonar síns og konu hans Bjargar Helgadóttur, en þau hafa átt heima í húsi hans við Laugarnesveginn í allmörg ár. Jónas var jafnan heilsuhraustur maður og gat stundað atvinnu sína óslitið að kalla, þar til seint á síðasta ári, að hann varð fyrir ásókn þess illa sjúkdóms, sem að lokum hafði yfirhöndina. Jónas andaðist í Borgarspítalanum þann 12. febrúar sl. Ég og kona mín, Aðalheiður Tómasdóttir, kynntumst þeim Jónasi og Rósu fljótlega eftir að við fluttum til Reykjavíkur, árið 1939. Jónas vann þá í Smjörlíkis- gerðinni Ljóma, sem fyrr sagði. Þau hjón áttu heima í stóru og fallegu húsi við Laugarnesveginn, og var stór garður í kringum það. Mikið atvinnuleysi var um þetta leyti, og vantaði mig sárlega atvinnu, til að geta komist af og þáði auðvitað hverja þá vinnu sem bauðst. Þá var það eitt sinn að Jónas kom heim til okkar Heiðu, og sagðist þurfa að láta laga til garðinn kringum húsið sitt. Spurði hann mig, hvort ég vildi vinna þar hjá sér í nokkra daga. Tók ég því boði með þökkum, og hóf strax vinnu í garðinum við hús þeirra hjóna, að losa upp grjót og stinga upp mold og slétta og lagfæra það sem þurfti. Var ég í þessu í fimm daga. Nú var það venjulegt, á þessum atvinnuleysisárum, að þeir, sem létu vinna eitthvað fyrir sig, notuðu sér neyð manna, ekki síst ef um kunningja var að ræða, og borguðu þeim miklu minna, en gildandi kauptaxta. Þetta vissi ég vel, og hafði raunar orðið að sætta mig við slíkt stundum. Að loknu starfi mínu hjá Jónasi, greiddi hann mér strax fyrir vinnu mína. Og í stað þess að minnast einu orði á lækkun, eins og ég gat búist við, samkvæmt allri venju, þá borgaði hann mér fyllsta kaup, sem greitt var við þesskonar störf. Ég varð auðvitað ákaflega feginn og þakklátur þess- um góða vinnuveitanda, og þetta drengskaparbragð hans hef ég munað með þakklátum huga ætíð síðan. Þessa tilfinningu skilja nú sjálfsagt ekki aðrir en þeir, sem sjálfir hafa reynt þrengingar at- vinnuleysis, eins og þá var svo algengt. Síðar fluttum við Heiða í Laug- arneshverfið, í næsta nágrenni þeirra Jónasar og Rósu. Voru þá tíðar heimsóknir milli heimila okkar, og góð vinátta milli þeirra kvennanna. Við minnumst með sérstöku þakklæti allra þeirra ánægjulegu jólaboða, sem við Heiða nutum á heimili þeirra hjóna. Þar var allt með miklum myndarbrag og alúð og gestrisni beggja, svo sem best varð á kosið. Ekki voru þau samt rík, það var langt í frá, en Rósa var hagsýn húsmóðir og það var eins og henni tækist ávallt að gera. mikið úr litlu, svo að öðrum gat sýnst svo sem efni væru meiri en raunveru- lega var. Rósa var einstaklega glaðlynd kona og viðfelldin og ég held að hún hafi haft sérstaka ánægju af að taka á móti þeim gestum, sem heimsóttu þau, enda mun oft hafa verið gestkvæmt á heimili þeirra hjóna, og stundum næturgestir norðan úr landi, frá æskustöðvum þeirra beggja. Enda mikil vinátta með frændsemi, sem m.a. kom fram í því að börn þeirra Jónasar og Rósu voru jafnan á Jódísar- stöðum á sumrum, á meðan þau voru ung. Sigurður sonur okkar var á fyrsta ári, er við hjónin fluttumst í Laugarneshverfið, og Rósa lán- aði stundum Auði litlu yngri dóttur sína, sem þá mun hafa verið um sjö ára gömul, til að gæta hans, ef Heiða þurfti að fara eitthvað frá í erindum heimilisins. Var þetta eitt af margri greiða- semi, sem við áttum Rósu að þakka. Við hjónin þökkum Jónasi alla vináttu í okkar garð fyrr og síðar og sendum börnum hans og barna- börnum samúðarkveðjur. Með Jónasi er genginn góður maður og hjartahlýr, sem öllum vildi gera gott. Slíkur maður á vísa góða vist á framlífsslóðum alheimsins, þar sem áður farnir ástvinir eiga heima og hafa undir- búið komu hans til fagurra heim- kynna sinna, þangað, sem leiðir okkar allra munu liggja að lokum. Ingvar Agnarsson. Guðrún Guðmunds- dóttir Glœsistöðum Hinn 20. janúar s.l. andaðist í Landakotsspítala, eftir örstutta legu þar, en langa vanheilsu, Guðrún Guðmundsdóttir, hús- freyja á Glæsistöðum í Vestur- Landeyjum. Það vekur að sjálfsögðu ekki mikla eftirtekt þó öldruð heima- vinnandi húsmóðir, sem helgað hefur heimili sínu allt starf langr- ar ævi, hverfi af sjónarsviði, en samt er það nú svo, að við fráfall slíkrar persónu er brostinn hlekk- ur er tengir fortíð og nútíð saman. Rótgróin myndar- og menningar- heimili voru löngum þeir horn- steinar er þjóðfélagið byggði til- veru sína á. Guðrún var fædd í Sigluvík í V-Landeyjum 24. jan. 1898 og vantaði því aðeins fjóra daga í áttatíu og tvö ár er hún lést. Foreldrar Guðrúnar voru hjónin Guðmundur Gíslason og Sigríður Bjarnadóttir og voru þau af rót- grónum bændaættum á Suður- landi. Foreldrar Guðmundar voru Guðrún Ólafsdóttir frá Álfhólum, ljósmóðir, merk kona á sinni tíð og Gísli Eyjólfsson. En meðal systk- ina Guðmundar voru Jón Gíslason oddviti í Ey í Landeyjum. Sigríður kona Guðmundar var ættuð frá Herdísarvík í Selvogi, dóttir Bjarna Hannessonar oddvita og konu hans Sólveigar Eyjólfsdótt- ur. Þegar Guðrún var um tveggja ára aldur fluttu foreldrar hennar að Glæsistöðum og átti hún ávallt heima þar, eða um 80 ár. Guðrún var elst 11 systkina, eru sex þeirra á lífi, en þau eru Bjarni, Vest- mannaeyjum, Ólafur, Reykjavík, Kristín, Sólvangi, Hafnarfirði, Sigurbjörg, Reykjavík, séra Júlíus, kennari í Kaupmannahöfn, og Guðný, Reykjavík. Látin eru, auk Guðrúnar, Sig- ríður Guðbjörg, Syðri-Úlfsstöðum, Sólveig, Reykjavík, Gísli Kr., skipasmiður í Reykjavík, og Guð- mundur, Kálfsstöðum í V-Land- eyjum. Árið 1916 andast Sigríður á Glæsistöðum frá hópnum sínum, hún var þá aðeins fertug að aldri. Var Guðrún þá 18 ára og kom það í hennar hlut að standa fyrir búi með föður sínum. Það gefur því auga leið að snemma hefur reynt á þrek hennar og stjórnsemi, og fer það ekki á milli mála, að þá einkunn hlýtur hún að leiðarlok- um, að hafa staðið sig með mikl- um ágætum í skóla lífsins. Árið 1927 verða svo þáttaskil í lífi Guðrúnar, en það ár giftist hún eftirlifandi manni sínum, Antoni Þorvarðarsyni frá Klauf í V-Landeyjum. Hófu þau þá bú- skap á Glæsistöðum og bjuggu þar jafnan síðan eða í fimmtíu og tvö og hálft ár. Þeim varð fjögurra sona auðið, en þeir eru, Sigurður, f. 1928, Guðmundur, f. 1929, Krist- inn, f. 1930, og Ástþór, f. 1932. Alla tíð bjuggu þau farsælum búskap á Glæsistöðum, en framan af árum var jörðin nokkuð erfið eins og víða var vegna votlendis. Það sem einkennt hefur Glæsi- staðaheimilið alla tíð er snyrti- mennska bæði utan bæjar o^ innan. Á heimilinu ríkti góður andi enda sambúð hjónanna kær- leiksrík alla tíð. Mjög kært var alla tíð milli Glæsistaðasystkinanna og sterk bönd, tengdu þau saman. Guðrún var mikil trúkona og öllum góð, bæði mönnum og málleysingjum. Hún kunni ógrynni af ljóðum, meðal annars kunni hún Passíu- sálma Hallgríms Péturssonar utan bókar. Hún var heimakær og vann sín störf af kærleiksríkri fórnfýsi. Heimilið var alla tíð frá unga aldri eitt í hennar huga. Hún var föst fyrir í skoðunum en tryggur vinur vina sinna. Mörg síðustu árin átti hún við vanheilsu að stríða, sem hún bar með stöku þolgæði. Og nú er hún horfin sjónum eftir langt og farsælt starf. Hún lifði og hrærðist svo að segja á sama stað alla ævi. Hennar hlutverk var strit og hún skilaði því með mikilli prýði. Háöldruðum eiginmanni, sonum og systkinum eru sendar samúð- arkveðjur. Guðrún var jarðsett frá Akur- eyjarkirkju 2. febrúar s.l. að viðstöddu fjölmenni. Blessuð sé minning mætrar konu. Kunnugur. Afmælis- og minningargreuiar ATHYGLI skal vakin á því, aö afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrir vara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfsformi. Þess skal einnig getið af marggefnu tilefni að frumort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíðum Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera velrituð og með góðu línubili.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.