Morgunblaðið - 26.03.1980, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 26.03.1980, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. MARZ 1980 Sigríkur Sigríksson Akranesi — Minning Fæddur 18. ágúst 1900. Dáinn 17. mars 1980. Sigríkur lést mánudaginn 17. mars á borgarspítalanum í Reykjavík eftir skamma dvöl þar og áður á Sjúkrahúsi Akraness. Sigríkur var fæddur á Krossi í Innri-Akraneshreppi og ólst upp þar í hreppi, og reyndar mun hann alla tíð hafa átt heima á Akranesi, ef það er í víðri merkingu skilið. Hann ólst upp í fátækt í 12 systkina hópi og misst föður sinn á barnsaldri, svo kröpp hljóta kjörin að hafa verið á þeim árum. Hann stundaði landvinnu fyrst'u árin, en rúmlega tvítugur fór hann að stunda sjó og var lengst af á fiskibátum, en einnig á togurum og öðrum skipum, svo sem „Fagra- nesinu", sem var í fólksflutningum milli Akraness og Reykjavíkur. Hann var oft stýrimaður en skip- stjóri ekki nema eina vertíð. Sjóinn stundaði hann, þar til hann hóf störf við Sementsverk- smiðju ríkisins árið 1957 og vann þar næstu nítján árin eða þar til hann lét endanlega af störfum árið 1976, og var hann þá við góða heilsu, en úr því fór heilsu hans mjög að hraka, og leit svo út sem atvinnu- og aðgerðaleysið hefði átt þar drjúgan þátt í. Sigríkur var mikill félagsmaður og oftast í forystusveit. Hann var stofnandi Verkalýðsfélagsins á Akranesi árið 1924, og þegar sjómannadeild var stofnuð við það félag 1931, var hann í fyrstu stjórn hennar og svo var til 1960, en formaður hennar var hann í 14 ár. Hann var um tíma í stjórn Sjómannasambands íslands og oft var hann fulltrúi á þingum Al- þýðusambands íslands. Einnig var hann mjög oft í samninganefndum um kaup og kjör sjómanna. í Alþýðuflokksfélaginu var hann alla tíð frá því að það var stofnað, og á þeim vettvangi kynntist ég Sigríki fyrst í hófi félaga á Siglufirði sumarið 1947, en þá var hann á síldveiðum en ég vann við síldarbræðslu. Eftir að ég kom til Akraness rúmum ára- tug síðar endurnýjaðist þessi fé- lagsskapur okkar. Eftir að Sigríkur hóf störf í Sementsverksmiðjunni, varð hann vitanlega virkur félagi í starfs- mannafélagi verksmiðjunnar, og í 2 ár var hann formaður þess félags. Einnig var hann í ýmsum + EÐVARÐ BLÓMQUIST HELGASON lést þann 24. marz. Börn, tengdabörn og barnabörn. Móöir okkar LUISE WENDEL, lædd Rickert, Sörlaskjóli 26 lést þann 24. marz í Borgarspítalanum. Adolf Wendel, Ragna Wendel, Svanhild Wendel, Kristjén Wendel. t Föðurbróöir minn, STEINGRÍMUR MATTHÍASSON, loftskeytamaöur fré Holti, Skólavöröurstíg 22c, lést 25. marz. Fyrir hönd vandamanna, Skúli Matthíasson. t Móöir mín, tengdamóðir og amma okkar, SYLVÍA HANSDÓTTIR, fré Vestmannaeyjum, verður jarösett frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 27. marz kl. 10.30. Svanur Kristjénsson, Álfhildur Kristjénsdóttir og börn. t Maðurinn minn, faöir, tengdafaðir og sonur, GUNNAR BJARNASON, fré öndverðarnesi, Ásgaröi 9, veröur jarösunginn frá Bústaöakirkju föstudaginn 28. marz kl. 1.30 e.h. María Árnadóttir, Anna Gunnarsdóttir, Þréinn Tryggvason, Jón Kristinn Gunnarsson, Kristrún Pétursdóttir, Kristín Halldórsdóttir. t Faöir okkar, SIGRÍKUR SIGRÍKSSON, Akranesi, veröur jarösunginn frá Akraneskirkju miövikudaginn 26. marz kl. 14.30. Þeim, sem vildu minnast hans, er vinsamlega bent á Dvalarheimiliö Höföa, Akranesi. Béra Sigríksdóttir, Ingibjörg Sigríksdóttir, Hreggviöur Sigríksson. nefndum þess félags og oft for- maður þeirra, svo sem öryggis- nefndar, sumarbúðanefndar og spilanefndar, og keppti hann oft í bridge fyrir verksmiðju sína gegn öðrum verksmiðjum. Hann var stofnandi Stangveiðifélags Akra- ness, og einnig var hann félagi í Frímúrarastúkunni hér á Akra- nesi. Þessi upptalning á félags- málastarfsemi Sigríks er vafa- laust ekki tæmandi enda skiptir það ekki öllu máli, heldur sýnir hún eingöngu dálitla mynd af því, hversu mikilvirkur félagsmála- maður Sigríkur var. Hann var mjög snjall fundar- maður, harður ræðumaður og bráðfyndinn, og var ekki frítt við, að sumum sviði undan skeytum hans. Hann var fljótur til svars og stundum óvæginn. Eins og margir greindir menn fyrri kynslóða var Sigríkur vel fær í þeirri þjóðaríþrótt Islendinga að yrkja stökur, en því miður kannég ekki frá miklu að segja í þeim efnum, en þó eru hér aðeins sýnishorn: Lifið má við likja orm laginn jarðveg kanna. eða bjðrk sem berst við storm á bakka freistinganna. Vinur Sigríks greiddi honum fjargjald með „Fagranesinu", sem þá var 2 krónur, og skaut að honum vísuparti: Keypti ég fyrir krónur tvær kuída og slagvatnsfýlu. En Sigríkur var fljótur til svars að vanda og botnaði vísuna þann- ig: Frekt er logið fyrir þær, fórstu á tólftu mílu. Sennilega er það síðasta trúnað- arstarfið sem Sigríki var falið, þegar hann var árið 1971 skipaður í undirbúnings- og byggingar- nefnd dvalarheimilis aldraðra. Hann gegndi því starfi með miklum áhuga og dugnaði og var ótrauður við að ýta á okkur hin, ef honum fannst við vera full hæg- geng. Hann tók síðan fyrstu skóflu- stungu að því heimili árið 1972 og síðan varð hann einn fyrstu vist- manna, sem þangað fluttu fyrir nær því réttum tveimur árum. En sem dæmi upp á einlægni Sigríks í því máli má geta þess, að hann átti íbúð sem hann gaf dvalar- heimilinu, þegar hann flutti þang- að inn. Það er kvöldfagurt á Sólmund- arhöfða, hvort sem rauðgullin sólin sést við sjávarbrún út af Faxaflóanum eða hefur flotið yfir Snæfellsjökul og hverfur í aftan- eldi bak við fjallgarðinn. Eins er tilkomumikið að sjá vellandi brimið við Langasand í útsynningsrosa, hvort sem kvöld- sólin fyllir það eða ekki. Þarna stendur Dvalarheimilið Höfði og þar naut Sigríkur ævikvölds síns við útsýn yfir æskustöðvarnar á Innnesinu, hafði sem svo lengi var starfsvettvangur hans, Akranes- höfn og Sementsverksmiðjuna. Þarna leit hann starfsdag lífs síns svo til í einni sjónhending, og ég veit, að þarna leið Sigríki vel, og hann naut þar skammrar hvíldar eftir erilsaman dag. Alþýðan á Akranesi á nú á bak að sjá einum af stórbrotnustu félögum sínum, en lengi mun minning hans lifa. Þessar línur eru kveðja mín og Alþýðuflokksmanna á Akranesi til látins félaga okkar, Sigríks Sig- ríkssonar. Bragi Níelsson Hann var ósvikinn Innnesingur og Akurnesingur. Fæddur á Krossi og þar ólst hann upp með foreldrum sínum og systkinum, uns faðir hans dó og móðir hans ásamt systkinunum sem enn voru heima fluttist að Hjallhúsi á Akranesi, sem stóð á svipuðum slóðum og nú stendur Trésmiðjan Akur. Sigríkur var næst elstur systkina sinna og byrjaði snemma að vinna heimilinu sem var barn- margt og fátækt. Hann stundaði vinnu á sjó og landi innan frá Krossi áður en þau fluttust í Hjallhús og trúað gæti ég að stundum hafi þreyttur drengur labbað Langasandinn og inn að Krossi þegar lokið var sjóferð og fiskaðgerð niðri í bæ. Hann kvæntist ungur stúlku úr sveitinni, Elku Aradóttur frá Sól- mundarhöfða, og eignuðust þau saman tvö börn, Báru og Hreggvið sem bæði eru búsett í Reykjavík. Sambúð þeirra varð stutt, þau slitu samvistir. Síðar eignaðist hann dóttur, Ingibjörgu, sem einn- ig er búsett í Reykjavík. Sigríkur gerðist snemma sjó- maður og stundaði sjó á bátum og skipum frá Akranesi uns hann nokkru fyrir 1960 hætti á sjónum + Þökkum innilega öllum þeim er hafa sýnt okkur samúö og vináttu, viö andlát og útför BOGA Ó. SIGURÐSSONAR. Sigurlaug Eggertsdóttir, Svanhildur Jónsdóttir, Birgir Bogason, Þórhildur Krístjénsdóttir, Eggert Bogason, Elín Jóhannesdóttir, Péll Samúelsson og barnabörn. + Þökkum innilega veltta samúö viö fráfall föður okkar, stjúpfööur, tengdafööur, afa og langafa, ODDSTEINS GÍSLASONAR, Efstasundi 13. ^ Innilegar þakkir tfl hjúkrunarfólks Borgarspítalans og til Kristínar og Vilborgar á DAS. Börn, stjúpdóttir, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför móöur okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu, GUÐRÚNAR SVEINSDÓTTUR, fré Hvammstanga. Sigríöur Þóröardóttir, Debóra Þóröardóttir, Þuríöur Þóröardóttír, Sveinn Þóróarson, ÞórMagnússon, Karvel Sigurgeirsson, Ásvaldur Bjarnason, Þórunn Helgadóttir, María Heiödal, barnabörn og barnabarnabörn. og gerðist starfsmaður í Sements- verksmiðjunni þegar byggingar hennar þyrjuðu að rísa og þar vann hann síðan óslitið þar til heilsa og aldur leyfðu ekki lengri vinnudag. Þegar Verkalýðsfélag Akraness var stofnað 1924 varð hann einn af stofnendum þess og síðar þegar félagið varð deildaskipt varð hann strax einn af forystumönnum Sjó- mannadeildarinnar. Síðan verður hann formaður Sjómannadeildar og er hann fyrst kosinn í það starf 1939. í bókum félagsins sést að með smáhvíldum er hann oftast formaður en þó ævinlega í stjórn til ársins 1960 að hann lætur af formennsku, enda þá hættur að stunda sjóinn og orðinn starfs- maður í Sementsverksmiðjunni eins og áður segir og þar hélt hann áfram störfum fyrir vinnufélaga sína, var um margra ára skeið ' trúnaðarmaður verkamanna og í forystu í félagsmálum vinnu- staðarins. Okkur sem höfum átt samleið með Sigríki Sigríkssyni í Verka- lýðsfélagi Akraness um áratugi, verður hann æ minnisstæður. Dökkur á brún og brá, snarlegur og dálítið harður í augum. Hann var ófeiminn að segja meiningu sína og ófeiminn a segja okkur hinum til syndanna ef honum líkuðu ekki vinnubrögðin. En ævinlega vissum við að það var gert vegna þess að honum þótti vænt um okkur og hann vildi veg félagsins sem mestan og bestan. Hann tók mikinn þátt í og leiddi samningamál sjómanna hér heima á árum áður, þegar ævin- lega var samið árlega um kaup og kjör fyrir hverja vetrarvertíð og síðan fyrir síldar- og sumarvertíð. Þegar Sjómannasamband íslands var stofnað gekk Sjómannadeild Verkalýðsfél. Akraness til sam- starfs og var Sigríkur þá formað- ur í deildinni og hvatti mjög til skipulegra samstarfs sjómanna en áður hafði verið. Hann var heiðursfélagi í Verka- lýðsfélaginu og var vel að þeirri virðingu kominn. Á seinni árum þegar Sigríkur var farinn að minnka við sig vinnu átti hann oft leið um á skrifstofu Verkalýðsfélagsins og leit þá jafn- an inn og ræddi málin. Sagði eitthvað skemmtilegt við okkur sem stóðum þar í daglega þrasinu, skammaði okkur stundum ef hon- um líkaði ekki hvernig við tókum á málum, fór með vísur fyrir okkur, því hann var hagorður sjálfur og hafði gaman af ljóðum og staldraði við dálitla stund. En einhvern tíma hafði einhver fundið upp á því að koma með pönukökur, kleinur eða jafnvel tertu og bjóða upp á þetta góðgæti með kaffi þegar buið var að loka skrifstofunni og kölluðum við þetta að halda afmæli. Á vissu árabili var oft haldið afmæli á skrifstofunni að loknum starfs- degi, farið með gamanmál, haldn- ar ræður fyrir minni ímyndaðs afmælisbarns í gamansömum stíl, farið með ljóð og stökur, skemmti- leg smástund áður en farið var heim. Ef einhver tími leið, sem ekki var hist á þennan hátt var Sigríkur til með að líta inn og segja: Á ekki að fara að halda afmæli, eruð þið kannski hætt að nenna að halda afmæli. En afmæl- unum smá fækkaði. Góðir afmæl- isgestir höfðu horfið yfir móðuna miklu og margt tekið breytingum. Og eftir að hann flutti úr ná- grenninu og inná Dvalarheimili fækkaði þeim þó allverulega. Þó kom fyrir að efnt var til afmælis, einhver ók inn á Höfða og sótti Sigrík meðan kaffið vár hitað og síðan var sest að kaffidrykkju og gamanmálum. En þrekið og fjörið hafði minnkað á síðustu misserum og fyrir nokkru þegar ráðgert hafði verið að efna til afmælis fréttist að Sigríkur hefði verið fluttur á sjúkrahús þar sem hann andaðist 17. þ.m. Ekkert afmæli var haldið og máske er þeirra tími líka liðinn ásamt félaga okkar og vini. Þegar fyrir lá ákvörðun bæjar- yfirvalda á Akranesi árið 1970 um að hefja byggingu Dvalarheimilis fyrir aldraða, var Sigríkur enn vel ern og hress, enda valdist hann í

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.