Morgunblaðið - 13.03.1980, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. MARZ 1980
41
fclk í
fréttum
+ FYRIR nokkru fór hópur vest-
rænna blaðamanna og japanskra
á blaðamannafund inni í frum-
skógum Kambódíu, til fundar við
leiðtoga Rauðu knmeranna,
Khieu Samphan og Ieng Sary.
Fór fundurinn fram í bækistöð
þeirra „einhvers staðar í frum-
skóginum," en þar fara þeir
huldu höfði í baráttunni gegn
innrásarher Vietnama. Myndin
er af Samphan. Er hún tekin af
honum á þessum blaðamnna-
fundi. Fundurinn var um áskor-
un á Vesturlönd, einkum Banda-
ríkin, um að koma Kambódíu-
mönnum til hjálpar í baráttu
þeirra gegn Vietnömum, sem
ekki aðeins væru með hernaði
sínum þar í landvinningastríði,
heldur væri markmiðið einnig að
þurrka út þjóðina. Hefðu Víet-
namar frá því þeir réðust inn í
landið fyrir tveimur árum drepið
rúmlega 2 milljónir manna. „Við
viljum reka óvinina af höndum
okkar, verja land vort og þjóð,“
sagði Khieu Samphan. Hann er
franskmenntaður maður með
doktorsgráðu í hagfræði. Fór
hann hörðum orðum um afskipti
Rússa af málinu og stuðning
þeirra við innrásarherinn og
heimsvaldastefnu þeirra.
þjóð-
hetjunnar
+ MOUNTBATTEN lávarður,
þjóðhetja Breta úr síðustu
heimsstyrjöld lét eftir sig um
5 milljónir sterlingspunda (5
milljarða ísl. kr.), en hann var
sem kunnugt er myrtur af
hefndarverkamönnum ÍRA
sem sprengdu skemmtibát
hans i loft upp í ágústmánuði
í fyrra. Að því er blaðafregnir
frá London herma munu ekki
verða gefnar nánari uppl. um
dánarbú lávarðarins né held-
ur um skiptingu þess. Slíkt
hefur ekki verið venjan þegar
um er að ræða nána ættingja
brezku konungsfjölskyldunn-
ar. Á þetta hafði Elizabeth
drottning II. minnt skipta-
ráðandann í London í sam-
bandi við dánarbú þjóðhetj-
unnar.
Sérstök
gull-
medalía
+ Á VEGUM Bandaríkjaþings
hefur verið slegin sérstök gull
medalía í heiðursskyni við
hinn fræga Vestrabíómynda-
leikara John Wayne. Nánustu
ættingjum hins látna var
haldin veizla í þinghöilinni í
Washington og afhenti hana í
nafni Bandaríkjaþings fjár-
málaráðherrann William
Miller, en veizlustjórar voru
hjónin John Warner öldunga-
deildarþingmaður og kona
hans, Elízabeth Tayior leik-
kona. í gullmedalíuna er þetta
grafið: „John Wayne Banda-
ríkjamaður.“ Sjö börn hins
látna voru við athöfnina og 20
af 21 barnabarni hans.
; i
+ KONAN á myndinni hér að
ofan, Winifred Wagner,
tengdadóttir tónskáldsins
Richard Wagner, heilsar hér
Adolf Hitler foringja Þriðja
ríkisins. Þessi kona er nýlega
látin 82 ára. Hún var reyndar
fædd í Bretlandi, dóttir
blaðamanns og sænskrar leik-
konu. — Þau dóu er hún var
2ja ára. Þá fluttist hún til
fósturforeldra sinna í Berlín.
Hún lézt i heimabæ sinum
Bayreuth. Þar er árlega hald-
in mikil tónlistarhátíð Bay-
reuth-hátiðin. — Hún missti
eiginmann sinn árið 1930.
Hann hafði verið stjórnandi
listahátíðarinnar. Hún tók
það að sér við fráíall hans og
stjórnaði fram til ársins 1944.
Bayreuth-hátíðina leyfðu
Bandarikjamenn að yrði end-
urvakin árið 1951, en með því
skilyrði að frúin kæmi þar
ekki nærri. Hún hafði þá 3
árum áður hlotið skilorðs-
bundinn falgelsisdóm fyrir
stuðning sinn við nazista-
stjórnina. — Tók þá einn
fjögurra sona hennar við
stjórn tónlistarhátiðarinnar.
— Hann dó árið 1966, en þá
tók annar sonur gömlu kon-
unnar við. — Heitir sá Wolf-
gang og er hann enn forstöðu-
maður Bayreuth-tónlistarhá-
tiðarinnar. —
Gamla konan dáði Hitler
alla sina tið og staðfesti það í
heimildarkvikmynd, sem gerð
var í Þýzkalandi árið 1975,
um Hitler. — Ég hef ætíð
greint á milli þess Hitlers sem
ég þekkti persónulega og þess
sem heimurinn fordæmir nú.
— Ég vildi ekki hafa farið
þess á mis að kynnast honum,
sagði hin látna tengdadóttir
Richards Wagner, en Adolí
Hitler dáði mjög verk hans öll.
40 ára afmæli Ey-
firðingafélagsins
Éitt elsta átthagafélag
íslands, Eyfirðingafélagið í
Reykjavík, heldur innan
skamms hátíðlegt 40 ára af-
mæli sitt en það var stofnað
formlega 18. mars 1940 á
fundi í Oddfellowhúsinu í
Reykjavík.
Stjórn félagsins hyggst
halda afmælið hátíðlegt með
myndarlegu afmælishófi í
Súlnasal Hótel Sögu föstu-
dagskvöldið 21. mars n.k. og
verður það jafnfrmt árshátíð
félagsins. Margir gestir _að
norðan munu taka þátt í
hófinu og um leið leggja sitt
hvað af mörkum. Geysis-
kvartettinn kemur frá Akur-
eyri en hann skipa Aðalsteinn
Jónsson, Guðmundur Þor-
steinsson, Birgir Snæbjörns-
son og Sigurður Svanbergsson.
Undirleikari þeirra félaga er
Jakob Tryggvason. Einn söng-
félaganna sr. Birgir Snæ-
björnsson mun flytja ræðu
kvöldsins. Hljómsveit Ingi-
mars Eydals kemur til
Reykjavíkur til að leika fyrir
dansinum en hana skipa, auk
Ingimars, Finnur Eydal, Hel-
ena Eyjólfsdóttir og fleiri
hljóðfæraleikarar. Hófið mun
hefjast kl 19, 21. mars n.k. en
miðasala hefst í næstu viku.
Núverandi formaður Eyfirð-
ingafélagsins er Ásbjörn
Magnússon en formaður
kvennadeildar þess er Stein-
unn Steinsen.
VIÐTALSTIMI
Alþingismanna og
borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins
í Reykjavík
Alþingismenn og borgarfulltrúar Sjálfstasöisflokksins
veröa til viðtals í Valhöll, Háaleitisbraut 1 á laugardögum
fró klukkan 14.00 til 16.00. Er þar tekið ó móti hvers kyns
fyrirspurnum og óbendingum og er öllum borgarbúum
boðið að notfæra sór viötalstíma þessa.
Laugardaginn 15. marz, verða til viötals Magnús L.
Sveinsson og Margrét S. Einarsdóttir, Magnús er í
stjórn verkamannabústaða, atvinnumálanefnd,
umhverfismálaráöi, framkvæmdaráði, stjórn Inn-
kaupastofnunar og Sjúkrasamlagsstjórn. Margrét
er í heilbrigöismálaráöi, jafnréttisnefnd, leikvalla-
nefnd og þjóöhátíöarnefnd.
Leiórétting
á leiðbeiningum við
útfyllingu skattframtals
einstakiinga árið 1980.
Kaflinn með fyrirsögninni „Söluhagnaöur eigna“ og með
undirfyrirsögninni „Söluhagnaður lausafjár" sem birtur var:
í Morgunblaöinu 28. febrúar 1980, bls. 27, 2. og 3. dálkur;
í Tímanum 29. febrúar 1980, bls. 10, 1. og 2. dálkur;
í Vísi 29. febrúar 1980, bls. 10, 1. og 2. dálkur;
í Þjóðviljanum 29. febrúar 1980, bls. 10, 1. og 2. dálkur og
í Dagblaðinu 6. mars 1980, bls. 21, 3. og 4. dálkur oröist
svo:
Hagnaður manns af sölu lausafjár (annars en hlutabréfa og
eignarhluta í samlögum og sameignarfélögum) sem ekki er
notaö í atvinnurekstri eða sjálfstæðri starfsemi telst ekki til
tekna enda geri seljandi líklegt aö sala þess falli ekki undir
atvinnurekstur eöa sjálfstæða starfsemi hans eða að
eignarinnar hafi ekki verið aflað í þeim tilgangi að selja
hana aftur með hagnaði. Uppfylli framteljandi þessi skilyrði
þarf hann ekki að reikna út söluhagnað af þessum eignum.
Uppfylli framteljandi ekki framangreind skilyrði um skatt-
frelsi söluhagnaöar telst söluhagnaðurinn að fullu til
skattsskyldra tekna á söluári án tillits til verðbreytinga og
skiptir þá eigi máli hve lengi maðurinn hefur átt hina seldu
eign. Hagnaöur af sölu þessara eigna telst mismunur á
söluverði þeirra annars vegar að frádregnum sölukostnaði
og stofnveröi (kaupverði aö viöbættum endurbótum) þeirra
hins vegar.
Hagnaður af sölu hlutabréfa og eignarhluta í samlögum og
sameignarfélögum er alltaf skattskyldur á söluári.
Reykjavík, 10. mars 1980.
Ríkisskattstjóri.