Morgunblaðið - 26.03.1980, Síða 27

Morgunblaðið - 26.03.1980, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. MARZ 1980 27 Fundur Norræna félagsins í Hafnarfirði Norræna félagið í Hafnarfirði heldur almennan félagsfund í Gafl-inum við Reykjanesbraut í kvöld og hefst hann kl. 20.30. Á fundinum flytur dr. Gylfi Þ. Gíslason prófessor ræðu um nor- ræn málefni og Ingveldur Hjalte- sted óperusöngvari syngur við undirleik Jónínu Gísladóttur. Gylfi Þ. Gislason Félagsmenn eru hvattir til þess að fjölmenna og er þeim heimilt að taka með sér gesti. Ferðamálin munu skapa aukin atvinnutækifæri Á FUNDI samtaka ferða- málaráða 23 Evrópuríkja var samþykkt yfirlýsing um ferðafrelsi, „Freedom to travel“. Á vetrarfundi samtakanna sem haldinn var í Portúgal fyrir skömmu var ákveðið að kynna þessa yfirlýsingu sérstaklega stjórnvöldum. Hér fara á eftir nokkrir kaflar úr yfirlýsingunni: Vér trúum því að ferðalög séu mikilvægur þáttur mannlegs frelsis, að meðfædd löngun mannkynsins til ferðafrelsis hafi nú öðlast alþjóðaviðurkenningu sem sjálfsögð réttindi með mannréttindayfirlýsingu SÞ, með ályktun ráðstefnu Samein- uðu þjóðanna um alþjóða ferða- lög og ferðamál frá 1976 og með endurteknum yfirlýsingum margra þjóðhöfðingja. að ferðamálin munu vera ómiss- andi þáttur í því að skapa aukin atvinnutækifæri — þar sem efnahagslíf heimsins óhjákv- æmilega fjarlægist því að vera háð frumhráefnisöflun og þróuð- um iðnaði og þjónustugreinarnar öðlast meira og meira gildi, svo og breytingar þær sem ný tækni- öld hefur í för með sér. EF ÞAÐ ER FRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU Skipulags- mál á Há- skólasvæðinu Á FUNDI hagsmunanefndar Stúdentaráðs Háskóla íslands. er haldinn var 10. marz. sl., var samþykkt ályktun varðandi skipulagsmál á Háskólasvæðinu. t ályktuninni eru átalin þau vinnubrögð sem verið hafa í skipulagsmálum á svæði Háskól- ans á undanförnum árum. Er átalið, að einum aðila sé fengið það verkefni að skipuleggja svæðið svo að segja án forsendna, eins og segir í ályktuninni. Væri eðlilegra að kanna áður þarfir einstakra deilda og námsbrauta og meta aukna þörf þeirra fyrir húsnæði og aðstöðu í framtíðinni. Einnig er gagnrýnt, eins og segir ennfremur í ályktuninni, að verið sé að skipuleggja Háskóla- svæðið sem séreinangruð fyrir- bæri og án tengsla við nánasta umhverfi sitt. Þeim tilmælum er beint til skipulagsnefndar Há- skólasvæðisins, að efnt verði til samkeppni um skipulag svæðisins. Kökubasar vorboðans ÁRLEGA, laugardaginn fyrir pálmasunnudag, efnir Vorboð- inn í Hafnarfirði til kökubas- ars og hefur hann ávallt verið vel þeginn og vel sóttur af Hafnfirðingum. Kökubasarinn verður nú í Sjálfstæðishúsinu kl. 2 á laug- ardag og er þar á boðstólum mikið úrval af kökum og sæl- gæti. Eru félagskonur, sem vilja gefa kökur, beðnar um að koma þeim í Sjálfstæðishúsið sama dag. Verzlunarskólakórinn 40—50 nemendur Verzlunarskólans koma auk hljóófæraleikara í Hollywood í kvöld og syngja nokkur létt og skemmtileg lög undir stjórn Jóns K. Cortes. a..i# ..sju ÞAU ERU KOMIIM ITT HEIMILISTÆKIN GLÆSILEGIR ÍSSKÁPAR Þér getið valið um ísskápa, stóra og smá, forðabúr fjölskyldunnar, köllum við þá vegna þess hversu vel rýmið er notað og miklu er hægt að koma í skápana, (en það fer auðvitað eftir stærð). ÞV OTTAVÉLAR OG ÞURRKARAR ITT þvottavélin er búin ýmsum þægindum. Spamaðarrofa, 15 þvotta- kerfum, sérstakt ullarkerfi, bamalæsing og fleira. ELDAVÉLAR NÝTTÚTLIT ITT eldavélar em búnar þeirri nýjung að hita endurkast er í hurðinni þannig að glerið helst hreint og gegnsætt. Hitinn verður stöðugri í ofninum auk þess að spara rafmagn. Fáanlegar í 4 litum. Bræóraborgarstig1-Simi 20080 (Gengiö inn frá Vesturgötu)

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.