Morgunblaðið - 26.03.1980, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. MARZ 1980
frumvarpið: Allur ávinningur síðan 1974
þurrkaður út með einu pennastriki
— segir Björn Þórhallsson formaður LIV
„Verkalýðshreyfingin hefur
oft á tíðum slakað á gagnvart
kauphaekkunum vegna skatta-
tilfærslna, en nú hefur allt, sem
menn telja sig hafa unnið í
þeim efnum frá 1974, verið
þurrkað út með einu penna-
striki í þessu skattstigafrum-
varpi,“ sagði Björn Þórhallsson
formaður Landssambands
verzlunarmanna í samtali við
Mbl. í gær. en Björn á sæti í
sérstakri nefnd, sem ASÍ hefur
sett á fót til að ræða við
stjórnvöld um skattamál.
Björn sagði, að megingallinn
við skattstigafrumvarpið frá
sjónarhóli verkalýðshreyfingar-
innar væri að 50% skattþrepið
næði niður á allt of lágar tekjur
og þar af leiðandi kæmi það við
duglegt verkafólk, sem engan
veginn væri þó hægt að kalla
hátekjufólk. „Það er ekkert á
móti því að setja 50% skattþrep
á þá, sem hafa raunverulegar
hátekjur, en eins og frumvarpið
er úr garði gert, þá er markið of
neðarlega," sagði Björn.
Meðal þeirra, sem í þessari
skattanefnd sitja auk Björns, er
Jóhannes Siggeirsson hagfræð-
ingur ASÍ.
Lyfjagreiðslur
hækka um 35%
— greiðslur aldr-
aðra og öryrkja
lækka um 48%
HEILBRIGÐIS- og trygginga
málaráðherra, Svavar Gestsson,
hefur gefið út nýjar reglugerðir
um greiðslur vegna lyfja, sér-
fræðingaþjónustu lækna og
röntgenmyndatöku frá og með 1.
apríl n.k.. Ilækka gjöldin al-
mennt um 35%, en greiðslur
aldraðra og öryrkja iækka um
48%, sem greiða þá helming þess,
sem aðrir greiða.
Samkvæmt nýju reglugerðinni
greiða aldraðir og öryrkjar 500
krónur fyrir hverja afgreiðslu
samkvæmt lyfjaverðskrá 1 og 1350
krónur samkvæmt lyfjaverðskrá
2, en aðrir greiða 1000 krónur og
2700 krónur. Greiðslur sjúkra-
tryggðra fyrir sérfræðingslæknis-
hjálp, rannsóknir og röntgen-
greiningu hækka úr 2000 krónum í
2700 krónur, en aldraðir og öryrkj-
ar greiða 1350 krónur fyrir þessa
þjónustu.
Greiðslur sjúkratryggðra til
samlagslækna hækka úr 350 í 600
krónur fyrir viðtal á lækninga-
stofu og úr 700 í 1200 krónur fyrir
vitjun.
I frétt heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytisins segir, að
þessi verð hafi síðast breytzt í
apríl 1979 og að hækkunin nú sé
„einvörðungu vegna verðbreyt-
inga“ síðan.
Formannaráðstefna sjómannasamtakanna:
Vonandi náum við
samstöðu um ein-
hverjar aðgerðir
Nefnd kannar
mál farand-
verkafólks
Félagsmálaráðherra hefur
skipað nefnd til þess að kanna
gildandi lög og reglur um kjör og
aðbúnað farandverkafólks, þar
með talið erlent verkafólk hér á
landi, og gera tillögur til úrbóta í
þejm efnum.
í nefndinni eru Arnmundur
Backman, hdl, formaður nefndar-
innar, Jósef Kristjánsson, starfs-
maður Baráttuhóps farandverka-
fólks, Ásmundur Stefánsson,
framkvæmdastjóri ASÍ, Þorsteinn
Pálsson, framkvæmdastjóri VSI,
Jón S. Ölafsson, skrifstofustjóri í
félagsmálaráðuneytinu og Ingi-
mar Sigurðsson, deildarstjóri í
heilbrigðisráðuneytinu.
Nefndin skili áliti innan þriggja
mánaða segir í frétt félagsmála-
ráðuneytisins.
Undanþága til
að veiða loðnu
í þurrkun
TVÖ loðnuskip, Seley og Þórsham-
ar, hafa fengið undanþágu til þess
að veiða loðnu til þurrkunar. Fær
hvort skip að veiða 600 tonn eða
samtals 1200 tonn. x Loðnan er
þurrkuð að Reykhólum í Hvera-
gerði.
— segir Ingólfur Falsson, formaður
Farmanna- og fiskimannasambandsins
„ÉG vona svo sannarlega að
okkur takizt að ná samstöðu um
einhverjar aðgerðir. Án þess væri
alveg eins gott að sitja heima,“
sagði Ingólfur Falsson formaður
Farmanna- og fiskimannasam-
bands íslands, er Mbl. spurði
hann í gærkvöldi, hvort for-
mannaráðstefna sambandsins og
Sjómannasambands íslands i dag
væri haldin til að ákveða aðgerð-
ir til að þrýsta á fiskverðsákvörð-
un. Mbl. spurði Ingólf, hvaða
aðgerðir kæmu til greina að hans
dómi, en hann kvaðst ekki vilja
svara slíkri spurningu þá.
Ráðstefnan hefst að Hótel Sögu
klukkan 14 í dag og sitja hana
formenn aðildarfélaga samband-
anna og stjórnir þeirra. Ingólfur
Ingólfsson fulltrúi sjómanna í
yfirnefnd verðlagsráðs sjávarút-
vegsins mun skýra stöðu mála í
yfirnefndinni og síðan verða al-
mennar umræður.
Aukin skattheimta telst
ekki uppsafnaður vandi
— segir Þorsteinn Pálsson fulltrúi í verðlagsráði
„RAÐHERRUNUM gerir bæði
sárt og að klæja. Þeir ákveða
niðurtalningu verðlags, en taka
það ekki hátíðiegar en svo, að
þegar þá klæjar í meiri skattpen-
Hafréttarráðstefnan í New York:
Æ’
Fundur Islendinga, Fær-
eyinga og Dana i gær
„VIÐ íslendingarnir áttum i dag
viðræður við fulltrúa Færeyinga
og Dana um hafsbotnssvæðið
suður af íslandi og við búumst
við að hitta írsku fulltrúana að
máli á morgun,“ sagði Eyjólfur
Konráð Jónsson fulltrúi á
Hafréttarráðstefnunni í New
York í samtali við Mbl. í gær-
kvöldi.
„Á fundinum í dag bentum við
á ályktun Alþingis frá 22. des-
ember 1978 og nefndum þá hug-
mynd, að Islendingar, Færey-
ingar, Irar og Bretar reyndu
samninga um allt Rockall-svæðið.
Kæmi þá annaðhvort til greina
skipting svæðisins eða sameigin-
leg yfirráð og hagnýting þessara
íslenzku full-
trúarnir hitta
fulltrúa
íra á morgun
fjögurra þjóða á þessu umtalaða
svæði.
Færeyingar halda að sjálf-
sögðu fast fram sínum rétti, sem
þeir byggja á því, að „færeyska
hásléttan" sem þeir vilja nefna
hið sokkna land sé eðlilegt fram-
hald Færeyja og undirstrika þau
rök, sem við höfum bent á, að
þetta hafsbotnssvæði geti undir
engum kringumstæðum talizt
eðlilegt framhald Irlands og
Bretlands.
Enginn veit raunar enn hvern-
ig ýmis hugtök, sem hér ber hvað
hæst, verða endanlega skilgreind
og þess vegna má segja, að mikil
óvissa ríki enn um það, hvernig
skipting hafsbotnsins muni verða
utan 200 mílnanna, en væntan-
lega verða 150 mílna mörk, eða
samtals 350 mílur frá grunnlínu,
það takmark, sem lengst verður
náð.
Nú er gert ráð fyrir því, að
endurskoðaður texti verði lagður
fram síðasta dag þessa fundar
ráðstefnunnar, sem verður á
föstudaginn í næstu viku. Málum
miðar heldur hægt áleiðis, en þó
eru tíðir fundir í ýmsum nefndum
og starfshópum," sagði Eyjólfur
Konráð Jónsson.
ing, þá undanþiggja þeir sjálfa
sig frá reglunum.“ sagði Þor-
steinn Pálsson fulltrúi í verðlags-
ráði í samtali við Mbl. í gær um
hækkun bensínverðs. „Það er ekki
hægt að fallast á það að skatta-
hækkun sé uppsafnaður vandi i
þessu tilliti. Á það er að líta, að
fjárlög hafa ekki verið afgreidd
og útgjöld ríkisins þvi óákveðin
og aukin skattheimta getur þess
vegna ekki talizt uppsafnaður
vandi.
Þá verður að hafa í huga að í
verðlagsráði var ekki fallist á að
taka eðlilegt tillit til sannanlegs
uppsafnaðs vanda olíufélaganna
um leið og ríkissjóður tekur allt
sitt á þurru landi. Að mínu mati
eru þetta forkastanleg vinnubrögð
og mjög alvarlegt ef þessi verð-
lagsstefna ríkisstjórnarinnar á að
koma niður á atvinnufyrirtækjum.
meðan stjórnin sjálf undanskilur
sig þeim reglum sem hún setur.
Jafnframt er ástæða til að taka
fram, að þessi bensínhækkun er að
uppistöðu til vegna skattahækkana
ekki nema minni hluti hennar sem
kemur til vegna erlendra verð-
hækkana og því eru ummæli við-
skiptaráðherra í sjónvarpi í kvöld
um þetta efni mjög villandi,“ sagði
Þorsteinn Pálsson.
Hannes Jónsson
Doktor frá
Vínarháskóla
HANNES Jónsson, sendiherra í
Moskvu, varði doktorsritgerð sína
um áhrif íslenzkrar fiskveiði- og
utanrikisstefnu á hafréttarmál við
Vinarháskóla 12. marz sl. og var
hann í gær, ásamt 24 öðrum dokt-
orsefnum, sæmdur doktorstitli frá
Vinarháskóla.
í frétt, sem utanríkisráðuneytinu
barst um doktorsvörn Hannesar,
segir að doktorsritgerð hans hafi
fengið mjög góða umsögn þeirra, sem
hana dæmdu, og einnig hafi Hannes
komist mjög vel frá munnlegum
hluta doktorsvarnarinnar.